Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 07.05.1955, Qupperneq 8

Frjáls þjóð - 07.05.1955, Qupperneq 8
8 frjAls þjóð Laugardaginn 7. maí 1955 L>and or/ [tjjóii íá einhunn hjjá m.verndurunum“: íslendingarnir" og fábjánar ,.Bölvuð eyjan“ hrúga af hraungrýti Bandarísku herménnirnir komu til eyjarinnar Islaríds vonglaðir og elskulegir í viðmóti, eins og bandarískum her- mönnum er títt, hvaða loftslag sem þeim er svo ætlað að búa við. Þeir fylltu vasa sína af sígarettum, súkkulaði og tuggugúmí, og með þessu töldu þeir sig geta unnið ást unglinganna og samlagazt íbúum eyjarinnar. Þessi orð standa í grein, sem fyrir nokkru birtist í banda- rísku tímariti, og er hún skrif- uð af manni, er nýlega hefur haft tal af bandai'ískum her- manni, er hefur setu á Kefla- víkurflugvelli. — Það má sjá þegar í upphafi greinarinnar, sð beita hermannanna, sígar- ettur og tuggugúm, hefur ekki ge£izt vel á íslandi: „Ungur bandarískur flug- liði, bálvondur eftir ófarir sinar í skyndiferð til Reykjavíkur, hinnar eyði- legu höfuðborgar íslands túlkaði beizklega vaxandi gremju sína yfir því, hvernig hermennirnir eru þrúgaðir á þessari bölvuðu eyju.“ lllt er Iandið. Greinarhöfundur hrósar flugliðanum fyrir gáfur. En lýsing hans á íslandi er meðal annars á þessa leið: „Bandaríkjamenn eru ekki á íslandi vegna þess, að þeim falli Ioftslagið vel í geð eða þeir vilji njóta náttúrufegurðar þessarar hrúgu af hraungrýti.“ Keflavíkurflugvöllur er sveipaður þoku, sem magnar hið kalda rökkur, og þar er ekkert nema tveir klúbbar liðs- foringja og óbreyttra dáta með börum og fjárhættuspilaköss- um, íþróttahús og kvikmynda- hús og dansleikir á föstudögum og laugardögum. Verrí er þjóðin. En stúlkurnar fullnægja ekki eftirspurninni, því að íslenzkir fábjánar og fantar hræða þær frá hermönnunum. Það félags- líf, sem Reykjavík ætti að geta boðið, er ekki greitt aðgöngu. „Þegar þeir komu til Reykja- vík, flykktust um göturnar, fjölmenntu í kvikmyndahús eða settust að í veitingahúsum borgarinnar, létu íslendingar þá brátt finna, að þeir voru óvelkomnir." Hermennirnir voru stilltir, reifir og ástúðlegir, en ís- lenzki andinn var svalur eins og stormurinn af Faxa- flóa. „Menntainenn reyndu ekki að koma á vingjarnlegu sambandi á milli innfædda fólksins og komumannanna. Bandaríkjamönnunum var tekið með þögn og síðar óduldum fjandskap.“ Hinn gáfaði flugliði segir: „Við erum ofsóttir, gerðir að athlægi og lítilsvirtir og með okkur farið eins og líkþráa menn.“ Sagt er, að bandarískt setu- lið eigi hvarvetna vaxandi andúð að mæta í hersetnum löndum, en hvergi -sem á ís- landi. „Hermennirnir, sem þar eru, sæta móðgunum og auð- mýkingum, og þeir verða fyrir skæðu spotti og bleyðimann- legum árásum.“ Hópar ungra fanta réðust á bandaríska borg- ara, er komu til Reykjavikur. Og greindi flugliðinn segir: „Ef þessir bölvuðu fslend- ingar ímynda sér, að þeir geti Ieikið okkur eins og tukthúslimi og þó ætlazt til þess, að við berjumst fyrir þessa fangaverði okkar í stríði, þá eru beir hringavit- lausir.“ Stjórnarvöldin eru huglaus. Ekki tekur betra við, þegar farið er að lýsa stjórnarvöld- unum á íslandi: Stjómarvöldin eru á bandi Bandaríkjamanna, en þau þora ekki annað en sveigja undan fyrir föntunum og fíflunum, óvinum Bandaríkjanna. „Hinn einlægi vinur Bandaríkjanna,“ dr. Kristinn Guðmundsson, viðurkenndi þetta í yfirlýsingu: „Maður heyrir því einnig fleygt,“ sagði hann, „að Bandaríkjamenn séu hér ekki til þess að verja ísland, heldur til að verja sitt eigið land. Um þetta er rætt, og það er tilgangslaust að kannast ekki við það.“ Fram komu á þingi tillögur, sem þó voru felldar, en „ríkis- stjórhin fylgdi samt ekki sigr- inum eftir, heldur viðurkenndi það ástand, sem væri orsök kvartananna.“ Þannig á bandaríska setu- liðið ekki aðeins í höggi við menntamennina, fábjánana og fantana, heldur eru „liinir ein- lægu vinir,“ sjáK stjórnarvöld- in, svo hugblauð, að bau þora ekki'að tjá vináttu sína eins og vert væri! Það er vitnisburður flugliðans og hins bandaríska tímarits. Mimið skuldabréf Frjálsr- ar þjóðar, áskriftargjöld og félagsgjöld. — Gjaldkeri flokksins er til viðtals að Skólavörðustíg 17 klukkan 3—5 alla laugardaga. 1/tfWWVWUWVVVVtfWWWVWWW^AWWWVWVVWVVWV li'tið fréttablað Laugardaffínn í 3. viku swnars. Tótnasairhagi Fyrir alllöngu skrif- aöi mikill vinur Ham- Utonfélagsins um þaö greinar, aö Keflavík- urvöllur væri langt og leiöinlegt nafn og þyrfti þar fegurri og liprari nafngift. Til- lögur þessa rnanns um endurskírn vallarins munu fallnar í gleymsku, en hins vegar hefur orðhagur almenningur smíðað og tileinkaö sér nýtt nafn á hann. Þetta nafn er Tóm- asarhagi. Almanna- rómur segir, aö það hafi meöal annars það sér til ágætis, að þetta sé sannnefni hið mesta, því að Tómas sá, sem nafnið er dreg- ið af, er enginn annar en Tómas Árnason, fulltrúi dr. Kristins. Sýna öll merki, aö hann hefur komizt í gott haglendi þar syðra. Að vísu er Tómasarhagi hinn nýi Smygt Smyglaðar vörur eru sífellt á boðstól- um. Samtök iðnrek- enda eru látlaust að skora á stjórnarvöld- in að láta þetta til sín taka. En það virðist lítinn árangur bera. Siðasta ársþing Fé- lags íslenzkra iðnrek- enda itrekaði kæru- málin. En litlar sögur íara af viðbrögðum Mjórnarvalda. ekki „algrænn á eyði- söndum", og þó „einn til fróunar,‘. En ein- hvers staðar í fjarsk- anum er sú saknaðar- stund, er sagt verður: „Aldrei ríður hann oft- ar upp í fjallhagann sinn.“ Ffárbóii Sagt er, að for- sprakkar Alþýðu- flokksins hafi að und- anförnu verið á hött- unum eftir erlendu fé til styrktar Al- þýðublaðinu. 7. kosningar Nú hillir undir nýjar kosningar í Kópavogi- Samkvæmt hinum nýju lögum um Kópavogskaupstað á að kjósa þar bæj- arstjórn hið bráðasta. Verður það þá í sjö- unda skipti, að Kópa-. vogsbúar ganga að kjörborði á þremur árum. Þar hafa verið síðan 1952 forseta- kosningar, prestskosn- ingar, þingkosningar, tvennar hreppsnefnd- arkosningar og loks atkvæðagreiðsla um sameiningu við Reykjavík og kaup- staðarréttindi. minnimg Lineoins 1 vor var haldin veizla i Miami á Flór- ídaströnd til minning- ar um Abraham Lin- coln, er leysti blökku- fólkið úr ánauð. — Veizlan fór prýðilega fram, en litils háttar skugga varpaði það á hátíðahaldið, að eig- andi veitingahússins rak á dyr þrettán veizlugesti — blökku- menn! Þeir máttu ekki sjást innan dyra. 150 hvítir menn gengu brott úr veizlunni í mótmælaskyni, en borrinn sat eftir og skálaði fyrir minn- ingpi Lincolns. Meðal þeirra, sem gengu brott, var sjálf- ur veizlustjó*nn, repúblikaúnn Wesley E. Garrison. — Eig- andi veitingahússins er demókrati. ( Klakksvík - Kópavopr 1 útvarpsþætti Sveins Ásgeirssonar, Já eða »ei, síðastlið- ið miðríkudagskvöld kom fram í rímuðu máli sú tillaga, að komið yiði á vinabæjarsambandi Klakksvikur og Kópa- vogs. Væri þá góð byrjun, að Haivorsen læknir, sem kvað vera væntanlegur til Is- lands, legði hendur yfir helztu stríðs- kempumar i Kópa- vogi. Orðahelgur Stjarna stjörnu fegri í sömu viku og dómur féll i héraði i hinu mikla fjárglæframáli Olíufélags SÍS, var þáverandi for- stjóri Sambandsins, Vilhjálmur Þór, sæmdur stórriddarakrossi liinnar íslenzkti fálkaorðu með stjörnu. Kom sér. þá vel sem oft- ar, að orðan er helguð ránfugli. Nú hefur hæstiréttur staðfest dóminn, og bíða menn þess því með eftirvæntingu, að staðfest verði hin fyrri orðuveiting — þó að ekki væri nema með einni stjörnu til viðbótar. blaða Bandaríkjanna beittu sér gegn kosningu iians. Fróðlegt er að atliuga, hvern- ig ])etta horfir við hér á iandi. Árið fyrir siðustu kosning- ar í Reykjavik var vikulegur ijlaðakostur flokkanna i bænum sem hér segir: Alþýðuflokkur 48 síðúr, Framsóknarflokkur 48 síð- ur, Sósíalistaflokkur 72 síður, Sjálfstæðisflokkúr 144 siður og' Þjóðvarnarflokkur 4 siður. Sé deilt með þessum tölum í at- kvæðatölur flokkanna í bæjar- stjórnarkosningunum, kemur i ljós, að þeir hafa fengið atkvæði á hverja siðu sem hér segir: Blaðakostur og fylgi Það þykir algild regla í lýðræð- islöndum úti um heim, að vinstri flokkar, sem berjast gegn auð- valdi og sérréttindastéttum, liafi miklum mun minni fjárráð og þar af leiðandi minni blaðakost en liægri flokkar. Þannig er blaða- kostur verkalýðsflokka Bretlands og Norðurlanda hverfandi móts við blaðakost andstæðinga þeirra. Engu siður safna þeir atkvæðum til fylgis sér i gersamlega öfugu hlutfalli við blaðakostinn. Enn frémur má minna á það, að Roosevelt sigraði hina íhalds- sömu andstæðinga sína í þremur forsetakosningum í röð, þótt 90% Alþýðuflokkur........... 90 atkv, Framsóknarflokkur .. 48 — Sósíalistaflokkur ...... 85 — Sjálfstæðisflokkur .... 108 — Þjóðvarnarflokkur .... 825 — Það kemur þá i ljós, og er harla atliyglisvert sjúkdómsein- kenni liinna gömlu vinstri flokka, að enginn þeirra fær jafnmörg atkvæði miðað við blaðakost og Sjálfstæðisflokkurinn, en hins vegar fær hinn nýi vinstri flokk- ur, Þjóðvarnarflokkurinn, átt- falt atkvæðamagn móts við Sjálf- stæðisflokkinn, nær tífalt móts við Sósialistaflokkinn og Alþýðu- flokkinn og allt að þvl tvítugfalt. móts við Framsóknarflokkinn, allt reiknað á sama hátt. Mittjónasektfr Olíufélagsms: Hvar er komið ferystu samvinnuhreyfingarinnar ? í síðastliðinni viku kvað hæstiréttur upp þann dóm í fjárglæframáli Olíufélagsins og Hins íslénzka steinolíufélags, að þau skyldu endurgreiða í ríkis- sjóð 1 milljón og 180 þúsund krónur, sem þau féfléttu al- menning um í sambandi við olíuverzlun, þegar gengisfallið varð 1950. Auk þess eiga for- stjóramir að greiða 120 þúsund króna sekt. En til þess að sölsa undir sig þennan milligróða, fölsuðu þessi olíufélög skýrsl- ur, er þau fengu í hendur opin- berum stofnunum. Hvar er komið samvinnu- hreyfingunxii í bessu landi, þegar fyrirtæki hennar verða sek fundin um slíka fjárglæfra? Dettur nokkrum manni í hug, a$ slíkt hefði getað gerzt við stjórn og for- ystu þeirra manna, er í önd- verðu hófu merki samvinnu- hreyfingarinnar og ruddu henni braut? Er ekki full þörf á bví, að hreinsað sé til í samvinnufélagsskapnum og hin upprunalegu sjónarmið liafin til vegs á nýjan leik? Það er stórgróðasjónarmiðið, sem hefur heltekið þá, er fara með yfirstjórn samvinnufélags- skaparins íslenzka. í Svíþjóð er til dæmis það æðsta boðorð samvinnufyrirtækja að draga úr milliliðakostnaði og láta al- menning njóta bættra við- skiptakjara. Hér á landi hefur Olíufélagið ávallt skilað hæst- um áætlunum og hæstum verð- útreikningum til verðgæzlu- stjóra, nema allra fyrst, er það var að ná tökum á viðskiptun- um. En það eru starfshættir spekúlanta í kaupsýslustétt að undirbjóða fyrst til þess að geta eftir á okrað þeim mun meira. y/MVWAWUVAVJ’AWAnAVVVVWJV. Ungmennasamband Borgarfjarfer tekur af skarið í hermáSunum Á þingi Ungmenxuxsambands Borgarfjarðar var sam- þykkt þessi tillaga: „33. þing U.M.S.B., haidið í Reykjavík 23.—24. april, 1955 skorar á alþingi og ríkisstjórn að láta fara fram þjóð- aratkveeðagreiðslu um úrsögn íslands úr Atlantshafs- bandalaginu og uppsögn hervarnarsamnings við Bandai'íki Norður-Ameríku. Jafnframt skorar sambandsþingið á ung- mennafélög iandsins að láta þessi mál til sín taka og draga sig ekki í hlé, þótt baráttam fyrir málstað íslands kunn> að harðna mjög, frá því sem verið hefur.“ Þess er að vænta. að fleiri ungmennafélög og ungmenna- sambönd láti þessi mál til sín taka. Áww/wvvvwvwAvvtfwwwvwvwvwvwwif

x

Frjáls þjóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.