Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 20.12.1955, Síða 1

Frjáls þjóð - 20.12.1955, Síða 1
4. árg. Þriðjudaginn 20. desember 1955 50. tbl. Jóiablað 11 HFreysteinn t^orbergsson; t)i$ Þess hefur verið farið á leit við mig, að ég skrifaði nokkrar línur í jólablað FRJÁLSRAR ÞJÓÐAR um einvígi Friðriks Ólafssonar við argentínska stórmeistarann Hermann Pil- nik, sem nú er á förum héðan eftir viðburðaríka dvöl á ís- landi og hörð vopnaviðskipti við íslenzka skákmenn. Þegar O. Panno, skáksnilling- urinn ungi, sem heimsmeistar- inn í skák, M. Botvinnik, hefur nefnt ásamt Friðriki okkar Ól- afssyni sem dæmi um mjög efnjlega skákmenn utan Sovét- ríkjanna, nefndi það við mig í Gautaborg s.l. haust, að landi hans, H. Pilnik, væri ef til vill fáanlegur til þess að gera strandhögg á íslandi, flaug mér ekki í hug, að það ætti eftir að verða slík lyftistöng fyrir ís- lenzkt skáklíf sem raun ber vitni. í stuttu máli má segja, að meistarinn kom, sá og — var sigraður af Friðriki Ólafssyni, þótt hann hins vegar ynni skák- mótið. Hundruð manna, eða jafn- margir og húsrúm frekast leyfði, voru vitni að baráttu skáksnillinganna, auk þúsund- anna, sem fylgdust með í blöð- um og útvarpi. Sigur Pilniks í skákmótinu var mjög naumur, og virtust þeir Guðmundur Pálmason og Ingi R. Jóhannsson lítið gefa stórmeistaranum eftir í þessum reipdrætti hugans, enda skör- uðu þeir fram úr öðrum keppi- nautum hans. Einvígi gestsins við Friðrik Ólafsson, sem einn stendur á tindi þess fjalls, sem nefnt er íslenzkur skákstyrk- leiki, varð hins vegar allt á fótinn að sækja. Þótt segja megi, að andstæðingur Friðriks væri varinn skildi aldarfjórð- ungs keppnisreynslu og bæri þau vopn, er veittu honum sig- ur í þrjátíu stórmótum, nýbrýnd á skæðustu skákjöfrum heims, varð hann þó að láta undan síga. Eftir sex harðar atrennur hrakti Friðrik hinn herskáa víking í sjó fram og hafði þá veitt honum þung högg og stór. rúmfastur eftir fótbrot um nokkurt skeið, en líkamleg þjálfun, svo sem dagleg ganga í hreinu lofti, er að margra dómi, einnig Pilniks, nauðsyn- leg þjálfun fyrir harðar andleg- ar orustur. Aðspurður lætur Pilnik í ljós það álit sitt, að Friðrik Ólafs- son mundi ekki hafa neina möguleika í skák á móti beztu rússnesku stórmeisturunum, „að minnsta kosti ekki, ef hann teflir byrjanirnar eins veikt og á móti mér“, bætir hann við. Undirritaður getur ekki stillt sig um að skjóta því inn í, að hér er hann á annarri skoðun en hinn reyndi skákmeistari. Er þess skemmst að minnast, að er hann ók með Friðrik á mótor- hjóli sællar minningar til móts við Davíð Bronstein áOlvmpíu- skákmótinu í Amsterdam í. fyrra, var hinn rússneski skák- listarmaður furðu fljótur að semja jafntefli við Friðrik, og er þó Bronstein að Pilniks eigin áliti sterkasti skákmaður heimsins og komandi heims- meistari. Þá er álit þeirra, sem til þekkja, einnig Friðriks sjálfs, að hann hafi bætt við sig a. m. k. aukinni keppnishörku síðan þá. Ég spyr Pilnik frétta frá Argentínu úr bréfi, sem ég færi honum í pósti frá Panno. Af skáklífi þar vestra er það helzt að frétta, að Najdorf kallinn er nú að rétta úr kútnum eftir á- fallið í Gautaborg, hann er nú að sigra með yfirburðum á skákþingi Argentínu, en Panno er ekki meðal þátttakenda þar sökum annríkis við nám sitt. Margt fleira segir Pilnik, sem of langt yrði hér upp að telja. Auk þess hefur sumt af því komið fram í öðrum blöðum. Ég vil í þessu sambandi geta þess, að mér finnst vafasamt að draga þær ályktanir af ráðleggingum Pilniks til Friðriks Ólafssonar og persónulegum skoðunum hans á skákstíl Friðriks, að Pilnik eigi erfitt með að sætta sig við ósigur, eins og eitt af dagblöðum bæjarins gerði hér á dögunum. Svo mikið er víst, að skákmeistarinn kann að viður- kenna ósigur. T. d. tjáir hann mér, að hann hafi aldrei haft hinn minnsta möguleika til vinnings í skák þeirri, sem hann tefldi við Inga R. á skákmótinu, en þeirri skák lauk með jafn- tefli. Ingi hafi svo tapað fyrri einvígisskák þeirra einungis fyrir einfalda yfirsjón, og unnið hina síðari með glæsibrag. Telur hann Inga mesta skákmanns- efni íslands. Hann telur Frið- rik að vísu efnilegan og sterkan skákmann, skæðan í miðtafli og gæddan meðfæddum gáfum, en veikan í byrjunum og svo tefli hann of djarflega. „En ver- ið getur, að mér skjátlist um þetta,“ bætir hann við. í Kaupmannahðfn skiljast leiðir, Panno fer til Hollands, Pilnik til íslands, en greinarhöfundur stanzar á Ráðhústorginu og verð- ur þar götuljósmyndaranum að bráð. Pilnik lætur mjög vel af dvöl sinni á íslandi og kynnum sín- um af íslendingum. Harmar hann, að landið skuli liggja svo langt úr alfaraleið, því að ella myndi hann að öllum líkindum heimsækja okkur bráðlega aft- ur. Telur hann íslendinga sjálfa jafnsérstæða og landið sjálft. Glaðvært fólk, sem ekki hefur beygzt af hörmungum styrj- alda, er honum mjög að skapi. Ég kveð nú þennan viðkunn- anlega og skemmtilega kunn- ingja minn, Hermann Pilnik, og óska lionum góðs gengis í framtíðinni og legg nú leið mína til Friðriks. Sigurveprinn Friðrik Ólafsson er svo kunn- ur Islendingum, að óþarft er að kynna hér ævi hans og skák- feril. Ég læt nægja að geta þess, að harkan og ofsinn í skákum hans er alger and- stæða við mildina og lítillætið Stórmeistarinn -Þegar ég spyr Pilnik, hverj- ar séu orsakir ósigursins, að hans dómi, svarar hann því til, að hann hafi af ýmsum ástæð- um ekki gengið heill til einvíg- isins við Friðrik. Og skal hér •aðems minnzt á það, að hann lá Víkingur einn hugðist gera hér strandhögg, en f ékk vasklegar viðtökur og varð að láta undan síga eftir liarða viðureign. Teikainguna gerði Halldór Pétursson. í fari lians. Við spjöllum um daginn og veginn og birtist hér aðeins lítið eitt af því, sem á góma ber. „Varðst þú fyrir vonbrigðum, hvað taflmennsku Pilniks snertir?“ spyr ég Friðrik. „Já, ekki get ég neitað því, ég hafði búizt við harðari keppni.“ Seinna segir hann mér, að hann hafi að vísu fengið tap- stöðu í tveim fyrstu skákunum, en eftir að andstæðingnum tókst ekki að notfæra sér það, tók Pilnik að tefla æ glæfra- legar upp á vinning, eftir því sem á leið einvígið. Náði þetta hámarki í síðustu skákinni, sem var allt annað en vel tefld af Pilniks hálfu, enda virtist hann. þá vera alveg brotinn, eða að minnsta kosti eitthvað miður, sín. „Við vorum margir, sem' héldum, að staða þín væri töp- uð, um það leyti sem þú fórnaðir manninum í annarri skákinni,*' segi ég. En sumir áhorfenda fóru þá heim í þeirri trú, að Friðrik væri glataður. „Hvað er. um þá fórn að segja?“ „Það var hrein örvæntingar- fórn,“ segir Friðrik, „og það er ekki mér að kenna, að hún heppnaðist. Ég undrast aðeins, hversu lengi Pilnik hugsaði tapleikinn í skákinni, f7—f5.“ „Já, var ekki f7—f6 rétti leikurinn þá,“ spyr ég. „Ég man, að við Pilnik skoðuðum þann leik heima hjá honum, sama kvöldið.“ „Jú, sá leikur hefði væntan- lega nægt honum til vinnings,‘, segir Friðrik. 1 Friðrik segir mér brosandi, að Guðmundur Ágústsson hafi verið meðal þeirra, sem gáf- ust upp á því að horfa á tap- stöðu hans í þessari skák, erv um kvöldið, eftir að skákin hafði.. óvænt snúizt Friðrik í hag, hafi hann komið í heim- sókn og sagt við sig: AnnacS hvort ert þú „súper-séní“ eða þá „lukkunnar pamfíll“. „Ég spyr Friðrik um það, hvort hann telji ekki þriðju ein- vígisskákina til sinna beztu skáka, en ég er sannfærður um, að sú skák á eftir að koma víða fram í skákheimsbókmenntun- um, eins og t. d. slták hans viS Wade í Hastings 1954. Þess má geta hér til gamans, að eitt sinn, er sú skák var birt í frönsku blaði, fylgdu henni 23 upphrópunarmerki, þar af var 21 við leiki Friðriks. Og má af því draga þá ályktun, að fleiri kunni að meta taflmennsku hans heldur en við íslendingar. Friðrik lætur lítið yfir hinni glæsilegu þriðju skák sinni viS Pilnik, en er þó ekki óánægð- ur með fórnir sínar í þeirri skák. Um skákstíl Pilniks segir Friðrik, að hann virðist tefla mun betur í einföldum stöðum heldur en flóknum og líkist afS því leyti eftirlætisskákmanni Friðriks, Capablanca. Hins veg- ar gerir Friðrik sér það ljóst, a2l

x

Frjáls þjóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.