Frjáls þjóð - 18.06.1960, Page 1
j júní 1960
laugardagur
24. tölublað
9. árgangur
Keflavíkitrgangan á sunnudag:
Sameinumst um kröfuna: brottför hersins,
hlutleysi jslands
Eins og skýrt var frá í síðasta blaði, ætla nokkrir
hernámsandstæðingar að efna til mótmælagöngu frá
Keflavíkurvelli til Reykjavíkur næsta sunnudag. —
Óhætt mun að fullyrða að ganga þessi hefur hvarvetna
vakið mikla athygli. Hún vekur greinilega hrifningu
meðal andstæðinga hersins og þá ekki síður tortryggni
og andúð hjá NATO-vinum og öðrum forsvarsmönnum
hernámsins. Fjöldi þeirra, sem ætla að ganga, hefur
vaxið með hverjum deginum og fyrstu 3 daga sem skrif-
stofa Keflavíkurgöngunnar var opin létu yfir hundrað
skrá sig til þátttöku. Margir hafa enn ekki ákveðið,
hvort þeir ætla að ganga alla leið, en heita má, að hver
einasti andstæðingur hersins, sem FRJÁLS ÞJÓÐ hefur
náð sambandi við, hafi í hyggju að koma einhvers stað-
ar í gonguna.
Um fátt mun meira hafa ver-
ið rætt síðustu vikuna en Kefla-
víkurgönguna, sem -fram fer
næstkomandi sunnudag. Ýmsir
fylgismenn hernámsins láta
tíðum í Ijós undrun sína á þess-
ari göngu og spyrja, hvers
vegna fólkið ætli að leggja það
erfiði á sig að ganga frá Kefla-
víkurflugvelli til Reykjavíkur.
Spuyningunni vill FRJÁLS
ÞJÓÐ svara með þessum orð-
um:
1) Keflavíkurgangan verður
farin til þess að vekja at-
hygli á þeirri staðre.ynd
innanlands sem utan, að ís-
lenzka þjóðin hefur aldrei
samþykkt hernámið og sætt-
ir sig ekki við það fremur
nú en áður.
2) Keflavíkurgangan sýnir, að
þjóðin er að vakna til vit-í
undar um tilgangsleysi her-
stöðvanna í stríði. hún skil-
ur, að í þeim er engin vernd,
Lýðveldið 16 ára
íslenzka lýðveldið á sextán ára afntæli 17. júní. Myndin er
frá Lögbergi við lýðveldistökuna á Þingvöllum 17. júní 1944.
Hátíðahöld jýóðhátíðardags-'
ins verða með fjölbreyttu sniði
nú eins og áður. Hátíðin hefst
kl. 13,15 með skrúðgöngum að
Austurvelli frá þremur stöðum,
Melaskólanum, Skólavörðutorgi
og Hlemmtorgi. Kl. 13.55 er há-,
tíðiri svo sett af formanni þjóð-!
hátáðanefndar, Eiríki Ásgeirs-j
syni. Síðan verður gengið í
kirkju, þay sem Jón AuðunsJ
dómprófastur, predikar, en ein-1
Spjaldið á myndinni stendur við aðallilið Keflavíkurflugvallar. Hér byrjar leigusvæði Banda-
ríkjamanna, og héðan verður gengið á sunnudag.
söng syngur Guðmundur Jóns-
son óperusöngvari.
Kl. 14.30 mun svo dr. jur.
Þórður Eyjólfsson, forseti
Hæstiréttar, leggja blómsveig
frá íslenzku þjóðinni að minn-
isvarða Jóns Sigurðssonar, en
forseti íslands, herra Ásgeir Ás-
geirsson verður fjarverandi.
Forsætisráðherra, Ólafur
Thors, flytur ræðu af svölum
Framh. á 7. síðu.
að flugvöllur Bandaríkja-
manna leiðir fullkomna tor-
tímingarhættu yfir meiri
hluta þjóðarinnar.
3) Keflavíkurgöngunni er ætl-
að að minna á það tjón, sem
hernámið hefur þegar vald-
ið í þjóðlífi íslendinga. Með
því að afsala sér sjálfstæðri
stefnu í utanríkismálum,
hefur þjóðin glatað pólitísku
sjálfstæði. Menningarlegt
sjálfstæði þjóðarinnar fer
dvínandi í nábýli við herinn,
en sú stefna að tengja fjár-
hagsafkomu þjóðarinnar
hermangi og öðru svindil-
braski liefur leitt af sér
botnlausa óreiðu í efnahags-
lífinu.
4) Með Keflavíkurgöngunni er
lögð sérstök áherzla á arf-
leifð núlifandi kynslóðar,
hlutleysi í hernaðarátökum.
Þeir sem bátt taka í göng-
unni, telja það eitt sæma ís-
lendingum að standa utan
við liernaðarbandalög og
skipa sér í sveit hlutlausra
þjóða til þess að bera sátta-j
orð milli stórveldanna og
stuðla þannig að friði í
heiminum.
5) Með Keflavíkurgöngunni
skapast tækifæri til sam-j
stöðu meðal "allra hemáms-.
andstæðinga, sein þrátt fyr-J
ir ósamkomulag um önnur
mál taka höndum saman og
sýna vilja sinn til að leggja
nokkuð á sig í baráttunni
fyrir brottför hersins af Is-
landi.
Verndarar okkar
í Hvalfirði
Maður nokkur, sem leið átti
um Hvalfjörð nýlega, hefur
komið -að máli við blaðið og
vakið athygh á því, hvernig
amerísku dátarnir í Hvalfirði
fara að því að vernda íslend-
inga.
Bandarísku hermennirnir í
Hvalfirði búa í bröggum, sem
auðvitað eru grænmálaðir í
grænu túni til þess að sem
minnst beri á þeim úr lofti. En
þeir, sem eiga m. a. að njóta
verndarinnar, íslendingarnir í
hvalstöðinni, búa hins vegar í
bröggum, sem eru eldrauðir og
blasa móög vel við augum af
sjó og úr lofti. Það þarf varla
að taka það fram, að í hugsan-
legri árás á mannvirki í Hval-
firði, yrðu híbýli íslendinganna
sundurskotin, en ameríkumenn-
irnir slyppu vel, — enda bráð-
nauðsynlegt, ef þeim á að takast
að verja hundaþúfurnar í
kringum Þyril fyrir átroðningi
Rússa.
fj
ÞjóBvamarféSag Reykjavíkur
heitir á alla íéiagsmenn sína og aðra bjóðvarnar-
menn að styðja eftir megni mótmælagöngu þá gegn
hersetunni, sem farin verður n.k. sunnudag.
St jórnin.