Frjáls þjóð - 17.09.1960, Page 2
g§.
LISTIR
BOKMENNTIR
Undaníarin sumur hafa leik-
flokkar lagt land undir fót, og
ferðast um landsbyggðina
með gamanleiki sina. í sumar
hafa þó ferðalög þessi náð há-
marki, Mislitur sauður í
mörgu fé, segir máltækið.
Reyndin hefur orðið sú, að
fólk, sem kalla má algjöra
viövaninga á sviði leiklistar
liefur tekið sig saman og farið
í leikferðir um landið, en virð-
ist ekki leggja í sýningar hér
í Reykjavík. Þetta er aö sjálf-
ers. Leikrit þetta er gaman-
leikur í þrem þáttum, fremur
efnislítill, og byggist aðallega
á hnittnum tilsvörum.
Þeim fjórmenningum hefur
tekizt vel. Góður hraði er i
leiknum og hvergi „dauðir
punktar“, sem oft vill veröa í
leikjum af léttara tagi. Efni
leikritsins sé ég enga ástæðu
til að rekja. Aðalhlutverkið,
Zibumm, er í öruggum hönd-
um Þorsteins Ö. Stephensen,
og minnist ég þess ekki, að .
Tveir í skógi
§§ sögðu gremjulegt fyrir þá,
II sem raunverulega hafa upp á
|g eitthvað að bjóða. Og hvernig
á þá að greina á miili þessara
|li flokka? Hverjir eru leikarar
|;i og hverjir viðvaningar? —
-I Reynsla þéssa sumars hlýtur
að skera úr um það að nokkru
leyti. Og þegar henni sleppir
; verðum við að treysta á eigin
dómgreind. Sjáum hvað setur
1 næsta sumar. Snúum okkur
|| þá að „Tveim i skógi“.
Nýlega hefur leikflokkur
Þorsteins 0. Stepnensen hafið
. sýningar í Iðnó á leikritinu
i; „Tveir i skógi“ eftir Axel Iv-
hafa séð Þorsteinn betri í
gamanleikriti. Gervi hans. svip
brigði, framsögn og hreyfing-
ar eru hreinasta. snilld. Unga,
reiða manninn, Tom ieikur
Helgi Skúlason af þrótti og ör-
yggi. Helga Bachmann í hlut-
verki ungu stúlkunnar er kát,
lagleg og hæfilega „kókett“.
Þó brá fyrir nokkuð þvinguð-
um hreyfingum á köflum.
Hetjuna Tigerbully ieikur
Knútur Magnússon. Persónan
er frá hendi höfundar mjög
ýkt, en Knútur skilar hlut-
verkinu allvel.
Leiktjöld eru einföid og
Þorsteinn O. Stephensen.
skemmtileg, og leikstjórn
Helga Skúlasonar prýðisgóð.
Lögin, sem Knútur hefur sam-
ið, eru einkar þægileg og við-
felldin.
Þetta er ein bezta skemmt-
un, sem Reykvikingum hefur
boðizt um,lengri tima. Hvern-
ig væri að bregða sér í gömlu
Iðnó, þá ekki væri nema til að
sjá og heyra hann Zibumm?
Dóra Guðjohnsen.
Reglur
Samtaka hernámsandstæðinga
Landsnef nd -
Frh. af 8. síðu.
Snorri Þorsteinsson, Hvassafelli,
Norðurárdal, Mýr.
Sira Þorgriinur Sigurðsson, Staða-
stað, Snæfellsn,
Varamenn: /
Haraldur .lónsson, Gröf, Breiða-
vikurhreppi, Snæfellsn.
Sigurður Guðmundsson, Akranesi.
Jakob Jóhannsson, Stykkishóhni,
Snæfellsn.
V estf jarðak jördæmi:
Sira Jóhannes Pálmason, Stað,
Súgandafirði, V-fs.
Guðm. Ingi Kristjánsson, Kirkju-
bóli, Önundarf., V-ís.
Halldór Ólafsson, ísafirði.
Jens Guðmundsson, Reykh., Barð.
Jónas Ásmundsson, Bildtíd., Barð.
Steingrímur Pálsson, Brú, Bæjar-j
hr., Strand.
Sturla Jónsson, Suðureyri, V-ís.
Varamenn:
Síra Baldur Vilhehnsson, Vatnsf.
.Þorgeir Sigurðsson, Hói..iavik, |
Strand.
Síra Stefán Eggertsson, Þingeyri,
V-ís. j
Kristján Júlíusson, Bol.vik, N-ís.
Norðurlandskjördæmi \ estra: '
Andrés Guðjónsson, Skagastrpnd,
Húnavatnss.
Áslaug Hafstað, Vík, Skagafirði.
Vinsamlegast gerið skil
fyrir seldunt miðum, og
herðið lokasöluna. 1
HAPPÐRÆTTI I
FRJMSRAR ÞJÖOAR
Bjarni Pálsson, Blönduósi.
Hlöðyer Sigurðsson, Siglufirði.
Magnús Gíslason, Frostast., Skag.
Óskar G aribaldason, Siglufirði.
Skúli Benediklsson, Reykjaskþla,
Húnavatnsss.
Varamenn:
Jóhannes Björnsson, oddv., Reyn-
Iiólum.
Stefán Sigurðsson, Sauðárkróki.
Steinar Þórðarsqn, Háleggsst.
Anna Magnúsdóttir, Siglufirði.
Norðurlandskjördæmi eystra:
Björn Halldórsson, Akureyri.
Björn Stefánsson, Ólafsfirði.
Hjörtur Eldjárn Þórarinsson,
Tjörn, Svarfaðard., Eyjaf.
Rósbérg G. Snædal, Akureyri.
Páll Kristjánsson, Húsavík.
Þórarinn Haraldsson, I.aufási,
Kelduhverfi, N-Þing.
Þráinn Þórisson, Baldursheinii,
Mývatnssveit, S-Þing.
Varamenn:
Vilhjálmur Guðmundsson, S-Lóni,
Þórshafnarhr., N-Þing.
Ingi Tryggvason, Kárhóli, Reykja-
dal, S-Þing.
Júdit Jónbjörnsdóttir, Akureyri.
Hjalti Haraldsson, Garðsliorni,
Svarfaðardal, Eyjafj.
A ustur I andsk jör dæmi:
Bjarni Þórðarson, Neskaupstað,
S-Múl.
Kjartan Ólafsson, Seyðisfirði.
Kristján Ingólfsson, Eskif., S-Múl.
Páll Metúsalemsson, Refsstað,
Vopnaf., N-Múl.
Páll Sigbjarnarson, Egilsstöðum,
S-Múl. j
Skarphéðinn Pétursson, Bjarnar-
nesi, A-Skaft.
Steinþór Þóröarson, Hala, A-Sk.
Varamenn:
Sævar Sigbjarnarson, Rauðholti,;
Hjaltastaðaþinghá, S-Múl.
Gunnar Guttormsson, Litla-Bakka
Hróarslunguhr., N-Múl.
Bjorn Bjarnason, Skorrastað , |
Norðfj.hreppi, S-Múl.
Anna Þorsteinsdóttir, lieydöhun,
BrNÓ-lal. S-MÚJ.
Verzlunarfrelsi -
Framh. af 1. síðu.
og nam 20,4 milljónum dollara
til tveggja ára, heldur hafa
skuldir innflutningsfyrirtækja
við erlend viðskiptafyrirtæki
stóraukist. Samkvæmt heimild
í viðreisnarlögunum máttu ís-j
lenzk fyrirtæki stofna til skulda
erlendis til þess að auðvelda1
innflutning. Jóhannes Nordal,j
gaf það upp í Fjármálatíðindum1
í sumar að samanlagt væri þessi
skuld orðin 130 milljónir króna
og nú er reiknað með að skuld-j
in nálgist 200 milljónir. Hér er
beinlínis um að ræða „heng-'
ingarskuld" — skuld, sem verð-^
ur að greiðast innan 3—6 mán-
aða og verður- því ekki séð að
ástandið í gjaldeyrismálum sé
jafn giæsilegt og stjórnarblöð
in vilja.vera láta.
Landhelgin -
Framh. af 1. síðu:
við fiskveiðilögsöguna. Blaðið
benti á það á sínum tíma, hve
háskalegt væri að leyfa ís-
lenzkum togurum sérréttindi til
að veiða innan 12 mílna mark-
anna meðan fiskveiðideilan
1. gr. Samtökin heita Samtök hernámsandstæðinga.
2. gr. Hlutverk samtakanna er að berjast fyrir afnámi her-
stöðva á dslenzkri grund og hlutleysi íslands í hern-
aðarátökum og standa gegn hvers konar erlendri ásælni.
3. gr. Samtökin hyggjast sameina íslendinga, hvar í flokki
sem þeir standa, til sóknar að fyrrgreindu marki.
4. gr. Samtökin taka ekki afstöðu til annarra mála en þeirra,
sem um getur í 2. grein. Samtökin taka ekki þátt, beint
eða óbeint í kosningum til Alþingis. Samtökin leitast
við að vinna menn úr öllum stjórnmálaflokkum til starfs
fyrir brottflutning alls erlends herliðs úr landinu.
5. gr. Héraðsnefndir starfa milli landsfunda að því að fram-
kvæma stefnu samtakanna. Fyrir landsfund boðar hver
héraðsnefnd til almenns fundar herslöðvaandstæðinga
á starfssvæði sínu. Á þeim fundi skal kosin ný héraðs-
nefnd, sem velur fulltrúa é landsfund og gegnir slörfurn.
unz héraðsfundur hefur verið haldinn til undirbúnings
næsta landsfundi. ;
6. gr. Héraðsnefndir hafa rétt til að senda á landsfund einn
fulltrúa með öllum réttindum fyrir hvern hrepp á starfs-
svæði sínu. Héraðsnefndir í kaupstöðum og þeim hrepp-
um, sem hafa fleiri eri 1000 íbúa, hafa rétt til að senda
einn fulltrúa fyrir hverja þúsund íbúa og brot úr þús-
undi.
7. gr. Landsfundur ákveður baráttuaðferðir samtakanna og
hefur æðsta vald í öllum málefnum þeirra.
8. gr. Á landsfundi skal kjósa landsnefnd, sem skipuð sé 24
fulltrúum úr Reykjavik og Reykjaneskjördæmi og 12
til vara, Og 7 frilltrúum frá hverjum landsfjórðungi og
4 til vara. Landsnefnd kemur saman einu sinni á ári
þau ár, sem landsfundur er ekki haldinn, og fer með
æðsta vald samtakanna milli landsfunda.
9. gr. Sá hluti landsnefndar, sem búsettur er í Reykjavík og
nágrenni, nefnist miðnefnd. Hún fer með æðsta vald.
samtakanna milli funda landsnefndar. Allir lands-
nefndarmenn eiga rétt til setu með fullum réttindum á
fundum miðnefndar. Risi ágreiningur innan miðnefnd-
ar um mikilvæg framkvæmdaatriði eða skilning á regl-
um samtakanna, geta fjórir miðnefndarmenn krafizt
þess, að landsnefndarfundur sé kvaddur saman innan
eins mánaðar til að fjalla um ágreiningsefnið.
10. gr. Miðnefnd kýs árlega úr sínum hópi 7 manna fram-
kvæmdanefnd og 3 til vara. Rísi innan framkvæmda-
nefndar ágreiningur um framkvæmdaatriði eða skiln-
irtg á reglum samtakanna, getur hvaða framkvæmda-
nefndarmaður sem er krafizt þess, að miðnefndarfund-
ur sé kvaddur saman innan viku til'að fjalla um á-
greiningsefnið.
11. gr. Framkvæmdastjórn boðar miðnefnd til fundar. Skylt
er að boða fund í miðnefnd ef fimm landsnefndarmenn
æskja þess skriflega.
12. gr. Verði ágreiningur í landsnefnd eða miðnefnd þarf
greiddra atkvæða til þess að mál nái fram að ganga.
13. gr. Heimilt er, þar sem aðstæður leyfa, að mynda ráð-
gefandi fulltrúaráð, með fulltrúum frá þeim félög-
.um stjórnmálaflokkanna, sem lýsa vilja stuðningi við
samtökin, og skal hvert félag hafa rétt til að tilnefna
einn fulltrúa i ráðið. Fulltrúaráðið sé kallað saman í
sambandi við stærri aðgerðir og ef mikinn vanda ber
að höndum.
14. gr. Landsfund skal halda eigi sjaldnar en á þriggja ára
fresti og oftar ef landsnefnd ákveður.
15. gr. Reglum þessum verður hvorki breytt né við þær aukið,
nema á landsfundi hernámsandstæðinga.
væri óleyst. Blaðið gagnrý-ndi1
einnig þá ráðstöfun, að veita
bátum leyfi til dragnótaveiða.
Gegnir furðu, að veiðisvæði
dragnótabáia skuii hafa verið
stækkað á sama tíma og upp-
vist varð um stórfellda mis-
notkun báta, sem nota þetta
veiðitæki. Hefur kveðið svo
rammt a^ þeirri misnotkun, að
a. m. k. átía bátar voru sviptir
veiðileyfi, þar eð uppvist varð
að þeir lágu ekki við fast við
veiðarnar, heldur toguðu fyrir
lausu. Þetta tvennt, veiðar is-
lenzkra togara og dragnótabáta
ijin.an.. líusdhelgi, .eru _nú helztu .
y ogn^ Bjeta,. i áipðuisstyrjöJd
þeirra gegn íslendingum. Var
sannarlega þörf á öðru en að fá
þeim svo skæð áróðursefni upp
í hendurnar.
Otinn við fylgistap.
Enginn þarf að ganga þess
dulinn lengur, að ríkisstjórnin
ætlar að semja við Breta, svo
framarlega sem hún þorir að
stíga svo örlagaríkt skref.
Hræðslan ein við reiði þjóðar-
innar og stórfellt fylgistap hef-
ur fram til þessa gert hana deiga
við að stíga. skrefið. til fulls. En
nú hefur hún sótt í sig veðrið.
Eins og.áður er sagt, iýsti Bjarni
Benediktsson þv,í yfir á héraðs-
móti . sjálf stasðisf élaganna á
Siglpfirði um siðustu helgi, að
xLngai' yrðu.gerðir nm.iríð-
indi -Bi-e-tum til handa. Ríkis-
stjórnin skákar í því skjólinu,
að íslenzkir kjósendur séu fljót-
ir að gleyma og fyrirgefa mis-
gerðir. Hún treystir því, að svo
muni enn fara í þetta sinn.
Héðan af er það ekki á valdt
annaira en fylgismanna stjórn-
arflo'kkanna sjálfra að koma í
veg fyrir undanhald. En svo
framarlega sem nógu margir úr
þeim hópi berja í borðið og
krefjast þess, að staðið sé við
marggefin orð og eiða um að
hvika í engu frá 12 mílum,
verða stjórnarvöldin að hverfa
frá fyrirætlun sinni. Almenn-
ingur í landinu verður að
sýna það í verki, að hver sú
stjórn, sem svíkur í landbelgis-
málinu, hefar meö. hví hótterni
nndrrritað pólitískan dauðadóm
sinn.
$