Frjáls þjóð - 01.08.1968, Blaðsíða 1
Efium samstððu meö Tékkóslóvökum
J * águst 1968.
Fimmtudagar
22. ffl.
15. ikgangnr
Þegar þetta er rita'S er á-
standið í Tékkóslóvakíu enn
mjög viðsjárvert. Fundir rá'ða-
manna standa enn yfir og ekk
ert hefur heyrzt um niðurstöð-
ur þeirra. Sovézkar hersveitir
eru enn í Tékkóslóvakíu og
aukið herlið stefnir til landa-
mæranna. Á þessum hættutím
um er Tékkóslóvökum mikil
nauðsyn stuðnings allra þeirra
sem vinna að framgangi þeirra
hugsjóna sem þeir eru að berj
ast fyrir.
I dag, þriðjudag, hafa blað-
inu borizt þau ánægjulegu tíð-
indi, að nokkrir sósíalistar, sem
undanfarið hafa fagnað þeirri
þróun sem átt hefur séð stacS
í Austur-Evrópulöndum, hafi
gengizt fyrir söfnun undir-
skrifta undir ályktun sem færð
skal sendiráði Sovétríkjanna.
Er þar skorað á Sovétríkin að
styðja sjálfstæðisöflin í Tékkó-
slóvakíu en vinna ekki gegn
þeim með neins konar vald-
beitingu.
Sömuleiðis hefur blaðið fregn
að, að Samtök hernámsand-
stæðinga ráðgeri einhverjar að-
gerðir til stuðnings frjálsræðis-
baráttu Tékkóslóvaka. Einnig
hefur Æskulýðsfylkingin farið
þess á leit við Tékkóslóvaka að
fá fulltrúa þeirra á sinn fund
SUMARLEYFI
í samræmi við þjóðarvenju ] þessu tilefni svo og því að fram ] einum sérkennilegasta og feg-
fer Frjáls þjóð nú í stutt sum- undan er mesta ferðahelgi sum ursta fossi landsins, Ófæru-
arleyfi. Blaðið kemur því næst ] arsins birlum við hér mynd af fossi í ánni Ófeeru í Eldgjá.
út fimmtudaginn 15. ágúst. Af |
stefnu Tékkóslóvakíu. Stuðn-
ingur manna með slíkar skoð-
anir getur aldrei gert þeim ann
að en ógagn.
En þeir sem eygja í baráttu
Tékkóslóvakíu nýja von um
þróun sósíalismans í Austur-
Evrópu í átt til frjálsræðis og
lýðræðis, þeir Sem þykjast sjá
þar í mótun réttlátara þjóðfé-
lag, og það ættu allir íslenzkir
sósíalistar að gera, þeir hljóta
að finna að það er þeirra
skylda að efla samstöðu sína
með Tékkóslóvökum og sýna
þeim fullt traust á allan þann
hátt sem þeir geta. Þeir sem
gengið hafa til mótmæla til
stuðnings þ j óðfrelsishreyfing-
um í Vietnam, Grikklandi og
annars staðar, þeir hljóta að
skilja að það er ótvíræð skylda
þeirra að hafa sömu afstöðu til
þjóðfrelsishreyfingar í Tékkó-
slóvakíu. Annað væri svik við
þær hugsjónir sem þeir hafa
barizt fyrir.
MEÐAL EFNIS
Niður með landshöfðingjann
Önnur greinin í fiokki um mótmælaaðgerðir á Isiandi.
Bannað að banna
Rætt við Einar Má Jónsson um stúdentaóeirðir í
Frakklandi.
Umræður um
vinstri hreifingu
Ritstjórnargrein um framtíð Alþýðubandalagsins
Þórir Daníelsson:
Hugleiðing um launamál
Frönsk byltingarljóð
Ljóð úr maíbyltingunni eftir franska stúdenta.
til að skýra málstað þeirra.
Allt eru þetta mjög ánægju-
leg tíðindi, og blaðið fagnar
því að íslenzkir sósíalistar hafa
skilið nauðsyn þess að þeir
standi við hlið bræðra sinna í
Tékkóslóvakíu á þessari örlaga
stund. Þar er verið að berjast
fyrir þeim hugsjónum sem
ættu að standa þeim næst; hug
sjónum frjálsræðis og mannúð-
ar, hugsjónum þjóðfrelsis og
lýðræðislegs sósíalisma.
Allur stuðningur hægri afl-
anna við baráttuna í Tékkó-
slóvakíu gelur ekki orðið ann-
að en orðin tóm. Þeim yrði
það kærst ef kapítalisku þjóð-
skipulagi yrði komið þar á.
Þeir kysu það helzt að fullur
fjandskapur yrði milli Sovét-
ríkjanna og Tékkóslóvakíu og
vestræn öfl fengju ítök í land-
inu. Þeir vona að ágreiningur
Tékkóslóvakíu og Rússa verði
til þess að sundra hinum sósíal
istísku öflurn í heiminum. Allt
er þetta þvert á móti yfirlýstri