Vikublaðið - 15.07.1994, Síða 6
Kapítalisminn
VIKUBLAÐIÐ 15.JULI 1994
Peningaflótti til útlanda
Fjárfesting innanlands hefur dregist saman um rúma
20 milljarða á ári. Ýmislegt hefur verið gert til að auð-
velda aðilum fjárfestingu innanlands en fyrstu við-
brögðin eru að nýta nýfengið frjálst flæði íjármagns til
að kaupa útlend verðbréf. Þúsundir atvinnulausra bíða
á sama tíma eftir innspýtingu í hreyfíhamlað íslenskt
hagkerfí.
Innlendir aðilar fjárfestu á fyrstu
fimm mánuðum ársins í erlendum
verðbréfum fyrir 5 milljarða króna. Á
sama tíma er fjárfesting innanlands
nálægt hættumörkum, en heildarfjár-
festing hefur dregist saman úr 84
milljörðum árið 1987 í áætlaða 62
milljarða árið 1994 eða um 26 pró-
sent. Þar af hefúr fjárfesting í atvinnu-
vegunum dregist saman úr 45,2 millj-
örðuin í 23,1 milljarða eða um 48,9
prósent. Þetta er að gerast á sama tíma
og sköttum upp á 5 til 6 milljarða
króna á ársgrundvelli hefur verið létt
af fyrirtækjuin landsins og það hefur
gert sitt til að hagnaður fyrirtækja
landsins hátt í þrefaldaðist á síðasta ári
miðað við árið áður. Alþýðu landsins
er hins vegar boðið upp á kaupmáttar-
lækkun og atvinnuleysi. Kannski ekki
að undra þegar þess er gætt að nú
virðast auknar ráðstöfunartekjur fyrir-
tækja landsins í vaxandi mæli renna til
fjárfestinga erlendis.
6 milljarðar í verðbréf - 7
milljarðar í hlutabréfum
Seðlabankinn hefur upplýst að
fyrstu 5 mánuði ársins hafi hrein kaup
innlendra aðila á verðbréfum sem gef-
in hafa verið út erlendis numið nær 5
milljörðum króna. Kaupin þetta tíma-
bilið voru reyndar 5,8 milljarðar, en
bréf upp á 1 milljarð voru seld á móti.
Mestur hluti þessara kaupa eða rúmur
þriðjtmgur voru skuldabréf útgefin af
erlendum aðilum í erlendri mynt, en
þau voru keypt nettó fyrir 1,7 milljarð
króna. Hitt vekur ekki síður athygli að
innlendir aðilar hafa keypt skuldabréf
sem ríkissjóður íslands hefur gefið út
erlendis upp á 1,3 milljarð króna.
Þessu til viðbótar má bæta því við
að nettókaup Islendinga á hlutafé er-
lendis fer vaxandi. Á árinu 1992 voru
nettókaupin um 140 milljónir króna,
en nýrri upplýsingar eru enn ekki fyr-
irliggjandi hjá Seðlabankanum. Er þó
af nógu að taka, því í árslok töldust
fjárfestingareignir Islendinga í at-
vinnurekstri vera tæplega 6,8 millj-
arðar, þ.a. 2,8 milljarðar í eigin fé.
Stærsti hluti fjárfestingareigna íslend-
inga erlendis liggja í sjávarútvegsfyrir-
tækjurn eða 6 milljarðar. Um 75 pró-
sent þessara fjárfestinga hafa átt sér
stað í Bandaríkjunum.
Samdráttur í fjárfestingu
innanlands á öllum sviðum
Sem fyrr segir hefur fjárfesting á Is-
landi dregist verulega sarnan síðustu
árin; fjárfesting í atvinnuvegunum
hefúr minnkað um helming frá 1987
eða úr 45 milljörðum í áætlaða 23
Erum mjög uggandi
yfir þessari þróun
„Við höfum verið að benda á
hið mikla atvinnuleysi og rætt úr-
Iausnir í því sambandi. Það liggur
fyrir að samdráttur í fjárfesting-
um innanlands nemur um 20
milljörðum á ársgrundvelli og við
höfum bent á nauðsyn þess að sú
þróun snúi við. Við erum því eðli-
lega mjög uggandi yfir þeirri þró-
un sem nú sýnist vera í gangi, að
fjármagnið streymir úr landi,"
segir Bjöm Grétar , Sveinsson,
formaður Verkamannasambands
Islands.
Björn segir að hann hafi beðið um
að kannað yrði hverjir væru að
kaupa þessi bréf erlendis, en meðan
þær staðreyndir væru ekki á borðinu
vildi hann ekki fullyrða um það. „Eg
vil bara segja að þetta er að gerast
um leið og heimilað var frjálst
streymi fjármagns milli landa um
síðustu áramót. Mikið fé virðist
streyma úr landi í stað þess að menn
fjárfesti innanlands til að fá púður í
hálf lamað hagkerfi,“ segir Björn
Grétar.
Björn vildi sem fyrr segir ekkert
fullyrða um hverjir kaupendur er-
lendu bréfanna væru. Vikublaðið
hefúr heimildir fyrir því að þar séu
ekki síst á ferðinni bankar og lífeyr-
issjóðir.
Fjárfesting og atvinnuleysi eru
nokkuð samhangandi þættir og þeg-
Björn Grétar: Við erum eðlilega mjög
uggandi yfir þeirri þróun sem nú sýnist
vera í gangi, að fjármagnið streymir úr
iandi.
ar útifúndur var haldinn um at-
vinnuleysið í upphafi þessa árs var
Guðmundi J. Guðmundssyni mjög
umhugað um fjárfestingar lífeyris-
sjóðanna erlendis. Guðmundur
lagði einmitt út frá því að starfs-
menn lífeyrissjóða hefðu farið er-
lendis til að fræðast um verðbréfa-
viðskipti og taldi ótækt að menn sem
þægju laun frá verkalýðshreyfing-
unni leituðu effir fjárfestingum er-
lendis frekar en að leggja þau í verk-
efni innanlands.
Frá útifundi á Austurvelli gegn atvinnuleysi í upphafi árs. Þjóðhagsstofnun reiknar með 5 til 6 prósent atvinnuleysi í ár og á næsta
ári og lítilli hreyfingu á fjárfestingum innanlands. Myndir: ÓI.Þ.
árlega hefur verið fellt niður. Frá
1991 hefur tekjuskattur fyrirtækja
lækkað í áföngum úr 50 í 33 prósent.
Samkvæmt yfirliti fjármálaráðuneytis-
ins er þetta skattalækkun upp á 1,4
milljarða á ári. Lækkanir á vöru- og
jöfnunargjöldum frá 1991 eru upp á
að minnsta kosti 1,4 milljarðar króna
miðað við eitt ár. Þá hafa kornið rýmri
afskriftarheimildir upp á 50 milljónir
á ári. Nettólækkun skatts á skrifstofu-
og verslunarhúsnæði er á bilinu 70 til
130 milljónir. Á móti þessu kemur
breikkun tekjuskattsstofnsins, hækkun
fasteignaskatta, hækkun á trygginga-
gjaldi og sérstakt ábyrgðargjald. En í
heild eru skattalækkanir fyrirtækja
upp á 8,4 milljarða á ársgrundvelli, en
auknar álögur á móti 2,8 milljarðar.
Árlegur skattagróði fyrirtækjanna er
því nettó upp á 5,6 milljarða.
Skoðun Vikublaðsins á afkomutöl-
um fyrirtækja 1993 og 1992 sýnir að í
flestum tilfellum reyndist um veruleg-
an afkomubata að ræða, en á sama
tíma eykst atvinnuleysi og kaupmáttur
rýrnar. Að undanförnu hafa fréttir
birst í fjölmiðlum um tuga og hund-
ruða milljóna króna hagnað helstu
fyrirtækja landsins. Þeirra á meðal eru
kvótahæstu útgerðarfyrirtæki lands-
ins, en að öðru leyti eru það helst fyr-
irtæki í sjávarútvegi sem nú tapa og
einstaka fésýslufyrirtæki sem tapa
vegna þess hve mildð fer á afskriftar-
reikning þeirra. Vikublaðið hefur
áður birt lista yfir hagnað 64 fyrir-
tækja á síðasta ári þar sem í ljós kom
hagnaður upp á alls tæpa þrjá millj-
Fjárfesting á íslandi 1960-1994
Meðfylgjandi listi sýnir fjárfestinguna í milljónum króna birgðatölur og tölur fyrir 1994 eru spá frá því í vor. á núgildandi verðlag . Tölur fyrir 1993 eru bráða-
Atvinnugrein 1960 1969 1972 1978 1984 1987 1991 1993 1994
Landbúnaður 2.725 1.920 4.725 4.780 3.815 4.835 2.070 1.675 1.600
Fiskveiðar 5.450 625 5.920 5.210 3.270 8.565 2.850 2.135 2.100
Fiskvinnsla 1.250 500 2.520 3.115 3.060 2.940 1.545 1.625 1.700
Iðnaður/Stóriðja 1.590 7.810 7.465 9.300 7.880 8.705 7.335 5.610 5.660
Flutningstæki Versl-,skrifst- 2.725 750 3.180 3.750 3.080 3.625 10.130 2.030 3.700
og gistihús 1.135 1.715 2.930 4.140 4.950 9.745 4.750 4.195 4.000
Ýms. vélar/tæki 680 625 1.955 2.630 4.990 6.830 5.635 4.520 4.340
Alls atvinnuv. 15.555 13.945 28.695 32.925 31.045 45.245 34.315 21.790 23.100
íbúðarhús 6.590 7.515 12.980 18.260 18.385 15.840 17.435 15.230 15.300
Hið opinbera 6.600 14.160 19.370 24.395 22.155 22.765 27.960 25.235 23.700
Fjárfesting alls 28.745 35.620 61.045 75.580 71.585 83.850 79.710 62.255 62.100
milljarða í ár. Fjárfesting á sviði fisk-
veiða hefur hrunið úr 8,6 milljörðum
árið 1987 í áædaða rúma 2 milljarða í
ár. Einnig hefur orðið hrun í fjárfest-
ingu í landbúnaði og kannski að von-
um eftír slysin í fiskeldinu, sem þar
flokkast undir. Þarf að fara áratugi aft-
ur í tfmann tíl að sjá svo lida fjárfest-
ingu í landbúnaði og verið hefur síð-
ustu tvö árin. í iðnaði og stóriðju áttu
menn sem kunnugt er von á mildum
fjárfestingum vegna nýs álvers, en það
er út úr kortinu og er fjárfestíng á
sviði iðnaðar með minnsta móti. Þá er
fjárfesdng í verslunar-, skrifstofú- og
gistíhúsnæði í lægri kantínum, eink-
um ef miðað er við gróskuárið 1987
þegar Kringluævintýrið náði hámarki.
Hin miklu kaup á verðbréfum út-
gefnum erlendis eru til komin eftír að
höftum var létt af fjárfestíngu í er-
lendum langtíinaverðbréfum og eðli-
lega eru þessir innlendu aðilar að leita
eftir sem hæstri ávöxtun.
Athyglisvert er í þessu sambandi að
rifja upp hvað gert hefur verið í
skattamálum fyrirtækja á allra síðustu
árum - þ.e. í tíð ríkjandi ríkisstjórnar.
Samsvarar árlegum skatta-
ívilnunum ríkisstjórnarinnar
Aðstöðugjald upp á 5,3 milljarða
Sigurður Snævarr hagfræðingur hjá Pjóðhagsstofnun:
Byggjum ekki upp fyrir framtíðina
- Fjárfesting í atvinnuvegunum hef-
ur dregist saman um heltning á
nokkrum árum. Hvaða áhrifhefiirþað?
„Það blasir við að fjárfesting hefur
dregist verulega saman og þá erum
við ekki að byggja upp framleiðslu-
tækin fyrir ffamtíðina og eru ffarn-
leiðslutækin í raun að dragast saman.
Til að halda í við keppinautana er-
lendis þurfúm við svipuð tæki og
tækni og tíl þess þarf að fjárfesta,
annars drögumst við affur úr. Fram
að þessu hefur okkur eðlilega verið
starsýnt á fjárfestingu í fiskveiðunum
og þrátt fyrir allt hefur orðið mikil
fjárfestíng í fiskiskipaflotanum og þá
fyrst og ffemst í vinnsluskipunum.
En þegar fjárfesting er annars vegar
er það út af fyrir sig ekki magnið sem
segir allt heldur ekki síður gæðin.
Við höfum séð ár mikillar fjárfest-
ingar sem skilað hafa takmörkuðum
árangri. Það er hægt að nefna nei-
kvæða fjárfestingu á borð við Kröflu
eða fjárfesting í minnkun á skipum
landsins vegna reglugerðar um stærð
þeirra.“
- A sama tíma ogfiáifesting innan-
lands dregst sarnan eru innlendir aSilar
að kaupa erlend verðbréf í miklum
meeli. Hvað segir þetta okkur?
„Fyrst og ffemst held ég að menn
sjái enga sérstaka vænlega fjárfest-
ingakosti hérlendis. Það er aðalatrið-
ið. I fjárfestingum horfa menn til
lengri tíma og það má ekki gleyma
því að raunvextir hafa verið mjög
háir. Skuldastaða margra fyrirtækja
hefur verið afar slæm og þau hafa
verið í varnarbaráttu við að styrkja
skuldastöðu sína, ffemur en að vera í
fjárfestingarhugleiðingum. Þetta
gerist í efnahagslægðum. Eg tel þetta
skipta mestu; fyrirtækin eru að reyna
að styrkja innviði sína.“
- Sjd menn fyrir sér aukningu ífiár-
festingum innanlands á næstunni?
„Okkar spá gerir ráð fyrir 1,7 pró-
sent aukningu á fjárfestingu á næsta
ári og að aukningin verði að meðal-
tali 4,4 prósent á ári á árurium 1996
til 1998. Er þó ekki reiknað með ál-
veri eða slíku. Svo má ekki gleyma
því að við erum að draga úr veiðum
og styrkja þorskstofninn og það er
fjárfestíng sem ekki kemur ffam í rit-
um eins og Hagtölum mánaðarins."