Vikublaðið


Vikublaðið - 15.07.1994, Blaðsíða 8

Vikublaðið - 15.07.1994, Blaðsíða 8
8 Vf erlendum vettvangl VIKUBLAÐIÐ 15.JÚLÍ 1994 Undirrótin er ekki ættbálkastríð heldur hernaðaríhlutun Frakka Undanfarið hafa staðið yfir deilur milli ríkisstjórna Frakklands, Bandaríkjanna og annarra heimsvaldalanda um hvernig standa beri að hernaðaríhlut- un í Affíkuríkinu Rúanda. Yfir 200.000 manns hafa verið myrtir í á- tökum undanfarna mánuði og tala flóttamanna er komin yfir eina millj- ón, þar á meðal hafa tugþúsundir flú- ið til nágrannalandanna Tanzaníu, Zaire og Uganda. Fjöldamorð, skipu- lögð af ríkisstjórninni, hófust strax eftir dauða forseta landsins, Juvénal Habyarimana og forseta nágrannarík- isins Búrúndí, Cyprien Ntaryamira. Þeir fórust er flugvél þeirra var skotin niður 6. apríl síðastliðinn. Aratugalöng nýlendustjóm og arð- rán hefur gert Rúanda að einu fátæk- asta ríki heims. Þjóðartekjur svara til tæpra 19.000 króna á mann á ári. Helstu útflutningsvörur em kaffi (70%), tin (10%) og te (10%). Landið er fjórðungur af Isiandi að stærð og oft nefiit land hinna þúsund hæða sökum legu sinnar milli tveggja fjall- garða. í landinu búa 5,7 milljónir manna (árið 1983). Rúanda er eitt þéttbýlasta land heims, 220 manns á ferkílómetra. Rétt rúm 5% íbúanna búa í borgum, þar af 120.000 (árið 1978) í höfuðborginni Kigali. Meðal- aldur er einungis 46 ár og helmingur þjóðarinnar er ólæs. Ungbarnadauði er hár, 126 af hverjum 1.000 fæddum börnum ná ekki 5 ára aldri. Læknir er á hverja 27.000 íbúa, samsvarandi væru 10 læknar á Islandi. Menn af ætt- bálki Hútúa eru taldir vera um 85% íbúa Rúanda og af ættbálki Tútsa um 14%. Reglustikuskipting nýlenduherranna Rúanda og Búrúndí urðu þýskar nýlendur uppúr 1890. Þær vora sam- einaðar árið 1899 og hét nýlendan, Rúanda-Urúndí. Hún var þekkt íyrir útflutning á fi'labeini. I kjölfar ósigurs Þjóðverja í fyrri heimsstyrjöldinni var nýlendum þeirra skipt milli sigur- vegaranna. Bretar fengu Tanzaníu og norðurhluta Kamerún en Frakkar af- ganginn af landinu. Tógó var skipt milli Breta og Frakka. Hvíta minni- hlutastjórnin í Suður-Affíku fékk Namibíu og Belgar fengu Rúanda- Urúndí í sinn hlut. Þeir skiptu ný- lendunni aftur í Rúanda og Búrúndí og var þeim stjórnað frá bækistöðvum Belga í Kongó (núverandi Zaire), þeirra aðalnýlendu. Jafnt þýsku sem belgísku nýlendu- herrarnir ólu á gömluin erjum Hútúa og Tútsa til þess að viðhalda völdum sínum í landinu. Þeir hygluðu Túts- um á kostnað Hútúa. Settu Tútsa í ýmsar stjórnunarstöður, höfðu þá sem nokkurs konar samstarfsfélaga. Um 1960 hlutu flestar nýlendur í Aíríku sjálfstæði. Eins var um Rúanda. I upp- reisn Ilútúa og Tútsa árið 1959 kaus nýlendustjórn Belga að koma sér burt og Rúanda hlaut sjálfstæði 1962 að undangengnum kosningum 1961. I þeim hlaut flokkur Hútúa, Parmehutu meirihluta atkvæða og Gregory Kayi- banda varð forseti landsins. Valda- kerfið sem áður var sniðið að hags- munum Tútsa var afnumið en komið á kerfi sein ýtti undir frekari deilur þessara tveggja hópa. Við völdum tók ný ráðastétt, er samanstóð öðm frem- ur af fámennri yfirstétt Hútúa. Þúsundir manna tóku þátt í mótmælagöngu Föðurlandsfylkingarinnar RPF á veginum milli höfuðborgarinnar Kigali og borgar- innar Kayonza 27. júní sl. Mótmaalunum var beint gegn íhlutun Frakka í Rúanda. Frönsk stjórnvöld höfðu lýst því yfir að þau myndu takast á við fylkinguna, en þau hættu við. Nokkrum dögum síðar lýstu þau yfir að franskur her myndi ekki hefta sókn RPF eða koma í veg fyrir að hún ynni sigur. Fylkingin ræður nú yfir Kigali og mestöllu landinu. Það var svo í júlí 1973 að ungur ofursti og jafnframt varnarmálaráð- herra landsins, Juvénal Habyarimana, ffamdi valdarán. Varpaði forsetanum Kayibanda í fangelsi (hann lést sköinmu síðar) og leysti upp stjórnar- flokkinn, Parmehutu. Habyarimana gerðist náinn bandamaður Frakka og varð handgenginn ríkisstjórn Mobuto í Zaire. Hann gerði leynilegan hern- aðarsamning við Frakklandsstjórn tveimur árum eftír valdaránið 1973. Þegar uppreisnarmenn með aðsetur í Uganda hófu baráttu gegn ríkisstjórn- inni 1990 undir forystu Föðurla/ids- fylkingar Rúanda (RPF) sendu Frakk- ar fallhlífarhermenn og vopn stjórn- inni til hjálpar. Eins tóku Frakkar þátt í að fjármagna stækkun Rúandahers úr 5.000 í 40.000 manns. Franskir hern- aðarráðgjafar aðstoðuðu Rúandaher, jafnt við æfingar sem við hernaðarað- gerðir. Samkvæmt ffanska dagblaðinu Le Monde tóku ffanskir liðþjálfar þátt í að þjálfa þau herlið sem bera ábyrgð á flestum morðum undanfarna tvo mánuði. Franski ríkisbankinn, Credit Lyonnais, veitti Rúandastjórn nauð- synleg lán til vopnakaupa og afskrifaði síðar hluta skuldarinnar. Apartheid- stjórnin í Suður-Affíku tók einnig þátt í að vígvæða Rúandastjórn. Síð- ustu fimm árin sendi hún þangað vopn fyrir jafnvirði 2.000 milljóna ís- lenskra króna. Frakklandsstjórn er jafnan snögg til að neita flóttamönnum sem flýja stríð og efhahagshörmungar um landvist- arleyfi. Hún var jafn snögg að veita fjölskyldu Habyarimana og höfuð- paurunum í dauðasveitum hans póli- tískt hæli í landinu. Enda hefur Frakk- landsstjórn vígvætt, fjármagnað og haldið þessu liði uppi í þeim tilgangi að verja hagsmuni Frakka í þessum hluta álfunnar. Fjöldamorð af pólitískum ástæðum Fjöldamorðin undanfarið eru skipulögð af ríkisstjórn Rúanda, her þess og lögreglu. I ágúst á síðasta ári skrifaði stjórn Habyarimana og leið- togar RPF undir Arusha-samkomu- lagið í Tanzaníu og bundu þar með endi á þriggja ára borgarastríð í land- inu. Frönsku hermennirnir sem höfðu barist við hlið stjórnarhersins vora kallaðir heim en í staðinn komu 2.500 „ffiðargæsluliðar“ á vegum Samein- uðu þjóðanna. Hersveitir Belga voru sameinaðar sveitunum. Samkvæmt samkomulaginu hélt Habyarimana á- ffam sem forsetí landsins og yfirmað- ur hers en honum var gert að starfa með fjórum stjórnarandstöðuflokkum í samsteypustjórn. Forsætisráðherr- ann, Agathe Uwilingiyimana, önnur konan í Affíku til þess að gegna því embætti, kom ffá einum þessara flokka. Nýja ríkisstjórnin átti síðar að vinna með RPF á breiðari grundvelli. En það varð æ ljósara að Habyarim- ana hafði ekki hugsað sér að standa við samkomulagið. Haft var í hótun- um við þá embættísmenn stjórnarinn- ar sem ekki vora á bandi Habyarim- ana, þar á meðal forsætísráðherrann. I útvarpsstöð einnar stóreignafjölskyld- unnar var hvatt til þess að Hútúar myrtu Tútsa. Um leið og flugvél for- setans hafði verið skotín niður 6. apríl hófust fjöldamorðin. Uwilingiyimana og sex ráðherrar í ríkisstjórn hennar voru meðal fyrstu fórnarlambanna sem og nær allir leiðtogar stjórnar- andstöðuflokkanna. Þeir sem komist hafa undan segja flest morðin vera framin af hernum eða vopnuðum sveitum skipulögðum af flokld Habyariinana, NRM. Fjöldamorðin í Rúanda era gjarnan kennd við aldagamlar deilur ætt- bálkanna tveggja, Ilútúa og Tútsa. Þótt flestir hinna myrtu séu Tútsar, vora mörg morðanna framin af póli- tískuin ástæðum. Meðal fórnar- lambanna voru þúsundir Ilútúa. Sumir voru myrtir vegna samstöðu sinnar með RPF eða einfaldlega vegna þess að þeir vora ekki félagar í stjórn- arflokknuin, NRM. Aðrir voru myrtir

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.