Vikublaðið - 15.07.1994, Blaðsíða 10
10
VTKUBLAÐIÐ 15. JULI 1994
Áflnkhigl
Menn tala gjarnan um atvinnu-
leysi og atvinnuöryggisleysi
pöpulsins en ljóst er að ástandið er
aldeilis hrikalegt hjá séra Jónunum
okkar. Það liggur við að forstjórar
Isiands séu komnir í svipaða stöðu
og þjálfarar knattspyrnuliða og er
þá mikið sagt. Skoðum nokkur
dæmi.
Systkini Ingimundar Sigfussonar
í Heklu eru búin að reka hann. Er
sagt að gömul skrifstofukona í
Heklu hafi grátið við tækifærið.
Ingimundur á að hafa eytt of mikl-
um íjármunum og tíma í leðjuslag-
inn í forarpyttinum hjá Stöð 2.
Gróa á Leiti segir okkur að systkin-
in hafi greitt Ingimundi út sinn hlut
í Heklu með bréfunum í Stöð 2.
Gott á'ann, myndu sumir segja.
Páll Magnússon sjónvarpsstjóri
Stöðvar 2 er búinn að missa vinn-
una. A hinn bóginn virðist deginum
ljósara að hann getur slappað af í
bráð. Er starfslokasamningurinn
sagður svo hrikalega hagstæður Páli
að annað eins hafi aldrei sést síðan
Jón H. Bergs hætti hjá SS. Páll get-
ur lifað ágætu lífi á vöxtunum og
notað tímann til að undirbúa fram-
boð fyrir næstu þingkosningar. Eini
hausverkur Páls er að velja á milli
Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks.
Páll Kr. Pálsson er búinn að
missa vinnuna hjá Vífilfelli-Kók.
Gamla brýnið Pétur Bjömsson
þoldi ekki að Páll hafi sýnt sjálf-
stæði. Áður gafst Pétur upp á Sím-
oni Gunnarssyni og þar áður kom
Pétur málum svo fyrir að Lýður
Friðjónsson tengdasonur hans fékk
djobb fyrir Coca Cola Company í
útlandinu. En hvað á að gera við Pál
Kr.?
Davíð Skelfing Thorsteinsson er
ekki einasta búinn að missa vinnuna
hjá Smjörlíki-Sól,. hann er líka bú-
inn að missa Smjörlíki-Sól. Hann
hefur þótt góður „starfskraftur", en
gerði tvenn afdrifarík mistök. Hin
fyrri vom Sól-Kóla. Hin síðari voru
samningur við ótraustan aðila um
sölu á íslensku bergvatni til Banda-
ríkjanna.
Kannski má auðveldlega leysa at-
vinnuleysi þessara manna. Davíð
Skelfing ætti að verða framkvæmda-
stjóri Vífilfells, Palli Magg ætti að
fara til Smjörlíkis-Sólar og Páll Kr.
ætti að verða forstjóri Heklu. Ingi-
mundur? Hann verður bara að fara
á þing eða eitthvað. Varla getur
hann Ieyst Eggert Skúlason af sem
fréttamaður á Stöð 2?
Allt eru þetta að sjálfsögðu hinir
mestu og valinkunnustu sæmdar-
menn, sem enginn gat ímyndað sér
að yrðu látnir fjúka. Hvað kemur
eiginlega næst?
Lætur Hörður Sigurgestsson
reka Sigurð Helgason yngri sem
forstjóra Flugleiða? Dettur mönn-
um það í hug? Fýkur Brynjólfur
Bjarnarson frá Granda? Einar
Sveinsson frá Sjóvá-Almennum?
Það sem verra er; kemst í tísku að
tileinka sér orðbragð og hugsana-
hátt Guðmundur Kópavogskrata
Oddssonar sem sagði um daginn að
Kvennalistapíur mættu éta það sem
úti frýs? Það gengur á Stöð 2. Þar
ganga menn um með stóreflis ístru
efrir ótal máltíðir þar sem snætt hef-
ur verið það sem úti fiýs. Hafið'i
annars séð hvað Jón Olafsson er
orðinn þybbinn? Er það vegna þess
að hann gleypti Steinar Berg með
húð og hári? Eru það laxaveislurn-
ar? Nei. Hann er búinn að borða
yfir sig af því sem úti frýs. Og bráð-
um flytur Elín Hirst stórfréttir af
nýjustu afrekum Skífunnar og
Propaganda films.
I
Rithöndin
Með heimsmannslegt
yfirbragð en dulur undir
Skriftín þín lýsir ágætum leikara og
það starf ættirðu að stunda. Þú átt
auðvelt með að taka á þig hin ólíkustu
gerfi og stunduin manstu jafnvel ekki
sjálfur hvað ert þú og hvað er gerfið.
Að hluta kann þetta að stafa af því að
þrátt fyrir heimsmannslegt yfirborð
ertu dulur í skapi og þér er afar ilia við
að láta þínar innstu hugsanir í ljós. Þú
ert listfengur vel og hefur yndi af
ferðalögum. Ef þú getur ekki starfað
sem leikari ættirðu að vinna að ferða-
málum.
Þú ert víðsýnn og vel að þér á
mörgum sviðum, fjölffóður mætti
segja. Sjálfstæður en kærulaus með
köflum. Agætur verkmaður, duglegur
þegar þú vilt. Vilt helst fara þínar eig-
in leiðir sem oft eru nokkuð frumleg-
ar. En þú sleppur yfirleitt vel ffá hvers
konar klípum - þú talar þig út úr
þeim.
Líklega þykir þér ekki vænt uin
marga en afar vænt um þá sem ná
sambandi við þig. Annars virkar þú já-
kvæður í daglegu lífi
og munt vera vinsæll
og vel látinn. Þú þarft
aðeins að draga úr eðl-
islægri tortryggni
þinni og varúð - þó
hún sé vissulega
stundum nauðsynleg -
því þá mundi lífið
brosa við þér.
Gangi þér vel.
R.S.E.
Vernharður Linnet,
jazzgeggjari og dag-
skrárgerðarmaður.
Mynd; ÓI.Þ.
Neistaflug '94 um verslunarmannahelgina
Síðasta sumar var í fyrsta
sinn haldin fjölskylduhá-
tíð um verlsunarmannahelg-
ina í Neskaupstað undir heit-
inu Neistaflug '93.
Fjöldi þekktra listamanna
kom þar fram og heppnaðist
hátíðin vel í alla staði. Nú
hefúr verið ákveðið að efha til
samskonar hátíðar um næstu
verlsunarmannahelgi undir
heitinu Neistaflug '94. Það er
Ferðamálafélag Neskaupstaðar sem
stendur fyrir hátíðinni og er hún fjár-
mögnuð af bæjarsjóði ásamt fyrirtækj-
vun í Neskaupstað.
Hátíðarhöldin fara ffam í miðbæn-
um og næsta nágrenni og standa þau
ffá síðdegi föstudagsins til mánudags-
morguns. Hápunktur hátíðarhaldanna
er skemmtidagskrá á sunnudag sem
endar með varðeldi og flugeldasýningu
í Lystigarði bæjarins.
Miðbærinn verður allur skreyttur,
yfir 200 fermetra tjald og stórt svið
með tilheyrandi ljósaskreytingum
munu setja stóran svip á bæinn og
smðla að því að rétta stemmningin
skapist í sumarnóttinni.
Meðal þeirra sem koma ffam á
Neistaflugi '94 verða stórstjömur eins
og Bubbi Morthens, Hljómsveit Geir-
mundar Valtýssonar, Páll Oskar og
Milljónamæringamir og auk þeirra
Ullarbandið, Dixie-drengir, Ózon og
Siva. Þá verða úritónleikar, brúðuleik-
hús, Spíróli-leiktæki, fjöllistamaðurinn
The Mighty Gareth ffá Bretlandi, sjó-
skíðasýning, hjólreiðakeppnin Tour de
Norðfjörð, götukörfúbolti, bridgemót,
sjóstangaveiðimót og margt, margt
fleira.
Aðgangseyrir er enginn að hátíðinni
og tjaldstæði með fyrsta flokks aðstöðu
em sömuleiðis án endurgjalds.
Hjartagátan
Setjið rétta stafi í reitina neðan við krossgátuna. Þeir mynda þá nafn á skáldsögu. - Lausnarorð krossgátunnar í síðasta
blaði er Bárugerði.
7“ 2 r- 4- s 6> 7" 7 tí T“ 7 10 r 12 r-
n $? w~ 7 9 T~ 0- /2 7 1— n 5- 7
2 )S Us> tó T T~ I6> 12 /6 j? F— 7 77— w~
7• /9 7 7? T^ T~ V T~ 20 £r /9 7 w m 21
7 7To 19 21 T~ 7 7 \s 20 7 9 /9 7 7 7 S
23 7 7 5' /? ití 2 7 27 1 20 2S 17 8 7
7.ls> ? 20 7 27 2i2 Í>J /6 T~ 7 11 7 i/p 7 2—
2? 9 7 Ití H s~ 2D 8 7 !5 11 w /6 11 13
7 7 íT 7 T~ 20 7 7l sl y V 27 7 20 8
2¥ 7 2°) T~ W~ 7 4 27 7 5ö 5 TT~ 7 7
31 ‘2Z 27 4 7 2V Ití <7 7 V 15 IC? s~ 7 7
2.(o 27- 7 tí n ? 20 y 30 9 2S T~ 7 17 TT~
¥ 32 7 1 )7 2S 8 22 )Z 7 8 // S 19
4 /4 W )$ 1 11 II 2T T) TZ
S
Oneitanlega fylgja því nokkuð
blendnar tilfinningar þegar
sumarið er jafn ágætt og það hefur
verið hérna fyrir sunnan það sent af
er. Vissulega er maður ánægður
með að geta verið úti ívið létt-
klæddari en í janúar. Og grillilmur-
inn á síðkvöldum er veralega nota-
Iegur. En á móti kemur að maður er
að sjálfsögðu dauðstressaður yfir
því að þetta geti nú ekki varað lengi.
Stund sannleikans hljóti að fara að
renna upp með napurri gjólu, rign-
ingu og slyddu. Og slíkur kvíði í
einhvern veralegan tíma leikur
magann á fólki grátt. Að auki freist-
ast menn til að láta vinnu sína lönd
og leið og þær eru ansi margar
stofnanirnar og fyrirtækin sem varla
er hægt að kreista nokkra þjónustu
úr þegar sólin er upp á sitt besta.
Megnið af liðinu að skíra eða jarða
eða með einhverja torkennilega
Asíu-veiki. Svo þetta er dálítið
beggja blands.
Þó er enn verra þetta með gróð-
urinn. Þegar við fáum svona tíð þar
sem skiptist á sólskin og rigning þá
er engu líkara en grasið missi alla
stjórn á sér. Það verður bara eins og
minkur í hænsnabúi eða nýútskrif-
aður viðskiptaffæðingur í bótadeild
almannatrygginga. Það er engu
eirt.
I venjulegu árferði þarf litlar á-
hyggjur að hafa af grasinu. Yfirleitt
rignir stöðugt og allir vita að það
gengur ekki að slá í rigningu.
Þannig að það er í mesta lagi einu
sinni eða tvisvar á sumri sem ekki er
unnt að finna einhverja afsökun.
Nú og þegar við höfúm haft sólrík
sumur þá er bara að passa sig að
vökva ekki og þá verður garðurinn
eins og tannstellið í tvítugum Aust-
firðingum. Sviðin jörð.
Hvoragt hefur gengið það sem af
er þessu sumri. Og karlmennirnir í
blokkinni hjá mér eru því kross-
bölvandi um hverja helgi við að slá
lóðina, sem er á við fótboltavöll. Á
meðan sitja konurnar uppi á svöl-
um, lepja hvítvín og hrópa ganginn
í leikjum dagsins niður til þrælanna.
Svo er það nú ekki til að auðvelda
leikinn að einhver landslagsarki-
tektinn hefur komist í hönnunina á
lóðinni. Það er ekki nema sáralítill
hluti hennar sem unnt er að slá með
sæmilega stórvirku tæki. Allt er
þetta í stöllum og hólum og mann-
drápsbrekkum þar sem menn þurfa
að vera í sigkaðli til að geta athafn-
að sig. Þeir kannski leika það í Vest-
mannaeyjum en okkur höfuðborg-
arbúum þykir nokkuð snúið að
beita orfinu sprangandi á milli
hraungrýtisdranganna sem þarna
eiga að vera upp á punt. Það ætti
ekki að útskrifa nokkurn landslags-
arkitekt fyrr en hann væri búinn að
vinna eitt sumar einvörðungu í því
að sinna lóðum fjölbýlishúsa.
Síðan situr að sjálfsögðu hver
blokk uppi með einn eða tvo furðu-
fugla og vandræðamenn. Eg kom að
einum í vor þar sem hann var í
mestu makindum að dreifa áburði
yfir grasflötina. Og það var sama þó
við drifum okkur snarlega út nokkr-
ir félagar og reyndum að sópa þessu
saman með strákústum, skaðinn var
skeður og verður víst seint bættur.
Svo fór þessi skrattakollur auðvitað
út á land og verður þar til hausts.
Það er ábyrgðarhluti að láta svona
menn kenna börnum landsins.