Vikublaðið


Vikublaðið - 05.08.1994, Blaðsíða 4

Vikublaðið - 05.08.1994, Blaðsíða 4
4 VTKUBLAÐIÐ 5. AGUST 1994 heitir Melónusykur. Við ætlum að endurvinna alls konar dót og vita hvað hægt er að búa til úr rusli. Það var vinur minn sem gaf mér þessa lampahugmynd. Ég tek þvottabrúsa, set leiðslu í hann og perustæði þar sem tapp- inn er og svo langar mig að hafa gamaldags lampaskerm. - Fallega gert þegar einhver gefur manni hugmynd. - Já, ætli ég verði ekki að gefa honum hugmynd í staðinn. Bíómyndin „Ein stór fjölskylda" eftir Jó- hann Sigmarsson verður frumsýnd í vetur. Áður hefur Jóhann gert myndina „Vegg- fóður" með Júlíusi Kemp. En um hvað er myndin? - Hún er um gaur sem gerir fimm stelpur ófrískar. Ég held að myndin verði Chaplin-leg. Svo er mikið af jakkafötum í henni án þess að hún sé nein karlrembu- mynd. Myndin er frekar femínísk ef eitt- hvað er. Ég held að þessi mynd verði mikið „breikþrú". Ég vona það mín vegna. Ég hugsa að sýningu hennar verði helst jafnað við það þegar „Gone with the Wind" kom í lit. - Hvernig er að vinna með Jóhanni? - Jonni er mikill galdramaður, hann getur breytt víni í vatn. Hann er búinn að gera mynd uppá 24 milljónir og eina sem hann hefur fengið í styrk eru 2 millj- ónir. Ég kom til hans um daginn, hann var að hráklippa myndina og ég sá senu þar sem ég er að staulast drukkinn inn í bíl og lagið sem var spilað undir er „Hey Jude". Mér fannst söngröddin kunnugleg og það kom í Ijós að þetta var ég sjálfur að syngja. Jonni hafði tekið þetta upp í partýi í Fossvoginum fyrir fimm árum. Þá þekkti ég hann ekki neitt. - Þetta er soldið yfirnáttúrulegt. En hvernig vildi það til að hann valdi þig í að- alhlutverkið? - Það er skemmtileg sdga og ég skal segja þér hana. Jonni var búinn að finna leikara en sá maður vildi skyndilega verða leikstjóri og hætti við daginn áður en tökur áttu að hefjast. Ég og Valli sátum í góðu yfir- læti á bar þegar Jonni kemur þangað í öng- um sínum og segir okkur allt af létta. Valli stakk þá upp á mér í hlutverkið og ég fékk tíu mínútur til að ákveða mig. Málið með mig er að ég segi alltaf já ef ég er beðinn um eitt- hvað. Ef ég nenni því á annað borð. Ég fæ kannski smá fiðrildi í magann þegar ég tekst á við eitthvað sem ég hef ekki gert áður en þetta fiðrildi hjálpar mér. - Hvernig er að leika? - Óvinum mínum finnst ég breytast mjög mikið. Mér finnst það ekki, ég er áfram ég. Samt gerist eitthvað sem ég get ekki lýst. En það eru alltaf þessar týpísku spurningar: Hvernig var að komast inní karakterinn? Ég held frekar að karakterinn hafi komist inní mig. En vegna peningaleysis var myndin tekin á löngum tíma, fyrstu tökur voru fyrir ári síðan og þeim lauk í sumar, þannig að ég breytist mikið á þessum tíma. Ég ertil dæmis miklu sætari. Ég get breyst ótrúlega mikið á stuttum tíma. Ég stíg kannski uppí bíl, keyri niðrí bæ og fer út úr bílnum þar og þá er ég snarbreyttur, allt annar maður. - Ertu með einhver framtíðarplön? - Ég er ekki búinn að ákveða í hvaða efni ég ætla að vinna, enda finnst mér ekki eftirsókn- arvert að taka svoleiðis ákvörðun. Það er mikil framtíð í tölvum, ég var að kynnast tölvuneti og það er hægt að skoða Louvre-safnið í tölvunni minni. Það var verið að bjóða mér að halda sýningu í þessu tölvuneti. Þá myndi ég búa til tölvumyndir. Málverk í 16 milljón litum. Það er ekki svo slæmt. Seinna.í ágúst ætlum við Maggi vinur minn að keyra í kringum landið og taka Ijósmyndir af flottustu fjöllunum á (slandi, Herðubreið, Skálafellinu og Esjunni. Svo byggj- um við kastala á toppnum. - Þú hefur nóg að gera, hefurðu svona mikla orku? - Finnst þér það. Ég hætti að reykja fyrir mánuði og nú er ég á nýju mataræði, að minnka mjólkurdrykkju og sykurát. Ég verð alltaf að vera að búa eitthvað til, lygasögu eða listaverk. Allir sem ég þekki eru að búa eitt- hvað til. Eiður Snorri Ijósmyndari bjó til þessa indí- ánapípu, fléttaði perlurnar og allt. Nei, ég er ekki indíánatrúar. Ég trúi bara á hitt og þetta. í dag trúi ég á þetta tölvunet. Kannski trúi ég á guð á morgun. Þetta er annars skrítið orð, trú. En ég verð eiginlega að hætta að tala við þig núna. Ég lofaði að koma heim klukkan sjö og elda kjúkling. Viðtali Viðtal við Jón Sæmund Auðarson eftir Elísabetu Jökulsdóttur. ÞÁKOMÍ LJÓSAÐ ÞETTA VARÉG SJÁLFUR Inni (tjaldinu er sjónvarp og inní sjónvarpinu synda skrautfiskar. Ég get horft á sjónvarpið með því að setjast í hægindastól sem stendur í grasinu fyrir utan tjaldið. Þá veit ég ekki hvaða staður þetta er. Er þetta inní stofu eða í útilegu úti í guðsgrænni náttúrunni? Og ég finn fyrir sorg því fiskarnir eru horfnir úr sjónum og ég neyðist til að horfa á þá í sjónvarpinu og ég neyðist til að taka sjónvarpið með mér í útileg- una. Eða er ég að búa mér til útilegu inní stofu af því að náttúran er líka horfin. Mér sýnist ég vera búin að tyrfa stofuna. Hvað er ég búin að gera? Hvaða heimur er þetta? En þetta er líka fyndið. Og þetta er bara saklaust myndlistar- verk sem hefur verið komið fyrir á bílastæði í kjallara Borgarkringlunnar. Bílastæðasjóður ætti kannski að kaupa þetta verk. Höfundur þess er Jón Sæmundur sem sýndi þar ásamt félögum sínum í júlí og sýningin fékk lofsam- lega dóma og margir virtust fegnir því að það væri hægt að halda myndlistarsýningu á bíla- stæði en ekki bara á parketgólfum galleríanna. - Jón Sæmundur. Þetta er gott nafn. Hvers son ertu? - Ég er Auðarson. Ég er nýbúinn að breyta nafninu mínu. Ég gerði það fyrir mömmu. Hún ól mig upp og ég kynntist pabba aldrei. En nafnið mitt þýðir „Sá sem er verndaður af guði úti á sjó“. - Hefurðu farið á sjóinn? - Ég fór túr með varðskipinu Ægi sem við- vaningur en saknaði kærustunnar minnar svo mikið og ældi eins og múkki, að ég fór í land. En ég hef örugglega verið verndaður. Jón Sæmundur er einn af þeim sem setur svip á bæinn og er alls staðar og útum allt. Hann er 26 ára Reykvíkingur, myndlistarmaður og hefur nýlokið við að leika aðalhlutverkið í ís- lenskri bíómynd „Ein stór fjölskylda". Auk þess framleiðir hann lampa úr þvottaefnisbrúsum og byggir kastala á fjallstoppum. - Ég hef verið að mála í nokkur ár og tekið kúrsa í Myndlistarskólanum í Reykjavík. Ég er ekkert of veikur fyrir skólum. Hvað heitir fyrir- tækið sem er með svona „sjokkerandi" auglýs- ingar? Benetton, já. Forstjóri þess ætlaði að stofna listaskóla, þar sem væru engir kennarar og engar bækur en Fidel Castró átti að vera skólastjóri. Það er kannski svoleiðis skóli sem mig langar í, ekki skóli sem kennir stranga anatómíu, þó það sé eflaust góð undirstaða. - Um hvað eru verkin þín? - Manstu eftir verkinu mínu á Óháðri listahá- tíð í fyrra? Það voru fuglar í búri, þar fyrir aftan raðaði ég peningum (sem vinir mínir gáfu mér eða ég tók af atvinnuleysisbótunum mínum.) og utan um var mold og laufblöð. Þetta verk er eitthvað um frelsi, sem sagt mjög djúp pæling á bak við það. Maður er kannski orðinn fastur í einhverju sem maður á, sinn eigin þræll og kemst ekkert, ekki einu sinni í huganum. Ég þvældist um bæinn þegar ég var að vinna að þessu verki og týndi laufblöð af trjánum, sumir héldu að ég væri klikkaður og hrópuðu að mér ókvæðisorðum en þá sagðist ég vera í vinn- unni. - Verkið í Borgarkringlunni, er það ekki líka um frelsi? - Og útilegur. Frelsi og útilegur. - Hvaða leiðir á maður að fara til að öðlast frelsi? - Skjóta sig. - Verður mað- ur ekki fyrst að útvega sér byssuleyfi? - Ég á byssuleyfi en ég ætla ekkert að nota það fyrr en í byltingunni. - Ætlarðu sem sagt að skjóta þig í byltingunni? - Nei, ég ætla að skjóta kellinguna á neðri hæðinni sem er alltaf að berja kallinn sinn. - Hvað varð um verkið sem er úr fuglum, pen- ingum og mold? - Visa ísland keypti það um daginn. En þeir vilja að ég komi og setji lifandi fugla í búrið. Mér finnst gaman að vinna með dýr. Hingað til hef- ur þetta þó verið þröngur hringur, smá- fiskar og smáfuglar. í næsta verki sýni ég kannski lifandi beljur sem ég hef kennt að hneggja. Mér finnst skemmtilegt hvernig hugmyndir þróast. Fyrst var bara stóll og sjónvarp í nýja verkinu mínu, svo þegar ég fann tjald frá 1950 á flóamarkaði vissi ég að óg átti að tjalda yfir sjónvarpið. Þá spratt grasið af sjálfu sér. - Þú hefur líka ver- ið að vinna að bók- um? - Já, með vini min- um Valgarði Braga- syni. Hann gerir oft texta við verkin mín. Hann kemur stund- um hingað og stelur skissum og kemur svo seinna með ein- hver orð. Við Valli gáfum út bókina „Flugeldar" og ég hef gert bókarkápur fyrir hann. En ég verð að standa mig í mynd- listinni svo ég endi ekki sem leikari. - Áttu stóra Eg get breyst ótrúlega mikiö á stuttum tíma. Ég stíg kannski uppí bíl, keyri niðrí bœ og fer út úr bílnum þar. Þá er ég snarbreyttur, allt annar maður. drauma í myndlistinni? - Það eru stærstu draumarnir. Hvað meinarðu annars með draum- um? - Viltu hafa áhrif á fólk, snerta það eða bara fá að vinna í friði? - Mig langar allavega ekkert til að hræða fólk. Ég segi ekkert um þetta núna, fyrir utan það að ég ætla að verða heimsfrægur. Hvernig líst þér á lampana mína? - Vel. Ég myndi fara og selja Öss- uri umhverfisráðherra þrjátíu lampa. Það ætti að banna að nota öðruvísi lampa en þessa í umhverfisráðu- neytinu. - Þakka þér fyrir. Best að gera það. Ég og vinur minn, Fjölnir Bragason og Magnús Þorsteinsson vorum að Stofna lítið fyrirtæki sem

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.