Vikublaðið


Vikublaðið - 05.08.1994, Blaðsíða 8

Vikublaðið - 05.08.1994, Blaðsíða 8
8 VIKUBLAÐIÐ 5. ÁGÚST 1994 Uppeldi um of- beldi og bland- aðar fjölskyldur Er ofbeldi ókei þegar það er í formi tölvuleikja? Um þetta er spurt í sumarblaði Uppeldis sem nú erkomið út. Vita íslenskir for- eldrar að { dag eru ekki til nein lög eða reglur yfir tölvuleiki? Vita þeir að marga grófa leiki er að finna í heimil- istölvum, éf ekki heima hjá þeim þáef til vill heíma hjá besta vini eða vin- konu barnsins? Málefni unglinga og stálpaðra barna fá drjúgan sess í blaðinu og að þessu sinni í greinunum Er ofbeldi ókei? Leiktækjasalir, (eru þeir hrein og klár fjárplógsstarfsemi eða bara saklaus afþreying?) og Unglingar og atvinnuieysi. Þemaefni þessa blaðs er blandaðar fjölskyldur þar sem tekið er á því hvernig hin gamla kjarnafjölskyldu- ímynd ríki enn þrátt fyrir að annars konar fjölskylduform, stjúpfjölskyld- an, sé í síauknum mæli að leysa hina af hólmi. Meðal annars er að finna greinina Ný fjölskylda reist á rústum anharrar en margir stjúpforeldar gera sér enga grein fyrir hvers stjúpfor- eldrahlutverkið krefst af þeim og sumir erfiðleikar stjúpbarna eiga ræt- ur sínar að rekja til samfélagslegrar höfnunar á því fjölskyldumynstri sem þau búa við. Fjallað er sérstaklega um samsetningu stjúpljölskyldunnar, hvort stjúpforeldri fyrir sig, og um stjúpbörnin. Vonda stjúpan fær að lokum sinn skerf í hugleiðingu um Félagsfundur Alþýðubandalagsins í Reykjavík Félagsfundur ABR verður haldinn á Hótel Holiday Inn fimmtudag 11. ágúst 1994 kl. 20.30 „Og nú á að fara að kjósa - um hvað ?“ Svavar Gestsson alþingis- maður hefur framsögu. Almennar umræður Önnur mál Heiðmerkurferð ABR Ferð ABR í gróðurreit félagsins í Heiðmörk sunnudag 14. ágúst 1994. Farið verður frá Hlemmi kl. 11.00 og frá skiptistöðinni í Mjódd kl 11.15 stjúpur í ævintýri og veruleika. Meðal efhis í sumarblaðinu er einnig eftirtaldar greinar: Vinir í raun - en samt bara þykjustu, en nærri læt- ur að fimmta hvert barn eigi sér þykjustuvin einhvern tíma bernsk- unnar. Horfa, hlusta og snerta heitir önnur grein en þar má finna hug- myndir að því hvernig foreldrar geta hjálpað ungbarninu að virkja sjón, heyrn og snertiskyn. Hvað kostar í barnaherbergið? er spurt í Uppeldi og reynt af gefa fólki hugmynd um hvað það kostar að innrétta barnaherbergi. Tímaritið Uppeldi er hægt að fá í á- skrift en það er einnig selt í lausasölu í Pennanum og'Eymundsson. Utboð F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í verkið „Nesjavallavegur, Vegmálun". Verkið felst/í að mála miðlínur og marklínur á Nesjavallaveg og heimreið að Nesjavöllum. Lengd vega er samtals um 25 km. Verkið skal vinna á tímabilinu 15.-25. ágúst 1994. Utboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykja- vík, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 10. ágúst 1994, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 Vikublöð á barmi gjaldþrots Vikublöðin Eintak og Pressan heyja nú harðá baráttu gegn yfir- vofandi gjaldþroti. Fyrirtæki Friðriks Friðrikssonar, bókaútgáfan AB og þau félög sem gefa út Pressuna, Heimsmynd, Viðskiptablaðið og fleiri blöð, hafa gripið til ýmissa aðgerða til að koma í veg fyrir rekstrarstöðvun. Þá hefur Gunnar Smári Egilsson, forsprakki Ein- taks, leitað eftir fjárinagni hjá hugsanlegum nýjum hluthöfum og hafa nöfn Jóns Olafssonar í Skífunni og Jóhanns Ola Guð- mundssonar í Securitas verið nefnd. Síðastliðinn þriðjudag lýsti blaðið í útvarpi eftir Andrési Magnússyni, hluthafa og um- brotsmanni blaðsins. Svo sem menn muna var Gunn- ar Smári rekinn af Pressunni og stofnaði hann í kjölfarið Eintak. Þessi blöð hafa háð harða baráttu um markaðinn og gæti svo farið að bæði blöðin yrðu undir í sam- keppninni. Vitað er til þess að Eintak skuldar starfsfólki sínu mikið í uppsöfnuðum launum og staðan gagnvart prentsmiðjunni Odda er erfið. Samkvæmt heim- ildum Vikublaðsins hefur Eintak boðið auglýsingar á mun hagstæð- ara verði en Pressan og selur blað sitt að auki mun ódýrar. Hefur þetta dregið úr lausablaðsölu og auglýsingasölu Pressunnar, eink- um síðustu tvo mánuðina eða svo. Friðrik Friðriksson hefur gripið til þess ráðs að segja upp öllu starfsfólki AB og boðið starfsfólki Pressunnar upp á að gera verk- takasamning, sem felur í sér nokkra kjaraskerðingu. Starfsfólk- inu var tjáð að það hefði þessa vinnuviku til að gera upp hug sinn. Blaðamannafélag Islands hefur ítrekað varað blaðamenn við verktakasamningum. Það fylgir ineð verktökutilboðinu að blaðamenn Pressunnar yrðu skyldugir til að skrifa í önnur rit Friðriks Friðrikssonar, einkum þó í Heimsmynd, sem Friðrik keypti nýlega, en hefur ekki haft efni á að ráða blaðamenn að. Skattgleði Þessa dagana geng ég um með bros á vör, enda líður mér eins og miskunnsama samverjanum. Alagningarseðlarnir voru að berast ffá skattinum. Eg ber byrðar mínar glað- ur í lund, því verkefni hins opinbera eru ærin. Það þarf að halda úti skóla- kerfi svo að börn mín geti notið fyrir- myndarmenntunar. Svo er heilbrigð- iskerfið. Kona mín er hjúkrunarfræð- ingur og móðir tnín er Ijósmóðir og kynni mín af starfsskiiyrðum þeirra hafa fært mér sönnur á að þar er fjár- munum ekki of ríflega skammtað. Ekki má gleyma löggæslunni, vega- framkvæmdum, húsnæðismálum, dagvistárstofnunum, rannsóknar- stofnunum og öllum hinum brýnu verkefnum sem ríki og bæjarfélög þurfa að standa undir. Þá gleðst ég mjög yfir að geta stutt við bakið á fyr- irtækjum þessa lands sVo að þau geti haldið uppi atvinnu í landinu. Núverandi ríkisstjórn hefur tekið til hendinni og breytt ýmsu hér á landi í sinni valdatíð. Sumt er til bóta eins og vera ber en annað hefði betur ver- ið óbreytt. Eitt af því eru verulegar til- færslur í skattkerfinu. I stuttu rnáli fel- ast þær í því að miklum byrðum hefur verið létt af fyrirtækjum landsins, en álögur á almenna launamenn hafa verið auknar til muna. Mér til gamans reiknaði ég út hvað minn skerfúr er stór til að létta undir með fyrirtækjum þessa lands. I valdatíð núverandi ríkis- stjórnar hef ég greitt rúmlega 100.000 krónur í aukna skatta, þegar tekið er tillit til rýrnandi persónuafsláttar. Hið sama gildir um konu mína, þannig að fjölskylda mín greiðir nú liðlega 200.000 krónur meira í tekjuskatt en fyrir þremur árum. Nokkur huggun er fólgin í því að við erum ekki ein á báti í þessum efnum. Samkvæmt op- inberum heimildum hafa skattaálögur almenns launafólks aukist um 3,3 milljarða á milli áranna 1992 og 1993. Er það fyrir utan þjónustugjöldin, ó- beinu skattana og allt hitt sem ó- mögulegt er að henda reiður á. Það veldur mér einnig óblandinni ánægju hve fórnfúsir við launamenn höfum verið í garð fyrirtækjanna, en við höf- um forðast mjög að bera ífam óhóf- legar launakröfur. Nú eru sælutímar hjá íslenskum fyrirtækjum, enda eiga þau hauk í horni sem ríkisstjórnin er (fyrrverandi framkvæmdastjóri VSI situr m.a. í áhrifamiklu embætti). Ráðstafanir rík- isstjórnarinnar hafa falið í sér að fyrir- tækin þurfa ekki lengur að greiða 5,3 milljarða í aðstöðugjöld. En það eru sannir höfðingjar sem sitja við stjórn- völinn. Tekjuskattur fyrirtækja hefur einnig verið lækkaður um 6% og er það dágóð búbót. Enda græða fyrir- tækin vel þessa dagana. Forsendan fyrir þessari ölmusu til íslenskra at- vinnurekenda er sú hugmyndaffæði að með því móti standi fyrirtækin sig betur í samkeppninni og það muni léiða til aukinna fjárfestinga og ný- sköpunar. Hugmyndir þessar hafa reyndar verið urn nokkurt skeið í Bretlandi og Bandaríkjunum án þess að það hafi dugað til að færa efnahags- lífið upp úr öldudalnum. Þess í stað hafa arðgreiðslur aukist og einka- neysla forstjóranna orðið íburðar- meiri, þannig að misskipting auðs og gæða er það sem við blasir. Ekki er laust við að þróunin renni eftir líkum farvegi hér á landi. Atvinnurekendur hafa fyllstu ástæðu til að vera ánægðir með frammistöðu núverandi ríkisstjórnar og forystumanna Jafnaðarmanna- flokks íslands. Eg hef lengi velt vöng- um yfir pólitík Jóns Baldvins. Nú hef ég komist að raun um að hann er hinn ókrýndi Hrói Höttur 20. aldar sem tekur ffá þeim efnaminni og færir þeim ríku. Nema að ég hafi misskilið gangverk þjóðlífsins og að atvinnu- rekendurnir séu hinir einu sönnu órnagar íslands.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.