Vikublaðið


Vikublaðið - 05.08.1994, Blaðsíða 7

Vikublaðið - 05.08.1994, Blaðsíða 7
tjornmalin „Stöðug vinna frá morgni til kvölds aö halda saman • • sameigin- legu Jramboði VIKUBLAÐIÐ 5. ÁGÚST 1994 óskir tíl handa íþróttahreyfmgunni í þessu nýja sveitarfélagi. Það er að við sameinumst í þeim greinum sem við höfum ekki náð langt í, en höldum fé- lögunum sem hefur gengið vel, eins og í körfuboltanum og fótboltanum. Þannig gætum við innan tíðar átt í- þróttahreyfmgu sem svaraði þörfum sem flestra. Eg er því aldeilis ekki laus við að hafa áhuga á íþróttum. Svo við snúum okkur að öðru, nú hejúr afstaðan til hersins löngurn vcrið hitamál á Suðumesjum, held- urðu að breyttar forsendur í þeim efnum hafi haft ábrifá úrslit kosn- inganna í vor? Já, það má segja að það hafi brotnað ákveðinn múr í þessum efnum. Bæði hvað varðar afstöðu Alþýðubanda- lagsins þar sem formaðurinn hefur komið með nýtt viðhorf til hersins og líka hvað varðar afstöðu okkar Jó- hanns Geirdal. Eg hefði viljað semja við herinn um aðskilnað fyrir löngu, þannig að starfsfólkið fái aðlögun. Suðurnesjabúar 'hafa þjónað þeim, gefið þeim heila kynslóð af starfsfólki. Eg hef trú á að þeir vilji ekki henda þeim út á guð og gaddinn. Til eru menn sem liggja á hnjánum til þess að biðja herinn að vera, vegna þess að það þjónar þeirra hagsmun- um, en fólk er farið að sjá að við höf- um rétt fyrir okkur. Eg hef aldrei farið í felur með af- stöðu mína tíl hersins. Þessi sveitarfé- lög hafa alltaf átt mikil samskipti við herinn, en ég hef beðist undan því að fara í fínu veislurnar þeirra. Fyrir mttugu árum lagði Alþýðu- bandalagið á Suðurnesjum ffam Suð- urnesjaáætlunina. Þar er lögð áhersla á að aðskilja herlíf og mannlíf og byggja upp atvinnulíf á Suðurnesjum óháð hernum. Því miður fengust ekki peningar í þetta verkefhi. Það hafa allt að 1.000 manns unnið fyrir herinn, nú eru það aðeins 600. Þetta er óskaplega stór hlutí af vinnuafli á Suðurnesjum. Þann tíma sem ég var í meirihluta með Sjálfstæðisflokknum þá áttí ég þau samskipti við herinn sem nauð- synleg voru. Ég leit á hann sem fyrir- tæki, en ekki sem sveitarfélag. Fram hjá honum varð ekki farið, en afstaða inín til hans hefur ekkert breyst. Jóhann Geirdal hefur sem formað- ur Verslunarmannafélags Suðurnesja unnið af alúð fyrir það fólk sem hefur starfað fyrir herinn. Við höfum labb- að okkar Keflavíkurgöngur og verið kölluð kommar fyrir. Mín skoðun er sú að það hefði ekki skipt máli hvaða þjóð hefði átt her hérna, sama fólkið hefði verið herstöðvarandstæðingar og sama fólkið hefði stutt veru hers- ins. Fyrir mér hefur þetta alltaf verið spurning um það að við ættum þetta land og að við værum ekki skotmark. Sólveig var fimm barna móðir þegar hún bytjaði í pólítík eti er nú tíu bama amma. A sínum tíma starfaði hún með Rauðsokkahreyf- ingunni sem hún telur að megi þakka margar framfarir. Hvemig hefur þér gengið að hasla þér völl í þeim karlaheimi sem íslensk stjóm- tnál óneitanlega eru? Bara vel. Það er oft talað um að konur eigi ekki möguleika nema þær berjist fyrir tílveru sinni í pólítíkinni. Eg hef ekki lent í þessu. Mér hefur alltaf fúndist ég vera jafningi karlanna sem ég á samskipti við. Eg tel að reynsla mín sem móðir hafi nýst mér í móðurhlutverldnu. Kona sem hefúr eignast barn og annast það öðlast svo mikinn þroska . Hún öðlast skilning á þörfúm mannsins og þjóðfélagsgerð- inni allri. Kraftarnir voru dreifðir Þess vegna er óþolandi að konur og sjónarmið þeirra séu ekki meira áber- andi í pólítík. Sem betur fer er skipt- ing kynjanna nokkuð jöfn í stjórn nýja sveitarfélagsins, en þar sitja fimm konur og sex karlar og bæði forseti bæjarstjórnarinnar og forseti bæjar- ráðs eru konur. Þess vegna vona ég að sjónarmið kvenna munu endur- speglast í stjórn syeitarfélagsins. Hver telurðu að séu mikilvœgustu verkcfnin á þessu kjörtímabili? Að vinna að því að sameiningin tak- ist vel. A þann veg að við getum byggt upp atvinnu og Suðurnes getí veitt öllum íbúum sínum góða þjónustu í menningar- og menntamálum, heil- brigðis- og heilsugæslumálum. Fram að sameiningu voru kraftarnir dreifð- ir. Þess vegna nýttust fjármunirnir illa og ekki tókst að fullnægja öllum þörf- um í þessum efnum. Ég held líka að ailir sveitarstjórnarmenn séu áhyggju- fullir út af atvinnumálum. Mér finnst mikilvægt að koma á virkri atvinnu- miðlun. Nú er atvinnuleysi hjá okkur 4%, höfum farið upp í 7%. Nú eru í gangi átaksverkefúi sem lækka töluna, en það lítur út fyrir að atvinnuleysi sé að verða viðloðandi. Nálægðin við alþjóðaflugvöllinn gef- ur marga möguleika í atvinnumálum. Þar má nefna ferðaþjónustu. Það er nefnilega mjög falleg náttúra á Suður- nesjum, þó að það gleymist stundum af því að við höfum engin fjöllin. Eitt af því sem þarf að byggja upp í þessu nýja sveitarfélagi eru al- mennningssamgöngur, en mikið vantar á að samgöngur milli ólíkra byggða sveitarfélagsins séu nógu góð- ar. Eg held að þetta kjörtímabil verði ekki að öllu leytí marktækt hvað varð- ar sparnað og hagræðingu af samein- ingunni. Það má segja að nú sé eins konar ineðgöngutími og sveitarfélag- ið eigi enn eftir að.taka út marga túeð- göngukvilla. Ekki með þingmanninn í maganum Ég á mér miklar vonir tengdar Al- þýðubandalaginu og starfi mínu í sveitarstjórn. Mig langar tíl þess að þetta nýja sveitarfélag megi verða fyr- irmynd annarra sveitarfélaga á Islandi. Þó að við höfum orðið fyrir vonbrigð- um þegar gengið var framhjá okkur, sem vorum sigurvegarar kosninganna, þá leggjum við Jóhann áherslu á að til þess að vel takist til verði að vinna bróðurlega saman og ieggja niður gamlar erjur og flokkadrætti. Þegar gengið var framhjá G-listanum við myndun meirihlutans var ekki aðeins gengið framhjá okkur, heldur og ekki síður þeim sjónarmiðum og hug- myndum sem við stóðum fyrir og vor- urn tilbúin að vinna að. Við fulltrúar G-listans munum gera allt sem við getum til þess að koma þessum sjónarmiðum á framfæri. Þó að við kæmumst ekki í meirihluta núna þá er það ekki heimsendir. Það er trú mín að það fólk sem kaus okkur nú muni halda áfram að vera okkur hvatning til þeirra verka. Ég hef líka mikla trú á unga fólkinu í þessu landi og held að það trúi ekki á sérhyggjuna og velji aðra kosti. Þú ert ekki að hugsa um aðfara út í landsmálapólítíkina? Nei, ég er ekki með þingmanninn í maganum. Ljósmóðurstarfið er mér mikilvægara en svo að ég vilji fórna því fyrir þingmennskuna. En ef til þínyrði leitað? Það hefur verið leitað til mín. Ég væri kannski kannski til ef mér byðist að verða heilbrigðisráðherra, ég hef mjög ákveðnar hugmyndir í þeim efn- urn, segir Sólveig og með það kveðj- umst við. Kannski ljósmóðir af Suður- nesjum verði næsti heilbrigðisráð- herra? -is. Hjartagátan Setjið rétta stafi í reitina neðan við krossgátuna. Þeir mynda þá bæiarnafn. Lausnarorð krossgátunnar í síðasta blaði er Brynjólfur. T* 3 4 5" V 4 áj H TT 12 T 13 H /r )(a f i? (p 18 T $ d 7T~ 20 T~ W 21 22 H )& zz $2 (s T~ TG )S S2 lí't 2 s? )? 20 \(o 8 \2 isr W— 10 °) 20 W 2 V (o 18 Z¥ 23 W T— TZ— T ú * )!> lU ](p W to 22 2 2 I? Tö— I? V 25’ 6 'H, y 2 !? 8 l# e \6 Z2 T /5 2/ 12 /íT 7T~ T 22 T~ 2? 2 itt Z3 V V \<i V M W~ ('o 28 )5 ir s V > T~ re— n sr 8 L> 22 T~ íl* V $ rv ii w s w~ S2 (t> ii W 2 W 2 4 2 zi z T 28 1? hT~ U /iT IV y 22 2 3) (p y T~ w !S \8 y 2f 22 W~ T~ T L> lb 7W 18 V W 1 iS 11 11 5’ )8 )y Ko 8 2 A = 1 = Á = 2 = B = 3 = D = 4 = Ð = 5 = E = 6 = É = 7 = F = 8 = G = 9 = H = 10 = 1 = 11 = í = 12 = J = 13 = K = 14 = L = 15 = M = 16 = N = 17 = o = 18 = Ó = 19 = P = 20 = R = 21 = S = 22 = T = 23 = U = 24 = Ú = 25 = v = 26 = x = 27 = Y = 28 = Ý = 29 = Þ = 30 = Æ = 31 = Ö = 32 =

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.