Vikublaðið - 05.08.1994, Page 11
VIKUBLAÐIÐ 5. ÁGÚST 1994
11
Four Weddings and
a Funeral ★★★
Sýnd í Háskólabíó
Leikstjóri:
Aðalhlutverk: Hugh Grant, Andie
MacDowell, Rowan Atkinson
að er óneitanlega gleðiefni
þegar handritshöfundar ein-
hverra bestu bresku grínsjón-
varpsþátta sem gerðir hafa verið taka
sig til og búa til heila bíómynd. Það
verður þó að athuga að slík yfirfærsla
þarf ekki að ganga alveg slysalaust fyr-
ir sig, sú hætta er fyrir hendi að þeir
festi sig í því að gera smtt og hálfsam-
hengislaus grínatriði eins og þeir
komast upp með í grínþáttunum. En
þetta eru klókir menn, eins og nafn
myndarinnar bendir til fjallar hún um
fimm sjálfstæð atvik, fjögur brúðkaup
og eina jarðarför sem tengjast þó skýrt
innbyrðis og ná þeir því að halda sig
við það sem þeir gera best án þess að
gera það á kostnað heilsteypingar.
Hugh Grant leikur siðprúða mið-
stéttarbretann, inanngerð sem hann
kann orðið utan að og þarf því engan
að undra hversu firnavei hann stendur
sig. Svo má í raun segja um bróður-
hlutann af leikhópnum, þau keppast
við að Ieika hvert annað í kaf ef und-
anskilinn er Rowan Atkinson, en hann
er algjörlega vannýtmr og það er eins
og hlutverki hans hafi verið bætt inn í
eftir á að vanhugsuðu máli, það er
synd að þeir skuli ekki hafa getað nýtt
fyndnasta mann Bretiands aðeins bet-
ur.
Á köflum minnir þessi mynd svolít-
ið á morðgátu eftir Agöthu Christie,
maður er sífellt að velta fyrir sér „hver
sé næstur", en í stað þess að falla í val-
inn læmr fólk gifta sig og er þar kom-
inn hliðarangi á Christieformúlunni
sem hún lét sér aldrei detta í hug sjálf,
blessunin. Það er hálfgert grundvall-
aratriði fyrir því að fólk geti skemmt
sér á þessari mynd að það hafi gaman
að breskri kíinni, hún gerist víst ekki
öilru breskari en þetta og finnst mér
því hálfundarlegt að myndin hafi
gengið sem skyldi í Bandaríkjunum en
maður hefði haldið að myndir sem
þessi ætm ekki greiða leið upp á pall-
borðið hjá þeim.
En það er ekkert sem stendur í vegi
fyrir því að mynd þessi verði stór-
smellur á pínkulítdlli eyju í Norður-
höfum þar sem innfæddir taka því
með fegins hendi þegar eitthvað ann-
að en amerískt skemmtiefni er borið á
borð fyrir þá.
Beverly Hills Cop 3 ★★
Sýnd í Háskólabíó og Bíóhöllinni
Leikstjóri: John Landis
Aðalhlutverk: Eddie Murphy,
Judge Reinhold, Bronson Pinchot
Eddie Murphy er maður sem
Bandaríkjamönnum þótti
hreint óheyrilega fyndinn á
árum áður. Mikið vam hefur runnið
til sjávar síðan þá, og þessa dagana
þarf Eddie að bægslast til að halda
ferli sínum lifandi.
Nýjasta og örvæntingarfyllsta
dæmið um það er tilraunin til að end-
urvekja myndaseríuna um Axel Foley,
lögguna í Beverly Hills. Þrátt fyrir að
ýmsir aðstandendur séu hér að selja
sig fyrir lágt verð er myndin illskárri
heldur en síðasta mynd seríunnar,
númer tvö, sem var handónýt svo ekki
sé meira sagt. Það má kannski helst
þakka fjarveru Birgitte Nielsen og
nærveru John Landis, þó svo að þetta
verkefni sé ekki hans rishæsta.
Þó svo að söguþráðurinn sé eins
formúlukenndur og mögulegt er, þá
sjá stórbrotin áhætmatriðin og hröð
atburðarásin til þess að áhorfandanum
leiðist ekki meðan á sýningu stendur,
nema þá hann hafi farið á mynd þessa
með því hugarfari að hún væri eitt-
hvað á borð við Stríð og frið, en ef svo
er hlýmr hún augljóslega að valda
vonbrigðum.
Galdurinn er því að væntingarnar
séu sem minnstar, mynd þessi hefur
þann eina tilgang að skemmta fólki og
gerir það bærilega, þrátt fyrir allan ó-
frumleikann og þá staðreynd að Eddie
Murphy virðist gjörsamlega hætmr að
vera skapandi grínleikari, hann hjakk-
ar stöðugt á sömu karakterunum þar
til þeir verða svo kunnuglegir að
manni verður hálfóglatt. Ekki ósvipað
honum Ladda upp á síðkastið, satt að
segja. John Landis er eiginlega í svip-
uðurn sporum hér og Eddie, hann
hefur ekld riðið feimm hesti frá und-
anförnum verkefhum sínum (sbr. Inn-
ocent Blood) og er því Cop III einnig
tilraun til að blása lífi í hans feril.
Eg verð að segja fyrir mig að mér
hefur aldrei leiðst á mynd eftir John
Landis, en ég veit samt að hann gemr
gert merkilegri hluti en akkúrat þessa
mynd. En þrátt fyrir takmarkaða ris-
hæð og næfurþunnan söguþráð er
þessi mynd ágæt aðferð til að myrða
tvær klukkusmndir af lífi þínu. Betri
drápsaðferð en margar aðrar.
Utboö
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í verkið
Álftaneshæð 1. áfangi.
Verkið felst í að endurnýja hluta af aðveituæð fyrir Bessastaða-
hrepp milli Engidals og Garðaholts.
Æðin er 0300 mm stálpípa í 0450 mm plastkápu. Heildarlengd er
um 1200 m.
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. nóvember 1994.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykja-
vík, frá og með fimmtudeginum 28. júlí 1994, gegn kr. 15.000.-
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 16. ágúst 1994,
kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Lausn myndagátunnar í síðasta blaði er: „Þessa verslunannannahelgi eru haldin skipulögð hátíðarhöld vtða um land.“