Vikublaðið


Vikublaðið - 26.08.1994, Blaðsíða 4

Vikublaðið - 26.08.1994, Blaðsíða 4
4 Menningln VIKUBLAÐIÐ 26. ÁGÚST 1994 LANDSPITALINN / þágu mannúðar og vísinda SKURÐDEILD KVENNADEILDAR Skurðhjúkrunarfræðingur 100% staða hjúkrunarfræðings er laus til umsóknar frá 1. september. Á skurðdeild kvennadeildar eru aðgerðir á sviði fæðinga og kvensjúkdóma. Leitað er að áhugasömum og glaðlegum hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á skurð- hjúkrun og kennslu. Hjúkrunarfræðingar/ljósmæður 100% staða hjúkrunarfræðings/ljósmóður er laus til um- sóknar á skurðdeild kvennadeildar frá 1. september. Við- komandi þarf að hafa áhuga á hjúkrunarstörfum á skurð- deild. Boðið er upp á aðlögunartíma sem felur í sér kennslu og þjálfun. Vinnutími er frá kl. 8-16 alla virka daga. Fjór- skiptar gæsluvaktir. Skurðdeild kvennadeildar sinnir bráða- þjónustu allan sólarhringinn, allt árið. Nánari upþlýsingar veita Helga Einarsdóttir, hjúkrunar- deildarstjóri, sími 601148 og Guðrún Björg Sigurbjörnsdótt- ir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, sími 601000. HANDLÆKNINGADEILD 4. 13-D Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa við handlækningadeild 4. Á deildinni eru 25 sjúkrarúm. Starfsemi deildarinnar í dag skiptist í almennar skurðlækningar og þvagfæraskurð- lækningar. Hjúkrun á deildinni er því mjög fjölbreytt. Hjúkr- unarfræðingum er boðinn góður aðlögunartími eftir þörfum hvers og eins undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Unnið er á 12 tíma vöktum þriðju hverja helgi eða 8 tíma vöktum aðra hvora helgi. Starfshlutfail fer eftir samkomu- lagi. Á deild 13-D er einnig laus staða hjúkrunarfræðings á fastar næturvaktir eða í hlutastarf, t.d. um helgar. Allar frekari upplýsingar um starfsemi deildarinnar veita Elín María Sigurðardóttir, aðstoðardeildarstjóri, í síma 601350 og Anna Stefánsdóttir, hjúkrunarframkvæmda- stjóri, í síma 601300. SKURÐDEILD LANDSPÍTALANS Vegna aukningar á starfsemi skurðdeildar Landspítalans er laus nú þegar staða skurðhjúkrunarfræðings. Sveigjan- legur vinnutími getur verið í boði, t.d. einstakir daga vikunn- ar, kvöldvaktir eða hluti úr degi auk hefðbundins vinnutíma deildarinnar frá kl. 7.30 til 15.30 og bakvaktir. Starfsemi deildarinnar er ákaflega fjölbreytt og hefur verið í örum vexti undanfarin ár. Sérstök aðlögun fyrir nýja hjúkrunar- fræðinga undir góðri leiðsögn skurðhjúkrunarfræðinga deildarinnar. Allar frekari upplýsingar veita Svala Jónsdóttir, hjúkrunar- stjóri, í síma 601319 og Anna Stefánsdóttir, hjúkrunarfram- kvæmdastjóri, í síma 601300. GEÐDEILD LANDSPÍTALANS Laus er staða hjúkrunarfræðings á deild 12, sem er mót- tökudeild á Kleppi. Staðan er 100% vaktavinna. Hlutavinna kemur til greina. Nánari upplýsingar gefur Nanna Jónasdóttir, hjúkrunar- framkvæmdastjóri, í síma 602600 eða 602646. TÆKNISVIÐ Umsjónarmaður lóðar Óskum eftir manni vönum almennri lóðaumhirðu. Ennfrem- ur þarf viðkomandi að hafa þekkingu á vélum. Upplýsingar um starfið gefur Hagerup Isaksen í síma 602600. ENDURHÆFINGARDEILD LANDSPÍTALANS Sjúkraþjálfara vantar á endurhæfingardeild Landspítalans í Kópavogi frá 1. september nk. Glæsileg æfingaaðstaða með sundlaug er á staðnum. Mik- il uppbygging er nú í starfseminni sem spennandi er að taka þátt í. Einnig vantar aðstoðarmann í sjúkraþjálfun og við sund- laug sjúkraþjálfunar í Kópavogi. Upplýsingar gefa Guðný Jónsdóttir, yfirsjúkraþjálfari, í síma 602725 og Guðrún Sigurjónsdóttir, framkv. sjúkra- þjálfunar, í síma 601430. Skilgreining Hvort sem sagan er línurit eða súlurit í auga hagfrœðingsins á skjánum er heimurinn kartafla í lófa guðs. Herhvöt úr norðri Þú sem áttir heima með eyju í hjartanu og víðáttur geimsins sem stétt undir iljunum: Réttu mér norðurljósin! Ég œtla að dansa við unglinginn sem heldur á stjörnunum. Við roðflettum myrkrið og afhausum eymdina. Barátta trillukarla Vissulega er hinn frjálsi maður ekki lengur veginn með vopnum, ekki höggvinn í herðar niður eða brenndur á báli. Sem slíkur gœti hann öðlast samúð sagnritara og jafnvel orðið gjaldgengur á myndbandaleigum framtíðarinnar. Þess í stað er honum svipt burt með snyrtilegri reglugerð og málinu skotið til markaðarins sem mállaus vinnur.sín verk. Afleiðingar stefmileysis Ibúar flestra þjóða leitast sameig- inlega við að finna tilgang og sjá hvers þeir kunni að vera megnug- ir. Það eru venjulega aðeins fáir ein- staklingar sem reyna að skilgreina sí- breytiieg einkenni þjóðar sinnar. Venjulega eru þetta hugsuðir, en þó hafa skáldin oftar skapað þannig per- sónur í verkum sínum að ein eða fleiri eru taldar vera tákn fyrir þjóðina. Okosturinn við þetta er sá, að umræð- ur um skáldskap verða fljótt að orða- leppum sem allir þylja og staglast á, enda fer jafnan á svipaðan hátt fyrir bókmenntunum og hugsjónunum, stefhum hættir til að lenda í höndum einstrengingslegra manna með Iitla hugsun en ógurlegan sannfæringar- kraft í stað þarfar fyrir að vera með andann á stöðugri hreyfingu, eða á verði, eftir því hvernig samfélagið og tungan þróast. Persóna í sögu hvorki þróast né breytist hversu oft sem bókin er lesin og aðdáendur fjalla um hana. Aftur á móti eru þjóðir á valdi aðstæðna og breytast stöðugt. Þess vegna getur tákn úr bók virkað hjákátlega á fólk eftir að tvær kynslóðir hafa gengið til grafar fullar aðdáunar á því, einkum í breytilega samfélaginu semkennt er við nútíma og hraða. Því væri betra að höfundar reyndu að gera sjálfa sig að tákni fyrir komandi kynslóðir með viðhorfi eða lífsmáta sínum. Islendingar eru ekki gefnir fyrír að brjóta heilann um eðlið, enda erum við í stöðugu tíinahraki og megum varla vera að neinu nema á síðustu stundu. Við reynum með dugnaði að beygja aðra með skoðunum á eðli olckar og komumst upp með slíkt við útlendinga. Enginn heilvita ferða- maður andmælir manni af fáinennri þjóð, þótt hann fari með fleipur í heimalandi sínu. Það tekur Jjví ekki í stuttri heimsókn. Þess vegna getum við staðhæft, að tunga okkar hafi ekki breyst ffá upphafi vega, sem er auðvit- að haugalygi, af því hér hefur aldrei verið, líkt og í útlöndum, akademía málsins sem heldur að minnsta kosti ritmálinu í skefjum. Þetta er ineinlaus blekking fyrir aðra, en verra er t.d. sú sem snýr að okkur sjálfum og veður uppi í samfé- laginu, en við Iftum ffam hjá. Stjórn- málamenn og skáldin hörfa undan í málflutningi sínum og hafa fáar skoð- anir aðrar en þær sem nálgast orða- leppa. Allt far þeirra einkennist af leit að atkvæðum og vinsældum, sem raunverulegir stjórnmálamenn sækj- ast ekki eftir nema rétt fyrir kosning- ar, fjórða hvert ár, og skáldið aldrei. Skáldum svipar til flugvéla; þær fara á loft í mótvindi. Vont er hvað fáir sjá að breyttar að- stæður í fiskveiðum verða til þess að iðjuver í landi verða atvinnuleysi að bráð, vinnslan færist út á hafið. Stór hluti þjóðarinnar fer að vera allt árið úti á sjó að vinna í rafmagnsljósi undir þiljum. Mun sálin og líkaminn þá ekki þekkja annað en stöðugan velting? Verður þjóðin vísir að margs konar rekaldi, ef fiskveiðiflotinn siglir undir hentifánum, ekki þjóðfánanum, og hugsun landkrabbas kemur helst fram í mærðarhjali í endalausum þáttum fjölmiðla um samfélagið í nærmynd sem er felumynd hins lítilsiglda manns í orðsins fyllstu merkingu

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.