Vikublaðið


Vikublaðið - 26.08.1994, Blaðsíða 8

Vikublaðið - 26.08.1994, Blaðsíða 8
8 Viðhorf VIKUBLAÐIÐ 26. AGUST 1994 Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra Aðalfundur kjördæmisráðs og sumarmót 1994, laugardaginn 3. september á Raufarhöfn í félagsheimilinu Hnitbjörgum kl. 10:30 -19:00 DAGSKRÁ: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. Skýrsla stjórnar Reikningar kjördæmisráðs 2. Útgáfumál og flokksstarf. Reikningar Norðurlands Útgáfa í aðdraganda kosninga Flokksstarf og fjármál 3. Undirbúningur Alþingiskosninga. Tilhögun uppstillingar/kosning kjörnefndar 4. Stjórnmálaviðhorfið - Áherslur Alþýðubandalagsins 5. Afgreiðsla mála 6. Kosning stjórnar kjördæmsiráðs 7. Önnur mál. Gestur fundarins verður Árni Þór Sigurðsson, borgarfull- trúi og formaður kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins í Reykjavík. Á laugardagseftirmiðdag verður skoðunarferð um ná- grenni Raufarhafnar og austanverða Melrakkasléttu fyrir sumarmótsgesti og fjölskyldur þingfulltrúa, en um kvöld- ið verður skemmtun í boði heimamanna. Á sunnudag verður róið til fiskjar ef veður leyfir. Stjórn kjördæmisráðsins. Af persónulegri stj órnsýslu s IMorg'unblaðinu 10. ágúst sl. er birt yfirlýsing frá hópi fólks um ánægju þess með störf menning- arfulltrúa Islands í Lundúnum. Yfir- lýsingin kemur í kjölfar ákvörðunar utanríkisráðherra um að setja menn- ingarfulltrúann yfir sendiráðið og hlýtur því að teljast - bráðnauðsyn- legur - siðferðilegur stuðningur við þá ráðstöfun. Það sem skiptir máli Listamennirnir Tolli og Bubbi Morthens eru meðal þeirra sem leggja nafn sitt við yfirlýsinguna, en sem kunnugt er hafa þeir gegnum tíðina verið ófeimnir að taka málstað að- stöðulauss fólks í íslensku samfélagi. Þeir gera fyrir sína parta grein fyrir yfirlýsingunni á lesendasíðu Mbl. og benda réttilega á að vegna haustkosn- inga, sem allt stefndi í, hefðu óprúttn- ir stjórnmálamenn reynt að gera emb- ættisfærslu utanríkisráðherra tor- tryggilega. I þeim ljóta leik hefði menningarfulltrúinn - ómaklega - at- ast auri. Þeir taka það ffarn að vel megi vera að ráðning menningarfulltrúans á sín- um tíma beri vott um pólitíska spill- ingu, en þeir taka ekki afstöðu til þess. Enda skiptir það ekki máli, aðalatriðið er að þeir þekkja menningarfulltrú- ann, þeir kunna vel við hann og finnst hann hafa staðið sig með prýði. Þetta er hárrétt „afstaða" hjá lista- mönnunum og ætti að hjálpa fólki til skilnings á því að utanríkisráðherra verður að geta ráðið fólk sem hann kann vel við, svo þjóðin sitji ekki uppi með eitthvert lið í utanríkisþjónust- unni sem hann „fílar“ ekki. Hér mega bjánaleg formsatriði ekki þvælast fyrir tilfinningum og vilja ráðherra. Sorry Stína, jafnaðarstefn- an hefur forgang I sambandi við semingu menning- arfulltrúans yfir sendiráðið í Lundún- um hafa þær raddir heyrst að einhver konukind (meee...!), sem búin er að starfa í utanríkisþjónustunni bráðum tvo áratugi, hefði með réttu átt að taka við starfinu. Hér er sami misskilning- urinn enn á ferð. Hver er þessi kona? Er hún sannur jafhaðarmaður? I fyrsta lagi: Það er ekki víst að ut- anríkisráðherra kunni við hana. I ann- an stað: Fólk í stuðningshópunum þekkir hana ekki og getur þess vegna ekki gefið út yfirlýsingu um að hún hafi staðið sig sem skyldi í sendiráð- inu. Stuðningshópurinn hefur ein- faldlega enga reynslu af þessari konu. Misskilningur þessi er því miður dýpri en menn gera sér í fljótu bragði grein fyrir - fólk virðist hreinlega ekki skilja Jafnaðarmannaflokk Islands og þá hugsjón sem hann stendur fyrir, jafhaðarstefhuna sjálfa; að öllum op- inberum stöðum og embættum skuli jafnað niður á formannsholla alþýðu- flokksmenn eftir því sem við verður komið. Að efla einn flokk til ábyrgðar, ef svo mætti segja. Margur skjólstæðingur Jafhaðar- mannaflokks íslands hefur átt í nokkru basli með að kyngja velgjörð- um formanns síns, svo hratt eru þær fram bornar og vel útilátnar. En þó er það hin gamla íslenska öfund og póli- tíska rætni sem einkanlega hefur spillt lystinni. Þess vegna yljar það inanni um hjartarætur að sjá nánast alla flóru íslenskrar þjóðar rísa upp og mót- mæla. Þar eru í breiðfylkingu af- burðafólk á sviði lista og viðskipta og svo bara venjulegt fólk, sem vinnur störf sín í kyrrþey. Dásamlegt. Dá- samlegt vegna þess að allir vita að enginn veit hver verður næstur. Höfundur er áhugamaður um framgang jafnaðarstefhunnar og persónulega stjómsýslu. Alþýðubandalagsfólks í Reykjaneskjördœmi og Suður- landskjördœmi laugardaginn 3. september 1994 kl. 16.00 - 23.00 að Nesi í Selvogi - milli Strandakirkju og Selvogsvita. Fjölskylduleikir, skemmtiatriði, grillveisla, kvöldvaka við varðeld og flugeldasýning. nns Allir velkomnir - líka úr öðrum kjördæmum og utan flokka - börn og foreldrar - afar og ömmur -frœndur og frœnkur - vinir og kunningjar Mætum öll! Engin fyrirhöfn! Matur og drykkur á staðnum! Gerum okkar glaðan dag! Alþýðubandalagið á Reykjanesi og á Suðurlandi efnir til fjölskyldu- hátíðar í Selvogi laugardaginn 3. sept- ember nk. frá kl. 16.00 - 23.00. Allt Alþýðubandalagsfólk, einnig úr öðrum kjördæmum og aðrir velunnar- ar og samstarfsfólk flokksins er velkomið ásamt ættmennum, vinum og kunningjum. Hátíðarsetning á Nesi Safnast verður saman á hátíðar- stað í Nesi milli kl. 16.00 og 17.00 laugardaginn 3. september. Greiðar akstursleiðir eru frá öllum byggðarlögum í Reykjaneskjör- dæmi og í Suðurlandskjördæmi. Aðalvegir eru í gegnum Prengslin, eftir Krísuvíkurleið og Suðurlands- vegi. Fjölskylduleikir Þegar hátíðargestir hafa safnast saman milli kl. 16.00 og 17.00 verður upp úr kl. 17.00 efnt til margvíslegra Qölskylduleikja þar sem ungir og aldnir geta skemmt sér meðan beðið er eftir að hin glæsilega grillveisla hefjist. Heimsóknir í Selvogsvita og Strandakirkju Þeir hátíðargestir sem áhuga hafa geta einnig heimsótt Selvogsvita og Strandakirkju, kannað útsýnið eða átt kyrrláta stund í hinni sögu- frægu Strandakirkju. Hátíðarsetning Upp úr kl. 18.00 verður fjölskyldu- hátíðin formlega sett með ávörpum alþingismannanna Margrétar Frímannsdóttur og Ólafs Ragnars Grímssonar. Söngur og annar gleðskapur verður einnig í upphafi hátíðar. Stórkostleg grillveisla Kl. 19.30 hefst stórkostleg grill- veisla með öllu tilheyrandi. Grillaðir verða heilir skrokkar, læri og pylsur. Einnig verður á boð- stólum frábært grænmeti úr gróðurhúsum í Hveragerði og hið landsfræga kartöflusalat Selvogs- hátíðar. Kvöldvaka við varðeld Kl. 21.00 verður kveikt í miklum bálkesti sem reistur hefur verið úr rekaviði í Selvoginum. Þar verður efnt til kvöldvöku með marg- víslegum skemmtiatriðum, söngv- um og hljóðfæraslætti. Flugeldasýning og mótsslit Kl. 23.00 verður flugeldasýning og fjölskylduhátíðinni slitið. Þátttökugjald - matur innifalinn Þátttökugjald er kr. 700 og er þá fjölhreyttur matur innifalinn. Börn tólf ára og yngri fá frítt og greiða ekki sérstaklega fyrir matinn. Drykkjarföng, öl, gos og ávaxtasafi verða seld sérstaklega. Þátttökutilkynningar Til að auðvelda skipulagningu ijöl- skylduhátíðarinnar og til að tryggja að allir fái nægan mat og geti gert sér glaðan dag eru þeir sem ætla að koma vinsamlega beðnir að tilkynna sig og sína á skrifstofu Al- þýðubandalagsins, sími 91-17500 eða til Margrétar Frímannsdóttur, sími 98-31244 eða til Ólafs Ragn- ars Grímssonar, sími 91-623575. Útbúnaður Hátíðargestir eru minntir á að hafa með sér góðan skófatnað og hlífðarföt svo og sessur til þess að sitja á ef rakt skyldi vera á jörðu. Alþýðubandalagið Reykjaneskjördæmi Suðurlandskjördæmi

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.