Vikublaðið - 26.08.1994, Blaðsíða 12
Munið
áskriftarsímann
17500
Uppreisn gegn siðlaus-
um viðskiptaháttum
s
g hef verið viðloðandi neyt-
endamál lengi og mér finnst
að almenningsálitið sé að
breytast. Fólk gerir meiri kröfur,
íýlgist betur með og við erum að
sjálfsögðu ánægð með það, því um
leið fær málstaður okkar betri
hljómgrunn. Fólk bregst harðar
við, t.d. gagnvart þjónustugjöldum
bankanna, sem því finnst að sé ver-
ið að þvinga upp á sig. Það gengur í
auknum mæli með peningana á sér
eða nýtir sér póstgírórcikningana.
Fólk vill heldur ekki láta verðsam-
ráð oUufélaganna líðast, en því
miður eru þar engir valkostir, utan
að láta bílinn standa, segir Jóhann-
es Gunnarsson hjá Neytendasam-
tökunum í samtali við Vikublaðið.
Einstaklingar og samtök rísa nú í
vaxandi niæli gegn óréttmætum við-
skiftaháttum og takmarkaðri sam-
keppnisstöðu á ýmsum sviðuni. Ekki
síst beinist gremja fólks að umdeild-
um nýjum þjónustugjöldum fésýslu-
stofnana, markaðsráðandi verslunum
og ólöglegu verðsamráði olíufélag-
anna.
Upplýst hefur verið að notkun al-
mennings á gíróreikningum Pósts og
síma hafi íjórfaldast á aðeins síðustu
þremur mánuðum og er það beint
svar fólksins við stórhækkun þjón-
ustugjalda banka og sparisjóða vegna
ávísana- og debetkortaviðskifta.
Neytendasamtökin áttu á þriðjudag-
inn sérstakan fund með fúlltrúum fé-
sýslustofnananna þar sem samtökin
kröfðu viðmælendur sína um skýring-
ar og réttlætingar á þjónustugjalda-
Selvogs-
hátíðín
verður
3. sept.
- Fjölskylduhátíð Alþýðu-
bandalagsfólks í Reykjanes-
kjördæmi og Suurlandskjör-
dæmi á mótum kjördæmanna í
Selvogi verður að þessu sinni
laugardaginn 3. scptember, en
í fyrra tókst fyrsta Selvogshá-
tíðin frábærlega og var fjölsótt.
Selvogshátíðin er haldin í landi
Ness, milli Strandakirkju og Sel-
vogsvita, í boði hjónanna Fríðu
Ágústsdóttur og Ilafsteins Hjart- '
arsonar. Á dagskrá eru meðal i
annars fjölskylduleikir, skemmti- :
atriði, grillveisla og kvöldvaka við }
varðeld. Þátttökugjald er kr. 700 j
og er þá matur innifalinn. Drykk- '
ir eru seldir á staðnum þannig að :
samkomugestir þurfa ekki að taka
annað með sér en skjólgóð föt og
sessur. Allir eru velkomnir, líka úr
öðrum kjördæmum og utan
flokka. Lesa má nánar um Sel-
vogshátíðina í sérstakri auglýs-
ingu í blaðinu.
BETRA BENSÍN ÁSHEUSTÖD
V < .
op.no i b•• j
Olíufélögin virðast ekki kunna á frjálsa verðlagningu. Bankarnir virðast starfa undir mottóinu: Okkar er valdið, en þau átta sig ekki
á því að landslagið er að breytast, segir Jóhannes Gunnarsson.
breytingunum og voru svörin á þá leið
að gjöldin hér væru sambærileg þeim
sem tíðkast erlendis, bara lægri auk
þess sem þjónustan væri betri. Vax-
andi fjöldi viðskiftavina fésýslustofn-
ananna eru á öðru máli.
Samkeppnisstofnun skoðar nú mál-
efni Hagkaups og Bónuss vegna kæru
Samtaka iðnaðarins þess efnis að
verslanasamsteypa þessara aðila sé
orðin markaðsráðandi og geti m.a.
beitt umboðsaðila þvingunaraðgerð-
um. Hagkaup og Bónus gengu sem
kunnugt er í eina sæng ekki alls fyrir
löngu og stofnuðu í kjölfarið dreifing-
arfyrirtækið Baug. Ur varð versl-
anarisi með einstæða stöðu á niark-
aðnum.
Samkeppnisstofnun skoðar einnig
málefni olíufélaganna sem nýverið öll
sem eitt hækkuðu bensínið um tvær
krónur lítrann. Bæði samkeppnisráð
og Neytendasamtökin telja að um
verðsamráð hafi verið að ræða og að
samkeppni sé ekki til staðar milli olíu-
félaganna í bensínsölu.
Aðspurður segir Jóhannes Gunn-
arsson að Neytendasamtökin hafi ver-
ið ein um það á sínum tíma að vara við
afleiðingum þess er Hagkaup keypm
helmingshlut í Bónus. „Samþjöppun
bitnar fyrst og ffemst á neytendum.
Stórkaupmenn eru nú með fúllyrð-
Tölvunefnd eltir skottið á sér
Stéttarsamband bænda sótti í
fyrra um leyfi tölvunefndar til
að bera saman ásetningsskrár og
sláturinnleggsskrár með það í
huga að Ieiða í Ijós umfang heima-
slátrunar bænda. Nefndin veitti
leyfið en með skilyrðum og hefúr
núna sent erindi til Stéttarsam-
bands bænda þar sem spurt er
hvort Stéttarsambandið telji það í
lagi fyrir sitt leyti að skrámar séu
keyrðar saman.
Skilyrði tölvunefndar fyrir sam-
keyrslu ásetningsskrár Búnaðarfé-
lags Islands og slámrinnleggsskrá
Framleiðsluráðs landsbúnaðarins
voru þau að farið yrði með upplýs-
ingarnar sem „trúnaðarmál, og varð-
veislu þeirra háttað í samræmi við
það og óheimilt er að afhenda öðr-
um upplýsingarnar sem fást við sam-
tenginguna nema að fengnu sérstöku
Ieyfi tölvunefndar."
Vegna skilyrðanna nýttist heim-
ildin ekki Stéttarsambandi bænda til
að komast að raun um umfang
heimaslátrunar. Málið fór aftur fyrir
tölvunefnd og svar nefndarinnar
birtist í formi fyrirspurnar tii Stétt-
arsambands bænda um það hvort
sambandið leyfi að upplýsinganna sé
aflað. Stéttarsambandinu virðist því
hafa verið selt sjálfdæmi í málinu.
ingar sem styðja okkar málstað og
hefðu þessar áhyggjur betur mátt
koma fyrr. Bankarnir virðast starfa
undir mottóinu: Okkar er valdið, en
þau átta sig ekki á því að landslagið er
að breytast. Og olíufélögin virðast
ekki kunna á ffjálsa verðlagningu.
Virk samkeppni er grundvallaratriði
og ef menn kunna ekki á frjálsa verð-
lagningu á ffamkvæmdavaldið að
skerast í leikinn og verðleggja fyrir
þá,“ segir Jóhannes.
I þessu sambandi er rétt að minna
lesendur á að á vegum viðskiptaráðu-
neytisins og Samkeppnisstofnunar
stendur nú yfir vinna við úttekt á
eignatengslum og hringamyndun á Is-
landi og á affakstur að sjá dagsins ljós
fyrir árslok. Samkvæmt heimildum
okkar hefur það hægt mjög á þessari
vinnu hversu treglega hefur gengið að
fá nauðsynleg gögn frá ýmsum fyrir-
tækjum.
Stórfundur
um hverfa-
félög
Reykjavík-
urlistans
Reykjavíkurlistinn heldur opinn
fúnd á Hótel Sögu á morgun,
laugardag, en þar verður rætt um
stofnun hverfafélaga Reykjavíkur-
listans og annað er lýtur að starfi
listans. Fundurinn er um leið
stofnfúndur samtaka Reykjavíkur-
listans.
Stofnun hverfafélaga hefur gengið
hægt um sig í sumar, en undirbúning-
ur vegna stofnunar hverfafélags
Breiðholtshverfa er einna lengst kom-
inn. Stofnfúnd þess félags á að halda í
Gerðubergi 6. september kl. 20.30. Þá
er hverfafélag í Grafarvogshverfi
komið á rekspöl.
Þá má geta þess að með lækkandi
sól í haust munu málefnahópar
Reykjavíkurlistans hefja störf á fullu
og verða þau mál einnig til umræðu á
fundinum á morgun. Fundurinn hefst
kl. 14
Alþýðubandalagið vill aukið
vægi í Sambandi sveitarfélaga
Fulltrúar Alþýðubandalagsins
munu á landsþingi Sambands
íslenskra sveitarfélaga um
næstu helgi gera kröfu til þess að fá
aukið vægi í fulltrúaráði og stjóm
sambandsins, í Ijósi kosningasigurs
flokksins í sveitarstjómarkosning-
unum í vor. Þá er uppi umræða um
að hinir fjölmörgu fulltrúar óháðra
lista fái mann inn í níu manna
framkvæmdastjóm sambandsins.
Að líkindum kæmi það í hlut Al-
þýðuflokks og Sjálfstæðisflokks að
láta mann af hendi.
Fulltrúaráð sambandsins skipa 45
manns, en í níu manna framkvæmda-
stjórn sitja nú fjórir sjálfstæðismenn,
sem að auki hafa formennskuna, tveir
framsóknarmenn, tveir alþýðuflokks-
menn og einn frá Alþýðubandalaginu,
Sigríður Stefánsdóttir. Fyrir utan að
rætt sé um að annar alþýðubandalags-
maður komi fyrir krata er talað um að
sjálfstæðismaður víki fyrir sameigin-
legum fulltrúa óháðra eða gefi eftir
formennskuna.
Á landsþinginu sitja 229 fulltrúar
frá 173 sveitarfélögum. Sjálfstæðis-
flokkur og Framsóknarflokkur hafa
sterka stöðu vegna mikils vægis sveit-
arstjórna landsbyggðarinnar og má
nefria að í 45 manna fulltrúaráði eru
aðeins 9 úr Reykjavík og á þingið sjálft
koma þaðan aðeins 14 fulltrúar. I fúll-
trúaráðinu sitja aðeins 15 fúlltrúar
Reykjavíkur og Reykjanesskjördæmis.