Vikublaðið


Vikublaðið - 26.08.1994, Blaðsíða 5

Vikublaðið - 26.08.1994, Blaðsíða 5
VIKUBLAÐIÐ 26. AGUST 1994 5 Góð reynsla af uppstokkun á rík- isrekstri í Noregi Undir forystu ríkisstjómar Verkamannaflokksins í Nor- egi hefur verið ráðist í rót- tækar breytingar á skipulagi opin- bers reksturs í landinu. Samtök op- inberra starfsmanna þar í landi, Yrkesorganisasjonenes Sentralfor- bund - Seksjon Stat (YSS), taka já- kvæða afstöðu til breytinganna og beita sér fyrir því að trúnaðarmenn starfsmanna séu með í ráðum og að tekið sé tillit til atvinnuöryggis starfsfólks. Vorið 1992 lagði ríkisstjóm Brunt- lands fram þingsályktun um stefnu norsku stjórnarinnar í ríkisrekstri. Jaín- framt hafði ríkisstjórnin látið vinna á- ædun um breytingar á opinberum rekstri og hvernig hún sá fyrir sér þróun opinberrar þjónustu næsta áratuginn. I markmiðum ríkisstjórnarinnar ' kemur fram að hún hyggst ekki draga úr starfsemi hins opinbera. Stefhan sé hinsvegar sú að til að þróa ríkisrekna starfsemi verður að liggja til grundvall- ar skilningur á markmiðum, verkefnum og gildum hins opinbera kerfis. A það var bent að Noregur eyðir minna í sam- neyslu en Danmörk og Svíþjóð og litlu meira en ríki eins og Bretland, Þýska- land og Frakkland. í stefnumótun ríkisstjórnarinnar koma fram efasemdir um einkavæðingu ríkisfyrirtækja og stofnana og hún er ekki talin raunhæf nema að ótvír'ætt sé að einkavæðing skili meiri hagkvæmni og ekki síðri þjónustu. Á ráðstefnu Samtaka opinberra starfsmanna á Norðurlöndum (NSO) sem haldin var í Hveragerði í vikunni ræddi formaður YS-S, Erling Petter Roalsvig, um þær breytingar sem standa fyrir dyrum í Noregi á starfsemi hins opinbera. Erindi hans fjallaði um stefnumótun ríkisstjórnarinnar og hvernig samtök opinberra starfsmanna hafa brugðist við fyrirætlunum um víð- tækar breytingar á ríkisrekstri. Breytt rekstrarform Ríkisstjórn Verkamannaflokksins er þeirrar skoðunar að besta svarið við kröfum um einkavæðingu ríkisfyrir- tækja og stofnana sé að gera opinberan rekstur þannig úr garði að hann þjóni vel sínu hlutverki. Eitt mikilvægasta meðalið til að ná þessu markmiði er að breyta rekstrarformi opinberra stofh- ana. Ávinningurinn af breyttu rekstrar- formi þykir tvíþættur, annarsvegar að auðveldara er að láta starfsemina fylgja settum pólitískum markmiðum og hins- vegar að svigrúm eykst til að taka tillit til staðbundinna aðstæðna. I erindi sínu greindi Erling Petter Roalsvig gagnrýnina á ríkisrekstur í fjóra þætti. í fyrsta lagi væri um að ræða gagnrýni á efnahagslegum forsendum. Hún gengi útá það að hlutdeild hins op- inbera í landsframleiðslunni væri alltof stór. Skattar væru orðnir það háir að þeir hefðu lamandi áhrif á fjárfestingar og vinnusemi. Einnig sé því haldið fram að opinberi geirinn hefði lægri fram- leiðni en einkafyrirtæki, sem stafi meðal annars af lítilii samkeppni og lélegri eða engri markaðsaðlögun hins opinbera. I öðru lagi væri hið opinbera gagn- rýnt fyrir skrifræði sem komi ffam í lé- legri þjónustu og háum kostnaði. Sam- skipti fólks við hið opinbera séu bundin ýmsum vandkvæðum er annar þáttur í þessari gagnrýni. I þriðja lagi sé hið opinbera orðið ólýðræðislegt vegna þess að stofnanir fáist við margþætt og flókin verkefni og hafi ekki verið nægilega vel stýrt. Stjórnmálamenn hafi ekki lengur inn- sýn í stofnanir og það auki enn á bilið milli kjósenda og fulltrúa þeirra. I fjórða lagi, sagði Erling Petter, er hið opinbera gagnrýnt af hugmynda- fræðilegum ástæðum. Því sé haldið fram að einstaklingsfrelsi varðveitist betur þegar markaðurinn ráði sem mestu og íhlutun hins opinbera sé sem minnst. Pólitískt samstaða Stefna ríkisstjórnar Verkamann- flokksins í uppstokkun á opinberum rekstri hefiir þverpólitískan smðning á Stórþinginu. 1 framkvæmd munu breyt- ingarnar þýða að opinber reksmr verð- ur undirorpinn stöðugum breytingum. Á sumum sviðum mun hið opinbera auka umsvif sín á meðan samdrátmr verður á öðrum. Þetta er liður í þeirri viðleitni að meta umfang ríkisreksmrs sem eina heild. Að sögn Erlings Petters leggur norska ríkisstjórnin áherslu á að mark- aðsvæða þær stofnanir sem eru í sam- keppni, eða verða það í næstu framtíð. í þessum flokki em póst- og símaþjónust- an og rekstur járnbrauta. Þessum rekstri verður komið í form fyrirtækja og að einhverju leyti einkavæddur. Uppstokkunin er ekki eingöngu af- leiðing af pólitískri umræðu í Noregi. Aðlögun að Evrópusambandinu og al- þjóðavæðing hafa áhrif í sömu átt. Póli- tísk markmið sem til skamms tíma vom viðtekin, til að mynda byggðastefna, hafa orðið að víkja fyrir nýjum stefriu- miðum. Ríkisstjórnin hefur staðið fyrir aðgerðum til að draga úr þeirri hættu að fólki verði mismunað eftir búsetu, án þess að sveigja frá meginmarkmiði sínu. I Noregi hefur lítið farið fyrir einka- væðingu og ríkisvaldið hefur ekki lagt niður neina starfsemi. Það er á hinn bóginn kominn pólitískur vilji fyrir því að breyta ríkisstofhunum í hlutafélög. Þá er sú skoðun víða tekin góð og gild að opinber þjónusta bami þegar hún er í samkeppni. 1 mörgum hefðbundnum verkefnum hins opinbera þar sem ekki er sam- keppni til að dreifa, til dæmis í lög- gæslu, landvörnum og menntun, em kerfisbreytingar fyrirhugaðar sem miða að aukinni hagkvæmni. Það er að segja að færri hendur vinni fleiri störf. Erling Petter segir augljóst að hverju sé stefnt til lengri tíma litið: Að dregið verði úr starfsemi hins opinbera. Atvinnuöryggi höfuðatriði Breytingar á rekstrarformi opinberra stofnana hafa meðal annars haft í för með sér að ráðningarsamningar opin- berra starfsmanna breytast til samræmis við það sem þekkist á almennum mark- .aði. Opinberir starfsmenn gæm haldið aðild sinni að Lífeyrissjóði ríldsins ef Stórþingið samþykkir ffumvarp þess effiis. Uppstokkun á hinu opinbera er gerð í sammvinnu við félög opinberra starfs- manna. Erling Petter segir að heildar- samtökin, YS-S, hafi sætti sig við upp- stokkun á opinberum rekstri og tekið þá stefhu að reyna að hafa jákvæð áhrif á breytingarnar fremur en að halda sig til hlés og mótmæla. Samtökin hafi lagt áherslu á að trúnaðarmenn starfsmanna fái að taka þátt í uppstokkuninni og að atvinnuöryggi verði ekki ógnað. Árang- urinn hefur orðið sá að enginn opinber starfsmaður hefur enn misst vinnuna vegna breytinganna. Þegar mannahald stofnana og opin- berra fyrirtækja hefur verið skorið niður er leitast við að finna starfsmönnum vinnu annarsstaðar hjá hinu opinbera. Smndum hefur starfsfólk verið þjálfað upp á nýtt, sumir fara snemma á eftir- laun (60 ára) og enn aðrir fá laun í allt að tvö ár til að afla sér viðbótarmennt- unnar. I samtali við Vikublaðið sagði Erling Petter að uppstokkunin á rekstri hins opinbera krefjist þess að opinberir starfsmenn leggi sitt af mörkum. - Við teljum að vel hafi tekist til með uppstokkunina enn sem komið er, segir formaður samtaka opinberra starfs- manna í Noregi. Páll Vilhjálmsson RARIK RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í að stækka stöðvarhús aðveitustöðva við Flúðir í Hrunamanna- hreppi og Hellu á Rangárvöllum. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Rafmagnsveitna ríkisins við Dufþaksbraut 12, Hvolsvelli og Laugavegi 118, Reykjavík frá og með fimmtudeginum 25. ágúst 1994, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins á Hvolsvelli fyrir kl. 14.00, fimmtudaginn 8. september 1994 og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu: „RARIK-94012 Flúðir og Hella - Byggingarhluti" Rafmagnsveitur ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík RARIK RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftirtilboðum í stækkun úti- virkis aðveitustöðvar að Hryggstekk í Skriðdal. Útboðið nær til byggingarhluta stöðvarinnar, þ.e. jarðvinnu og byggingu undirstaða fyrir stálvirki. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, Reykjavík og Þverklettum 2, Eg- ilsstöðum frá og með fimmtudeginum 25. ágúst 1994, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins á Egilsstöðum fyrir kl. 14.30, þriðjudaginn 6. september nk. og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda, sem þess óska. Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu: „RARIK-94013 Hryggstekkur - aðveitustöð" Rafmagnsveitur ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík. RARIK RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í stækkun úti- virkis aðveitustöðvar að Eyvindará við Egilsstaði. Útboð- ið nær til byggingarhluta stöðvarinnar, þ.e. jarðvinnu og byggingu undirstaða fyrir stálvirki og spenni. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, Reykjavík og Þverklettum 2, Eg- ilsstöðum frá og með firrimtudeginum 25. ágúst 1994, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins á Egilsstöðum fyrir kl. 14.00, þriðjudaginn 6. september nk. og verða þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda, sem þess óska. Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu: „RARIK-94004 Eyvindará - aðveitustöð" Rafmagnsveitur ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.