Vikublaðið - 26.08.1994, Síða 9
VIKUBLAÐIÐ 26. ÁGÚST 1994
Kvennabaráttan
9
KIOGrÚiasfc [POGPIIIGÖJ
í augum Eystrasaltskvenna
Okkur á Viklublaðinu lék for-
vitni á að kynna okkur hvemig
Norræna kvertnaþingið og kvenna-
barátta á Norðurlöndum kæmi
konum ffá Eystrasaltsríkjunum
fyrir sjónir, en þær tóku þátt í því
núna í fyrsta sinn. Kristel Regina
Sitz, blaðamaður í Tallin í Eist-
landi skrifaði eftirfarandi grein fyr-
ir blaðið og mega lesendur sjálfír
draga allar þær ályktanir sem þeir
vilja út frá efni hennar.
/
byrjun ágústniánuðar fór norræna
kvennaþingið Nordisk Forum
fram í Abo í Finnlandi. Þetta var í
fyrsta sinn sem konur frá Eisdandi,
Letdandi og Litháen tóku þátt í þing-
inu.
I eistnesku sendinefndinni voru
konur úr ýmsum áttum, sveitakonur,
þingmenn, þ. á m. félagsmálaráðherra
Eisdands sem er kona, og blaðamenn
svo eitthvað sé nefnt.
Við hverju bjuggumst við svo og
hver varð raunin? Eg get að sjálfsögðu
bara talað út ffá eigin reynslu, en ég
þykist viss um að margar konur úr
eistnesku sendinefndinni myndu taka
undir orð mín.
Ég gerði mér fljódega grein fyrir
því að vandamál Eystrasaltsþjóðanna
eru ekki vandamál Evrópu og vanda-
mál Evrópuþjóðanna eru ekki vanda-
mál Eystrasaltsríkjanna. Tökum fyrst
Evrópusambandið. Ég vissi það fyrir-
ffam að tilfinningar Norðurlandabúa
gagnvart Evrópusambandinu voru
blendnar, en að fólki vxri svona illa
við það kom mér á óvart.
Evrópusambandið til varn-
ar gegn Rússum
I Eistlandi bíðuin við með óþreyju
eftir aðild að ES. Astæðurnar fyrir því
er öryggi lands okkar og þjóðar. Arið
1940 hertóku Sovétmenn Eistland. Sú
hálfa öld sem þá hófst var sannkölluð
martröð sem enginn hefur áhuga á að
upplifa að nýju. Við Eistar erunr á
þeirri skoðun að ef land okkar verður
hluti af Evrópusambandinu muni
Rússar ekki ræna okkur ffelsinu aftur
(þótt við óttumst það nú). Efnahags-
málin vega ekki eins þungt, en þó svo
væri sé ég ekki annað en að ES-aðild
niyndi verða þar til góðs.
Hvað er mannúðlegt við
flóttamannapólitík Norður-
landa?
Annað mál sem skiptir fólk á Norð-
urlöndum miklu rnáli eru flóttamenn
og þjóðernisminnihlutar. En er það
svo mannúðlegt að flytja flóttamenn
frá heimahögum sínum til vestrænna
velferðarþjóðfélaga? Við fyrstu sýn
virðist þetta mjög göfugt, en þessu
fólki líður hreint ekki vel, fjarri heim-
ilum sínum og það sem meira er, fjarri
menningu sinni og trúarbrögðum.
Hvernig á að kenna börnum mú-
hameðstrúarmanna í norrænum skól-
um? Þó að menntun eigi að vera guð-
laus þá er vestræn menning og vest-
rænar hefðir sprottnar upp úr krist-
inni trú og það er þessi vestræna
menning sem stuðst er við í daglegu
lífi. Og ber það ekki merki um kyn-
þáttafordóma ef komið er á sérstökum
skólurn fyrir þessi börn flóttamanna?
Siðferðið er m.a.s. annað. Væri ekki
betra að beina þessum flóttamönnum
til annarra íslamstrúarríkja, sem líkj-
ast föðurlandi þeirra meira á allan
hátt? Þetta eru ein af mistökum
Norðurlandabúa sem við viljuin kom-
ast hjá í Eystrasaltsríkjunum.
Karlar eru stjórnmálamenn
- konur taka þátt
Þriðja og ekki síst mikilvæga atriðið
eru konur og völd. Ef gert er ráð fyrir
að konur- séu 30% þingmanna á
Norðurlöndum er talan aðeins 15%
hér við Eystrasaltið. Þarna getum við
lært mildð af norrænum kynsystrum
okkar. Við getum að vísu státað okkur
af fáeinum kvenráðherrum og þing-
konum en þær mættu gjarnan vera
fleiri. Eftir eina vinnusmiðjuna á
Nordisk Forum sagði eistneska þing-
konan Krista Kilvet: „I Eystrasalts-
ríkjunum eru aðeins karlmenn stjórn-
málamenn. Konur bara taka þátt í
stjórnmálalífinu. Þegar við förum
heim héðan munum við segja öllum
að við séum femínistar.“
Fleira sem tengir en
skilur að
Þrátt fyrir að hagsmunir Norður-
landa og Eystrasaltsríkja séu mismun-
andi, er mun fleira sem tengir nor-
rænar og baltneskar konur en það sem
skilur þær að. Hvernig er t.d. hægt að
hlífa börnum við ofbeldi í sjónvarpi?
Hvernig er hægt að vera góð móðir
og eiginkona? Hvernig er hægt að
„tænke globalt - handle lokalt" eins
og sagt er á Norðurlöndunum, þ.e. að
beita sér á heimavelli í hnattrænu
samhengi. Hvernig getum við konur
verið afl í þágu friðar og frelsis? Þá
höfðaði menningardagskráin í Ábo
ekki síður til okkar en ykkar. Ég mun
til dæmis seint gleyma Listanóttinni í
Ábo.
Búttaðar konur í áberandi
fötum
En hvað finnst mér um norrænar
konur? Ég held að þær séu mjög með-
vitaðar um hvað frelsi er og mér finnst
ég sjá það á þeim þrátt fyrir klæða-
burð þeirra og fas. Það virðist ekki
vera neitt vandamál fyrir svolítið bút-
taðar eldri konur að klæðast skærum
og áberandi fötum. Kannsld ættum
við að taka það okkur til fyrirmyndar,
því konur í Eystrasaltsríkjunum eru
miklu varkárari. En það er aiveg
hreint furðulegt hvernig ungu stúlk-
urnar klæða sig. Ein stúlka frá Lett-
landi lýsti norrænu stúlkunum
þannig: Sköllóttar í fallegum kjólum
og' herstígvélum! Það getur svo sem
verið að það sé hæstmóðins að vera
ljót, en það er tæplega skynsamlegt að
þramma í þungum og heitum stígvél-
um á sólríkum sumardegi. Og það er
alls ekki kvenlegt.
Einn karlaheimur í viðbót
Ég nýt þess að vera kona. Ég lít út
eins og kona og ég er stolt af kynferði
mínu. Ég skil ekki af hverju evrópskar
konur afneita kvenleika sínum og vilja
byggja upp einn karlheim í viðbót.
Mér finnst ég ekki vera ambátt karl-
mannsins þótt ég gangi í háhæluðum
skóm og máli mig. Karlmenn geta
aldrei gert það. Ég er heldur ekki hrif-
in af kvenlegum körlum. Karlar eiga
að vera karlar og konur eiga að vera
konur. Það er forsenda fjölskyldunnar
rétt eins og fjölskyldan er forsenda
mannkynsins. (Það getur verið að ég
sé bókstrafstrúarfemínisti, en þannig
hugsa ég.)
Þegar við komum heim frá norræna
kvennaþinginu spurði ég eistnesku
þingkonuna Valve Kirsipuu . hvað
henni hafi fundist um það. Svar henn-
ar var einfaldlega: ,Jú, ég held að
þetta hafi bara gengið...“
(Millifyrirsagnir eru blaðsins)
Hjartagátan
Setjið rétta stafi í reitina neðan við krossgátuna. Þeir mynda þá nafn karlmannsnafn. Lausnarorð krossgátunnar í síðasta blaði er Höfuðlausn.
A =
1— i s 7 i 9 \o y II V
)2 ri Z rr~ 9 ¥ s 9 27 2 Kr V ?
/8 4 9 20 3 Ý5 Zl 7 22 23 V 22 13 2
II '23 Zí T 7 3 1 3 II 22 V // 18
23 2* 2Í Up T /9 ZP T 2S 9 2/ V
T \(p 1 T~ $ 3 T r 2 n )(> 1
2? 1$ V 1 2‘/ )<c 7 ‘R *Á ú 1 T~ w~
TT 9 (y; V ll zy T~ (V) y H n 8 \2W lnv/\ y 2D
8 Ú u ? z zo T Z T~ 8 3 T 28 23
T 29 'Zd // s? 8 30 23 T 9 (p 7- 7
2f 30 W T )i ll 4 r T 9 14 w~~ 17 T
/9 Z V 9 7- 3 4 TT~ V 9 23 W 2 )í> 1
1 T~ Ú 74 3 4 / Ý 5“ /3 JT~ T 1 7 IV-
9 )Z 7$ // 5- u> Z
A =
B =
D =
D =
E =
É =
F =
G =
H =
1 =
í =
.1 =
K =
L =
M =
N =
o =
Ó =
P =
R =
S =
T =
U =
Ú =
v=
x =
Y =
Ý =
Þ =
Æ =
Ö =
1 =
2 =
3 =
4 =
5 =
6 =
7 =
8 =
9 =
10 =
11 =
12 =
13 =
14 =
15 =
16 =
17 =
18 =
19 =
20 =
21 =
22 =
23 =
24 =
25 =
26 =
27 =
28 =
29 =
30 =
31 =
32 =