Lesbók Morgunblaðsins - 08.01.2005, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 08.01.2005, Blaðsíða 10
10 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 8. janúar 2005 Það sem mestu skiptir nú er endurheimt skilningarvitanna. Við verðum að sjá meira, heyra meira, skynja meira – Susan Sontag, Against Interpretation. S kelfilegustu myndir nýliðins árs eru fréttamyndir af gíslatökunni í borginni Beslan í Norður- Ossetíu: Það er verið að setja barnaskólann í bænum þegar hryðjuverkamenn ráðast þar inn, vopnaðir handsprengjum, eldvörpum og skammbyssum. Tveimur óbærilegum sólar- hringum síðar liggja 330 í valnum, þar af 176 börn. Sex hundruð manns særð, meirihlutinn börn. Á myndunum hlaupa hermenn með blóðug, hálf- nakin börn út úr bygging- unni og við sjáum grátandi mæður og feður. Þetta var í byrjun septem- ber. Fjórum mánuðum síðar, fyrstu daga árs- ins 2005, fylgjumst við með þjáningu fólksins við Indlandshaf: Limlestir líkamar, örvingluð börn, grátandi foreldrar, fjöldagrafir. – Það er eitt af einkennum okkar fjölmiðlavæddu menningar, skrifar Susan Sontag í sinni síð- ustu stóru ritgerð (Regarding the Pain of Others) að við erum sífellt að virða fyrir okk- ur sársauka annarra. En hvað er það eigin- lega að virða fyrir sér þjáningu og sársauka annarra – úr öruggri fjarlægð vel að merkja? Gegna allar þessar myndir af særðu og þjáðu fólki mikilvægu hlutverki eða valda þær bara augnabliks hryllingi áður en við gleymum þeim? Eru þær partur af afþreyingarmenn- ingu? Vekja þessar myndir samúð með fólk- inu og jafnvel andúð á stríði eða kannski bara hefndarhug. Ritgerðin er gagnrýnið framhald hugleiðinga sem komu út á frægu ritgerðar- safni eftir Sontag 1976 og heitir On Photo- graphy eða Um ljósmyndun. Þar veltir hún fyrir sér á mjög áleitinn hátt tvíeggjuðu eðli ljósmynda: Því þótt ljósmyndavélin sé skoð- unarstöð, þá er ljósmyndun annað og meira en hlutlaus skoðun. Hún á það sammerkt með kynferðislegri gægjuþörf að hvetja til þess, leynt eða ljóst, að það sem er að gerast haldi áfram að gerast. Að taka ljósmynd er að hafa áhuga á hlutunum eins og þeir eru í óbreyttu ástandi, (a.m.k. svo lengi sem það tekur að ná góðri mynd) – líka þegar manneskjan þjáist eða verður fyrir ógæfu. Sontag bendir á að ljósmyndavélin breyti öllu í misáhugaverð myndefni, já breyti allri reynslu í kalda mynd og geri okkur að því leyti sljó fyrir þjáningu annarra. Að vekja fólk til vitundar og slæva það, þetta er þverstæða fréttaljósmyndunar sem heillar Susan Sontag. Ein ástæðan fyrir því hve hún var alla tíð upptekin af ljós- myndum, áhrifum þeirra á einstaklinga og hlutverki í samfélaginu, gæti verið sú að haustið 1945 var hún einu sinni sem oftar að gramsa í bókabúð í Los Angeles og rakst þar á fréttatímarit með ljósmyndum frá aðkom- unni í Buchenwald-útrýmingarbúðunum fyrr á árinu. Hún var tólf ára gömul. „Þá brast eitthvað inni í mér“ sagði hún löngu síðar í viðtali „ég hef aldrei verið söm síðan“. Susan Sontag var rithöfundur og menning- arrýnir sem öðlaðist poppstjörnufrægð á sjö- unda og áttunda áratugnum. Hún var einn áhrifamesti hugsuður síðustu áratuga, stjarna vinstrisinnaðrar menntastéttar Bandaríkj- anna, fagurfræðilegur trúboði og menning- arlegt yfirvald sem tók róttæka evrópska hugsuði og listamenn í dýrlingatölu (Artaud, Barthes, Benjamin, Godard) og kynnti þá fyr- ir lesendum sínum og löndum. Og hún var óvæginn gagnrýnandi bandarískrar utanrík- isstefnu sem sagði á dögum Víetnamstríðsins að Bandaríkjamenn væru dæmd þjóð sem byggði á þjóðamorði. Það þarf varla að taka fram að margir bandarískir hægrimenn höt- uðu Susan Sontag, sennilega jafnmikið og ís- lenskir hægrimenn (og framsóknarmenn) hötuðu Halldór Laxness á sínum tíma. Hún bjó með hléum í Sarajevo í tvö ár á meðan Balkanstríðið geisaði og borgin í herkví leyni- skyttna, setti upp stykkið Beðið eftir Godot með leikurum í borginni, kenndi ensku og gagnrýndi Evrópuþjóðirnar harðlega fyrir deyfð sína og aðgerðarleysi. Hún réttlætti loftárásir Nató í Bosníu og Kosovo og sagði rök friðarsinna gegn loftárásunum ekki standast. Hún skrifaði magnaðan texta um krabbameinið sem hún þurfti að berjast við þrisvar sinnum áður en yfir lauk. Þar að auki má hiklaust telja Susan Sontag einhvern snjallasta essayista síðustu áratuga. Ritgerðir hennar eiga reyndar ekki að sanna eitt né neitt og þeim er ekki ætlað að byggja upp akademíska kenningu um veruleikann. Þær eru miklu frekar knúnar áfram af ein- stöku næmi fyrir margbreytileika hlutanna eins og þeir birtast okkur – og sterkri rétt- lætiskennd. Hún hnitar stóra og smáa hringi í kringum kjarna hvers máls, kjarna sem reynist oft vera óleysanleg þversögn. Hún er óhrædd við að komast í mótsögn við það sem hún hefur skrifað einhvern tíma áður. Hún telur sig ekki hafa neinu að tapa. Ef við líkj- um henni við tónlistarmann, þá er hún djass- leikari sem spinnur út frá ákveðnum stefjum; djassleikari sem, vel að merkja, metur frelsi sitt ofar öllu og hefur ákveðið að þiggja ekki fastlaunaða stöðu í háskólahljómsveitinni. Þversögnin í rithöfundarlífi hennar er hins vegar sú að hún hafði metnað til að skrifa skáldsögur og taldi að þær fjórar skáldsögur sem hún skrifaði væru mikilvægari en rit- gerðarsöfnin. Því munu fæstir lesendur henn- ar vera sammála og það sárnaði henni. Hún fæddist 1933 í New York og mun vera komin af pólskum gyðingum. Hún missti föð- ur sinn fimm ára og ólst upp í Kaliforníu og Arizona hjá móður sinni og stjúpföður sem var atvinnuhermaður. Og þrátt fyrir frekar dauflegt millistéttarumhverfi hefur æska hennar á sér goðsagnakenndan blæ eins og títt er um stórstjörnur. Henni lá allavega meira á en jafnöldrum hennar. Hún var af- burðanemandi, farin að lesa Marcel Proust 14 ára gömul og tók sig til um líkt leyti og heim- sótti Thomas Mann í Santa Monica með vin- konu sinni til að ræða við hann um Töfrafjall- ið en fannst svo ekki mikið til hans koma, sagði að hann hefði talað eins og bóka- gagnrýni er skrifuð. Þegar stjúpfaðir hennar benti henni eitt sinn á, í mestu vinsemd, að hún mætti ekki loka sig inni yfir bókum því þá eignaðist hún aldrei vini og sennilega ekki kærasta heldur, sagðist hún hafa hlegið hæðnislega því hún hefði verið sannfærð um að það hlyti að vera til fullt af fólki sem hefði nákvæmlega sömu áhugamál og sömu þrár og hún. Hún reyndist hafa rétt fyrir sér. Hún innritaðist í háskólann í Berkley aðeins 15 ára gömul, giftist félagsfræðingnum Philip Rieff 17 ára, lauk gráðu í háskólanum 18 ára og eignaðist sitt eina barn, soninn David, 19 ára. Hún skildi 9 árum síðar og sagan segir að hún hafi verið eina einstæða móðirin í hinu stóra Kaliforníuríki sem neitaði að þiggja meðlag. Á sjötta áratugnum lagði Susan Sontag stund á heimspeki og bókmenntir við Har- ward-háskólann og var eitt ár við nám í París, starfaði síðan við háskólakennslu í Boston og New York og skrifaði um listir og menningu í tímaritin New York Review of Books, Nation og Harper’s. Ég gerði mér ljóst þarna í upp- hafi sjöunda áratugarins í New York, skrifaði hún síðar, að háskólalífið hentaði mér ekki, „ég ákvað að hæla mitt tjald niður utan við hið lokkandi, grjóthlaðna öryggi háskólanna“. Þegar hún var þrítug kom út fyrsta skáldsag- an hennar Velgjörðarmaðurinn en hún fjallar um auðugan mann að nafni Hyppolyte sem ákveður að laga hversdagslífið að frekar geggjuðum draumum sínum og taka ekkert mark á því hvað öðrum finnst um tiltækið. Í glímunni við þessa sérkennilegu sögupersónu mótast hennar eigin fagurfræðilega afstaða en hana má orða þannig að Sontag hvetji samtímafólk til að hætta að leita að einhverri merkingu á bak við listaverk heldur að skynja verkið sem hlut í sjálfum sér. Hún brýnir fyrir fólki að listaverk sé hlutur í heiminum en ekki bara texti eða lýsing á heiminum. Árin 1961 til 1965 birtust eftir hana fjöldi blaða og tímaritsgreina um bók- menntir, franskar nýbylgjumyndir, fagur- fræði, leikhús og bandarískan hommakúltur sem hún safnaði saman 1966 í ritgerðarsafnið Against Interpretation (Gegn túlkun). Tit- ilgrein safnsins er fagurfræðileg stefnu- yfirlýsing Susan Sontag. Þar gagnrýnir hún af frábæru andríki bókmenntafræðinga sem séu sífellt að leita að dulinni merkingu „á bak við textann“ sem þeir fjalla um, í stað þess að skynja og greina hljómfall, stíl og innihald textans eins og hann birtist á blaðinu. Hún fullyrðir að „áköf þörf“ samtímans fyrir að túlka stafi ekki ekki endilega af lotningu gagnvart erfiðum textum, heldur „opinskáum fjandskap, yfirlýstri óbeit á sýndinni“. Og hún bætir því við að „þekktustu og áhrifa- mestu“ kenningakerfi nútímans, marxismi og freudismi séu í raun „blygðunarlausar túlk- unarkenningar“ sem setji öll greinanleg fyr- irbæri innan hornklofa með því að gera grein- armun á yfirborðsmerkingu og djúpmerk- ingu. Gegn þeim kumpánum stefnir hún spjátrungnum Oscar Wilde sem á mottó rit- gerðarinnar: „Einungis yfirborðskennt fólk dæmir ekki eftir útliti. Leyndardómur heims- ins er hið sýnilega ekki hið ósýnilega“. Son- tag segir að túlkun geti vissulega verið frels- andi í sumum menningarsamfélögum en í öðrum samfélögum sé hún íhaldssöm, heft- andi, óviðeigandi og til marks um hugleysi: Samtíminn er slíkur tími … Rétt eins og eit- urgufurnar frá bílum og stóriðju liggja eins og mara á andrúmslofti borganna eitra Að sjá meira: Susan Sontag Susan Sontag lést í lok síðasta árs. Sontag var einn áhrifamesti hugsuður Bandaríkj- anna. Hún skrifaði um fagurfræði, bók- menntir, kvikmyndir, ljósmyndir, pólitík og margt fleira. Hér er ferill hennar rifjaður upp. Eftir Hjálmar Sveinsson hjalmarsv@ruv.is AP Susan Sontag „Þversögnin í rithöfundarlífi hennar er hins vegar sú að hún hafði metnað til að skrifa skáldsögur og taldi að þær fjórar skáldsögur sem hún skrifaði væru mikilvægari en ritgerðarsöfnin. Því munu fæstir lesendur hennar vera sammála og það sárnaði henni.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.