Lesbók Morgunblaðsins - 08.01.2005, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 08.01.2005, Blaðsíða 6
6 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 8. janúar 2005 F yrir rúmum áratug náðu útgefnar ævisögur hér á landi varla máli. Skrifuð höfðu verið ógrynni viðtalsbóka á níunda áratugnum sem virtust hafa drepið nánast allan áhuga og tilfinningu fyrir persónusögulegum bókmenntum. Útgáfa vondra viðtalsbóka hefur aldrei lagst alveg af en á síðustu árum hafa margar af forvitnilegustu tilraununum í ís- lenskum bókmenntum verið af ævisögulegum toga. Síðasta ár var engin undantekning. Það hófst reyndar með harðri deilu um ævisagnaritun, fyrsta bindi Hannesar Hólmsteins Gissurar- sonar um Halldór Kiljan Laxness. Og árinu lauk með því að meintur ritstuldur Hannesar Hólmsteins úr verkum Halldórs var kærður til dómstóla. Og þó að fáir nenni að tala um þetta mál öllu lengur þá gæti niðurstaða þess átt eftir að kosta enn meira orðaskak á nýbyrjuðu ári. Og þó að aðferð Hannesar Hólmsteins hafi vissu- lega verið tilraunakennd við ritun fyrsta bindisins þá er hún varla til eftirbreytni enda segist Hannes sjálfur hafa vikið frá henni í öðru bindinu sem kom út í desember síðastliðnum. Þetta voru heldur ekki helstu tíðindi ársins af ævisagnariturum. Hall- dór Guðmundsson ritaði ævisögu Halldórs Laxness sem á lík- lega eftir að móta skilning okkar á skáldinu meira en önnur verk. Bók Matthíasar Viðars Sæmundssonar um Héðin Valdi- marsson, verkalýðsleiðtoga og forstjóra, var sömuleiðis við- burður. Heimildir fá mál Matthías Viðar lést fyrir aldur fram 3. febrúar síðastliðinn en hafði þá lokið við fyrra bindi ævisögunnar um Héðin. Vænt- anlega mun síðara bindið ekki koma út, enda vandséð hver myndi geta fetað í fótspor Matthíasar Viðars, en fyrra bindið er til vitnis um að hann var að gera merkilega tilraun með ævi- söguformið. Í því er fjallað um jarðveginn sem Héðinn spratt úr, bakgrunn hans og æsku, foreldra hans og systur. Titill bók- arinnar, Héðinn, Bríet, Valdimar og Laufey: Fjölskylda og samtíð Héðins Valdimarssonar, lýsir ætlun hennar vel. Ritið er ekki aðeins lýsing á Héðni og hans nánasta fólki heldur og um- hverfi hans, í henni talar Matthías Viðar um að setja saman „umhverfismynd tímans“ (254). Heimildir um samtímamenn Héðins og hans fjölskyldu eru rannsakaðar með það að augna- miði að varpa ljósi á lífið í Reykjavík á sögutíma, þetta eru heimildir upp úr dómskjölum, lögregluskýrslum, gjörðabókum og öðrum opinberum skjölum, einkabréfum og öðrum persónu- heimildum jafnt sem prentuðum textum. Sagðar eru sögur af drykkjuskap, heimilisofbeldi og almennu fátæktarbasli í þessu plássi sem var drullugt og dimmt. Sumar þessara heimilda virð- ast við fyrstu sýn ekki snerta viðfangsefnið mikið en þegar bet- ur er að gáð kemur í ljós að þær eru jafnnauðsynlegar í þessari bók og leikmynd og lýsing í leiksýningu, án þeirra vissum við hvorki hvar sagan gerðist né sæjum við hvað gerðist. Í neðan- málsgreinum má sjá að Matthías Viðar hefur velt því nokkuð fyrir sér hvað ætti að fá að vera með í ritinu og hvað ekki, þar fá heimildir mál, segjast vilja fá andrými og að þær séu búnar að fá nóg af fólki „sem þykist vita hvað [s]ér er fyrir bestu“ (490) eins og „skrifara“ bókarinnar sem er persóna sem var um tíma allfyrirferðarmikil í meginmáli ritsins eins og fram kemur í eft- irmála Steinunnar Ólafsdóttur, eiginkonu Matthíasar Viðars. Í neðanmálsgreinum má einnig finna vangaveltur um réttmæti sviðsetninga, sem eru talsverðar í bókinni, og mörk sagnfræði og bókmennta, sögu og skáldskapar en höfundur leikur sér á þeim vitandi vits, án þess að slá nokkru sinni af kröfum um vandaða meðferð á heimildum. Fyrir vikið er bókin um Héðin einstök lestrarupplifun, í senn breið og lifandi lýsing á því hvernig þessi margbrotni maður varð til og tímabær, vönduð og ögrandi rannsókn á ævisagnaforminu. Sagnfræði og skáldskapur Þessi skörun sagnfræði og skáldskapar einkennir einnig sjálfs- ævisöguleg skrif sem hafa verið eins og leiðarstef í íslenskum bókmenntum undanfarin ár. Matthías Johannessen hefur lík- lega gengið manna lengst í því að blanda saman hlutlægri, sögulegri greiningu og huglægri, skáldlegri skynjun í þremur bókum, Hann nærist á góðum minningum (2001), Vatnaskilum (2002) og Málsvörn og minningum sem kom út í haust. Í þeim fá ýmiss konar heimildir mál og mynda margradda verk þar sem skrifarinn vakir yfir öllu og grípur fram í á ólíklegustu stöðum til að velta upp möguleikum, gæta að samhengi hlutanna, rjúfa framrás, bresta í söng. Þessar bækur eru karnivalískur lestur sem geyma jafnt hreinan skáldskap, sagnfræði, sjálfsskoðun, gagnrýni, heimspeki og fagurfræði sem fáir aðrir virðast geta talað um lengur án þess að hljóma innantómir. Eiríkur Guðmundsson rær á svipaðar slóðir af öðrum eins krafti í fyrstu bók sinni 39 þrep á leið til glötunar. Skrif Eiríks einkennast af flæði sem fær lesandann til þess að trúa því að það séu engin mörk lengur, þau hafi verið yfirstigin í allt- umvefjandi textamassa. Andstæða þessara orðháka er Kristín Steinsdóttir sem skrif- ar skáldævisöguleg textabrot í fallegri bók sem nefnist Sólin sest að morgni. Annars konar skörun sagnfræði og skáldskapar birtist síðan í sagnaflokki Péturs Gunnarssonar, Skáldsögu Íslands, en þriðja bókin í honum kom út í haust, Vélar tímans. Heimsmynd Péturs verður flóknari með hverri bók og verður áhugavert að fylgjast með framhaldinu. Skáldskapur og fræði Íslenskar bókmenntir hafa lengi einkennst af einhvers konar fræðafælni, þær hafa forðast hugmyndafræðilega umræðu og umgengist fræðikenningar um bókmenntir sem skæðan óvin. Nokkrar bækur komu út á árinu sem ganga þvert á þessa hefð. Telja má áðurnefnd rit Matthíasar Johannessen og Eiríks Guð- mundssonar til þeirra en einnig bók Oddnýjar Eirar Ævars- dóttur, Opnun kryppunnar, sem tekst með átakalausum hætti að gera heimspeki skáldlega. Hermann Stefánsson fer aðra leið í forvitnilegasta smásagnasafni ársins Níu þjófalyklum sem glímir beinlínis við eitt af grundvallarhugtökum bókmennta- fræðinnar síðustu tvö hundruð ár, „höfundinn“, með því að gera það að sögupersónu. Guðbergur Bergsson fer ekki ósvipaða leið í bók sinni Lömuðu kennslukonunum sem fjallar einmitt á af- hjúpandi hátt um höfundinn í klóm íslenskrar lestrarhefðar. Rödd hins ósagða Bók Guðbergs er vafalítið með bestu skáldsögum síðasta árs en í þeim hópi eru einnig Samkvæmisleikir eftir Braga Ólafsson sem hefur í þremur skáldsögum tekist að skapa rödd sem á sér enga líka í íslenskri sagnaritun um þessar mundir, rödd hins ósagða. Bók Braga fjallar um viðkvæmt efni með því að leiða lesandann eftir einstigi hins rétta og ranga og skilja við hann í lok sögu með þá tilfinningu að mörkin þar á milli hafi einnig máðst út. Samkvæmisleikir er í senn strangraunsæisleg lýsing á reykvískum samtíma og ljóðrænn óhugnaður. Lykilorðið Skörun er líklega lykilorð í bókmenntum síðasta árs. Enn eitt dæmið er fyrsta bók Kristínar Eiríksdóttur, Kjötbærinn, sem er sambland af ljóðum og smáprósum sem mynda eins konar skáldsögu. Bókin er jafnframt dæmi um þá tilfinningu sem virð- ist áberandi í verkum ungra höfunda nú um stundir, að veru- leikinn sé ekki áhugaverður í sjálfum sér heldur frekar stöðug ummyndun hans í orð og hugmyndir. Á sama tíma fær þessi veruleiki að breiða úr sér með áður óþekktum hætti í verkum ungra höfunda; hryllingurinn sem áður var nánast algerlega óorðaður hluti hans hefur nú ratað á prent, bæði í Kjötbænum, sannkallaðri hrollvekju Jökuls Valssonar, Börnin í Húmdölum, og undirheimaþrillerinn Svartur á leik eftir Stefán Mána. Skörun er lykilorðið Morgunblaðið/Árni Sæberg Matthías Viðar Sæmundsson „Fyrir vikið er bókin um Héðin einstök lestrarupplifun, í senn breið og lifandi lýsing á því hvernig þessi margbrotni maður varð til og tímabær, vönduð og ögrandi rann- sókn á ævisagnaforminu.“ Bókmenntir Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is Lesbók | Íslensk menning 2004 A ndspænis því verkefni að rifja upp nýliðið bíóár er líklega skynsamlegast að byrja á byrjuninni, þ.e. janúarmánuði og rekja sig þannig áfram. Því ef reynt er að byrja á hinum endanum, og leiða hugann að kvik- myndaúrvali í bíóum hér í nýliðnum desem- bermánuði, er manni skapi næst að reyna að þurrka allar minningar um það út úr skamm- og langtímaminninu hið fyrsta. Úr- valið í kvikmyndahúsum landsins þann mán- uðinn var nefnilega gott dæmi um kvik- myndamenningu eins og hún gerist verst hér á klakanum. Ef frá er talin snilld- arteiknimyndin Hinir ótrúlegu (The Incredibles), var það rýra samsafn annars og þriðja flokks amerískra jóla- eða afþreyingarmynda sem auglýst var til sýningar þann mánuðinn, svo sorglegt að það var eins og kvikmyndahúsin væru að reyna að forðast að fá til sín gesti. Hvort kemur á undan, eggið eða hænan, í þeim efnum, er reyndar erfitt að spá um en kvikmyndakúltúrinn er greinilega ekki inni í myndinni á þeim annars menningarlega tíma sem aðventan að mörgu leyti er. Ef litið er yfir bíóárið í heild má greina skarpari útlínur landslags sem hefur verið að taka á sig æ skýrari mynd á síðustu ár- um. Annars vegar gætir þróunar í átt til sí- fellt þéttari Hollywood- og úthverfavæð- ingar bíómenningarinnar. Ef teknar eru stikkprufur af bíóúrvalinu á tímum eins og í júní eða desember, er hlutfall bandarískra mynda ótrúlega hátt og mikið er um sömu stór- og afþreyingarmyndirnar í mörgum bíóum. Tengslin við það sem er að gerast í kvikmyndagerð á öðrum svæðum heims en Kaliforníu eru lítil og í raun sorglegt að hugsa til þess að engin samfelld tengsl sé að finna við kvikmyndagerð í helstu ná- grannalöndum okkar í Evrópu. Þetta er þróun sem vindur upp á sig, skemmir út frá sér, hún verður til þess að fólk hættir að líta til kvikmyndarinnar sem menningar- forms og þeir sem fara reglulega í bíó sækja þau með það fyrir augum að láta fara vel um sig í bólstruðu sæti og fylgjast með einhverju litríku og aðlaðandi á tjaldinu. Þannig er eins og fólk líti ekki á kvik- myndalistina sem vettvang tilrauna og sköpunar, heldur sem tækifæri til þess að hvíla lúin bein og heilabú eftir erfiðan dag í Smáralindinni. Tilraunir til að sporna við einsleitninni eru þó til staðar og koma í rokum. Það eru þessar rokur, þar sem ýmsir aðilar, allt frá rekstraraðilum bíóhúsanna sjálfra, til að- standenda hátíða, félagasamtaka og ein- staklinga efna til stærri og smærri kvik- myndaveislna sem standa í stuttan tíma. Þá er reynt að fanga athygli fólks sem hefur áhuga á „listrænum“ kvikmyndum, en hefur hætt, jafnvel af biturri reynslu, að fylgjast reglulega með því hvaða unglingamyndin, eða hrollvekjan sé í bíó. Þó svo að þessar stærri og smærri hátíðir séu það sem held- Gibson vs. Moore – og ár Píslarsaga Mel Gibsons „Hinn kaþólski strangtrúartónn sem einkennir túlkun Gibsons, sem og mark- aðssetning kvikmyndarinnar til hins sterka kjarna bókstafstrúaðra kristinna í Bandaríkjunum, skip- ar Píslarsögunni að mörgu leyti í hugmyndafræðilega andstöðu við hinn róttæka gagnrýnistón í þjóð- félagsrýni Michaels Moores.“ Kvikmyndir Eftir Heiðu Jóhannsdóttur heida@mbl.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.