Lesbók Morgunblaðsins - 08.01.2005, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 08.01.2005, Blaðsíða 15
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 8. janúar 2005 | 15 Kvikmyndir Borgarbíó, Akureyri: TAXI Í takt við tímann  (SV) Blade Trinity  (SV) Búi og símon – Leiðin til Gayu  (SV) Háskólabíó National Treasure Alfie The Incredibles  (HL) Ocean’s Twelve  (SV) Bridget Jones – The edge of reason  (HJ) Laugarásbíó Oldboy Blade Trinity  (SV) Í takt við tímann  (SV) SAW  (SV) Búi og Símon – Leiðin til Gayu  (SV) Regnboginn Í takt við tímann  (SV) TAXI Bad Santa  (SV) Paparazzi  (HJ) Christmas with the Kranks  (HJ) Sambíóin Reykjavík, Keflavík, Akureyri National Treasure Ocean’s Twelve  (SV) The Polar Express  (HJ) The Incredibles  (HL) Alfie Smárabíó TAXI Í takt við tímann  (SV) Christmas with the Kranks  (HJ) Paparazzi Seed of Chucky  (HL) Christmas with the Kranks  (HJ) Búi og Símon – Leiðin til Gayu  (SV) Bad Santa  (SV) Myndlist Anddyri Suðurlandsbrautar 4: Rafn Sigurbjörnsson – Fjölskyldan. Tíu olíumálverk. Árbæjarsafn: Í hlutanna eðli – stefnumót lista og minja. Til 5. júní. Gallerí 101: Egill Sæbjörns- son – Herra Píanó & Frú Haugur. Til 29. jan. Gallerí Banananas: Baldur Björnsson – Hefur þú kynnst geðveiki? Til 22. jan. Gallerí Dvergur: Sigga Björg Sigurðardóttir – Lapp- ir, línudans og fórnarlamb í gulri peysu. Til 23. jan. Gallerí Sævars Karls: Hulda Vilhjálmsdóttir – Hver bank- ar á hurðina? Kannski barnið í landslaginu? Gerðuberg: Þetta vilja börn- in sjá! – Myndskreytingar úr íslenskum barnabókum sem gefnar hafa verið út á árinu. Sýndar eru myndir úr nær fjörutíu bókum eftir tuttugu og sjö myndskreyta. Ari Sig- valdason fréttamaður – mannlífsmyndir af götunni. Sýningu lýkur um helgina. Hafnarborg: Rafmagn í 100 ár – sýning í tilefni af 100 ára afmæli fyrstu almennings- rafveitunnar. Svart á hvítu, þrívíð verk, málverk, teikn- ingar og grafík eftir íslenska og erlenda listamenn í Sverr- issal og Apóteki. Sigrún Guð- mundsdóttir er myndhöggv- ari febrúarmánaðar. Hólmaröst: Jón Ingi Sig- urmundsson – olíu- og vatns- litamyndir. Hrafnista Hafnarfirði: Sig- urbjörn Kristinsson mynd- listamaður sýnir málverk og tússmyndir í Menningarsal. Hönnunarsafn Íslands, Garðatorgi: Sænskt listgler, þjóðargjöf. Iðntæknistofnun: Nýsköpun í ný sköpun. Átta listamenn úr Klink og Bank. Kaffi Espresso: Guðrún Egg- ertsdóttir – skúlptúrar og myndir. listarnemar sýna. Nýlistasafnið: Hlynur Helga- son – Gengið niður Klapp- arstíg. Ævintýralegir fem- inistar – Carnal Knowledge. Stendur til 30. jan. Safn: Birgir Andrésson – Sýning. Til 23. jan. Yun Fei Ji – „Boxers“. Til 9. jan. Opið mið.–fös. 14–18 og lau.–sun. 14–17. Safn Ásgríms Jónssonar: Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar. Thorvaldsen: Linda Dögg Ólafsdóttir – „–sKæti–“. Þjóðminjasafnið: Gleym- mér-ei, ljósmyndasýning. Leiklist Austurbær: Vodkakúrinn, lau. Borgarleikhúsið: Híbýli vindanna, lau, sun. Lína Langsokkur, sun. Ausa og Stólarnir, lau, sun. Leikfélag Akureyrar: Óliver!, lau, sun. Borgarleikhúsið: Edith Piaf, lau, sun. Kaffi Sólon: Sigríður Valdi- marsdóttir – Snjókorn. Kling og Bang gallerí: Heimir Björgúlfsson – Alca torda vs. rest. Til 30. jan. Kunstraum Wohnraum: Alda Sigurðardóttir, Landslags- verk. Til 28. jan. Listasafn Íslands: Ný íslensk myndlist, Um veruleikann, manninn og ímyndina. Opið þri.–sun. frá 11–17. Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn: Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning. Til 2006. Opið alla daga frá kl. 13–16. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús: Erró, Víðáttur. Yfirlitssýning til 27. feb. 2005. Opið alla daga kl. 10– 17. Listasafn Reykjavíkur, Kjar- valsstaðir: Textíllist 2004 – Alþjóðleg textílsýning. Kjar- val í Kjarvalssal. Ljósmyndasafn Reykjavíkur: Fyrir og eftir. Til 6. febrúar. Náttúrugripasafnið Hlemmi: Tuttugu og sex mynd- ÞAÐ er ekki á hverjum degi sem hér á landi koma út frumsamdar bækur um sögu og heimspeki vísindanna. Tilhneigingin hefur verið sú að þýða slík rit á íslensku eða endursegja þau frekar en að semja þau og þó að það sé allra góðra gjalda vert og nauðsynlegur hluti af því að færa al- þjóðleg fræði í íslenskan búning, þá er ekki síður nauðsynlegt að íslensk- ir fræðimenn skrifi sjálfir um vís- indasögu. Þorsteinn Vilhjálmsson samdi ritið Heimsmynd á hverfanda hveli í tveimur bindum fyrir tæpum 20 árum og heimspekingarnir Atli Harðarson og Þorsteinn Gylfason hafa einnig gefið út rit sem meðal annars er ætlað að segja sögu heim- spekinnar og skýra suma helstu drætti hennar fyrir íslenskum les- endum. En þegar á heildina er litið má segja að fjöldi frumsaminna og frumlegra verka um þessi efni beri smáu mál- og háskólasamfélagi vitni. Það er einfaldlega ekki við því að búast að hér á landi hafi margir nægilega færni og yfirgripsmikla þekkingu til að skrifa yfirlitsrit sem samsvara þeim kröfum sem íslensk- ur lesendahópur gerir, þótt fámenn- ur sé. Rit Andra Steinþórs Björnssonar um rætur vísindabyltingarinnar er framúrskarandi vandað yfirlitsrit um sögu heimspeki og vísinda. Það kemur lesandanum þægilega á óvart hve léttilega Andri vindur sér í gegnum flókin heimspekileg efni allt frá upphafi þeirrar hefðar sem nú- tímavísindi og heimspeki sækja til í Grikklandi til forna og fram á daga Newtons. Textinn er ítarlegur án þess þó að vera á nokkurn hátt lang- dreginn eða leiðigjarn og þó að bók- in sé talsverð að vöxtum þá liggur við að maður renni í gegnum hana eins og hvern annan reyfara. Markmiðið sem Andri setur sér er eins og nafn bókarinnar gefur til kynna að varpa ljósi á þá þróun vís- inda og fræða á 16. og 17. öld sem nefnd hefur verið vísindabyltingin. Þó fjallar bókin í rauninni ekki með beinum hætti um þennan umbrota- tíma í sögu vestrænna samfélaga. Áherslan er fyrst og fremst á ræt- urnar og á samhengið. Andri leggur sig fram um að skýra þau vandamál sem heimspekingar og vísindamenn fyrri alda voru að reyna að leysa í samtíma sínum. Hann fellur ekki í þá gryfju að gera lítið úr hug- myndum og sjónarhorni fyrri tíma án þess þó að halda fram afstæð- ishyggju um hugmyndakerfi og heimspekilegar kenningar. Í inngangskafla gerir Andri grein fyrir nálgun sinni sem byggist á hluthyggju um meginhugmyndir vísindanna. Hluthyggja er í grófum dráttum sú skoðun að vísindaleg hugtök geti verið sönn í þeim skiln- ingi að þau samsvari veruleikanum. Af þeirri skoðun leiðir meðal annars að megineinkenni framfara í vís- indum felist í því að kenningar kom- ist nær því að lýsa heiminum eins og hann er fremur en til dæmis að þær felist í því einu að menn nái meiri ár- angri í að smíða stórfenglegar vélar og tæki. Þó að hluthyggja sé um- deild nú á tímum þá er hún engu að síður máttug hugmynd um vísindi og eðli þeirra. Og því má vissulega halda fram að hún hæfi einmitt yfir- litsriti á borð við Vísindabyltinguna. Með hluthyggju sem meginviðmið má gera hvorttveggja í senn, setja þróun vísindakenn- inga í auðskiljanlegt samhengi og skýra hversvegna eldri kenningar víkja fyrir nýjum. En eins og Andri bendir á þá er ekki þar með sagt að hlutverk vísinda sé eingöngu í því fólgið að lýsa veru- leikanum eins og hann er. Frá upphafi hefur forspárgildi vís- indakenninga ekki verið síður mik- ilvægur eiginleiki þeirra og það þarf ekki alltaf að fara saman að geta spáð fyrir framvindu hlutanna og lýsa þeim eins og þeir séu eða hljóti að vera. Það er mikill kostur á bók- inni að þótt Andri sé sjálfum sér samkvæmur í hluthyggju sinni þá er hann laus við kreddufestu. Meg- inmarkmið hans er að lýsa kostum og göllum kenninga á þeirra eigin forsendum og þetta tekst honum yf- irleitt vel, ekki síst í umfjöllun sinni um Ptólemaíos og jarðmiðjukenn- ingu hans sem um margra alda skeið var grundvöllur hinnar opinberu heimsmyndar vestur- landabúa. Söguþráður vís- indanna, eins og Andri rekur hann, felur kannski ekki í sér nein- ar sérstakar nýjungar. Andri fylgir þekktum vísindasagnfræðingum um helstu þætti og or- sakavalda í sögu vís- indanna. En vandaðar skýringar, staðföst að- ferðafræði og einlægur vilji til að segja söguna á aðgengilegan hátt stuðl- ar að því að honum hef- ur tekist að skrifa bók sem getur höfðað til allra áhuga- manna um vísindasögu og auðveldað skilning á undirstöðum nútímavís- inda. Þetta er bók sem mörgum mun þykja gagnlegt að lesa og mun vafa- laust koma að miklum notum við kennslu í mörgum greinum hug- og félagsvísinda. Ekki sakar að maður finnur fyrir eldmóði höfundarins frá upphafi til enda. Og það er ekki hægt að verjast þeirri tilhugsun að þrátt fyrir allt sé einfaldleiki vís- indalegra skýringa mesta undrið. BÆKUR Vísindasaga Andri Steinþór Björnsson. 379 bls. áskólaútgáfan, Reykjavík, 2004. Vísindabyltingin og rætur hennar í fornöld og á miðöldum Andri Steinþór Björnsson Jón Ólafsson Einfaldleikinn er mesta undrið Í SAFNRITI þessu eru hugverk af fjölskrúðugasta tagi, kveðskapur, smásögur, sendibréf, endurminn- ingabrot og fleira. Langmest fer fyr- ir kveðskapnum. Ljóst er að sunn- lenskar konur hafa ort sér til hugarhægðar gegnum tíðina. Sú hefur verið dægradvöl þeirra í önn- um daganna. Fyrirmyndir hafa þær að nokkru leyti sótt til sam- tímaskálda á hverjum tíma. Náttúr- an, árstíðirnar, veðráttan – þangað eru yrkisefnin að mestu leyti sótt. Vorljóðin eru þarna mörg. Blómin og fulglarnir standa ófáum nær. Þar að auki yrkja þær til nánustu ætt- ingja – foreldra, systkina, barna. Dagleg störf koma síður inn í mynd- ina. Og húsdýrin standa sveitakon- unni fjær en búast mætti við. Það var ekki kvenna að setja saman hestavísur! Fæstar ljóstra upp því sem innst í sefa býr. Og armæða lífs- ins er ekki oft á dagskrá. Til und- antekninga telst Una sem orti Vest- mannaeyjaljóð. Minnist ég að kennari minn, Halldór Halldórsson, skírskotaði til hennar – málfræðing- urinn! Ekki fer heldur mikið fyrir djúpfundnu táknmáli eða undiröldu sálarlífsins. Þó mætti benda á ljóð eins og Teppið eftir Oddnýju Krist- jánsdóttur og Tommustokksþulu eftir Hlíf Einarsdóttur. Góður skáldskapur gefur í skyn en útskýrir ekki. Vekur aðeins hugboð. Fátt er þarna ljóða frá 18. og 19. öld en því fleira því nær sem dregur líðandi stund. Yngstu skáldkonurnar hafa modernismann að leiðarljósi, þó ekki allar. Fáeinar yrkja með enda- rími en láta ljóðstafi lönd og leið. Það hlýtur að teljast miður! Lausa málið er minna að fyrir- ferð. En fjölbreytnin er þar meiri, bæði að efni og formi. Vigdís Björns- dóttir, sem orðin er bóndakona í Spanish Fork – fluttist þangað 1955 – skrifar vinkonu sinni í Vest- mannaeyjum og lýsir í þaula bú- skaparháttum sínum þar vestra. Þuríður Pálsdóttir segir frá við- brögðum sínum við Kötlugosinu 1918, en hún átti þá heima á Söndum í Meðallandi. Kristín Skúladóttir frá Keldum lýsir jarðskjálftanum 1912. Hún var þá sjö ára, en sextán ár voru þá liðin frá Suðurlandsskjálft- anum mikla 1896. »… og það var þá,« segir Kristín, »sem húsið á Reynifelli skekktist og hljóp af grunninum en þegar kippurinn kom 1912 kipptist húsið til og komst aftur á réttan kjöl.« Guðlaug Guðjóns- dóttir frá Stóru-Mörk segir frá brúðkaupi sínu 1929. Meðal annars greinir hún gerla frá matseðlinum. Matthías Jochumsson minntist þess frá veru sinni í Odda að á Suðurlandi væri hefð fyrir viðhafnarmiklum brúðkaupsveislum. Veislan í Stóru- Mörk minnir um sumt á þær eins og séra Matthías lýsir þeim. Þegar Guðlaug gekk í hjónaband var góð- æri í landi, svo í veðráttunni sem í afkomunni. Árið eftir skall á krepp- an mikla. Dilkurinn féll úr átján krónum í fimm! Ungu hjónin máttu hafa sig öll við. Guðrún Jakobsdóttir var prestsdóttir frá Holti undir Eyjafjöllum. Hún giftist norður í Kelduhverfi og bjó þar upp frá því. Hún minnist bernsku- og æskuár- anna í átthögunum. Sigurbjörg Hreiðarsdóttir frá Grafarholti í Mosfellssveit segir frá hernáminu í sinni sveit. En það færði með sér hættur og lífsháska ekki síður en eldgos og jarðskjálftar fyrr á öld- inni. Sigurbjörg fluttist síðar austur í Hreppa og gerðist þar með Sunn- lendingur. Ingibjörg Ólafsson frá Valdres í Noregi lýsir svo hernámi Þjóðverja í sínu landi. Fáeinum ár- um síðar fluttist hún til Íslands og tók við búi á Þorvaldseyri ásamt manni sínum, Eggert Ólafssyni. Frásögn hennar var flutt í samsæti sem hún hélt fjölskyldu sinni þegar hún hafði búið í hálfa öld á Íslandi. Og þarna er lifandi komin sjálf Ingibjörg Pálmadóttir. Og það með smásögu! Fáum hefur sem henni tekist að bregða mannlegum svip yf- ir stjórnmálin. Hér bregður hún mannlegum svip yfir skáldskapinn. Sagan hennar, Vorkvöld í Reykja- vík, sem byggist að einhverju leyti á endurminningum hennar frá náms- árunum, minnir á hversu erfitt það er að vera ungur og óþreyjufullur, en jafnframt auðtrúa og reynslulaus. Mynd og æviágrip fylgir hverjum höfundi. Sjaldnast er á valdi ókunnugra að dæma hversu þar sé rétt með farið. Þó þetta um Önnu frá Moldnúpi: »Vet- urinn 1929–30 stundaði Anna nám við Menntaskólann að Laugarvatni og hugðist síðan taka stúdentspróf frá Lærða skólanum í Reykjavík …« Lesandann má svo sem gruna hvað hér hefði átt að standa. Gallinn er aðeins sá að skólar þessir voru ekki til á umræddum tíma! Hér hefur fátt eitt verið nefnt af efni þessa viða- mikla rits. En von- andi nóg til að gefa hugmynd um fjöl- breytt efni þess. Þjóðlegur fróð- leikur, sem átti sér vísan stað í hug- skoti þjóðarinnar á liðinni öld, er ekki lengur jafnáberandi í bókaútgáf- unni; virðist ekki vera í tísku hvað sem öðru líður. Rit eins og Vængja- tök vekja þó von um að gömlu góðu dagarnir eigi enn sem fyrr sterk ítök í þjóðarsálinni. Hugurinn leitar víða BÆKUR Safnrit Hugverk sunnlenskra kvenna. 388 bls. útg. Pjaxi ehf. 2004. Vængjatök Erlendur Jónsson

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.