Lesbók Morgunblaðsins - 08.01.2005, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 08.01.2005, Blaðsíða 8
Morgunblaðið/ÞÖK Sýnishorn af því nýjasta Körper eða Líkamar á Listahátíð. 8 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 8. janúar 2005 Gróska og metnaður eru orð sem komaupp í hugann þegar hugsað er tiltónlistarársins 2004. Sama árið ogHaukur Tómasson, hirðtónskáld Caput-hópsins, hlaut lárviðarsveiginn, Tónlist- arverðlaun Norðurlandaráðs, kom fram hópur metnaðarfullra tónlistarmanna sem kalla sig Aton og hélt eft- irminnilega tónleika á miðju hausti. Tónleika- staðurinn var kannski táknrænn; hrátt iðn- aðarhúsnæði sem fólk úr öllum listgreinum hefur hertekið og kallar Klink og Bank. Árið var annars sérstaklega gjöfult fyrir Hauk Tómasson því auk verðlauna Norð- urlandaráðs voru frumflutt tvö stór verk eftir hann: Sinfóníuhljómsveit Íslands flutti Kons- ert fyrir tvo kontrabassa og Paul Zukofsky stjórnaði Kammersveit Reykjavíkur í flutningi á verki Hauks, Seríu, á Myrkum músíkdögum. Á sömu tónleikum heyrðust í fyrsta sinn á Ís- landi Þrjár litlar litúrgíur eftir Olivier Messia- en, undir stjórn Zukofskys: tónleikar sem seint munu gleymast. Af sviði Sinfóníunnar ber fyrst að telja áframhald hinnar metnaðarfullu Shostako- vitsjraðar aðalstjórnandans Rumons Gamba. Þaðan er einnig minnisstæð flugeldasýning rússneska píanistans Denisar Matsuev, túlkun Osmos Vänskä á sjöundu sinfóníu Sibeliusar, fiðluleikararnir Pekka Kuusisto og Leila Josefowitz og Sigrún Eðvaldsdóttir sem stal senunni af rússnesku dívunni Olgu Borodinu á tónleikum hljómsveitarinnar á Listahátíð. Annað eftirminnilegt frá tónlistarárinu 2004 er árangur Þuríðar Jónsdóttur en verk henn- ar, Flow and Fusion, var valið eitt af tíu at- hyglisverðustu tónverkum sem kynnt voru á alþjóðlega Tónskáldaþinginu í París; einnig metnaðarfullar útgáfur Smekkleysu á ís- lenskri tónlist, Caput og Joel Sachs á tón- leikum í Listasafni Íslands á Myrkum mús- íkdögum, spilagleðin á tónleikum Einleikarasveitarinnar frá Feneyjum og Ás- hildar Haraldsdóttur á Listahátíð, Kvartettinn Hekla á Útvarpstónleikum í Salnum og síðast en ekki síst tónleikar þýsku raftónlistarsveit- arinnar Kraftwerk í Kaplakrika sem voru frá- bærir tónleikar og kannski leiksýning ársins. Haukur, Shostakovitsj og Zukofsky Tónlist Eftir Bergljótu Haraldsdóttur bergaha@ruv.is Höfundur er verkefnisstjóri tónlistar á Rás eitt. Það er erfitt að svara því hvað var minn-isstæðast í leikhúsunum árið 2004 þvíþað sem einna helst einkenndi leik-húsið síðastliðið ár var með- almennska. Flestir forðuðust áhættu og reyndu í staðinn að höfða til allra í einu og fyrir vikið safnaðist upp haugur af sýningum sem höfðu lítið að segja. En sem betur fer voru ljós í myrkrinu og má þar nefna sköpunarkraftinn og hugrekkið sem ein- kenndi uppfærslu Annars sviðs og Hafnarfjarð- arleikhússins á Úlfhamssögu, yfirnáttúrulega leikmynd Gretars Reynissonar og snjallar lausnir Baltasars Kormáks í Þetta er allt að koma, frumleikann og fegurðina í síðari hluta dansleikhúss Auðar Bjarnadóttur Ern eftir aldri, einfaldleikann og einlægnina sem hitti beint í hjartastað í leiksýningunni Áttu smit eft- ir Þórdísi Elvu Bachmann og metnaðinn og hugmyndaauðgina í sýningum Íslenska dans- flokksins. Sú sýning sem að mínu mati trónir á toppn- um árið 2004 kemur þó ekki úr röðum atvinnu- leikhúsa og er eflaust hægt að túlka það sem vitnisburð um tilvistarkreppu atvinnuleikhús- anna í landinu. Sýning Stúdentaleikhússins Þú veist hvernig þetta er hlýtur sprotann og kór- ónuna í þetta skiptið, þar kom loksins sýning sem minnti mann hressilega á hvað leikhúsið er fært um. Sýning sem átti ekki bara brýnt erindi við samtíma sinn heldur var einnig frábærlega útfærð, stútfull af undirtexta og ofan á allt sam- an löðrandi í kómík. Gestasýningar ársins voru margar en upp úr standa tvær: Hin ógleymanlega sjónræna veisla Söshu Waltz, Körper, sem sýnd var á Listahátíð í Reykjavík og Things that happen at home, drepfyndinn sænskur óður til hversdagsleikans sem sýnd var á Reykjavík Dansfestival.Stúdentaleik- húsið hlýtur sprotann Leiklist Eftir Kristínu Eysteinsdóttur kreyst@simnet.is Höfundur er dramatúrg og framkvæmdastjóri sjálfstæðu leikhúsanna. Samkvæmisleikir Braga Ólafssonar:Drakúla greifi og Gutenberg saman ííbúð við Hringbraut. Ég bíð eftir ap-okrýfu bókunum, köflunum sem Bragi kastaði út úr sögunni að sögn á lokasprettinum. Héðinn, Bríet, Valdimar og Laufey eftir Matthías Viðar Sæmundsson: Loksins fortíð sem breytist í bók- menntir á för sinni úr skjalaskóginum og upp á skrifborðið. ,,Fökk ðöh story! sagði heimildin og flaksaði blöðunum…“ er setning ársins. Lágmynd eftir Tadeusz Rozewicz í þýðingu Geirlaugs Magnússonar: ,,Það eina sem ég get borið fyrir mig er að ég gerði mitt besta. Það að ég skuli afsaka mig er enn ein vísbendingin um að tíð ,,fagurbókmennta“ og þá einkum ,,ljóð- listar“ er fyrir bí. Þetta er kveðja mín til Franz Kafka. Ég er orðinn 69 ára. Mál að linni.“ Sólskinsfólkið eftir Steinar Braga. Ég man öskur í húsi um nótt, ljósaskiptamann, Blá- skóga, Decode og Descartes, kuðung sem geymir ekki nið hafsins, heldur fjarveru sem fólk fyllir upp í með ímynduðu gjálfri innan úr sjálfu sér. Lömuðu kennslukonurnar eftir Guðberg Bergsson. Rothögg á íslensku sagnaþjóðina. Höfundar eru á villigötum og lesendur alger- lega lamaðir. Kaktusblómið og nóttin eftir Jón Viðar Jóns- son: Verður ekki allt að skáldskap í kringum Jó- hann Sigurjónsson? Ævisögur líka? Að minnsta kosti dreymdi mig að ég væri að taka viðtal við Jóhann skömmu eftir lestur bókarinnar. Síðan þá hefur hafið lagst yfir mig, grátt og þungt, eins og sæng úr blýi. Landfræðissaga Þorvaldar Thoroddsen, ann- að bindi: Ég heiti því á þessu ári að stunda dofralistir, yrkja sálm og mæla djúpið í Lag- arfljóti og taka þannig upp þráðinn þar sem sonur Jóns lærða, Jón litlilærði, sleppti honum á sínum tíma. Og síðan allt það draumsilki sem hressti þök- in, Oddný Eir Ævarsdóttir, Kristín Ómars- dóttir, júin Sigfúsar, Baldur Óskarsson, Gogol (,,Það er sagt að á Englandi hafi fiskur synt upp úr vatni og sagt tvö orð á svo framandi tungu- máli að vísindamenn hafa reynt að greina það í þrjú ár en ekki tekist að botna neitt í því ennþá“), Hermann Stefánsson og Óskar Árni Óskarsson: ,,Eitthvað hlýtur að fara að gerast. Þetta getur ekki haldið svona áfram.“ Til fjárans með söguna Bókmenntir Eftir Eirík Guðmundsson eirikurg@ruv.is Höfundur er útvarpsmaður. Lesbók | Íslensk menning 2004 Fyrst er að minnast niðurstöðunnar ímálverkafölsunarmálinu sem ermenningarlegt stórslys og algjörthneyksli. Spurningar vakna um hvort raunverulegur skilningur á myndlist sé til staðar í þessu þjóðfélagi. Frumkvöðlar íslenskr- ar myndlistar færðu þjóðinni fegurð sem nú er búið að svívirða og flest- um virðist sama. Getur verið að bókaþjóðin hafi skreytt sig með myndum og allt of fáir skynjað listrænt gildi þeirra. Framkvæmd sýninga er orðin faglegri og metn- aðarfyllri en huga þarf að grunninum og bæta menntun almennings í sjónlistum, m.a. með því að hefja þær til vegs og virðingar í skólakerfinu. Á árinu voru haldnar fjölmargar vandaðar sýn- ingar, jafnt á verkum ungra listamanna og þeirra sem þegar hafa kynnt sig, reyndar svo margar að engin leið er að telja upp hér. Þó langar mig til að minnast á framlag nokkurra listamanna sem mér þótti að einhverju leyti koma með nýtt innlegg að utan inn í íslenskt listsamhengi og ekki fór mikið fyrir. David Askevold í Kling og Bang, Federico Herrero í Gallerí gangi, Katharina Grosse og Jun-Fei Ji í Safni, Guðný Guðmundsdóttir í Ásmundarsafni, Guðný Rósa Ingimarsdóttir í Nýlistasafninu, Elana Herzog og Hrafnhildur Arnardóttir á textílsýningu á Kjarvalsstöðum. Málverka- fölsunarmálið stórslys Myndlist Eftir Ingólf Arnarsson ingolfur@lhi.is Höfundur er prófessor við Listaháskóla Íslands. Gjöfult ár fyrir íslenska listdansunn-endur er að baki. Þá er fyrst að nefnaað sýningar Íslenska dansflokksins áárinu voru afar vel heppnaðar. Frumsýnt var dansverkið Luna eftir Láru Stef- ánsdóttur, gott verk og vel flutt. Á dagskrá með Lunu var sýnt bráðskemmtilegt þó ekkert sér- lega frumlegt verk, Æf- ing í Paradís. Þar fóru dansarar flokksins á kostum og sýndu hve leikræn tilþrif eru þeim eiginleg. Í haust var það síðan Screensaver sem var á verkefnaskrá flokksins. Áhugaverð og vel dönsuð sýning. Listahátíð sl. vor var sannarlega danshátíð. Japanski Sankai Juku-flokkurinn sýndi verkið Hibiki í Þjóðleikhúsinu. Þarna fengum við loks- ins tækifæri til að sjá það besta sem gert er í Butoh-dansi. Dans á allt öðru plani en við eigum að venjast. Þökk fyrir Listahátíð í Reykjavík. Á listahátíðinni var einnig flutt dansleikhúsverkið Körper eftir Söshu Waltz. Þar var á ferðinni sýnishorn af því nýjasta í evrópsku dansleik- húsi. Erna Ómarsdóttir dansaði líka eigið verk, IBM – a User’s Manual, við tónlist Jóhanns Jó- hannssonar. Stúlkan sú hefur vakið mikla at- hygli og er hlaðin lofi af dansgagnrýnendum í Evrópu. Ýmsar aðrar sýningar vöktu athygli t.d. hjá Dansleikhúsinu sem stóð fyrir nokkrum sýn- ingum í Borgarleikhúsinu sl. vor. Þar eru menn Gjöfult dansár Dans Eftir Ingibjörgu Björnsdóttur arnivil@itn.is Gjöfult ár Haukur Tómasson tók við Tónlistarverðlaunum Norð- urlandaráðs og var áberandi í tónlistarlífi landsmanna. Morgunblaðið/Kristinn Kraftur og hugrekki Úlfhamssaga var sett upp af Öðru sviði í nýja Hafnarfjarðarleikhús- inu. Ragnheiður Steindórsdóttir og Jón Páll Eyjólfsson í hlutverkum móður og sonar. Morgunblaðið/Sverrir Fræðslustarf á Frostvirkni Á sýningu Ólafs Elíassonar í Hafnarhúsinu voru haldnar listasmiðjur og námskeið fyrir börn, fjölskyldur og fullorðna, fyrirlestrar og síðast en ekki síst skipulagðar leiðsagnir fyrir almenning og nemendur á öllum aldri, allt frá leikskólastigi til háskólastigs.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.