Lesbók Morgunblaðsins - 02.04.2005, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 02.04.2005, Síða 6
6 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 2. apríl 2005 G runnhugsunin um að byggja upp gæði menntunar hefur í Finnlandi byggst á grundvall- arreglunni um jöfnun tæki- færa. Enn fremur hefur verið lögð áhersla á að koma í veg fyrir lélegan árangur. Sú niðurstaða Pisa- könnunarinnar (OECD Program for Inter- national Student Assessment) að munurinn milli þeirra nemenda, sem skila góðum og slæmum árangri reyndist tiltölulega lítill, rím- ar því vel við markmið skólastefnunnar. Þessi munur á góðum og slæmum árangri í lestrar- kunnáttu og -skilningi reyndist vera næst- minnstur í Finnlandi af öllum OECD-löndum. Fjöldi þeirra sem skiluðu slæmum árangri var, svo miklu munar, minni í Finnlandi (7%) en t.d. í Þýskalandi (23%) eða að meðaltali í OECD-löndum (18%). Það er einkennandi um frammistöðu Finna, að þeir sem skiluðu minnstum árangri sýndu samt mun betri frammistöðu en sambærilegur hópur í öðrum OECD-löndum. Munurinn á þeim Finnum sem sköruðu fram úr og OECD- meðaltalinu var mun minni, þótt hann væri engu að síður ótvíræður. Jöfn tækifæri til náms í Finnlandi eru stað- fest í niðurstöðum Pisa-könnunarinnar með því að efnahagsleg og félagsleg staða foreldra hefur þar tiltölulega lítil áhrif á frammistöðu nemenda í samanburði við önnur OECD-lönd. Niðurstöðurnar fyrir Þýskaland voru allt aðr- ar í þessu tilviki. Áhrif félagslegrar og efna- hagslegrar stöðu foreldra reyndust þar miklu áhrifameiri á frammistöðu nemenda. Þessar niðurstöður sýna að hinn almenni finnski framhaldsskóli hefur byggt upp hæfni sem er ekki aðeins góð í sjálfu sér heldur endurspegl- ar mikið jafnræði nemenda án tillits til stéttar eða stöðu foreldra. Annað dæmi um jöfn tækifæri til náms í Finnlandi birtist í þeirri niðurstöðu, að munur milli skóla reyndist hvað minnstur af öllum OECD-löndum. Þar sem munur milli skóla skýrði 36% frávika í frammistöðu námsmanna í OECD-löndum að meðaltali, byggðust ein- ungis 5% af frávikum í frammistöðu í Finn- landi á muni milli skóla. Jafnvel lélegustu skólar í Finnlandi náðu meðaltali frammistöðu í OECD. Lítill munur milli skóla er reyndar einkenn- andi fyrir Norðurlöndin öll. Þetta skýrist af þeirri staðreynd að á Norðurlöndum eru námsmenn ekki dregnir í dilka (eftir efnahag foreldra o.s.frv.) heldur njóta allir sömu grunnmenntunar upp að 15–16 ára aldri. Munur milli skóla virðist vera mun meira áberandi í löndum þar sem námsmenn eru dregnir í dilka í ólíkum skólum eða ólíkum námsbrautum innan skóla frá ungum aldri. Niðurstöður Pisa-könnunarinnar sýna að lítill munur milli skóla er öflugur áhrifavaldur um frammistöðu nemenda. Þau lönd sem sköruðu fram úr sýndu líka minnstan mun milli skóla. Finnar hafa einnig reynt að tryggja öllum nemendum, án tillits til búsetu, jöfn tækifæri til framhaldsmenntunar. Þjálfun og ráðning vel menntaðra kennara við alla skóla, í öllum héruðum Finnlands, tryggir jöfnun náms- tækifæra fyrir alla. Í Finnlandi eru 4.000 al- mennir skólar, 750 framhaldsskólar (bæði akademiskir og starfsþjálfunarskólar), 20 há- skólar og fjöldi annarra menntastofnana með þjóð, sem telur aðeins fimm milljónir íbúa. Niðurstöður Pisa-könnunarinnar eru sér- staklega ánægjulegar að því leyti að þær sýna að við höfum náð árangri í því að draga úr mun milli skóla, þar með talið milli skóla í borgum og á landsbyggðinni. Það skiptir því litlu máli fyrir aðgang að menntun og vænt- ingar um árangur hvar námsmenn eru búsett- ir. Tækifærin eru hin sömu hvar sem er á landinu. Hvað skýrir góðan árangur í lestrarkunnáttu og skilningi? Niðurstöður Pisa-könnunarinnar sýna, að góð lestrarkunnátta og skilningur finnskra náms- manna skýrist ekki af neinum einum þætti. Það er margt sem rennir stoðum undir þenn- an góða árangur. Áhugi og ástundun nemenda er eitt; lestrarvenjur í skóla og í tómstundum er annað; gildismat námsmanna sjálfra, for- eldra þeirra og kennara og væntingar um tækifæri í lífinu, vegna góðs námsárangurs, er það þriðja. Það sem reyndist ráða mestu um árangur finnskra nemenda var lestraráhugi þeirra sjálfra og ástundun (22%); skyldurækni (18%), menningaráhugi (6%), aðgengi að menningu (6%); félagsleg og efnahagsleg staða foreldra (6%) og ást á móðurmálinu (6%). Samanburður á frammistöðu finnskra og þýskra nemenda leiðir í ljós, hvað er líkt og ólíkt varðandi þessa ákvarðandi þætti. Skyldurækni og áhugi og ástundun áttu líka ríkan þátt í árangri Þjóðverja, þótt þessir þættir vægju minna meðal Þjóðverja. Menn- ingaráhugi og aðgengi að menningu í um- hverfinu vógu nokkuð jafnt í báðum löndum. Félagsleg og efnahagsleg staða foreldra vó hins vegar þyngra á metunum í löndum eins og Austurríki (16%) og í OECD-löndunum (11%) en í Finnlandi (6%). Þessar niðurstöður benda til þess að lestr- ar- og menningaráhugi finnskra námsmanna eigi mikinn þátt í að draga úr muninum á frammistöðu námsmanna, sem koma frá ólíkri stéttarstöðu. Finnskir stúdentar sýndu mest- an lestraráhuga og voru í þriðja sæti um skyldurækni samkvæmt könnuninni. Í Finn- landi sagði 41% námsmanna, að lestur væri helsta tómstundaiðjan. Hjá finnskum stúlkum var þessi tala 60%. Finnskir námsmenn verja mun meiri tíma í tómstundum til lestrar en þýskir námsmenn gera. Lestrarefni þeirra er einnig mun fjölbreytilegra en í Þýskalandi. Fleiri finnskir námsmenn eru virkir blaða- og tímaritalesendur og þeir nýta sér þjónustu bókasafna í meiri mæli en í nokkru öðru OECD-landi. Aðgengi að bókasöfnum á veg- um sveitarfélaga styður vel við þennan lestraráhuga námsmanna í Finnlandi. Almenni skólinn: Uppeldisheimspeki í kenningu og praxís Vilji Finna til að tryggja jafnrétti til náms birtist í uppbyggingu almenns skóla, sem öll börn sækja án skólagjalda í níu ár, á aldrinum 7 til 15/16 ára. Þessi almenni skóli er hins veg- ar ekki bara kerfi. Hann er afrakstur meðvit- aðrar uppeldisfræði í kenningu og praxís. Þessi skóli er hannaður fyrir hvert barn, og skólinn þarf að laga sig að þörfum hvers barns. Þessi uppeldisfræði tekur tillit til þess, að börn eru ólík. Kennarar geta ekki útilokað neitt barn eða heldur sent hann eða hana í annan skóla. Hagsmunir barnsins og óskir, þegar kemur að vali námsefnis, bóka, náms- aðferðar og námsmats er allt tekið með í dæmið. Af þessu leiðir að bekkjarstæðir eru litlar. Pisa-könnunin leiddi í ljós að fjöldi í bekkjardeildum er hvað minnstur í Finnlandi. Námsskráin er sveigjanleg og sérhver skóli og sérhver kennari tekur þátt í mótun náms- skrár og í ráðgjöf og sérkennslu, sem gegnir veigamiklu hlutverki. Kennarar eru virtir sérfræðingar Til þess að ná árangri í bekkjardeild, sem er samsett af einstaklingum með ólíka námsgetu, verður kennarinn að vera vel menntaður og uppeldisfræðilegur sérfræðingur, sem finnsk- ir kennarar eru. Allir kennarar verða að hafa meistaragráðu í kennslugrein sinni og uppeld- isfræði. Þeir eru tiltölulega vel launaðir í sam- anburði við önnur OECD-ríki. Staða kennar- ans – sérstaklega bekkjarkennarans fyrstu sex árin – er virt og nýtur vinsælda í Finn- landi. Gott dæmi um þetta er aðsókn að kennslustofuþjálfun í háskólanámi: Aðeins tí- undi hver umsækjandi kemst að. Þessir náms- menn eru áhugasamt hæfileikafólk, sem hefur einnig skilað góðum árangri í kennslugreinum sínum. Þess má geta að oft er aðstoðarkennari aðalkennara til fulltingis í bekkjardeild. Í finnskri menningu nýtur staða kennarans virðingar í þjóðfélaginu, og mikið hefur verið fjárfest í þjálfun kennara. Kennurum er treyst til að starfa sem sérfræðingar. Í sam- ræmi við það er finnskum kennurum treyst til að sýna uppeldisfræðilegt sjálfstæði í bekkj- arstofunni og skólarnir njóta einnig umtals- verðs sjálfstæðis í að skipuleggja starf sitt innan sveigjanlegs ramma heildarnámsskrár. Kennarar eru ekki einasta taldir vera sér- fræðingar um kennslu og nám. Þeim er einnig falin ábyrgð á námsmati sem byggist á mörg- um þáttum: Vinnu nemandans í bekkjardeild- inni, sérstökum verkefnum, prófum sem kennarinn leggur fyrir og lokaprófum við lok skólaárs. Enda þótt til séu heildarmælikvarð- ar (national standards) til að meta náms- árangur eru þeir ekki einhlítir. Heildarfram- lag nemandans og starfsemi innan og utan skólastofu er einnig tekið með í reikninginn. Námsárangur eftir nýju ár í hinum almenna skóla er metinn með úrtökum (sample-based surveys) í kjarnagreinum (stærðfræði, vísind- um, móðurmáli og erlendum tungumálum). Finnskir kennarar gera miklar kröfur um tjáningarhæfni. Norræn könnun framkvæmd á vegum danskrar rannsóknarstofnunar eftir IEA-könnunina 1993 leiddi í ljós að finnskir og sænskir kennarar gera mun meiri kröfur til málskilnings og tjáningarhæfni en gert er í örðum löndum, og þær þjóðir sem gera mest- ar kröfur á þessum sviðum, skila líka bestum árangri í alþjóðlegum könnunum. Réttur til sérmenntunar fyrir alla Sérkennsla fær veigamikinn sess í finnsku skólastarfi í þeim tilgangi að aðstoða nem- endur sem eiga í vandræðum með að fylgjast með almennri kennslu. En sérkennsla í finnskum skólum er ekki aðeins handa þeim sem eiga í vandræðum í námi. Sérhver náms- maður á rétt á að óska eftir sérstakri aðstoð. Sérkennslan er því partur af hinni almennu kennslu og útilokar ekki; miklu fremur eykur hún samheldnina. Einungis 2% allra náms- manna eru á sérstökum stofnunum. Námsmaður sem á í erfiðleikum í tiltekinni kennslugrein fær tækifæri til að ná tökum á henni einu sinni eða tvisvar í viku í smáhópum Ástæður fyrir árangri Frammistaða Finna í PISA-könnuninni Hvers vegna koma Finnar svona vel út úr al- þjóðlegum könnunum á skólastarfi? Í þessari grein er reynt að svara þessari spurningu og meðal annars bent á þætti eins og jafnrétti til náms og menntun kennara. Morgunblaðið/Sverrir Jafnrétti til náms „Jöfn tækifæri til náms í Finnlandi eru staðfest í niðurstöðum PISA-könnunarinnar með því að efnahagsleg og félagsleg staða foreldra hefur þar tiltölulega lítil áhrif á frammistöðu nemenda í samanburði við önnur OECD-lönd.“ Eftir Pirjo Linnakyla og Jouni Valiarvi                           !  "# $%# $&# $'# "(# &%% &$& &$% &)* %*& +     ,&))          !   !  $# -# $(# ")# "$# &%( &$% &)) %*" %*"         "#    !  $# $.# ""# "*# ("# &%- &). %*& %-% %'&

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.