Lesbók Morgunblaðsins - 02.04.2005, Qupperneq 9
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 2. apríl 2005 | 9
hann um haustið sauði fyrir vörur sem pantaðar
höfðu verið. Þetta var upphaf þess að Suður-
Þingeyingar fóru að panta vörur og láta sauði í
staðinn og til að koma þessari starfsemi á fastari
grundvöll var sérstakur félagsskapur, sem kall-
aður var Kaupfélag Þingeyinga, stofnaður árið
eftir, 1882, til að annast þetta.
Samtvinnun sauðasölu og vörupantana af
hálfu hinna íslensku félaga var nýjung og með
reynslu annarra félaga í huga reyndu forsvars-
menn KÞ að halda skuldum í lágmarki og fyr-
irbyggja skuldasöfnun. Tókst félaginu fljótlega
með tilstyrk aðhalds og bankalána frá Lands-
banka Íslands að forðast skuldasöfnun og van-
skil við erlenda umboðsmenn. Eftir sem áður
var þessi pöntunarstarfsemi þunglamaleg að
sumu leyti og því var ráðist árið 1889 í stofnun
söludeildar, þ.e. í rekstur á verslun sem hafði til
reiðu áþekkar vörur og hinar gamalgrónu fasta-
verslanir. Fordæmi KÞ varð síðan til að ýta
undir stofnun annarra kaupfélaga um landið og
fram að 1900 voru stofnuð a.m.k. 12 kaupfélög
sem flest studdust mjög við sauðasölu líka.
Endalok fákeppni: Bretar
og Norðmenn koma til sögunnar
Saga kaupfélaganna á níunda og tíunda áratug
19. aldar er merkilegur kafli í verslunarsögunni
því starf þeirra sýndi hvernig hægt var að vinna
bug á þeim dragbítum sem höfðu viðhaldið tök-
um fastakaupmanna í Íslandsversluninni. Það
breytir því ekki að fátt sem máli skiptir haggaði
ægivaldi kaupmanna í verslunarmálefnum
landsmanna fram yfir 1880. Og ekki má gleyma
því að þrátt fyrir starfsemi kaupfélaga upp úr
1882 stóðu hinar dönsku verslanir víða um land-
ið föstum fótum, til dæmis í Vestmannaeyjum.
Þá verður að gæta þess að flestir þéttbýlisbúar,
nær fimmtungur landsmanna árið 1900, nutu
fremur lítils góðs af kaupfélögum því þau þjón-
uðu aðallega sveitahéruðum landsins.
Fyrir þéttbýlisbúa austan lands urðu Norð-
menn til að bæta úr verslunarástandinu því
ýmsir norskir athafnamenn settust að á fjörð-
unum á níunda og tíunda áratug 19. aldar og
ráku verslun meðfram annarri atvinnustarf-
semi. Voru kjör þeirra betri en menn höfðu átt
að venjast af hálfu dönsku og dönsk-íslensku
kaupmannanna. Vestanlands og sunnan varð bið
á breytingum þar til að breskir farandkaup-
menn komu eftir 1890 og skoskir kaupsýslu-
menn opnuðu verslunina Edinborg í Reykjavík
árið 1895 með Íslending sem verslunarstjóra.
Edinborgarverslun varð fyrst til að hætta
hinum aldagömlu vöruskiptum þar sem jafnað
var með innskriftum í reikning viðskiptamanns.
Í staðinn var inneign greidd í beinhörðum pen-
ingum og jafnframt krafist greiðslu í peningum.
Verslunin dró skjótt til sín viðskiptamenn með
þessari nýbreytni og stofnuð voru útibú í Kefla-
vík, Akranesi og Ísafirði. Þeir sem voru skuld-
lausir við hina dönsku og dönsk-íslensku fasta-
kaupmenn áttu auðvelt með að taka upp við-
skipti við Edinborgarverslun og brátt neyddi
hún aðrar verslanir til þess að taka upp pen-
ingaviðskipti við skuldlausa viðskiptamenn. Þeir
sem enn voru á klafa skulda urðu að sæta lakari
kjörum.
Upp úr 1900 sköpuðust fleiri leiðir til að afla
peninga, meðal annars með vinnu sem greidd
var í beinhörðum peningum og áttu norskir síld-
og hvalveiðimenn drjúgan þátt í því. Með þess-
um og fleiri breytingum upp úr 1900 var íslenskt
þjóðfélag komið á fleygiferð og hin gömlu versl-
unarbönd við Danmörku byrjuðu að trosna. Í
heimsstyrjöldinni fyrri tóku Bretar að sér ís-
lenska utanríkisverslun með kurteislegri vald-
beitingu og útflutningur beindist fljótlega mest
að Bretlandi. Þótt þetta breyttist aftur eftir
stríðið var breytingin áfall fyrir hin aldagömlu
verslunartengsl við Danmörku sem komust ekki
í sama horf aftur.
Verslunarfrelsið og máttur peninganna
Með vissum rétti má segja að með versl-
unarfrelsinu 1855 hafi Íslendingum verið réttur
lykill að skrá sem var ryðguð af aldagamalli van-
notkun. Við þær aðstæður var ekki við því að
búast að sá lykill losaði þá undan fákeppni og
einokunartilburðum þáverandi kaupmanna.
Kaupmenn gerðu líka sitt besta til þess að
hindra samkeppni og tókst það lengi vel meðal
annars með verðsamráði sín á milli og framhaldi
skuldaverslunar.
Sauðasalan og kaupfélögin voru ákveðin leið
til að sigrast á lamandi hendi fákeppninnar. Með
kaupfélögunum var stjórn verslunarinnar kom-
in í hendur Íslendinga sjálfra og þeir gátu nú
ráðið verslunarkjörum sínum miklu meir. En
aðferðin fólst að verulegu leyti í því að halda
áfram vöruskiptum og innskriftum, búa til lokað
viðskiptasamfélag þeirra sem áttu hlut í því. Og
það má kalla gráglettni sögunnar að kaup-
félögin, sem voru stofnuð til höfuðs hinu rót-
gróna dansk-íslenska kaupmannaveldi, skyldu
halda tryggð við innskrifta- og vöruskiptahætti
þessa veldis fram eftir allri 20. öld.
Notkun peninga hins vegar þýddi endalok
vöruskipta og innskrifta. Framleiðandi gat selt
einum kaupmanni vöru sína og keypt aðföng sín
og annað hjá öðrum kaupmanni. Til að ná við-
skiptum þurftu kaupmenn að keppa í verði,
vörugæðum og þjónustu. Til þess að hægt væri
að koma utanlandsversluninni á þennan grund-
völl þurfti utanaðkomandi aðila – einhverja sem
stóðu utan samtryggingarkerfis dansk-íslenska
kaupmannaveldisins og voru ekki aldir upp í
hinum gamla nýlenduverslunarkúltúr. Það
gerðist ekki fyrr en með norskum athafnamönn-
um á síðustu tveimur áratugum aldarinnar,
breskum farandkaupmönnum eftir 1890 og svo
loks hinni skosku Edinborgarverslun frá 1895.
Með þeirri peningavæðingu hagkerfisins, sem
byrjaði á þessum tíma og var einkum bundin við
þéttbýlið, héldu innreið sína verslunarhættir
sem fólu í sér meira frelsi en áður. Á ýmsu hefur
gengið síðan þá en frumkvöðlastarf þessara
manna er upphafið að því frelsi sem við þekkjum
í dag í verslun.
Aðalheimild: Verslunarsaga Íslands 1820–1914 (vinnu-
heiti) eftir Halldór Bjarnason (hdr.)
nds framfarar“
Akureyri um aldamótin 1900 Kaupfélagshúsið fremst til hægri, Edinborgarverslun til vinstri, í baksýn sést Oddeyri.
Höfundur er kennari í sagnfræði við hugvísindadeild Há-
skóla Íslands. Hann vinnur að verkefninu Saga íslenskr-
ar utanlandsverslunar frá landnámi til loka 20. aldar
sem er á vegum Sagnfræðistofnunar Háskóla Íslands.