Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 04.06.2005, Qupperneq 8

Lesbók Morgunblaðsins - 04.06.2005, Qupperneq 8
8 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 4. júní 2005 R íkjasamband Noregs og Svíþjóðar má rekja allt aftur til Napóleonsstyrj- aldanna við upphaf 19. aldar. Svíar, undir stjórn konungsins Gústafs Adolfs IV sáu á eftir aust- urhluta ríkisins, sem nú er Finnland, í hendur Rússa árið 1809. Þessi ósigur kostaði Gústaf hásætið en í hans stað völdu Sví- ar sem krónprins einn helsta herforingja Napóleons, hinn franska Jean-Baptiste Berna- dotte. Undir forystu hans töldu Svíar sig geta náð aftur Finnlandi úr höndum Rússa, en þess í stað gekk Bernadotte í bandalag við Rússa gegn sínum fyrri herra. Danir höfðu aftur á móti, eftir árásir Breta á Kaupmanna- höfn gengið í lið með Frökkum og tilheyrðu þar með þeim sem biðu lægri hlut í styrjöldinni. Þetta gerði það að verkum að meðan á Napóle- onsstyrjöldunum stóð var skorið á samband Noregs við frændríkið Danmörku og einveld- isstjórn konungs í Kaupmannahöfn. Landinu var því stýrt á styrjaldartímanum af landsstjórn sem sat í Kristjaníu, undir leiðsögn Kristjáns Friðriks, frænda Friðriks VI konungs dansk- norska ríkisins. Kristján Friðrik erfði síðar kon- ungstign Friðriks frænda síns í Danmörku. Með Kielarfriðnum 1814 var dönsku krúnunni gert að afsala sér Noregi til frambúðar. Heima- menn í Noregi gripu þetta óvænta tækifæri feg- ins hendi, lýstu yfir stofnun norska kon- ungdæmisins, völdu Kristján Friðrik sem konung. Þessi yfirlýsing Norðmanna frá 17. maí 1814, sem yfirleitt er kennd við Eiðavelli, var á margan hátt einstök í sinni röð. Með henni fékk Noregur þingbundna konungsstjórn, fremur út- breiddan kosningarétt og frjálslyndustu stjórn- arskrá sem þekktist í Evrópu um þessar mund- ir. Þessi saga er á margan hátt ótrúleg og sagnfræðingar eru ekki á einu máli um hvernig á því stóð að Norðmenn sameinuðust svona skyndilega í þjóðernissinnaðri ofsakæti á Eiða- völlum. Lengi vel litu þeir svo á að sjálfstæðisyf- irlýsing Norðmanna væri eðlileg pólitísk þróun ríkis sem staðið hefði höllum fæti í ríkjasam- bandi við Dani, ekki ósvipað og Íslendingar hugsa oft þegar rætt er um sambandsslit þeirra við hina fornu herraþjóð. Á síðari árum hafa sagnfræðingar í auknum mæli dregið þessa „náttúrulegu“ skýringu í efa. Í þessum deilum ber ef til vill hæst greinaskrif norska prófess- orsins Östein Ryans um heilsteypta þjóðernis- kennd Norðmanna sem hefur verið kröftuglega mótmælt af sænsk-norska prófessornum Har- ald Gustafsson sem telur hæpið að hægt sé að nota hugtök eins og „þjóð“ og „þjóðerni“ um þá sem bjuggu innan landamæra þess sem við köll- um Noreg í dag. Skammvinn sæla En sæla Norðmanna og hins nýstofnaða kon- ungsríkis var skammvinn. Stóri bróðir Svíþjóð, undir forystu Bernadottes, þóttist eiga harma að hefna og leitaði landvinninga til að bæta fyrir missinn af Finnlandi og ef til vill landssvæða Svía á meginlandi Evrópu, í Pommern og Wism- ar. Í byrjun nóvember var veislan úti. Með því að leggja undir sig Noreg tryggðu Svíar sig enn- fremur í vestri gegn hugsanlegri innrás Dana og gátu byggt upp öfluga vörn gegn Rússum. Með fullu samþykki ráðamanna Evrópu og í krafti hervalds þvinguðu Svíar Norðmenn til að ganga í helmingafélag. Mótmæli Norðmanna báru þó nokkurn árangur. Hið nýja ríkjasamband fól í sér að ríkin lutu bæði stjórn Svíakonungs og höfðu sameiginlega utanríkisstefnu, en Norð- menn héldu fullkomnu innra sjálfstæði og sinni ástkæru stjórnarskrá. Hún átti á komandi árum eftir að verða eitt helsta öfundarefni annarra Evrópuþjóða og var undirrót „Skandinavism- ans“ sem skók bæði Svíþjóð og Danmörku í leit þessara ríkja eftir frjálslyndara stjórnarfari. Ríkjasamband Noregs og Svíþjóðar var fram undir lok 19. aldar í fullu samræmi við þann hugsunarhátt sem ríkti í Evrópu um og eftir miðbik aldarinnar. Óbreytt ástand voru kjörorð Noreg. Í heimsókn sinni til Stokkhólms viðraði Vilhjálmur hugmyndir um þýska innrás í Suður- Noreg en lofaði þó ekki hernaðarstuðningi við innrás Svía. Viðbrögðin við hernaðarbrölti kon- ungs voru hörð, ekki aðeins í Noregi heldur einnig í Svíþjóð. Meðal annars var leiðtogi sósíaldemókrata handtekinn eftir mótmæli sín í ræðu þann 1. maí og dæmdur til þriggja mánaða fangelsis, sem síðar var breytt í 500 króna sekt. Í Noregi samþykkti stórþingið umsvifalítið aukin fjárlög til hers og flota, meðal annars til kaupa á fjórum nýjum herskipum. Því næst var fánamálið tekið upp einu sinni enn og þar með gat konungur ekki lengur synjað ósk Norð- sem hér eru til umræðu. Samhliða ofantöldum breytingum fór stéttapólitík að láta á sér kræla og varð áhrifarík, einkum og sér í lagi í Noregi. Á meðan þjóðernisstefnan gekk í eina sæng með norskum vinstriöflum varð hún handbendi íhaldssamra hægriafla í Svíþjóð sem vildu það helst að grannþjóðin Noregur yrði pískuð til hlýðni með öllum tiltækum ráðum. Þessir efnahagslegu og pólitísku þættir sem eru nefndir hér að ofan tengjast báðir þeim ásteytingarsteini sem kom af stað keðjuverk- uninni sem lauk með fullum sambandsslitum sumarið 1905. Deilumálið er oft nefnt konsúlata- vandamálið og snerist um það hvort Svíþjóð og Noregur ættu að hafa sameiginlega utanríkis- þjónustu eða ekki. Ríkjasambandið státaði af sameiginlegu merki, samsettu úr þjóðfánum beggja ríkja og var það staðsett efst í hægra horni hvors þjóðfána. Þetta opinbera tákn var Norðmönnum mikill þyrnir í augum og var það oft uppnefnt „síldarsalatið“. Undir þessum fána voru svo sendiráð og konsúlöt sambandsríkisins rekin undir dyggri stjórn utanríkisráðuneytis- ins í Stokkhólmi. Þeir sem þurftu á þjónustu konsúlatanna að halda, og reyndar stór hluti starfsmanna þeirra, voru aftur á móti Norð- menn, enda gat þjóðin nú státað af þriðja stærsta fraktskipaflota heims um miðja 19. öld. Konsúlatadeilan varð helsti ásteytingarsteinn ríkjasambandsins næstu fimmtán árin og á henni var ekki fundin lausn fyrr en samband ríkjanna liði undir lok. Undirbúningur að innrás í Noreg Í sambandssáttmála konungsríkisins Noregs og Svíþjóðar frá 1815 var skýrt kveðið á um það að öll utanríkismál skyldu alfarið vera í höndum Svía. Vissulega var því svo farið að flestir starfs- menn utanríkisþjónustunnar voru af norsku bergi brotnir, af þeirri einföldu ástæðu að um- svif Norðmanna voru mun meiri en Svía um ger- valla veröld. En æðsta stjórn utanríkismála fór fram í Stokkhólmi. Það var því eins og köld vatnsgusa í andlit konungs og sænsku ríkis- stjórnarinnar þegar norska stórþingið tók sig til árið 1891 og samþykkti fjárveitingu og laga- breytingar þess efnis að hér eftir skyldu norsk utanríkisþjónusta og utanríkismál vera norsk innanbúðarmál og Svíum óviðkomandi. Hins vegar neitaði Óskar II, konungur Svíþjóðar og Noregs, að samþykkja lögin. Í norsku stjórn- arskrána voru bundin ákvæði í ætt við 26. grein hinnar íslensku stjórnarskrár þess tíma, um að konungur mætti fresta gildistöku laga tvisvar sinnum en síðan ekki söguna meir. Stórþingið svaraði með því að samþykkja sömu lög ári síðar en enn neitaði konungur að skrifa undir. Stjórn- in sagði því af sér og konungur myndaði um- svifalítið minnihlutastjórn sem beið hroðalegan ósigur í næstu kosningum og ný vinstristjórn komst til valda. Næsta skref norsku stjórnar- innar var eins og köld vatnsgusa í andlit Svía. Á fjárlögum voru laun konungs og Gústafs krón- prins skorin niður um nær helming, stjórnar- kreppa ríkti í landinu og Óskar konungur sneri hið bráðasta heim til Svíþjóðar, án þess að hafa tekist að mynda starfhæfa ríkisstjórn í Noregi. Þegar til Stokkhólms var komið, kallaði kon- ungur saman leyndarráð ríkisþingsins í fyrsta sinn síðan á dögum Krímstríðsins 1856. Dyggi- lega studdur af félaga sínum, Vilhjálmi Þýska- landskeisara, hóf Óskar undirbúning að innrás í dagsins og því er heldur engum vafa undirorpið að Svíar og Norðmenn áttu miklu meira sameig- inlegt, en til að mynda íbúar þess svæðis sem í dag er kallað Frakkland. En hér má heldur ekki gleyma að 19. öldin var mikið mótunarskeið fyr- ir ríkisvald í Evrópu. Iðnbyltingin breiddist út um álfuna eins og eldur í sinu og valddreifing varð helsta ógnun þeirrar stefnu sem valdhafar Evrópu höfðu mótað á Vínarfundinum 1815. Til viðbótar lágu hugmyndir um stéttaskiptingu og kynhlutverk á teikniborðinu, auk þess sem kon- ungsvald og hugmyndir í ætt við einveldi áttu sí- fellt erfiðara uppdráttar. En þrátt fyrir að innbyrðis stjórnarhættir væru verulega ólíkir dafnaði sambandsríki Nor- egs og Svíþjóðar lengst af án stórra vandkvæða. Í Noregi var þingbundin konungsstjórn og kosningaréttur karlmanna varð almennur 1890. Í Svíþjóð var lýðræðisþróunin mun skemmra á veg komin; ríkisþingið var stéttskipt og þar áttu fulltrúa aðall, klerkar, bændur og borgarar, hver hópur með eitt atkvæði. Tveggja deilda ríkisþingi var vissulega komið á fót á áttunda áratugnum en almennur kosningaréttur karla var ekki viðurkenndur fyrr en árið 1907. Í Stokkhólmi sátu konungur og ríkisstjórn, sem var eingöngu skipuð sænskum fulltrúum, en hafði til áheyrnarfulltrúa norsku þjóðarinnar sem bar titil forsætisráðherra. Í Noregi sat aft- ur á móti lengst af sænskur ríkisstjóri, sem var Norðmönnum, og ekki síst norsku ríkisstjórn- inni þyrnir í augum. Ríkisstjórarembættið var vissulega miklu eldra en sambandsríki Noregs og Svíþjóðar en í því kristallaðist að mati margra Norðmanna staða Noregs innan ríkja- sambandsins, sem hinn lægra setti aðili, sem hjálenda, ef notast á við séríslenska skilgrein- ingu á stöðu einstakra þjóða innan ríkjasam- bands. Fór svo að eftir miðbik aldarinnar var embættið óskipað og í upphafi níunda áratug- arins var það lagt niður. Um svipað leyti hófst þingræði til vegs og virðingar í Noregi og þaðan í frá var landinu stýrt af ríkisráði, eða ríkis- stjórn, undir forystu forsætisráðherra. Þrátt fyrir að skipunarvald ríkisstjórnar væri enn í höndum Svíakonungs varð ríkisstjórnin að njóta stuðnings meirihluta á stórþinginu sem tak- markaði mjög útnefningarmöguleika konungs. Sambúðin fer kólnandi Þegar líða tók að lokum 19. aldar fór heldur að draga til tíðinda í sambandi Noregs og Svíþjóð- ar og sambúð landanna fór kólnandi. Fyrir þessu má finna tvennar orsakir. Annars vegar var þjóðernisstefnan á mikilli uppleið í Evrópu og hugmyndir um sjálfstjórn þjóða áttu upp á pallborðið. Hins vegar hafði atvinnulíf innan Noregs og Svíþjóðar þróast mjög í tvær áttir með aukinni iðnvæðingu Evrópu. Á meðan sænskt samfélag þróaðist í átt til aukinnar iðn- væðingar, málmiðnaður blómstraði, vefnaðar- iðnaði óx ásmegin og pappírs- og trjávinnslu óx fiskur um hrygg lá beinast við að Norðmenn nýttu sér kunnáttu sína til siglinga og verslunar. Í lok 19. aldar var norski kaupskipaflotinn orð- inn sá þriðji stærsti í Evrópu, fiskveiðar blómstruðu og utanríkisviðskipti sænsk-norska ríkisins voru meira eða minna rekin frá hinum norska hluta ríkisins. Samtímis tóku sænsk stjórnvöld að aðhyllast haftastefnu í efnahags- málum og sögðu meðal annars upp, árið 1895, samningum þeim sem í raun höfðu gert sam- bandsríkið að einu fríverslunarsambandi. Þar með var fótunum í raun kippt undan öllum efna- hagslegum rökum fyrir því að halda ríkjasam- bandinu gangandi. En þessi ákvörðun sænskra stjórnvalda hafði mun meiri áhrif en bara á efnahagssviðinu. Fram til þessa hafði til að mynda norski stjórnmálaflokkurinn „Venstre“, ekki haft sambandsslit á stefnuskrá sinni. Þing- ræði, almennur kosningaréttur og endurvakn- ing norskrar menningar (sem skyldi hreinþvo af dönskum áhrifum) voru helstu baráttumál flokksins sem og jafnrétti Svíþjóðar og Noregs innan sambandsríkisins. Hér má ekki gleyma að þessi umbylting at- vinnulífsins sem átti sér stað í kjölfar iðnbylt- ingarinnar gerbreytti stjórnmálum þeirra landa Sambandsslit Noregs Í ár eru liðin 100 ár frá sambandsslitum Noregs og Svíþjóðar. Þann 7. júní 1905 var norska stór- þingið kallað saman til neyðarfundar í Kristjaníu, eins og Osló kallaðist þá. Forsætisráðherra Noregs, Christian Michelsen, sagði af sér fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, með fullu samþykki þingsins sem sendi frá sér eftirfarandi orðsendingu: „Þar sem ríkisstjórnin hefur sagt af sér og hans hátign konungurinn hefur lýst því yfir að hann geti ekki myndað ríkisstjórn … er því hérmeð lýst yfir að ríkjasamband vort við Svíþjóð er leyst upp, vegna þess að konungurinn hefur verið leystur frá stöðu sinni sem konungur Noregs“. Þar með batt Noregur enda á ríkjasamband sitt og Svíþjóðar, „með einni aukasetningu“ eins og þessum atburði hefur stundum verið lýst. At- burðarásinni var þar með ekki lokið. Allt sumarið 1905 og langt fram eftir hausti voru samskipti þessara tveggja frændríkja á suðupunkti, herir beggja vígvæddust og stóðu um tíma gráir fyrir járnum með hundrað metra millibili á landamærum ríkjanna, samtímis sem þýski flotinn viðraði sig í Eystrasaltinu og Bretar pússuðu rykið af flotakortum yfir Noregshaf. En sem betur fer kom ekki til átaka, ekki síst vegna þrýstings stórveldanna og ýmissa hagsmunahópa bæði í Noregi og í Svíþjóð, þar sem verkalýðsstéttinni var um þessar mundir að vaxa fiskur um hrygg. Eftir Einar Hreinsson greebo@simnet.is Óskar II Konungur Svía og Norðmanna frá 1871 hafði mikið dálæti á Noregi, talaði góð norsku en hafði skömm á frelsishugmyndum þeirra. Á þessari norsku skopteikningu sést hann skrifa bréf árið 1905, röntgengeislar afhjúpa innri mann konungs, með því að sýna „tre kronor“, skjaldarmerki Svía. Myndin á veggnum sýnir hvernig Norðmenn litu á „hjálparhönd“ Svía og hvað í kveðju þeirra fólst. Ný Ca fék va Norsk skopmynd Myndin sem er úr tímaritinu Puck sý kljúfa sambandsríkið á meðan Svíar reyna af öllum m

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.