Lesbók Morgunblaðsins - 04.06.2005, Blaðsíða 9
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 4. júní 2005 | 9
langþráð lokatakmark og í fullu samræmi við þá
lýðræðisþróun sem var vel á veg komin í land-
inu. En nú var því ósvarað hvaða stjórnarfyr-
irkomulag ætti að taka upp, lýðveldi eða þing-
bundna konungsstjórn? Í nóvember fór fram
þjóðaratkvæðagreiðsla um málið og greiddu
tveir þriðjuhlutar atkvæði með stofnun kon-
ungsríkis. En hvern átti þá að krýna konung?
Það var vissulega til lítill hópur af Norðmönnum
með blátt blóð í æðum en vandamálið var að
stórþingið hafði lagt niður norska aðalinn með
lögum árið 1837 og lagt blátt bann við notkun
aðalstignar. Stórþingið hafði vissulega gert
Óskari Svíakonungi tilboð um að einn af sonum
hans yrði krýndur til konungs en það boð hafði
verið kurteislega afþakkað. En staðreyndin er
sú að á bak við tjöldin höfðu þegar um sumarið
verið hafnar leynilegar umræður við verðandi
konung. Sá sem varð fyrir valinu var Carl prins
af Danmörku, sonur Friðriks Danakonungs og
bróðir Kristjáns sem síðar ríkti yfir Danmörku
sem Kristján X. Þetta var að mörgu leyti takt-
ískt val á þjóðhöfðingja. Á þennan hátt voru
þjóðarleiðtogar Danmerkur og Noregs tengdir
órjúfanlegum böndum en einnig hafði sitt að
segja að Carl var kvæntur Maud, dóttur Breta-
konungs. Þar með hafði hið nýja Noregsveldi
fengið tvo öfluga bandamenn. Og sem rúsína í
pylsuenda var Louise móðir Carls, eða Hákons
eins og hann valdi nú að kalla sig, bróðurdóttir
Óskars Svíakonungs.
Í dag er erfitt að ímynda sér að fyrir sléttri
öld hafi grannþjóðirnar Noregur og Svíþjóð
rambað á barmi styrjaldar sem hefði kallað yfir
Skandinavíu hörmungar sem í hugum manna
eru fremur tengdar við Balkanskagann eða lönd
þriðja heimsins. Í dag hafa Norðurlöndin á sér
orð fyrir að vera boðberar friðar og mannrétt-
inda. En flestir hafa fyrir löngu gleymt að að-
eins röskum áratug eftir lok þeirrar deilu sem
hér er til umræðu var í Finnlandi háð blóðug
borgarastyrjöld sem kostaði meira en 15 þúsund
mannslíf.
Eins og áður var nefnt hafa sagnfræðingar
eytt ótöldum stundum í að reyna að finna orsak-
ir þess að sambandsríki Noregs og Svíþjóðar
leystist upp. Stór hluti þeirrar umræðu hefur
snúist um tákmyndir þjóðernishyggjunnar í
þessum löndum. Á tíma ríkjasambandsins mót-
uðust þjóðernishugmyndir þessara þjóða og þar
er ef til vill að finna eina af skýringunum á því að
sambandsríkið leið undir lok á friðsamlegan
hátt. Þar má í það minnsta finna skýringuna á
ólíkum viðhorfum þjóðanna til ríkjasambands-
ins.
Þeir íslensku ferðalangar sem dvalið hafa í
Noregi á 17. maí og í Svíþjóð á 6. júní, þjóðhátíð-
ardegi Svía, verða flestir afskaplega hissa á því
hversu ólík hátíðarhöldin eru. Á meðan Norð-
menn flykkjast um götur íklæddir þjóðbúning-
um og með fána, lesa ættjarðarljóð og syngja
þjóðsönginn eru hátíðarhöld Svía hjóm eitt og
fáir virðast vita af hverju 6. júní er þjóðhátíðar-
dagur. Því að þrátt fyrir að þjóðernishyggjunni
yxi fiskur um hrygg á tímum sambandsríkisins
þá voru vaxtarskeið hennar mjög ólík í Svíþjóð
og Noregi. Í Noregi var þjóðernishyggjan tengd
baráttu vinstrimanna, fyrst fyrir auknum lýð-
réttindum en síðar fyrir sjálfstæði. Menning-
artengd þjóðernishyggja tengdi svo sveit og
borg í baráttu fyrir allsherjar frelsi Norðmanna.
Í Svíþjóð var þjóðernishyggjan aftur á móti
tengd hægriflokkunum og hugmyndum þeirra
um að upphefja Svíþjóð, ekki síst innan sam-
bandsríkisins. Þjóðernishyggjan í Svíþjóð var
vopn hægrimanna gegn Norðmönnum en um
leið gegn þingræði og lýðræði. Ef til vill kristall-
ast hugmyndirnar um sambandsríkið enn í þjóð-
söngvum þjóðanna. Á meðan Norðmenn elska
sitt land (Ja vi elsker dette landet) hljómar
drottnun Svía í orðunum „jag vill leva, jag vill dö
i Norden“.
Nils Ivar Agöy, 2000, „It will serve to increase our Union
difficulties. Norway, Sweden and the The Hague peace
conference of 1899.“ Historisk tidsskrift, 79:2, s. 181-207.
Rolf Danielsen, 2002, „På moderasjonens grunn - Noen
rettslige og konstitusjonelle betraktninger omkring union-
opplösningen.“ Historisk tidsskrift. 81:4. s. 425-441.
P. Fuglum, 1976, Norge i støpeskjeen, 1884-1920. Norge histor-
ie. (ritstj. Knut Mykland). Osló.
Harald Gustafsson, 1997, Nordens historia. En europeisk
region under 1200 år. Lundur.
Herman Lindqvist, 1999, Historien om Sverige. Ånga och
dynamit. Stokkhólmur.
Thorbjörn Nilsson, 2003, „Unionen som nationalistisk
vattendelare. Prosjekt 1905. Svensk-norske relasjoner i 200
år.“ http://www.hf.uio.no/prosjerkter/Prosjekt1905/
publikasjoner_Nilsson.php (sótt 15.05.05).
Anne-Lise Seip, 1995, Nation-building within the Union:
Politics, Class and Culture in the Norwegian Nation-State in
the Nineteenth Century. Scandinavian Journal of History. 20,
s. 35-50.
Nils Petter Thuesen, 2002, Norges historie i årstall. Fra stein-
aldarern til i dag. Oslo.
1905. Norge, Sverige & Unionen. http://www.nb.no/
baser/1905 (sótt 10.05.2005).
vill að finna í þeirri staðreynd að Rússland
glímdi við uppreisn heima fyrir og Þýskaland og
Frakkland römbuðu á barmi styrjaldar vegna
yfirráða yfir Marokkó. Andrúmsloftið á alþjóða-
vettvangi var þegar afar spennt og stríð í
Skandinavíu hefði getað orðið kornið sem fyllti
mælinn.
Sænski herinn bjó sig undir stríð. Rykið var
dustað af áætlunum um innrás í Noreg frá 1893
og sænski herinn, sem var í miðjum sumaræf-
ingum, hóf vígbúnað af kappi. Í Stokkhólmi kall-
aði konungurinn inn ríkisþingið úr fríi og krafð-
ist þess að þingmenn styddu áætlun hans um
stríð. Sú varð ekki raunin, vissulega samþykkti
þingið aukafjárveitingu til hermála en nær allir
vildu fremur friðsamlega lausn en að uppfylltum
vissum skilyrðum. Eitt af þeim var að Norð-
menn gengju til þjóðaratkvæðagreiðslu um
klofning ríkisins. Þegar hún var framkvæmd gaf
hún óvéfenglega niðurstöðu, 368.200 voru fylgj-
andi úrsögn Noregs, 184 voru á móti!
Í lok ágúst 1905 hittust sendinefndir Norð-
manna og Svía í Karlstad, miðja vegu á milli
Kristjaníu og Stokkhólms. Samningaumræð-
urnar gengu vægast sagt illa. Svíar settu fram
kröfur um að Norðmenn létu rífa niður öll
landamæravirkin sem þeir voru nýbúnir að
byggja og að auki virkin í Fredriksten og
Kongsvinger. Norðmenn þverneituðu og heima-
við voru sendar út herkvaðningar til almennra
borgara. Það að bæði ríkin fluttu hersveitir sín-
ar nánast á landamæralínuna auðveldaði ekki
samningaviðræðurnar og að auki hófust Norð-
menn handa við að höggva niður skóg til að fá
frítt skotsvæði fyrir stórskotalið sitt. Þann 14.
september virtist styrjöld frændþjóðanna vera
óhjákvæmileg. En þá gripu stórveldin til sinna
ráða. Rússland og Frakkland sendu Svíum til-
mæli um að kröfur þeirra um að Norðmenn rifu
landamæravirki sín mættu litlum skilningi hjá
þeim. Bretar tilkynntu aukinheldur að ef Svíar
endurskoðuðu ekki stefnu sína mundi breska
ríkisstjórnin án frekari málalenginga viður-
kenna sjálfstæði Noregs. Auk þess sendu bæði
Þýskaland og Bretland flotadeildir að vestur-
strönd Svíþjóðar, þar sem sænski flotinn lá við
festar.
Viðræðurnar taka nýja stefnu
Þar með tóku viðræðurnar í Karlstad nýja
stefnu. Svíar samþykktu að Norðmenn héldu
sínum gömlu virkjum í Kongsvinger og Fredrik-
sten en að öll hernaðarmannvirki innan 20 km
frá landamærum ríkjanna, að 61° norðlægrar
breiddar, yrðu jöfnuð við jörðu. Þar að auki
skyldi tryggja rétt sænskra sama til beitilands í
Noregi og að lokum yrði öllum deilumálum þjóð-
anna framvegis skotið til alþjóðadómstólsins í
Haag. Karlstadsamkomulagið var svo und-
irritað af stjórnarþingum beggja þjóða og þann
26. október 1905 var formlega bundinn endir á
ríkjasamband Noregs og Svíþjóðar.
Fyrir Svíþjóð var þessi niðurstaða mun minna
reiðarslag en ætla mætti. Sósíaldemókratar og
verkalýðshreyfingin, tvö sterkustu stjórn-
málaöfl Svíþjóðar allt til dagsins í dag, voru að
slíta barnsskónum og í augun sporgöngumanna
eins og Hjalmars Brantings voru sjálfstæði
Noregs og friðsamleg sambandsslit ekki aðeins
sigur fyrir verkalýðshreyfinguna heldur einnig í
fullu samræmi við stefnumál alþjóðasambanda
vinstrimanna. Fyrir Norðmenn var niðurstaðan
rás í Noreg. Konsúlatavandamálið var enn
óleyst og þokaðist ekkert í samningsátt.
Árið 1905 magnaðist deilan enn með myndun
samsteypustjórnar í Noregi. Forsætisráðherra
var Carl Michelsen en fulltrúi stjórnarinnar í
Stokkhólmi, einnig titlaður forsætisráðherra,
var Sigurd Henriksson Ibsen. Samtímis sam-
þykkti stórþingið einhliða að koma á fót norskri
utanríkisþjónustu. Þar með var lokasennan haf-
in.
Öll Evrópa fylgdist með
Báðir deiluaðilar virðast hafa verið meðvitaðir
um að augu Evrópu hvíldu nú á þeim. Dyggilega
studdur af ríkisstjórninni í Kristjaníu geystist
landkönnuðurinn Fridjof Nansen fram á ritvöll-
inn og ræddi fjálglega um sjálfstæði Noregs á
síðum Le Temps í París, Kölnischer Zeitung og
London Times. Svar Svía var að senda bæði til
Lundúna og Parísar efni til birtingar og tefla
fram sínum helsta landkönnuði, Sven Hedin,
sem baráttupenna.
Í lok maí dró svo til tíðinda innan stjórnmál-
anna. Norska fastanefndin gekk á fund Óskars
konungs sem nú hafði snúið aftur til vinnu í
Stokkhólmi. Konungur tilkynnti að hann gæti
með engu móti undirritað lögin um stofnun
norskrar utanríkisþjónustu, á þeim forsendum
að þar með mundi ríkjasambandið leysast upp.
Fulltrúar norsku fastanefndarinnar voru undir
þetta búnir og drógu þá strax fram undirskrif-
aða afsögn norsku ríkisstjórnarinnar og afhentu
konungi með tilmælum um að hann útnefndi
nýja ríkisstjórn. Konungur neitaði þá að sam-
þykkja afsagnarbréf ríkisstjórnarinnar enda
fyllilega meðvitaður um að honum væri það með
öllu ómögulegt. Að fundur konungs og fulltrúa
Noregs þróaðist á þennan veg kom engum
þeirra er hann sátu á óvart. Það sést kannski
best á því að öll þessi samskipti fóru fram með
upplestri skjala sem höfðu verið útbúin fyrir
fram. Meira að segja neitun konungs á að sam-
þykkja afsögn ríkisstjórnarinnar var tilbúin og
skrifuð á blað, á norsku!
Í flestra augum var ríkjasambandið nú úr
sögunni. Sósíaldemókratinn Hjalmar Branting
skrifaði í blaðagrein: „Þann 27. júní 1905 fékk
konungssamband Noregs og Svíþjóðar hægt
andlát, 90 og ½ árs gamalt. Það sem ógert er, er
að jarðsetja og skipta upp dánarbúinu.“ Sam-
tímis hélt norska sendinefndin heim á leið til
Kristjaníu. Þar kallaði Michelsen forsætisráð-
herra stórþingið saman til fundar þann 7. júní
og tilkynnti úrsögn Noregs, eins og sagt er frá í
upphafi þessarar greinar. Þar með var Noregur,
að segja má, sjálfstætt ríki í fyrsta skipti síðan
árið 1319.
Vandamálið með ríkjasamskipti Noregs og
Svíþjóðar var þó engan veginn leyst. Óskar kon-
ungur mótmælti ákvörðun Norðmanna harðlega
en þeir svöruðu með því að bjóða Svíum upp á að
einn af sonum Óskars yrði krýndur konungur
Noregs. Móttökurnar voru blendnar í Svíþjóð. Á
meðan hægrimenn mótmæltu kröftuglega,
héldu vinstrimenn hátíðir til að samgleðjast
bræðrum sínum Norðmönnum. Frá Berlín,
Moskvu og Lundúnum bárust fréttir um að
áhrifaþjóðirnar styddu sjálfstæði Norðmanna,
eða myndu í það minnsta ekki leggjast á sveif
með Svíum ef til átaka kæmi. Umfram allt voru
skilaboð þessara þjóða: Semjið friðsamlega.
Skýringuna fyrir þessari einörðu stefnu er ef til
manna um eigin þjóðfána. Tveimur árum síðar,
aldamótaárið 1900 hófust svo Norðmenn handa
við að byggja röð hernaðarmannvirkja meðfram
landamærum Svíþjóðar.
Í Stokkhólmi ágerðist stjórnarkreppan. Kon-
ungurinn lagðist í rúmið og neitaði að ræða við
nokkurn mann, ríkisstjórnin sagði af sér og á
ríkisþinginu deildu menn hart um hvert skyldi
verða næsta skref. Hugmyndir um þýsk-sænska
innrás voru reifaðar við Vilhjálm keisara en
honum hafði nú snúist hugur og snerist gegn
slíkum verknaði. Í Finnlandi hertu Rússar tak
sitt á stórhertogadæminu, sem varð vatn á
myllu þeirra hagsmunahópa sem aðhylltust inn-
og Svíþjóðar 1905
Höfundur er sagnfræðingur.
Landamæragæsla Árið 1900 höfðu Norðmenn hafist handa við byggingu raðar hernaðarmannvirkja meðfram
landamærum Svíþjóðar. Myndin sýnir norska hermenn við landamærin árið 1905 þegar spennan var hvað
mest. Herir beggja sambandsríkjanna voru illa búnir til átaka, en stilltu sér engu að síður upp með fárra metra
millibili, reiðubúnir til orustu.
ýja norska konungsfjölskyldan Danski prinsinn
arl tók sér nafnið Hákon, eiginkonan Maud
kk að halda sínu nafni en sonurinn Alexander
ar hér eftir nefndur Ólafur.
ýnir Norðmenn vinna hörðum höndum að því að
mætti að plástra yfir sárin.