Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.2005, Qupperneq 3

Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.2005, Qupperneq 3
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 26. nóvember 2005 | 3 ég geri stundum, þegar ég er að klára, og skrifaði vinkonu minni að ég hefði samið hand- bók um allar mögulegar tegundir sorgar. En þetta er örlagasaga um eina tiltekna teg- und af örlögum, hver þau eru og hvernig þau fara með fólk. Og þetta er skáldsaga, þú gætir kallað hana bernskusögu, en hún er líka saga um sorg, saga um ást og saga um ástleysi. Ég veit um eitt orð sem er rauði þráðurinn, allra mesti kjarninn í sögunni, en ég get ekki ljóstrað því upp hér og nú. Höfundur má ekki mata lesandann um of. Hann getur sagt allt nema síðasta orðið. Það verður lesandinn að hafa. Þú hefur lesið hana. Hvað segir þú?“ – Þetta er sorgbitin ástarsaga með fyndnum innskotum, sem lesandinn getur stiklað á gegnum söguna. „Já. Fannstu fyndnina? En gaman! Í svona sögu verður húmorinn nefnilega að vera svo fínn og vel ofinn inn í textann. Húmor er í stíl við lífið sjálft. Fólk í fang- elsum segir brandara. Fólk segir brandara á banasænginni. Mér var til dæmis sögð sagan af konunni sem rankaði við sér í banalegunni og spurði hvort hún væri enn hérna megin eða komin yf- ir. Þegar henni var sagt, að hún væri enn í jarðvistinni, sagði hún: Já, þeir eru farnir að setja á terturnar hinum megin! Svo gaf hún upp öndina! Húmorinn er eitthvað það furðulegasta í fari mannskepnunnar. Margir nota hann til þess að komast af, lifa af einhvern sársauka, eitt- hvert ströggl í lífinu.Til dæmis eru allir sam- kynhneigðir, sem ég þekki, miklir húmoristar og kunna að gera grín að sjálfum sér. Íslendingar hafa fleiri en eina tegund af húmor í farteskinu. En þeir kunna ekki að gera grín að sjálfum sér.“ Börnin börðu höfund- inn til bókarinnar Svo heldur hún áfram: „Það er gott þú fannst fyndnina í sögunni minni. Þar með hefur lesandinn gefið sitt loka- svar! Eigum við þá að láta þessu samtali lok- ið?“ – Ef þú hefur ekkert fleira að segja um sög- una þína. „Mér finnst allt í lagi að opna bókina og gefa fólki inngönguleið.“ – Tölum þá um bernskusöguna. Í húsinu á Sjafnargötunni alast systkinin upp við tómlæti sérviturra foreldra. Þetta er nokkuð óvenjuleg bernskusaga, eða hvað? „Það er kannski frekar að foreldrarnir í sög- unni séu óvenjulegir, sérstaklega móðirin. Það er hulinn leyndardómur, jafnvel fyrir mér, hvernig móðirin hagar sér gagnvart börnunum sínum og bremsar með návistinni einni saman föðurinn af í því að vera sá pabbi sem hann gæti hafa verið. Ég held samt að sagan sé alltof algeng, það er alltof mikið um það að börn búi við fálæti og taki þann kostinn að flýja of mikið inn í eigin heim, þar sem þau búa sér til sinn eigin raun- veruleika. Börnin í sögunni hringla svo mikið laus og þau finna að veruleikinn er ekki eins og þeim er sagt að hann sé.“ – Kaflarnir um börnin eru með öðrum brag en hinir kaflarnir. „Ég þurfti að taka mér tak til þess að nálg- ast bernskuheiminn og reyndi að gera það í eins tærum og einlæglegum stíl og ég gat Andstæða bernskunnar er veruleiki fullorð- insmanneskjunnar og hann kallaði á öðru vísi stíl. Það veitti mér ákaflega mikla ánægju að fjalla um bernskuheiminn. Að fara inn í rök- heim barnanna. Ógæfukonan Nellí Rós Hjart- ardóttir í minningargreininni getur ekki verið Nellí á Grettisgötunni. Hún hét bara Nellí og var einstæðingur en ekki ógæfukona. Þannig búa börn til raunveruleikann út frá sínum rök- um. Og þau kölluðu rakarann fléttuþjóf af því að hann klippti flétturnar af söguhetjunni og þau dunduðu sér við að drepa hann í rafmagns- stólnum nokkrum sinnum. Þegar ég var búin að ákveða að þau myndu fleygja fléttunum í sjóinn hafði ég samband við vin minn, vísinda- mann, og spurði hann hvort og þá hvernig fléttur færu að því að drukkna. Hann gerði há- vísindalega tilraun og á henni byggist frásögn- in í sögunni um afdrif fléttnanna. Ég hef reyndar tæpt á bernskunni í fyrri bókum mínum, en þetta er í fyrsta skipti sem hún er ráðandi afl í sögu minni. Og það var erf- itt. Þessi börn eiga verra líf en þau eiga skilið. En þau voru svo hugrökk og þegar ég var að gefast upp voru það þau, sem börðu mig til bókarinnar og hugguðu mig í mínum rithöf- undarraunum.“ Saga í hárnákvæm- um skömmtum – Það er mikil sorg í sögunni. „Já eða missir. Söguhetjan missir konuna sem gengur henni í móðurstað, hún missir föð- ur sinn og hún missir æskuástina sína.“ – Af hverju hana líka? „Ég segi ekki hvers vegna í sögunni. Ég var búin að skrifa það, en tók það svo út. Þessi saga er svo skafin! Það er allt í svo hárná- kvæmum skömmtum. Líka sorgin. Og skýr- ingarnar. En það má segja að söguhetjan kunni á tómarúmið, en hún ræður ekki við sambandið. Þetta er líka saga um það þegar tvær korn- ungar manneskjur hittast og bráðsmella sam- an, eru eins og þerripappír, svo næm í sálinni og ungum kroppnum. Svona lagað gerist en það getur ekki gerzt aftur. Því miður! Ég er sem höfundur hrygg yfir því að þau skyldu hætta að vera saman!“ – En þau ná saman aftur. „Já. En þá eiga þau aðeins eina stund.“ – Þú skapar þeim ekki annað en að skilja. „Já, eitthvað þess háttar. Söguhetjan mætir örlögum sínum og gerir upp líf sitt.“ – Og þá erum við komin í dauðann! „Já. Ég fjalla beint um dauðann í þessari bók. Það er eitt af söguefnunum, hvað dauðinn er gjörsamlega óásættanlegur, hvað það er óþolandi fyrir fólk að missa sína. Það er engin sérstök leið til þess að fást við dauðann. Fólk vinnur einhvern veginn úr þeirri reynslu og setur hana í eitthvert hólf. Dauðinn er kannski vel geymdur þar, en hann fylgir okkur alla tíð. Það er fremur óhugnanleg staðreynd, að við skulum einn góðan veðurdag hverfa. Að fjöllin hafi okkur ekki lengur til þess að horfa á sig. Að við hverfum um alla eilífð og okkar saga með okkur. Því um leið og manneskjan deyr er glatað það tækifæri að hún segi sína sögu sjálf. Bróðir söguhetjunnar er sá sem veit mest um hana en hann veit ekki helminginn. Öll eigum við okkur uppáhaldsviðmælanda. Söguhetjan mín segir æskuástinni sögu sína með höfuðið á öxl hans í garðinum við Hnit- björg. Þar bítur sagan í skottið á sér. En enda- lokin á söguhetjan með lesandanum einum.“ Nýtt form á hverri bók – Hvert sækirðu þetta efni – í þinn raunveru- leika eða eitthvað annað? „Þetta er algjörlega skáldsaga. Ég bý til eitthvað úr engu. Kannski ekki alveg engu! Það geta verið einhverjar lauslegar fyr- irmyndir. Hús bókarinnar er til dæmis ekki við Sjafnargötu, eins og þar segir, heldur við aðra götu þar nálægt. Þegar ég var búin með bókina fékk ég barnsföður minn, sem er arkitekt, til þess að koma með mér og tala við alvöruhúsið. Þá gerðust stórmerkilegir hlutir! Í sögugarðinum mínum er hlynur og þarna í alvörugarðinum stóð tvístofna hlynur, sem ég sá strax að gat verið tilvísun til foreldranna í sögunni. Ég breytti því mínum hlyn, sem var skjól söguhetjunnar, og gerði hann tvístofna. Ég hitti svo húsráðandann og þá kom í ljós að í alvöruhúsinu hafði búið maður með sama nafni og faðirinn í bókinni. Ég breytti því nafn- inu hans.“ – Þú beitir víða fyrir þig ljóðrænu og lætur hana eiginlega vera einráða í lokin. „Ég varð að gera þetta svona. Það er mjög erfitt að setja þetta saman, ljóð og prósa, svo þau falli hvort að öðru en það var engin leið önnur en ljúka bókinni með þessum hætti, í þessu formi. Og ég vissi það frá upphafi. Þegar ég byrjaði að skrifa söguna vissi ég upp á hár hvernig endirinn yrði. Ég hef valið mér nýtt form fyrir hverja sögu. Þessi barátta við formið er mér ákaflega erfið. Samt verð ég að heyja hana í hverri nýrri bók. Þessi nýja saga á kannski eitthvað skylt við Tímaþjófinn í forminu, en þó eru þær ekkert líkar!“ Ekki kött-og-peist-höfundur – Hvernig verður bókin til hjá þér? „Ég safnaði efni til þessarar bókar í sjö ár og síðustu tvö árin var ég eiginlega innilokuð við að skrifa hana. Ég er nefnilega svo sein- virkur rithöfundur! Ég vinn mér alla hluti svo erfiða. Og ég skrifa svo lélega fyrstugerð, að það hálfa væri nóg. Ég leið önn fyrir þetta lengi vel, en svo las ég í bók um Toni Morrison, sem er einn af mínum uppáhaldshöfundum, að henni væri eins farið og mér hvað fyrstugerð- ina snerti. Þá fékk ég uppreisn æru! Ég er ekki svona kött-og-peist-höfundur. Ég er í prentun og pappír. Ég er með borð út um allt hús undir söguna mína. Og ég verð að hafa blýant. Mér dugar ekki skjárinn. Ég prenta út af honum og raða blöðunum á borð- in, les af þeim, skrifa leiðréttingar og viðbætur á þau og færi þær svo inn í tölvuna. Stundum handskrifa ég heilu kaflana. Þessi bók er mikil spennu- og áhættusaga, því það var einn samfelldur háski að skrifa hana. Á 25 metra löngum ganginum í húsinu mínu dróst ég áfram á töfflum með þetta sér- staka draugahljóð á hælunum. Sambýlismaður minn sagði, að það hefði verið farið að bera á nokkrum þunglyndiseinkennum hjá mér á lokasprettinum!“ – Hvað var erfiðast? „Að skrifa um börnin. Þau eru svo minni- máttar og maður er fljótur að finna til með þeim, en verður samt að vera svo kúl; hjartað heitt og hausinn kaldur. Út á það gengur þetta! Sjóðheitt hjarta og ískaldan haus. Mér finnst lesandinn eiga svo gott. Hann getur látið hjartað ráða! Mér finnst mest um vert að lesandinn geti samsamað sig sögufólk- inu mínu. Kona ein sagði við mig, að henni fyndist ég alltaf vera að skrifa um sig, bæði í þessari sögu og í Hjartastað. Svona ummæli eru mér mikils virði, því þau benda til þess að mér hafi tekizt það sem ég ætlaði mér; að láta lesandann sjá sig í bókinni, að hún komi fólki við.“ Saga sálarinnar „Ég held að þetta sé langtilfinningaríkasta skáldsagan mín. Að ég sé örlátari á sjálfa mig en nokkurn tímann áður í nokkurri bók.“ – Og ástríkari? „Ekki veit ég það! Mér finnst ástarsagan í þessari bók ekki hafa meira vægi en ástleysið eða sorgin. En ég get viðurkennt að mér finnst ástin með tímanum vissulega mjög spennandi, hvaða hluti ástin tekur með tímanum og tím- inn með ástinni. En það á líka við um dauðann. Hann er óhöndlanlegur og jafn leyndardómsfullur og ástin, skreppur undan, þegar þú reynir að festa hendur á honum. Mig hefur alltaf langað til þess að skrifa skáldsögu sem heitir Saga sálarinnar. Ég held að það geti verið þessi, þótt hún heiti það ekki.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Steinunn Sigurðardóttir: Mikil spennu- og áhættusaga, það var einn samfelldur háski að skrifa hana. Með sjóðheitt hjarta og ískaldan haus

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.