Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.2005, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.2005, Blaðsíða 13
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 26. nóvember 2005 | 13 Íár eru liðin 30 ár síðan fjórða hljóðversplatabresku hljómsveitarinnar Queen, A Nightat the Opera, leit dagsins ljós. Í tilefni afþessum tímamótum kemur á mánudaginn út hátíðarútgáfa af verkinu. Um er að ræða tveggja diska sett. Á öðrum er að finna listilega endurhljóðblöndun plötunnar en á hinum er DVD- útgáfa með myndböndum við öll lögin ásamt stór- skemmtilegu aukaefni. Að því er sagan hermir lagði Queen allt í sölurnar til að gera plötuna sem besta úr garði en um dýrustu hljóm- plötu var að ræða á sínum tíma. Þetta var fyrsta plata hljómsveitarinnar undir merki EMI- útgáfunnar, eftir að hafa gefið út þrjár plötur und- ir merkjum Trident. Vegna deilna um hærri greiðslur vegna aukinnar sölu á smáskífum laun réðu fjórmenningarnir í þessu konunglega bandi sér lögfræðing sem losaði þá undan samningum gegn vænni greiðslu til útgáfufyrirtækisins. Fyrsta lag plötunnar, A Night at the Opera, er einmitt sagt fjalla um yfirmann útgáfufyrirtæk- isins, Norman Sheffield, en í texta lagsins er hon- um m.a. líkt við blóðsugu. Titill þess, „Death on Two Legs“ segir allt sem segja þarf. Hin ellefu lög plötunnar eru af ýmsum toga, bæði blönduð hýr- um léttleika millistríðsáranna í Bretlandi auk þeirrar tilraunakenndu framúrstefnutónlistar sem var í hávegum höfð á áttunda áratug síðustu aldar. A.m.k. fjórum lögum er að þakka að plöt- unni hefur ítrekað verið hampað sem einni af bestu rokkplötum síðustu aldar. Þar á meðal eru „You’re My Best Friend“, „Love of My Live“ og „I’m in Love With My Car“, þar sem John Taylor, trommari bandsins, syngur ástaróð til bíls. Gott ef lagið birtist ekki í ökutækjaauglýsingum fyrir nokkrum árum, enda viðeigandi. Það er hins vegar hið margbrotna „Bohemian Rhapsody“sem kórónar verkið en þar fer Freddie Mercury á kostum í tilkomumiklum og óperu- skotnum bútasaumi þar sem lokakafli seinni þátt- ar óperunnar I Pagliacci eftir Leoncavallo er tvinnaður skemmtilega inn í lagið. Á DVD-disknum er margt góðgæti að finna. Á honum eru öll lögin á A Night at the Opera í sömu röð og þau koma fyrir á geisladisknum nema hvað á DVD-útgáfunni eru myndbönd við hvert lag. Bæði hafa upphaflegu myndböndin við lög plöt- unnar verið hreinsuð auk þess sem upptökur af tónleikum hljómsveitarinnar eru breidd yfir önn- ur lög. En þetta er ekki allt og sumt því rúsínan í pylsuendanum er möguleikinn á því að hlusta á bæði gamlar og nýjar ítarlegar samræður þeirra Freddie Mercury, John Deacon, Roger Taylor og Brian May, sem ritar stutt inngangorð að hátíð- arútgáfunni, um hvert og eitt lag plötunnar á meðan horft er á myndböndin. Þar kemur m.a. fram allt um hljómsveitina í löngu og afar ítarlegu máli og hversu mjög hljómsveitin vandaði til upp- tökunnar í 16 rása hljóðveri með upptökustjór- anum Roy Thomas Baker. Samtalið er með því besta sem gerist á diskum sem þessum en þar er því m.a. lýst hvernig Freddie Mercury birtist sí og æ í hljóðverinu með hljóma og nótur til að koma hugsýn sinni að „Bohemian Rhapsody“ í tónlist. Hátíðarútgáfa sem þessi er svo sannarlega hval- reki á fjörur áhugamanna um fjórmenningana í Queen. Listilega endurnýjuð nótt í Óperunni Poppklassík Eftir Jón Aðalstein Bergsveinsson jab@mbl.is M adonnu hefur oft verið líkt við kamelljón og ekki að ósekju. Hún hefur tekið mörgum út- litsbreytingum og farið í ýmsar áttir í poppinu á þeim meira en tuttugu árum sem hún hefur verið í sviðsljósinu. Hún hverfur aldrei alveg sjón- um heldur fer hún í sólina til að hlýja sér og baða sig í athygli og skýst inn í skuggann öðru hverju. Núna stígur hún sterk fram með tíundu hljóðversplötu sína, Con- fessions on a Dance Floor. Á myndunum sem skreyta umslagið líkist hún skriðdýri með kalt blóð, í yfirveguðum og hálfpartinn óþægilegum stellingum á gólfinu. Margar hverjar minna á það sem ekki er hægt að kalla annað en diskójóga. Fjöldamargar stelpur hafa heillast af stíl Mad- onnu allt frá því hún var með grifflur, með beran maga, óteljandi armbönd, hárband og risakross um hálsinn. Hún var áberandi og gekk lengra en aðrir. Hún hefur alltaf lagt áherslu á kynþokkann, án þess að gefa eftir eitthvert vald, eins og karlmaður. MTV hefur viðhaldið vinsældum poppdrottning- arinnar og á áreiðanlega eftir að gera svo nú. Í síð- asta mánuði sýndi tónlistarsjónvarpið myndina I’m Going to Tell You a Secret. Um er að ræða heimild- armynd um heimstónleikaferðalag Madonnu árið 2004 sem hún fór undir nafninu „Re-Invention“ og ferð hennar til Ísraels. Sjálfstraustið er alveg í lagi hjá drottningunni, enda engin ástæða til annars en hún sjálf vísar til sín sem „the queen“ og „the boss“ í samtali við starfsfólk sitt í heimildarmyndinni. Fyrsta smáskífan af Confessions er „Hung Up“ og er það ellefta lagið sem Madonna kemur á topp breska vinsældalistans. Enginn annar kvenkyns tónlistarmaður hefur selt jafnmargar plötur og Ma- donna, en hún hefur selt um 250 milljónir platna um allan heim. Kona andstæðna Madonna er andlega sinnuð og kabbala-trúar, sjálf- miðuð, kyntákn, barnabókahöfundur, listamaður og mamma. Hún sameinar margar andstæður og tekst vel upp með öll þessi hlutverk. Hún býr ekki á einum stað; hún eyðir mestum tíma í London en á líka hús í New York og Los Angeles. Blaðamaður Rolling Stone líkir henni við svamp sem sýgur þekkingu úr umhverfinu. Það gerir henni kleift að vera einu skrefi á undan gagnrýnendum, keppi- nautum, aðdáendum og tískustraumum. Síðasta plata Madonnu bar nafnið American Life og var á rólegri nótum en nýja platan og gekk ekki eins vel og aðrar plötur poppdrottningarinnar. Confessions er virkilega fyrir dansgólfið eins og nafnið gefur til kynna. Trónir hún á toppnum yfir vinsælustu plötur í Bandaríkjunum á lista Bill- board. Hún lætur sér það ekki nægja heldur fór platan á toppinn í 25 löndum og eru Bretland, Kan- ada, Japan, Portúgal, Spánn, Austurríki, Frakk- land, Þýskaland, Svíþjóð og Ítalía þeirra á meðal. Alls hefur platan selst í 3,5 milljónum eintaka, þar af hafa bandarískir aðdáendur fest kaup á 400 þús- und stykkjum. Í Bretlandi lítur út fyrir að Ma- donna haldi toppnum á næsta lista, bæði á smá- skífu- og breiðskífulistanum. Inni í diskókúlu Madonna stal senunni í Portúgal á Evrópuverð- launahátíð MTV þar sem hún tróð upp með döns- urum við rafpoppsmellinn „Hung Up“. Hún er full- komnunarsinni og var lagið æft að minnsta kosti þrjátíu sinnum áður en hópurinn steig á svið. Ma- donna er að nálgast fimmtugt, klæddist samfellu og sokkabuxum á sviði og leit betur út en flestir aðrir sem komu fram þetta kvöld. Lagt verður upp í tónleikaferðalag um heiminn á næsta ári í tilefni af útkomu plötunnar og má búast við því að umfangið verði mikið og glansinn einnig. „Mig langar til að fólki líði eins og það sé inni í diskókúlu,“ sagði söngkonan í viðtali við Rolling Stone. „Mig langar að vinna með þá hugmynd að gera dansarana að meiri persónuleikum í sýning- unni og leyfa sögum þeirra að vera með,“ sagði Ma- donna einnig en hún vill jafnframt hafa betra hljóð- kerfi en áður hefur tíðkast. Vonandi á Madonna eftir að halda áfram að hneyksla og heilla. Poppdrottningin Madonna var að senda frá sér sína tíundu hljóðversskífu. Platan ber nafnið Confessions on a Dance Floor og fór hún beint á toppinn í 25 löndum. Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is Reuters Kamelljónið Madonna tekur á sig ýmsar myndir og kann vel við að hita sig í sviðsljósinu. Diskójóga frá drottningunni Vinsæl popplög enda oftar en ekkisem hringitónar á farsímum fólks um allan heim en hip hop- hljómsveitin D4L (Down 4 Life) nýtti sér þessa þróun nýverið á eilítið öðruvísi hátt. Í ágúst á þessu ári fór sveitin í hljóðver og tók upp lagið „Laffy Taffy“. Innan fárra daga hafði Asylum Records gert samning við sveitina og í staðinn fyrir að kynna lagið í útvarpi tók fyr- irtækið upp á því að selja það sem hringitón. Mánuði síðar var „Laffy Taffy“ orðið að mest selda hringitóni í Bandaríkjunum og hefur í dag verið selt í rúmlega 500 þúsund síma á tvo og hálfan dal hverju sinni. Útvarps- stöðvarnar fóru að spila upprunalega lagið í kjölfar vinsælda hringitónsins og nú er lagið komið í þrettánda sæti bandaríska vinsældalistans. Um það leyti sem platan kom út í Bandaríkj- unum í byrjun þessa mánaðar var sveitin komin með lag á vinsældalista og myndband á MTV.    Bret Michaels, söngvari Poison,varð fyrir því óhappi á dögunum að fá glerbrot í sitt fagra andlit. Óhappið reyndist þó lán í óláni því að Bret var að forða sér undan byssukúlu þegar glerbrotið flaug í andlit söngv- arans. Skotið var af byssu á tón- leikarútu söngv- arans sem stóð fyrir utan bar einn í Chicopee, Massachusetts en þar átti Bret að koma fram um kvöldið. Yf- irvöld í Chicopee halda að vopnið hafi ekki verið jafnhættulegt og í fyrstu var haldið en skotið reyndist vera lítið hagl. Er talið að um skemmdarverk hafi verið að ræða.    Þrátt fyrir að plötufyrirtækinbarmi sér vegna minnkandi sölu á geisladiskum eykst sala á tónlistar- mynddiskum jafnt og þétt. Margir vilja leita skýringa í æ dýrara miða- verði á hljómleika en einnig er litið til þess að heimabíó eru orðin mjög al- geng á heimilum fólks. Þá vilja marg- ir meina að stór ástæða að baki þró- uninni sé sú að plötufyrirtækin leiti sífellt fleiri leiða til að selja vöru á Netinu. Er það nú orðið svo að á sama tíma og geisladiskasala fer minnkandi fjórða árið í röð hefur sala á tónleikamyndböndum og öðrum tónlistarmynddiskum aukist um rúm 50% og um heil fimm prósent af heild- arhagnaði plötufyrirtækjanna. „Ef þú ert tónlistarmaður reynir þú að fara í tónleikaferðalag og gefa allt í tónleikana sem þú heldur,“ segir Frank Black, formaður Pixies. „Það er ekki eins að vera staddur á tón- leikum og að horfa á sömu tónleika í sjónvarpinu heima hjá þér, en þú sérð líklega betur.“ Erlend tónlist Frank Black Bret Michaels

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.