Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.2005, Blaðsíða 16
16 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 26. nóvember 2005
Þ
egar ég frétti upprunalega af því
að það ætti að vera „einhver“
íslensk listahátíð í Köln í nóv-
ember bjóst maður við þessu
venjulega, kannski einum eða
tvennum tónleikum og kannski
einni myndlistarsýningu með. Þegar málin
voru svo könnuð betur kom annað og meira
(áhersla á „meira“) í ljós. Hér var á ferðinni
allsherjar listahátíð með þátttöku íslenskra
tónlistarmanna, myndlistarmanna, ljósmynd-
ara, kvikmyndagerðarmanna,
rithöfunda og hönnuða, fjölda
sem slagaði upp í hundraðið.
Hátíðin skyldi standa í rúma
viku, sumar sýningar lengur,
og tugir þýskra fjölmiðla voru settir í start-
holur vegna herlegheitanna. Þegar maður
kom svo til Kölnar, um hádegisbilið á föstu-
deginum, gerði maður sér grein fyrir að þetta
lyti svipuðum lögmálum og Hróarskelda, þ.e.
það væri ekki möguleiki að komast yfir allt
það sem í boði væri þó að vilji væri fyrir
hendi. Svona eiga alvöru listahátíðir að vera!
Happadrjúgt
Ég og fjölskyldan skráðum okkur inn á Ibis-
hótelið við Barbarossaplatz á téðu föstu-
dagshádegi, hótel sem var krökkt af Íslend-
ingum, fjölmiðlafólki sem listamönnum.
Blaðamaður býr nú í Berlín og tók fegins
hendi því tækifæri að fá að kíkja aðeins í aðra
þýska borg, og það meira að segja í gamla
Vestur-Þýskalandi. Maður fann líka strax fyr-
ir mun, Berlín hefur yfir sér austurblokk-
arblæ en Köln fellur kirfilega að „vestur-
evrópsk stórborg“-líkaninu, þá sérstaklega
miðbærinn. Ég kannaðist betur við mig hér
en í Berlín. Fólkið líka tilbúnara til að tala
ensku, sem er guðsgjöf á meðan maður er
enn temmilega mállaus. Í Köln er þá einn
miðbær en ekki tíu eins og í hinni stóru Berl-
ín sem er ekki ósvipuð Reykjavík hvað stærð
miðað við mannfjölda varðar.
Fljótlega kom maður svo auga á tákn Köln-
ar, dómkirkjuna ógurlegu sem er svo há að
maður botnar eiginlega ekki í því hvað menn
voru að spá með þessu ferlíki (kirkjan var
hæsta bygging veraldar fram til 1884 og er
hæsta gotneska bygging í heimi).
Á hótelinu hitti ég Jónatan Garðarsson og
hans fólk frá Sjónvarpinu auk valinna hljóm-
listarmanna sem áttu að leika á tónleikum um
kvöldið. Þetta fyrirkomulag, að setja allt liðið
á eitt hótel, átti eftir að reynast happadrjúgt.
Fólk gat skipst á upplýsingum og skoðunum í
anddyrinu, orðið samferða á viðburði og svo
framvegis. Dagurinn fór síðan í að átta sig á
aðstæðum, melda sig við fjölmiðlafulltrúa,
stinga kjöltutölvunni í samband og kanna
hvort það væri þráðlaus nettenging á hót-
elherberginu (svo var, en þvílíkt sem það var
okrað á henni). Fyrsti opinberi viðburðurinn
var svo opnun í hönnunar- og nytjalista-
safninu Museum für angewandte Kunst.
Margt var um fyrirmenni og fína gesti og
Þjóðverjar, skiljanlega, í miklum meirihluta.
Utanríkisráðherra, sendiherra Íslands í Berl-
ín og aðstoðarmaður menntamálaráðherra
voru á meðal gesta og eftir tilheyrandi ræðu-
höld og glasaklingerí var hönnunarsýning
sett í sama húsi. Fimmtán hönnuðir sýndu
þar, m.a. Steinunn Sigurðardóttir, Aftur
(systurnar Bára og Raven), Ragna Fróðadótt-
ir, Óðinn Bolli Björgvinsson og Spaksmanns-
spjarir.
Þéttbókað
Klukkutíma síðar var svo fyrstu tónleikunum
hleypt af stokkunum. Fóru þeir fram í Stadt-
garten-tónleikahöllinni sem er hin álitlegasta,
hæfilega lítil og hæfilega hrá líka. Hilmar
Jensson og Skúli Sverrisson, Orgelkvartett-
inn Apparat og Mugison léku og plötusnúðar
frá Thule sáu um næturvaktina; þeir Thor,
Biogen, Frank Murder og Ozy. Frammi hékk
svo Smekkleysusýning og einnig Tólf tóna-Jói
sem var með sölubás í anddyrinu. Íslenski
raunveruleikinn er þannig að allir þekkja alla
í tilteknum bransa og myndaðist í raun ein-
hvers konar sumarbúðafílingur á milli tónlist-
armannanna. Allir saman í ókunnugri borg en
með sama markmið. Aðstæður í baksviðs-
herbergi voru þá til að kæta landann, en vel
var veitt bæði af mat og drykk, þægilegir sóf-
ar voru til reiðu o.s.frv. Þessi mikilvægi þátt-
ur hefur gleymst í öllu tali um bætta tónleika-
menningu á Íslandi og meiri fagmennsku þar
að lútandi. Þegar þessi mál eru á hreinu
hristist fólk betur saman og gleði svífur yfir
vötnum, sem skilar sér mögulega í betri tón-
leikum.
Laugardagurinn var þéttbókaður, klukkan
16.00 hófst ljósmyndasýning í Alfred
Ehrhardt-stofnuninni en því næst var brunað
á stóru myndlistarsýninguna Norðurljós –
mýta og melankólía (Nordlicht – Mythos und
Melancholie) í C.A.T.-galleríinu (Cologne.-
Artspace.Temporary). Flott sýning en ég set
efasemdir við heiti hennar. Fullklisjukennt. Í
millitíðinni var stokkið upp í Malakoffturninn
þar sem Finnbogi Pétursson var með dul-
magnað verk. Meðal þeirra sem sýndu í
C.A.T. voru Gabríela Friðriksdóttir, Ásmund-
ur Ásmundsson, Birgir Andrésson, Finnbogi
Pétursson, Gjörningaklúbburinn og Sigurður
Guðmundsson.
Skondna sögu heyrði ég í tengslum við sýn-
inguna. Uppsetning hófst á föstudeginum
klukkan 10.00 og biðu Þjóðverjarnir galvaskir
eftir Íslendingunum, reiðubúnir að leggja
hönd á plóg. Enginn þeirra mætti þó klukkan
10.00 en klukkutíma síðar mætir Heimir
Björgúlfsson einn. Þjóðverjarnir sátu síðan
furðu lostnir með hendur í skauti fram til
16.00 en þá ruddust Íslendingarnir inn með
látum og hentu verkum sínum upp einn, tveir
og tíu.
Klukkutíma eftir þessa opnun var kvik-
myndahátíð opnuð í Filmhaus Cologne. Opn-
unarmyndin var Næsland og var Friðrik Þór
sjálfur viðstaddur ásamt Laufeyju Guðjóns-
dóttur, framkvæmdastýru Íslensku kvik-
myndamiðstöðvarinnar. Mugison, höfundur
tónlistarinnar, tróð svo upp eftir myndina.
Kvikmyndahátíðin var metnaðarfull og vel í
takt við það sem er að gerast heima í þeim
efnum. Hátíðin var keyrð daglega, Voksne
mennesker var t.a.m. sýnd (með Degi Kára
viðstöddum) og sex aðrar myndir eftir Frið-
rik. Einnig myndir eftir Hilmar Oddsson, Ró-
bert Douglas og Baltasar Kormák. Gott úrval
stuttmynda var sömuleiðis á dagskrá (Síðasti
bærinn, Lost Weekend eftir Dag og Memphis
t.a.m.) og líka fullt af heimildamyndum,
myndir á borð við How do you like Iceland,
Gargandi snilld, Rokk í Reykjavík og Hlemm-
ur.
Taktfast
Um kvöldið voru svo tónleikar í Stadtgarten
með Ghostigital, Steintryggi og Still-
uppsteypu. Tónlistarfólkið hafði áhyggjur af
því að áhorfendur væru fullstífir, þeim væri
ómögulegt að sleppa fram af sér beislinu.
Þessi eiginleiki (sem kom svo í ljós) hafði þó
engin áhrif, sérstaklega fór Ghostigital ham-
förum þrátt fyrir að áhorfendur væru meira
fyrir að strjúka á sér hökuna en að hoppa upp
í loftið. Plötusnúðar frá gus gus sigldu svo
taktfast út í nóttina og héldu uppi dúndrandi
teknóstuði. Þetta kvöld var allnokkurt útstá-
elsi á Íslendingum og enduðu margir hverjir
á sjóðandi heitum reggí/döbbklúbbi undir
Stadtgarten þar sem dansmennt var iðkuð af
mikilli list fram á rauðanátt.
Sunnudagurinn var rólegur, enda hátíðinni
hleypt af stokkum með miklum krafti. Kvik-
myndasýningar voru keyrðar en um kvöldið
lék Seria, sveit Skúla Sverrissonar, og gus
gus kom fram í tónleikaham. Heimir Björg-
úlfsson spilaði þá einnig í Filmhaus Cologne.
Daginn eftir var heimsókn þess er ritar svo
búin, ég var mættur með börn og buru út á
lestarstöð klukkan 7.30 og við tók fjögurra
tíma ferð til Berlínar.
Á þriðjudeginum var svo fyrsta upplestr-
arkvöldið en þá lásu Ólafur Haukur Sím-
onarson, Jón Kalman Stefánsson og Guðrún
Eva Mínervudóttir í Literaturhaus Cologne.
Næstu daga lásu svo Guðbergur Bergsson,
Ólafur Gunnarsson, Einar Kárason, Kristín
Ómarsdóttir, Sigurbjörg Þrastardóttir, Ingi-
björg Haraldsdóttir, Hallgrímur Helgason og
Sjón. Tilkomumikill listi verður að segjast.
Það orð sem oftast hefur komið upp í hug-
ann þegar ég hugsa um þessa hátíð er „fag-
mennska“. Það var allt á hreinu og aldrei
fékk maður neina óðagotstilfinningu. Manni
finnst að Íslendingar gætu lært sitthvað af
svona vinnubrögðum en það er líklega full-
einfalt að setja dæmið upp þannig. Það er
hægt að fara mismunandi leiðir að sama
markmiði og flaustrið og hin séríslenska að
því er virðist kýlum-á-það- og þetta-reddast-
speki er að sumra mati nákvæmlega það sem
drífur lista- og menningarlífið áfram – og skil-
ar sér m.a. í jafn glæsilegri sýningu og fram
fór í Köln.
Margbrotnar Íslandsmyndir
Listahátíðin Íslandsmyndir rennur sitt skeið
formlega á enda í dag. Hátíðin hófst í Köln í
Þýskalandi föstudaginn 18. nóvember og var
boðið upp á sýningar og uppákomur úr alls
sex geirum lista og menningar. Umfang og
metnaður sýningarinnar voru aðdáunarverð
og sjaldan hefur íslenskt listalíf fengið jafn
kröftuga og góða kynningu á erlendri
grundu.
Eftir Arnar
Eggert
Thoroddsen
arnart@mbl.is
www.islandfestival.de
Morgunblaðið/Arnar Eggert
Ghostigital Elís Pétursson gítarleikari á sviði í Stadtgarten-tónleikahöllinni sem er hin álitlegasta, hæfilega lítil og hæfilega hrá líka.
Hönnun Verk Önnu Þóru Karlsdóttur og Guðrúnar Gunnarsdóttur í Museum für Angewandte Kunst.