Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.2005, Page 1
Laugardagur 17.9. | 2005
[ ]Javier Cercas | Sagan um það hvernig tekið er viðtal við Javier Cercas | 5Paul Auster | Glerborgin er fyrsta skáldsagan í New York-þríleiknum | 6Kvosin – Keldnaholt | Hvar og hvernig á að þétta byggð í Reykjavík? | 8
LesbókMorgunblaðsins 80ára19252005
Þ
au voru þung höggin sem féllu á síðum Lesbók-
arinnar síðasta laugardag; Hermann Stef-
ánsson sagði að íslenska bókmenntakerfið væri
ákaflega skrýtið, óheilbrigt, jafnvel sjúkt;
Þröstur Helgason velti fyrir sér hvort bók-
menntir séu þarflaus iðja, dútl við orð sem
enga athygli vekur og hreyfir ekki við neinu í
samfélaginu; Eiríkur Guðmundsson sagði að á
Íslandi hafi aldrei verið til siðs að velta fyrir sér hvað bókmenntir
séu og Stefán Máni tekur undir hálfrar aldar gamalt slagorð um
að skáldsagan sé dauð, hún tilheyri fámennum gáfumannahópi,
hún sé, og hafi alltaf verið, snobb, og hann staðhæfir síðan að eina
von skáldsögunnar sé að verða einn daginn að kvikmynd.
Hin tæra lind
Hermann Stefánsson segist fara í veislur og hlera þar orð á stangli
um bókmenntir, til dæmis að fólk „sé nú bara farið að lesa bækur
til að njóta þeirra og halli sér því að glæpasögum“. Það eru heldur
ógæfulegir lesendur sem Hermann lýsir þarna, fólk sem ekki les
sér til ánægju heldur til að sýnast, ekki af innri þörf heldur af
hreinræktuðu snobbi. Ég hef alltaf vorkennt fólki sem les bækur
sér til leiðinda, en sjálfsagt eru sumir til-
búnir að leggja ýmislegt á sig til að koma
vel út í veislum. Hermann talar um að nú
sé tími glæpasagna, bókmenntaform sem
lengi framan af var litið hornauga hérlendis. „Í heilbrigðu bók-
menntakerfi“, skrifar Hermann Stefánsson, „þrífast glæpasögur
og fagurbókmenntir hlið við hlið.“ Þetta er hárrétt, og það er líka
hárrétt hjá Hermanni að bókmenntaumhverfið hér sé, og hafi
löngum verið, í talsverðu ójafnvægi, það vantar alla afslöppun;
þegar farið er með ljóð kemur guðræknislegur svipur á viðstadda.
Ef byrjað er að tala um nýjustu skáldsöguna verðum við ann-
aðhvort mjög alvarleg og þungt hugsi, eða reynum umsvifalaust
að finna persónum hennar stað í samtíma sínum. Talaðu um skáld-
skap og við verðum yfirmáta hátíðleg eða sunkum niður í kjafta-
sögurnar.
Eiríkur Guðmundsson var ekki heldur dús við íslenska bók-
menntaumræðu, hann hefur á tilfinningunni að hún búi við furðu-
lega einangrun, hér sé ekki til siðs að ræða um eðli og inntak bók-
mennta. Ég held að það sé ýmislegt til í þessu hjá Eiríki, við
tókum til að mynda seint og illa á móti bókmenntafræðinni og
þeim möguleikum sem í henni búa. Okkur er satt að segja ennþá
meinilla við bókmenntafræði, lítum á skáldskapinn sem eins konar
náttúruuppsprettu sem óhreinkist og spillist ef við reynum að skil-
greina hann. Við höfum vanist því að helstu páfar bókmennta séu
pennar á borð við Sigurð Nordal; einstaklingar sem skrifa fallegan
og skáldlegan stíl. Ástráður Eysteinsson fékk líka aldeilis að finna
fyrir því þegar hann snemma á níunda áratugnum, fór að beita að-
ferðum bókmenntafræðinnar hér á landi. Á þeim árum var Ástráð-
ur að baksa við það erfiða og vanþakkláta verk að þýða erlenda
fræðihugsun yfir á íslensku, það setti mark sitt á stíl hans til að
byrja með, og hann fékk gusuna yfir sig; hvað er svona stirðbusa
stílisti að vilja upp á dekk? Við gátum ekki fyrirgefið Ástráði að
skrifa ekki „fallegan“, helst „ljóðrænan“ stíl, og við gátum ekki
fyrirgefið honum að nálgast skáldskapinn með fræðilegum hug-
tökum. Hann var „umsvifalaust flautaður út af vellinum“; þeir sem
vilja fjalla um bókmenntir eiga að skrifa þannig að allir skilji, það
má ekki vera nein fyrirstaða. Um þessar mundir er deilt um hvort
Skjár einn hafi einkarétt á að sýna enska boltann, húsráðendur á
þeim bæ vildu setja lögbann á aðra aðila. Fyrir um 20 árum hefði
íslenska bókmenntaelítan gjarnan viljað sitja lögbann á Ástráð
Eysteinsson, því bókmenntafræðin spillir hinni tæru upp-
sprettulind sem sprettur fram í íslenskri þjóðarsál.
Lesið Stríð og frið á 50 mínútum!
Þröstur og Stefán Máni hafa báðir áhyggjur af stöðu skáldsög-
unnar, og bókmennta almennt. „Að sumu leyti“, segir Þröstur
„virðast bókmenntirnar ekki hafa mikinn áhuga á því sem er að
gerast utan þeirra og að sumu leyti virðast þær hreinlega
„Í gær fór einhver
út með hatt á höfði“
Í síðustu Lesbók birtust nokkrar greinar um íslenskt bókmennta-
ástand í tilefni af Bókmenntahátíð í Reykjavík. Hér birtist svar
skálds sem er ósammála flestu sem fram kom í þessum skrifum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eftir Jón Kalman
Stefánsson
kalman@bjartur.is
3