Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.2005, Page 12
12 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 17. september 2005
Virginia Madsen, Bruce Willis ogBruce Dern hafa tekið að sér
hlutverk í myndinni The Astronaut
Farmer, sem nú er verið að taka upp
í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum. Í
myndinni leikur
Billy Bob Thorn-
ton sérvitran
bónda sem
dreymir um að
ferðast út í geim
og smíðar í þeim
tilgangi eldflaug í
hlöðunni sinni.
Nágrannar hans
líta á hann sem
furðufugl, stjórn-
völd líta á hann sem ógn við almanna-
öryggi og fjölmiðlar líta á hann sem
efni í góða frétt.
Madsen mun leika eiginkonu bónd-
ans og Willis verður í hlutverki fyrr-
verandi kollega hans hjá Bandarísku
geim-
ferðastofn-
uninni, NASA.
Dern leikur
tengdaföður bóndans, þ.e.a.s. föður
persónu Madsen.
Independent-deildin innan War-
ner-fyrirtækisins framleiðir myndina
og leikstjóri hennar er Michael Pol-
ish. Hann samdi handritið að mynd-
inni ásamt tvíburabróður sínum,
Mark.
Peter Berg, sem leikstýrði FridayNight Lights, hefur skrifað und-
ir samning um að skrifa handrit að og
framleiða The Losers, sem byggist á
teiknimyndasögu. Hún fjallar um vel
þjálfaða sérsveit
hermanna sem er
svikin og skilin
eftir til að mæta
dauða sínum. Her-
mennirnir hefjast
þá handa við að
leita að þeim sem
sveik þá og lenda
á leiðinni í ýmsum
ævintýrum.
Sagan um The
Losers birtist í
blöðunum GI Combat og Our Fig-
hting Forces hjá DC Comics-
fyrirtækinu á áttunda áratugnum. Þá
fjallaði hún um ævintýri utangarðs-
manna í bandaríska hernum í seinni
heimsstyrjöldinni. Fyrirtækið hóf út-
gáfu á sögunni að nýju fyrir þremur
árum undir merki Imprint og skrifaði
Andy Diggle texta, en listamaðurinn
Jock sá um myndskreytinguna.
Gagnrýnendur hafa lofað þessa nýju
útgáfu í hástert að undanförnu.
Auk þess að leikstýra Billy Bob
Thornton í Friday Night Lights, sem
fjallaði um amerískan fótbolta, leik-
stýrði Berg nýlega The Rundown,
með The Rock í aðalhlutverki.
Yfirmenn hjá Paramount Classics-fyrirtækinu eru í vondu skapi
þessa dagana, eftir að keppinautar
þeirra hjá Fox Searchlight kræktu í
dreifingarréttinn á Thank You for
Smoking, gam-
anmynd sem ger-
ir grín að sér-
hagsmunabaráttu
tóbaksfram-
leiðslufyrirtækj-
anna. Myndin
hefur vakið mikla
athygli á Kvik-
myndahátíðinni í
Toronto, sem lýk-
ur í dag. 20th
Century Fox sendi frá sér yfirlýsingu
í vikunni, þar sem sagði að fyrirtækið
hefði náð í réttinn á sunnudaginn
með tilboði upp á 6,5 milljónir doll-
ara, eða sem nemur 405 milljónum ís-
lenskra króna.
„Fox Searchlight verður frábær
dreifingaraðili fyrir Smoking og ég
gæti ekki verið ánægðari með að hafa
gert samning við fyrirtækið,“ er haft
eftir leikstjóra myndarinnar, nýlið-
anum Jason Reitman, syni Ivans sem
leikstýrði m.a. Ghostbusters árið
1984.
Í Thank You for Smoking er fjallað
um Nick Naylor (Aaron Eckhart),
lobbíista fyrir fyrirtækið Big To-
bacco. Hann reynir að breiða út þá
skoðun að vindlingar séu hættulausir,
en fær bakþanka. Í myndinni leika
m.a. Rob Lowe, Maria Bello, Katie
Holmes og Robert Duvall.
Erlendar
kvikmyndir
Virginia Madsen
Peter Berg leikari og
leikstjóri
Jason Reitman
K
vikmyndagagnrýnandinn er eina
sjálfstæða upplýsingalindin. Allt
hitt er auglýsing,“ sagði einn
áhrifamesti gagnrýnandi síðustu
aldar, Pauline Kael. Kannski var
hún að auglýsa sjálfa sig. En hún
hafði efni á því. Aldrei varð hún, svo mér sé kunn-
ugt, uppvís að því að ganga erinda annarra en eig-
in skoðana og þekkingar á kvikmyndum.
Frá því í árdaga kvikmyndalistarinnar hafa
kvikmyndagagnrýnendur
setið um hana og, þegar
best tekst til, veitt henni að-
hald og stuðning, með rök-
studdri afstöðu og grein-
andi innsæi, um leið og almennir áhorfendur fá
umræðugrundvöll og leiðarvísi um það sem í boði
er í bíóunum. Kvikmyndagagnrýnendur fjölmiðla
hafa komið úr ýmsum áttum. Sumir hafa verið
menntaðir í kvikmyndagerð eða kvikmyndafræð-
um, bókmenntum og leikhúsfræðum. Aðrir hafa
verið almennir áhugamenn um kvikmyndir sem
aflað hafa sér þekkingar á greininni og sögu henn-
ar upp á eigin spýtur. Og enn aðrir hafa verið fólk
sem fátt hefur fram að færa annað en sniðugheit
og stæla, sjálfu sér til auglýsingar og upphafn-
ingar. Þeim virðist hafa fjölgað í seinni tíð.
Víða erlendis eru miklar kröfur gerðar til fag-
þekkingar og fagmennsku kvikmyndagagnrýn-
enda. Sums staðar er boðið upp á nám í kvik-
myndablaðamennsku og kvikmyndagagnrýni.
Breska kvikmyndastofnunin og tímarit hennar,
Sight and Sound, gengust fyrr á þessu ári fyrir
slíku námskeiði og hafa birt úrval af greinum eftir
bestu fulltrúa þessarar nýju kynslóðar gagnrýn-
enda. Viðfangsefni þeirra eru margvísleg en ein
þessara greina vakti sérstaka athygli mína. Mér
fannst að lestri loknum ég hafa orðið einhvers vís-
ari um efni sem ég hef ekki náð miklu sambandi
við lengi: Kvikmyndir gerðar eftir teiknimynda-
blöðum.
Slíkar myndasögur, sem sumir aðdáendur vilja
reyndar kalla „grafískar skáldsögur“, hafa tröll-
riðið bandarískri kvikmyndaframleiðslu mörg
undanfarin ár. Greinarhöfundur spyr hvers vegna
þessar bókmenntir njóti ekki sannmælis sem list-
form. Svar: Heimskulegar Hollywoodútgáfur.
Hann nefnir sem dæmi að verk Bretans Alans
Moores, „James Joyce myndasagnanna“, eins og
Hellblazer, From Hell og The League of Extraor-
dinary Gentlemen, hafi á hvíta tjaldinu verið soðin
niður í einfeldningslegan delluhasar. Einnig
metnaðarfullar myndir „listrænna“ leikstjóra eins
og Sam Mendes (Road To Perdition) og Ang Lee
(Hulk) hafi mistekist vegna þess að þeir hafi ekki
skilið eðli myndasagnanna. Frá því Superman hóf
sig til flugs í Hollywood árið 1978 hafi kvikmynda-
réttur myndasagna að vísu bjargað útgáfufyr-
irtækjunum DC Comics og Marvel frá því að fara
á hausinn en sá böggull fylgdi skammrifi að allar
mislukkuðu bíómyndirnar virðast hafa dregið úr
sölu blaðanna sjálfra. Af ofurhetjumyndunum hafi
aðeins Spider-Man og X-Men náð að spegla dýpra
inntak hinna teiknuðu fyrirmynda, félagslegar og
pólitískar skírskotanir til Bandaríkjanna eftir 11.
september 2001 annars vegar og undirokaðra
minnihlutahópa hins vegar, sem því miður er ekki
rúm til að rekja hér nánar.
Á öndverðum póli við ofurhetjusögurnar eru
svo undirmálsmannasögur á borð við Ghost
World og American Splendour. Höfundur grein-
arinnar telur kvikmyndaútgáfur þeirra hafa tek-
ist mun betur vegna þess að þær litu ekki niður á
viðfangsefni sín, voru fullorðinsmyndir eftir full-
orðinssögum. Þar er komið að forheimsk-
unarstefnu Hollywood: 80% lesenda myndasögu-
blaða eru á aldrinum 20–40 ára en
Hollywoodmyndirnar, sem á þeim byggjast, eru
flestar stílaðar fyrir 12–25 ára. X-Men eftir Bryan
Singer og Sin City eftir Robert Rodriguez hafa
afhjúpað villu þessarar stefnu, segir þessi ungi
breski gagnrýnandi.
Ég veit ekki hvorum aldursflokknum hann til-
heyrir. En þegar skrifað er af vandvirkni, þekk-
ingu og virðingu fyrir fagi gagnrýnandans skiptir
aldur engu máli. Þá þjónar hann upplýsingu en
ekki auglýsingu.
Upplýsing, ekki auglýsing
’Hvers vegna skyldu myndasögur ekki njóta sannmælis semlistform? Svar: Heimskulegar Hollywood-útgáfur.‘
Sjónarhorn
Eftir Árna Þórarinsson
ath@mbl.is
E
kki er of sterkt til orða tekið að
segja að þýski leikstjórinn Wer-
ner Herzog hafi í myndum sínum
jafnan leitað út fyrir ramma hins
hefðbundna og hversdagslega.
Slík staðhæfing kemst reyndar
hvergi nærri þeirri þrautagöngu á vit hins ómögu-
lega sem liggur helstu myndum hans til grundvall-
ar. Á ferli sem spannar rúmlega fjörutíu ár hefur
Herzog reglulega stefnt sjálfum sér og samstarfs-
mönnum í lífshættu í tilraunum sínum til að fanga
eitthvað sem hvergi finnst nema á ystu brún
mannlegrar reynslu og geðheilsu. Enda virðast
skrif um manninn taka því sem gefnu að hann
sjálfur sé á húrrandi ferð fram af þessari sömu
brún, nema hann sé löngu farinn fram af og sé að
senda okkur hinum skilaboð
úr djúpinu. Það er að
minnsta kosti leit að öðrum
leikstjóra sem lendir jafn-
reglulega og Herzog í því að hans eigin persónu-
gerð er lesin inn í kvikmyndirnar sem hann gerir.
Og þar er hans nýjasta mynd, heimildarmyndin
Grizzly Man (Grábjarnarmaðurinn), engin und-
antekning. Ófáir ummælendur, og jafnvel Herzog
sjálfur, hafa bent á hversu vel efniviður mynd-
arinnar og aðalpersónan falla að höfundarverki
leikstjórans. Nokkuð sem er athyglisvert þar sem
um heimildarmynd er að ræða og í ljósi þess að
stór hluti hennar er strangt til tekið ekki höfund-
arverk Herzogs sjálfs.
Myndin fjallar um Timothy Treadwell, fyrrver-
andi leikara og strandarstrák í Kaliforníu, sem
endurfæddist seint á ferlinum sem dýravernd-
unarsinni og varði síðustu þrettán sumrum ævi
sinnar í óbyggðum Alaska í nánu samneyti við
grábirni. Treadwell varð nokkuð frægur sem sjálf-
skipaður verndari og vinur þessara mikilfenglegu
dýra en saga hans átti sér harmræn endalok.
Haustið 2003 létust hann og kærasta hans, Amy
Huguenard, í bjarnarárás. Sumarið áður og fjögur
sumur þar á undan hafði Treadwell varðveitt með
kvikmyndatökuvél, en hann skildi eftir sig um 100
klukkustundir af efni og upptökur hans eru helsta
uppistaða heimildarmyndar Herzogs. Því til við-
bótar ræðir Herzog við vini Treadwells og ýmsa þá
sem tengdust lífi hans og dauðdaga. Það sam-
klippusafn sem Herzog býr til úr eigin efni og upp-
tökum Treadwells skapar þó ekki aðeins heild-
ræna útkomu heldur eina af merkari
heimildarmyndum síðustu ára; verk sem yfirheyr-
ir lífshlaup einstaklings og þá samfélagslegu og
menningarlegu þræði sem það mótar en leitast
einnig við að spyrja spurninga um samband manns
og náttúru. Þá glímir myndin við það andartak
sem ásækir fagurfræðilega úttekt á veruleikanum
en það er dánarstundin: Hvernig er það sem er
óframsetjanlegt og óendurtakanlegt framsett?
Eins og áður segir er freistandi að leita að sam-
svörun milli Treadwells og leikstjórans sem ákvað
að gera lífshlaup hans, eða hluta af því, að kvik-
mynd. Treadwell fangaði ótrúlega hluti á mynd.
Fegurð náttúrunnar veður uppi, ef svo má að orði
komast, í fjölmörgum myndskeiðum. Þá kvik-
myndaði hann einstakar senur af samlífi grábjarna
og eigin samskiptum við þá. En hann gerir sjálfan
sig líka að viðfangsefni myndavélarinnar – fjöl-
margir kaflar líkjast vídeódagbók og það hugrekki
og sú útsjónarsemi sem líf hans með björnunum
kallar fram víkur að lokum fyrir sjálfsmynd sem er
að sumu leyti óhugnanleg. Ofstæki og firring virð-
ast oftar en ekki liggja hegðun hans til grundvall-
ar. Verkefnið sem hann setur sjálfum sér er bæði
ómannlegt og óframkvæmanlegt, en það er að yf-
irstíga mörkin sem skilja á milli tegundanna
tveggja. Hér fer þeim áhorfendum sem fylgst hafa
með Herzog gegnum tíðina kannski að gruna hvað
það var sem laðaði hann að viðfangsefninu.
Eins haganlega og Treadwell kemur sér fyrir
innan um birnina minna samskipti hans við náttúr-
una alltaf á einhvern sem helst á ekki að vera inn-
an um villt dýr. Á hátt sem vart á sinn líka utan
Disney-teiknimynda manngerir hann veröldina í
kring og lögmálin sem ráða ríkjum utan lögsögu
mannabyggða. Brothætt siðferðiskennd og hálf-
væmin náttúrudýrkun eru áberandi en á stundum
sjáum við líka ótrúlegt hugrekki. Vandamálið virð-
ist hins vegar vera að hugrekkið á rætur að rekja
til áðurnefnds misskilnings um hvernig lífinu í
náttúrunni vindur fram. Enginn sem sér myndina
efast um að Treadwell vill dýrunum vel. Engum
blandast heldur hugur um að hann átti takmarkað
erindi inn í það umhverfi sem hann kaus sér.
Mátturinn sem býr í ofstæki og hugsýki hefur
alltaf sótt á Herzog. Og sú hugmynd að draum-
urinn geti að lokum, ef honum er fylgt eftir af
nægilegri festu, umbreytt veruleikanum lýsir ekki
aðeins dramatískri undirbyggingu bestu mynda
hans heldur einnig lífi Treadwells. Þannig lifði
Treadwell lífi sínu og myndin sýnir hvernig góðlát-
leg og að mörgu leyti aðdáunarverð umhyggja fyr-
ir dýralífi verður að þráhyggju. Snilld Herzogs
birtist síðan í því hvernig hann notar þessa þrá-
hyggju til að bregða birtu á mannssálina, hvernig
það sem er mannlegt er dregið fram og þanið út í
umhverfi sem ekki tilheyrir manninum. Það er þá
sem kvika hins truflaða sjálfs birtist á tjaldinu. En
þessi rökvísi passar svo vel við fyrri myndir Her-
zogs að stundum hvarflar að manni að hann hafi
hreinlega fundið Treadwell upp.
Dýrin í skóginum eru ekki vinir
Grizzly Man nefnist nýjasta mynd þýska leik-
stjórans Werners Herzogs. Hún sprengir af sér
ramma hins hefðbundna eins og flestar mynda
hans hingað til.
Eftir Björn Þór
Vilhjálmsson
vilhjalmsson@wisc.edu
The Grizzly Man Herzog hefur í myndum sínum jafnan leitað út fyrir ramma hins hefðbundna og dagfarslega.
’Myndin fjallar um Timothy Treadwell, fyrrverandi leikara og strandarstrák í Kaliforníu,sem endurfæddist seint á ferlinum sem dýraverndunarsinni og varði síðustu þrettán sumrum
ævi sinnar í óbyggðum Alaska í nánu samneyti við grábirni.‘