Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.2005, Qupperneq 15
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 17. september 2005 | 15
Kvikmyndir
Borgarbíó, Akureyri
The Man
Deuce Bigalow – European
Gigolo (HJ)
Land of the Dead (SV)
Smárabíó
The Man
Night Watch
Deuce Bigalow – European
Gigolo (HJ)
Broken Flowers (HJ)
Fantastic Four (HJ)
Ævintýraferðin m. ísl. tali
(SV)
Sharkboy og Lavagirl
(SV)
Regnboginn
Night Watch
Deuce Bigalow – European
Gigolo (HJ)
Broken Flowers (HJ)
Fantastic Four (HJ)
Ævintýraferðin m. ísl. tali
(SV)
Laugarásbíó
The Man
Deuce Bigalow – European
Gigolo (HJ)
Land of the Dead (SV)
Ævintýraferðin m. ísl. tali
(SV)
Wedding Crashers (HJ)
Sharkboy og Lavagirl
(SV)
Háskólabíó
The Cave
Charlie and the Chocolate
Factory (HJ)
Strákarnir okkar (SV)
The Dukes of Hazzard
(SV)
The Skeleton Key (SV)
The Island (SV)
Sambíóin Reykjavík,
Keflavík, Akureyri
The Cave
Sky High
Charlie and the Chocolate
Factory (HJ)
Strákarnir okkar (SV)
The Dukes of Hazzard
(SV)
Racing Stripes (SV)
Herbie Fully Loaded
(SV)
Madagascar (SV)
Myndlist
Artótek, Grófarhúsi: Ingi-
mar Waage til 25. september.
Banananas: Þuríður Helga
Kristjánsdóttir og Tinna
Ævarsdóttir til 24. septem-
ber.
Café Karólína: Arnar
Tryggvason til 30. sept-
ember.
Epal: Finnur Arnar út sept-
ember.
Fugl: Ólafur Gíslason til 2.
október.
Gallerí 101: Sigurður Árni.
Gallerí 100°: Guðbjörg Lind,
Guðrún Kristjánsdóttir,
Kristín Jónsdóttir til 25.
október.
Gallerí Box: Darri Lorenzen
til 17. sept.
Gallerí Fold: Haraldur Bil-
son til 2. október.
Gallerí Gyllinhæð: Sýning
nemenda LHÍ til 18. sept.
Gallerí Sævars Karls: Kristín
Ragna.
Gallerí Terpentine: Ásdís
Spanó til 3. október.
Gerðarsafn: Kjarval 120 ára.
Til 2. okt.
Grafíksafn Íslands: Helga
Ármannsdóttir.
Gerðuberg: Einar Árnason
til 6. nóvember. Þórdís
Zoëga.
Hafnarborg: Eiríkur Smith
til 26. september.
Hrafnista, Hafnarfirði: Sess-
elja Halldórsdóttir til 4. októ-
ber.
i8 Gallerí: Ólöf Nordal til 15.
október.
Ís-café: Bjarney Sighvats-
dóttir til 15. nóvember.
Kaffi Sólon: Víðir Ingólfur
Þrastarson til 24. september.
Kaupfélagshúsið Strandgötu
Hfj.: Félagið Handíðir til 18.
sept.
Kirkjuhvoll, Akranesi: Björn
Lúðvíksson til 18. sept.
Kling og bang: Malcolm
Green. Goddur, Bjarni H.
Þórarinsson og Ómar
Stefánsson til 25. september.
Listasafnið á Akureyri: Jón
Laxdal til 23. október.
Listasafn ASÍ: Anna Þ. Guð-
jónsdóttir. Kristleifur
Björnsson. Til 9. okt.
Listasafn Árnesinga:
Sýningin Tívolí til 25. sept-
ember.
Listasafn Einars Jónssonar:
Fastasýning.
Listasafn Ísafjarðar: Katrín
Elvarsdóttir, fram í október.
Listasafn Íslands: Íslensk
myndlist 1945–1960.
Listasafn Reykjanesbæjar:
Eiríkur Smith til 16. okt.
Listasafn Reykjavíkur,
Ásmundarsafn: Maðurinn og
efnið. Yfirlitssýning. Til 2006.
Listasafn Reykjavíkur,
Hafnarhús: Guðrún Vera
Hjartardóttir til 30. desem-
VG Akureyri: Sex ungir
listamenn. Til 14. október.
Vínbarinn: Rósa Matthías-
dóttir.
Þjóðarbókhlaðan: Brynjólfur
Sveinsson til áramóta.
Þjóðminjasafn Íslands:
Skuggaföll. Portrettmyndir
Kristins Ingvarssonar. Story
of your life – ljósmyndir Har-
aldar Jónssonar. Mynd á þili.
Þrastalundur, Grímsnesi:
Reynir Þorgrímsson til 5.
október.
Leiklist
Austurbær: Annie, sun.
Borgarleikhúsið: Kalli á þak-
inu sun., sun. Manntafl lau.,
sun. Alveg brilljant skilnaður
lau., fim., fös. Woyzeck fors.
sun., fös. Híbýli vindanna 24.
sept.
Hafnarfjarðarleikhúsið:
Himnaríki. Frums. lau., fös.
Íslenska óperan: Kabarett,
lau., fös. Tökin hert. Frums.
21. okt.
Leikfélag Akureyrar: Pakkið
á móti. lau.
Loftkastalinn: Bítl, 22. sept.
Þjóðleikhúsið: Velkomin í
Þjóðleikhúsið: leikárið kynnt.
lau. Klaufar og kóngsdætur
sun. Edith Piaf sun., fim., fös.
Rambó 7 lau., fim. Kodda-
maðurinn lau., fös.
ber. Hvernig borg má bjóða
þér? til 2. október. Erró til
23. apríl.
Listasafn Reykjavíkur,
Kjarvalsstaðir: Úrval verka
frá 20. öld til 25. september.
Listasafn Sigurjóns Ólafs-
sonar: Hraunblóm: Elsa
Afelt, Carl-Henning Ped-
ersen, Svar Guðnason og Sig-
urjón Ólafsson.. til 27. nóv.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur:
Lars Tunbjörk til 20. nóvem-
ber.
Norræna húsið: QuiltQunstn-
erne til 30. september.
Nýlistasafnið: Ásta Ólafs-
dóttir. Unnar Jónasson
Auðarson. Daði Guðbjörns-
son til 2. október.
Næsti bar: Áslaug Sigvalda-
dóttir til 14. október.
Safn: Ólafur Elíasson til miðs
október. Stefán Jónsson til
nóvember.
Safn Ásgríms Jónssonar:
Þjóðsagnamyndir Ásgríms
Jónssonar.
Skaftfell: Carl Boutard.
Dodda Maggý. Til 18.
september.
Skriðuklaustur: Helga
Erlendsdóttir til 18. septem-
ber.
Suðsuðvestur: Gjörninga-
klúbburinn. Til 25. septem-
ber.
Á LISTASAFNI Akureyrar er nú
yfirlitssýning verka Jóns Laxdal
sem er vel kunnur heimamönnum
enda búið og starfað við Eyjafjörð-
inn og sýnt myndlist sína reglulega
á Akureyri en einnig í Reykjavík og
erlendis. Í framhaldinu verður sýn-
ingin sett upp í Hafnarfirði, Þýska-
landi og Færeyjum. Þá hefur verið
gefin út greinargóð bók sem þjónar
jafnframt hlutverki sýningarskrár
þar sem rakinn er bakgrunnur
Jóns Laxdal sem er heimspekingur
að mennt og gerð grein fyrir
listþróun hans.Verk Jóns eru að-
allega klippiverk með upplímdum
texta, letri, myndum og eyðum eða
spássíum úr gömlum blöðum. Á
sýningunni fer mest fyrir tvívíðum
verkum en í bókinni eru sýndar
myndir af margskonar verkum í
þrívíðri útfærslu sem hjálpar sýn-
ingargestinum að gera sér gleggri
mynd af vinnubrögðum listamanns-
ins þótt ekki hefði sakað að láta
fylgja með ártöl. Í stærstu mynda-
röðunum hér nýtir Jón uppsetningu
blaðanna, hlutföll flata og dálka en
límir iðulega texta inn á og yfir
texta og ruglar þannig línulegri frá-
sögn hans. Eyður eða óprentaður
pappír af jöðrum blaðanna er einn-
ig nýttur til að líma yfir hluta eða
heild, línur eru strikaðar út eða
aukalínur settar inn og letrið sjálft
leikur stórt hlutverk í verkunum.
Efniviðurinn, blöðin sjálf, virðast
oft frá því um miðja síðustu öld,
stundum yngri eða eldri en eiga
það sameiginlegt að sýran í papp-
írnum sem veldur gulnuðum blöð-
um gefur heildaryfirbragð antík-
áferðar og skírskotar til gamalla
skjalasafna. Það ásamt gömlum tý-
pógrafískum gildum og samspili
leturgerða vekur tilfinningar og
minningabrot um nýliðna bókmenn-
ingu okkar og dregur fram hve
mikið af upplýsingum, táknmynd-
um og andblæ er að finna í form-
gerðinni einni. Það að textinn sjálf-
ur sé rofinn, hulinn eða
sundurslitinn á annan hátt gefur til
kynna að hann er ekki aðalatriðið
heldur sú brotakennda mynd sem
fæst í slíkum sjónrænum yfirborðs-
lestri. Þá fer ekki á milli mála að
gagvart frumtextanum hefur átt
sér stað ritskoðun og ákveðin vald-
beiting, þar sem listamaðurinn
breytir vægi texta og orða, breytir
vægi upplýsinga, hrærir saman
ólíkum orðræðum eða fellir út stóra
hluta. Þetta er áhugaverðast fyrir
þá sök að það dregur fram þann
veruleika að frumtextinn og formið
sem unnið var með hlýtur að hafa
verið gert með sömu aðferðum.
Þetta bendir líka á að öll saga er
túlkuð og breytist eftir geðþótta
hvers tíma og gildismati þess sem
segir söguna ásamt hinu tilvilj-
unarkennda sem átti ekki að skipta
máli en verður samt merking-
arbært. Við þessu er ekki aðeins
gengist í verkunum heldur einnig
dreginn fram skapandi máttur per-
sónulegrar menningarrýni sem þarf
ekki að vera bundin neinum hlut-
lausum sannleika.
Listasafn Akureyrar leitast hér
við að koma listamanninum Jóni
Laxdal á framfæri, kynna og mark-
aðssetja höfundarverk hans utan
heimabyggðar. Slíkt er eftirtekt-
arvert nú á tímum þar sem orð-
ræða og hugmyndir um útrás og
markaðssetningu listamanna hafa
helst verið orðaðar um unga mynd-
listarmenn. Þá gerir Hannes Sig-
urðsson, forstöðumaður Listasafns-
ins, grein fyrir þessari viðleitni sem
virðist feimnismál á mörgum öðrum
söfnum sem vilja breiða yfir vald
sitt og loka augunum fyrir því að
það er innbyggð markaðssetning í
hverri þeirri sýningu sem sett er
upp þrátt fyrir að það sé gert á list-
rænum forsendum. Framkvæmdin
er áhugaverð og verkin á sýning-
unni með þeim eftirminnilegustu
sem ég hef séð lengi.
Hróflað við hefðinni
Þóra Þórisdóttir
Morgunblaðið/Kristján
Eitt verka Jóns Laxdal í Listasafninu á Akureyri.
MYNDLIST
Listasafn Akureyrar
Sýningin stendur til 23. október.
Jón Laxdal
Ekki orð
ÓUMDEILDUR frumkvöðull ís-
lenzkrar raftónlistar, Magnús
Blöndal Jóhannsson (1925–2005),
er lézt 1. janúar sl., hefði orðið
áttræður 8. september sl. Af því
tilefni efndi útgáfufélagið Smekk-
leysa til minningartónleika í
Listasafni Íslands við fjölmenna aðsókn.
Var talsvert um nemendur úr Listaháskól-
anum og átti vel við, enda kunni Magnús
ávallt að meta ungt fólk með opinn huga, og
kvað það hafa verið gagnkvæmt.
Eftir upphafsávarp Kjart-
ans Ólafssonar prófessors og
formanns Tónskáldafélags
Íslands fór dr. Bjarki Svein-
björnsson tónsagnfræðingur
og tónlistarráðunautur RÚV
með athyglivert spjall um
kynni sín við tónskáldið,
verk þess og stöðu í íslenzkri
tónlistarsögu.
Magnús stundaði fram-
haldsnám í New York 1946–
54 þar sem hann kynntist
persónulega nýherja á borð
við Edgard Varése. Má segja
að með dvöl sinni vestra hafi
Magnús rofið einangrun ís-
lenzks tónlistarlífs frá al-
þjóðlegum módernisma svo
varla varð rækilegra gert af einum ein-
staklingi – jafnvel þótt kostaði framan af
andstöðu og skilningsleysi landa hans heima
fyrir. Og risastökk íslenzkrar tónlistar frá
afskekktri miðrómantík yfir í alþjóða nú-
tímalist á árunum kringum 1960 verður ekki
skilið til fulls án framlags hans.
Tæplega hefur nokkur annar flautuleikari
leikið Solitude oftar en Áshildur Haralds-
dóttir. Það var því ekki að sökum að spyrja
um áhrifamátt túlkunar hennar á þessu 9
mín. langa einleiksverki Magnúsar, er enn
freistar dálítið til að líkja við lýsingu á hlut-
skipti framsækins hrópanda í eyðimörk
íhaldssemi og einangrunar, jafnvel þótt höf-
undur hafi sjálfur hafnað því. Enda stóð
sjálfsvorkunnsemi honum fjarri, eins og
ánægja hans af léttum kaffihúsaleik bendir
kannski til, þar sem hann þótti með flinkari
píanistum landsmanna.
Næst var sýnd 30 mín. ófullgerð heimild-
armynd um tónskáldið eftir Ara A.E. Magn-
ússon. Uppistaða hennar var samtal þess og
forstöðumanns Nýlistasafnsins í París,
Hans Ulrich Obrist, en inn á milli komu
svipmikil myndskeið frá nútímaballettum
eða náttúrukvikmyndum Ósvalds Knudsens
eins og Surtur fer sunnan, er Magnús raf-
tónsetti með eftirminnilegum hætti. Meðal
skondnari samtalsatriða má nefna fyrstu
kynnin við aldna píanókennarann Carl
Friedberg (1872–1955; fyrrum nemanda
Clöru Schumann), er tók ekki í mál að
kenna Magnúsi nema hann gæti sýnt fram á
hæfileika í spuna[!] – á sama tíma og ís-
lenzkir slaghörpupedagógar lögðu blátt
bann við öllu slíku.
Eftir tónskáldafélagskveðju Kjartans að
sýningu lokinni klykktu Ásgerður Júníus-
dóttir og Árni Heimir Ingólfsson út með
fimm sönglögum Magnúsar – Krummavís-
um, Í draumi sérhvers manns, Vögguvísu án
orða, Höndum og Sveitinni milli sanda. Allt
með stakri prýði – þó að rúbatóþrungið
lokalagið bæri óneitanlega allt annan svip
en ástsæl beguine-útgáfan úr Sveitinni milli
sanda með vókalísu Ellýjar Vilhjálmsdóttur.
Helzti ljóður á ráði minningartónleikanna
var frávera prentaðrar tónleikaskrár sam-
fara líkum á að sitthvað misfærist í munn-
legu kynningunum.
Frumkvöðuls minnzt
TÓNLIST
Listasafn Íslands
Verk eftir Magnús Blöndal Jóhannsson.
Áshildur Haraldsdóttir flauta, Ásgerður
Júníusdóttir alt, Árni Heimir Ingólfsson
píanó. Heimildarmynd: Ari Alexander
Ergis Magnússon. Erindi: Bjarki Svein-
björnsson. Fimmtudaginn 8. september
kl. 20.
Minningartónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson
Magnús Blöndal
Jóhannsson