Vísir - 31.12.1964, Page 6
■
DANSAÐ DÁTT Á
JÓLABALU í LÍDÓ
fengu sér hressmgu mn á milli dansanna.
Tvö lítil pör komu fram og sýndu dans.
Gengið kringum jólatréð.
Kapparnir tveir hafa keypt sér ís 1 sameinmgu, en hvermg á að skipta
— vandinn er leystur, annar borðar með skeið en hinn sýgur með rörum.
desember 1964.
Jólaböllin standa nú sem
hæst, á hverjum degi safnast
saman ungir herrar og litlar
dömur til þess að dansa í kring
um jólatréð.
Fyrir stuttu var eitt jólaballið
í Lídó, þar voru nemendur úr
Dansskóla Hermanns Ragnars
komnir til þess að skemmta sér.
Þegar Myndsjáin kom á vett
vang var glaumur og gleði og
krakkarnir, sem voru á aldrinum
tíu ellefu og tólf ára virtust
skemmta sér hið bezta. Sungin
voru göngulög og ekki má
gleyma jólasálmunum. Svo var
staðnæmst um stund og hlýddu
aliir á er sagt var frá tilgangi
jólanna og boðskap þeim, sem
þau flytja.
Mikinn fögnuð vakti það þeg
ar jólasveinninn Leppalúði,
Grýla kona hans og Langbrók
dóttir þeirra komu fram og
skemmtu. Þau dönsuðu þarna
ýmsa dansa, en ekk! er vist að
allir hafi áttað sig á cha cha cha
dansinum þeirra, enda ekki von
að nýjustu samkvæmisdansamir
séu mikið iðkaðir i heimkynn-
um þeirra.
Svo var dansað og aftur dans
að, unz skemmtuninni lauk, en
inn á milli þurfti að kæla sig
og fá smávegis hressingu, en
vist er um það, að það hafa
verið glöð og ánægð börn, sem
fóru heim að afloknu vel heppn
uðu jólaballi.