Morgunblaðið - 10.01.2005, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 10.01.2005, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ALÞÝÐUSAMBAND Íslands hefur sent Árna Magnússyni félagsmála- ráðherra greinargerð sambandsins um afstöðu þess til atvinnuleyfa fyrir kínverska starfsmenn ítalska verk- takafyrirtækisins Impregilo, en sam- bandið er mótfallið því að starfsmenn- irnir fái atvinnuleyfi hér á landi. Eftir fund fulltrúa ASÍ með félags- málaráðherra í síðustu viku óskaði hann eftir greinargerð frá samband- inu um lög og reglur og alþjóðlegar skuldbindingar Íslands sem gætu skipt máli varðandi veitingu atvinnu- leyfanna, segir Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ. Hann segir að nákvæmt efni greinargerðarinnar verði ekki gefið upp fyrr en eftir að fulltrúar ASÍ hafi rætt greinargerð- ina við ráðherra, en það verði vænt- anlega í dag eða á morgun. Gylfi segir málefni erlendra starfs- manna við Kárahnjúka farin að hafa áhrif á vinnumarkaðinn, hér hafi þróast kerfi þar sem lágmarkslaun séu bundin í kjarasamninga en greitt sé umfram það fyrir alls konar þekk- ingu, aðstæður, erfiðleika og jafnvel vosbúð og kulda. Brjóta gegn hefðum á markaði „Markaðurinn hefur þróað lausnir til að gera ráð fyrir ytri aðstæðum sem þessum, og því ekki ástæða til þess að binda það í kjarasamninga,“ segir Gylfi. Svo ætli eitt fyrirtæki sér að greiða lágmarkslaun samkvæmt kjarasamningi þrátt fyrir skort á starfsmönnum, og flytja inn starfs- menn ef engir fáist til að vinna á þeim kjörum. Þetta segir Gylfi brjóta gegn hefðum á markaði, þó það sé ekki beinlínis ólöglegt. Gylfi segir ekki hægt að segja á þessu stigi hvort þessi deila muni hafa áhrif þegar forsendur kjarasamninga ASÍ verða skoðaðar í haust. Hann segir þó að sé verið að nota friðar- skylduna til að brjóta markvisst niður réttindi og kjör launafólks geti hver dregið sínar ályktanir um viðbrögð. Farið að hafa áhrif á vinnumarkaðinn ASÍ sendir ráðherra greinargerð um atvinnuleyfi Kínverja og austur um á móts við Norðfjarð- arflóa. Út af Norðurlandi fannst loðna á 100 sjómílna löngum kafla, frá hafsvæðinu norður af Mel- rakkasléttu vestur og norður fyrir Kolbeinsey. Ekki verður hægt að fá nánari upplýsingar um áætlað magn loðnu á miðunum fyrr en leiðangri lýkur um eða eftir miðja vikuna. Mun Hafrannsóknastofnunin þá gera tillögur til stjórnvalda um endan- legt aflamark á yfirstandandi loðnuvertíð, segir í tilkynningunni. REIKNAÐ er með því að loðnuleit Hafrannsóknastofnunar út af Norðurlandi ljúki um eða eftir miðja vikuna. Þegar hefur fundist svo mikið af loðnu að fyrirsjáanlegt er að hægt verði að auka útgefinn loðnukvóta verulega, að því er fram kemur í tilkynningu frá Haf- rannsóknastofnun. Rannsóknarskipið Árni Frið- riksson hélt til loðnuleitar og mæl- inga ásamt níu loðnuskipum þann 4. janúar. Leitarsvæðið náði frás- unnanverðum Vestfjörðum norður Loðnu- kvótinn aukinn verulega Morgunblaðið/Kristinn Í ÓVEÐRINU sem gekk yfir Dan- mörku og Svíþjóð á laugardags- kvöldið féllu tré á stúdentagarðana við Studiegången í Gautaborg þar sem fjöldi Íslendinga hefur búið síð- ustu áratugi meðan þeir hafa verið við nám. Um þessar mundir búa sex íslenskar fjölskyldur á stúd- entagörðunum, eða 20 til 25 manns. Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir hefur búið á stúdentagörðunum í eitt og hálft ár ásamt eiginmanni sínum og tveimur börnum. Hún var heima hjá sér þegar óveðrið gekk yfir aðfara- nótt sunnudags. „Um kvöldmat- arleytið var farið að loka ákveðnum stöðum á hraðbrautunum sem eru við höfnina. Veðrið fór smám saman versnandi eftir því sem leið á kvöldið og tré rifnuðu upp með rótum og munir, sem voru utandyra og illa festir, tóku að fjúka. Það er líkt og hlutirnir séu ekki eins vel festir og heima á Íslandi,“ segir Ingibjörg. Að hennar sögn varð engum af Ís- lendingunum meint af og ekki urðu miklar skemmdir á stúdentagörð- unum og húseignunum þar í kring. „Það var mikil mildi að trén, sem féllu á húsið, lentu milli hæða og fóru beint á vegginn þannig að rúður brotnuðu ekki og skemmdir urðu nánast engar.“ Guðmundur Örn Guðmundsson er búsettur á Amager í Kaupmanna- höfn ásamt eiginkonu sinni og barni. Hann segir að veðursins hafi ekki gætt ýkja mikið á því svæði en þó hafi einhverjar skemmdir orðið á ný- legri verslunarmiðstöð, Fields, sem er nærri heimili hans. Eyrarsundsbrúnni lokað Guðmundur, sem er læknir í sér- fræðinámi, starfar í Málmey í Sví- þjóð og þarf því að aka yfir Eyr- arsundsbrúna á leið sinni til vinnu. „Umferð um Eyrarsundsbrúna var stöðvuð vegna veðursins en ég var sem betur fór ekkert á vakt um helgina og þurfti því ekki að fara yfir brúna,“ segir Guðmundur. Að sögn Guðmundar dvaldi fjöl- skyldan að mestu leyti heima við meðan óveðrið gekk yfir. „Við vorum þó aðeins á ferðinni seinnipartinn í gær [laugardag] og sáum að lög- reglan var búin að loka götum og hafði uppi viðbúnað vegna þessa en gerðum okkur ekki grein fyrir því hversu slæmt veðrið var fyrr en okk- ur tóku að berast fregnir af því og afleiðingum þess í fréttatímum. Það buldi á rúðunum hérna þannig að okkur stóð ekki á sama. Seinnipart- inn var mesti veðurofsinn hér en við sváfum að mestu um nóttina. Inni í bænum finnur maður ekki eins mik- ið fyrir veðrinu eins og ef maður áveðurs.“ Ljósmynd/Ingibjörg L. Ómarsdóttir Tré féllu á stúdentagarðana við Studiegången í Gautaborg í óveðrinu sem gekk yfir Svíþjóð á laugardaginn. Tré rifnuðu upp með rótum Lítið tjón á stúdentagörðum í Gautaborg þar sem sex íslenskar fjölskyldur búa FARÞEGAÞOTA frá rússneska flugfélaginu Aeroflot, sem var á leið frá Toronto í Kanada til Moskvu, varð að lenda á Keflavík- urflugvelli um klukkan 7:20 á laug- ardagsmorgun, eftir að drukkinn farþegi stofnaði til óláta um borð og til átaka við áhöfnina og aðra farþega. Að sögn lögreglu var maðurinn, sem er rúmlega fertugur, mjög æst- ur um borð í flugvélinni og taldi flugstjórinn því að hann ætti ekki annan kost en að lenda vélinni. Lögreglan á Keflavíkurflugvelli var kölluð til og flutti hún manninn í fangageymslur í Keflavík þar sem hann var látinn sofa úr sér. Hann má eiga von á hárri bótakröfu frá flugfélaginu. Aeroflot-vél lent í Keflavík vegna óláta AUGLÝST hefur verið eftir um- sóknum um veiðileyfi á hreindýrum fyrir þetta ár, og hefur þegar orðið vart við mikinn áhuga á veiðileyfun- um hjá veiðistjórnunarsviði Um- hverfisstofnunar, en umsóknarfrest- ur er til 15. febrúar. Karen Erla Erlingsdóttir, sér- fræðingur um hreindýramál hjá Um- hverfisstofnun, segist búast við því að fleiri sæki um leyfi en fái, eins og verið hefur undanfarin ár, og verður þá dregið um hverjir fá leyfi. Kvóti ársins er 800 dýr, og hefst veiðitíma- bilið 1. ágúst. „Fyrstu tvo dagana voru komnar næstum 80 umsóknir, og þetta er nú einn og hálfur mán- uður sem menn hafa, svo það er gríð- arleg eftirspurn eftir þessu,“ segir Karen. Síðast sóttu rétt um 1.200 einstaklingar um 800 leyfi. Hækkun á veiðileyfum Karen segir að fjölgun hafi verið á þeim sem áhuga hafa á hreindýra- veiðum eftir að rjúpnaveiðar voru bannaðar tímabundið. „Þetta var ákveðið á miðju veiðitímabili hrein- dýra árið 2003, og það var rosalega mikið hringt eftir að þetta var ákveð- ið. Svo ég tel þetta vera eina af ástæðum þess að áhuginn hefur auk- ist svona. Eftirspurn eftir hrein- dýrakjöti hefur einnig aukist mikið á þessum árum, og ég held að allir séu sammála því að þetta [rjúpnaveiði- bannið] sé ein af ástæðunum.“ Verð fyrir veiðileyfi hefur hækkað nokkuð frá síðasta ári. Í ár kostar veiðileyfi á svæðum eitt og tvö 110 þúsund krón- ur fyrir tarf, en kostaði á síðasta ári 90 þúsund krónur. Veiðileyfi á kýr á sömu svæðum kostar nú 55 þúsund krónur en kostaði áður 45 þúsund krónur. Hækkunin er í báðum tilvik- um rúm 22%. Karen segir veiðileyfin ekki hafa hækkað síðan 1998, og því hafi verið ákveðið að hækka þau nú, og fylgi hækkunin verðlagsþróun síðan síð- ast var hækkað. Hún tekur þó fram að hækkað hafi á svæðum fimm og sex árin 2002 og 2003, en ekki hafi verið hækkað þar núna. Mikil spurn eftir hreindýraveiðileyfum næsta haust Talið að veiðibann á rjúpu auki áhugann Í NÝJASTA hefti breska tímaritsins Time Out er sagt að það sé mun betri kostur að takast á við vetr- arkuldann í Reykjavík heldur en í Lundúnum, New York eða Barce- lona. Gefnar eru einkunnir á bilinu 1–10 fyrir fimm flokka; hitastig, vetrarumferðina, skemmtanalíf, matarmenningu og snjógæði. Eins og vænta mátti fær Reykja- vík aðeins einn í einkunn fyrir hita- stig. Matarmenningin fær líka fall- einkunn, eða fjóra. Vetrarumferðin er hins vegar sögð til fyrirmyndar, í þeim flokki fær Reykjavík tíu. Skemmtanalífið fær níu og snjógæð- in tíu. „Bara ekki borða gula snjó- inn,“ segir í blaðinu, sem er gefið út í um 90.000 eintökum í Lundúnum. Vara við gula snjónum á Íslandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.