Morgunblaðið - 10.01.2005, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 10.01.2005, Blaðsíða 30
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes KALLI, MIKIÐ VARSTU LENGI! LEIKURINN ER ALVEG AÐ BYRJA! LÁTTU TOMMA FÁ HANN... HANN Á NEFNILEGA EKKI HANSKA SJÁLFUR... TOMMI? SÝNDU ÞEIM HVERNIG Á AÐ GERA ÞETTA TOMMI! ÞÚ GETUR HORFT Á LEIKINN ÞAÐAN KALLI... TOMMI? ÞAÐ ÞARF AÐ BÆTA ÞENNAN DAG... ÉG VERÐ AÐ JÁTA AÐ ÞETTA ER ÁGÆTIS BÆTING HÉRNA ER RITERÐIN ÞÍN SOLLA. OG HÉR ER ÞÍN KALVIN KALVIN, ÞAÐ VÆRI BETRA EF ÞÚ GÆTIR MERKT RIT- GERÐIRNAR ÞÍNAR MEÐ ÞÍNU NAFNI Í STAÐ ÞESS AÐ SKRI- FA, DRENGUR ÖRLAGANNA. ÞAÐ VÆRI ENN BETRA EF ÞÚ MUNDIR LÆRA Í STAÐINN FYRIR AÐ TEIKNA ÞITT EIGIÐ INNSIGLI DRENGUR ÖRLAGANNA ÞAÐ ER RÉTT, DRENGUR ÖRLAGANNA ALLIR SEM ÉG ÞEKKI SEGJA AÐ ÖRLÖG ÞÍN VERÐI AÐ FÁ SÉR BÚR Í APADEILD Í DÝRAGARÐI ÉG HELD AÐ ÞÍN ÖRLÖG VERÐI AÐ VERA MEÐ TANNLAUST BROS Svínið mitt © DARGAUD ER ÞETTA EKKI GOTT KRAKKAR? MM! GRR! BARA EITT ORÐ ÁÐUR EN VIÐ HITTUM MÖMMU OG TENGDÓ... HVAÐ? EKKI GERA GRÍN AF ÖMMU ÞÓ SVO AÐ HÚN SOFI Í BÍÓ. ER ÞAÐ SKILIÐ? EN HÚN HRÝTUR! JAFNVEL ÞÓ HÚN HRJÓTI. HÚN ER SVO GÓÐ AÐ BJÓÐA OKKUR Í BÍÓ OG EF ÞÚ SEGIR EITTHVAÐ ÞÁ VERÐUR HÚN Í FÝLU Í VIKU RÚNARI VAR LÍKA BOÐIÐ EKKI ORÐ! ALLT Í LAGI! TAKK FYRIR. VILDIRÐU EKKI NEITT JÓNA? NEI TAKK ÉG ÆTLA AÐ FÁ 5 MIÐA ENTVEIR ERU FYRIR BÖRNIN KLUKKAN HVAÐ ER MYNDIN BÚIN? HAFÐU ENGAR ÁHYGGJUR AMMA NÚ? ÉG SKAL VEKJA ÞIG ÞEGAR MYNDIN ER BÚIN Dagbók Í dag er mánudagur 10. janúar, 10. dagur ársins 2005 Víkverji skrapp íbæinn á Þorláks- messu og komst í til- hlýðilegt jólaskap þó að heldur væri nú kalt í veðri. Eftir að hafa keypt síðustu jólagjaf- irnar ásamt vinafólki sínu var meiningin að koma við á einni af fjölmörgum kránum í miðbænum en heldur gekk nú illa að finna stað, sem gat boðið upp á sæti. Alls staðar var yfirfullt og það var farið að líta út fyr- ir að Víkverji fengi ekki ölið sem hann hafði verið far- inn að hlakka til að gæða sér á. Um hálfellefu var Víkverji kominn í verslunina Sautján, sem er ofarlega á Laugavegi, og datt vinafólki hans þá það snjallræði í hug að setjast bara stundarkorn á kaffihúsið á annarri hæð, þar hlyti að vera hægt að hvíla lúin bein og fá sér kaffi. Það kom raunar á daginn að kaffihúsið á Sautján bauð betur en það; þegar til kom var ekki aðeins hægt að fá öl og með því heldur var allt saman í boði hússins! Höfðu eig- endurnir þá ákveðið að traktera þá viðskiptavini sína sem enn voru á ferli svo síðla kvölds. Þetta þótti Víkverja vel til fundið og til þess fallið að við- skiptavinurinn snúi aft- ur í þessa tilteknu verslun; a.m.k. á Þor- láksmessu eftir ár! x x x Í eina tíð voru barasýndar úrvalsmyndir í íslensku bíóhúsunum um jólin. Heldur finnst Víkverja hins vegar úr- valið hafa verið lítið um þessi jól, bíóhúsin í raun öll að sýna sömu örfáu myndirnar. Þetta þykir bíóáhugamann- inum lélegt; enda fór Víkverji ekki nema einu sinni í bíó yfir hátíð- arnar. x x x Dulítil sálarkreppa hefur gert vartvið sig hjá Víkverja. Þannig er mál með vexti að Víkverji er í fiska- merkinu og síðustu dagana hefur stjörnuspáin í Mogganum ítrekað spáð honum fjárhagslegum drjúg- um ávinningi. Bæði er honum tjáð í áramótaspánni að árið verði honum gott og svo segja hinar daglegu spár honum aftur og aftur að kominn sé tími til að fara fram á kauphækkun. En á hann að þora að spyrja? Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is        Laugavegur | Nýtt kaffihús, tileinkað grasrótarlist, opinskárri samfélags- umræðu, námskeiðum sem tengjast bættu samfélagi og lífrænu fæði, var opnað í gærkvöldi á Laugavegi 21. Kaffihúsið nefnist Kaffi Hljómalind og er það ekki rekið með peningagróða að markmiði heldur verður það sam- vinnurekið fyrirtæki, þar sem ekki er einn eigandi, heldur margir. Allur hagnaður af rekstri hússins mun renna til góðgerðarmála. Stofnendur Kaffis Hljómalindar hafa fengið hingað til lands fræðimanninn og jógamunkinn Maheshvarananda, sem mun halda námskeið um stofnun, þróun og rekstur samvinnurekinna fyrirtækja. Morgunblaðið/Þorkell Grasrótarkaffihús í miðbæ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Þolgæðis hafið þér þörf, til þess að þér gjörið Guðs vilja og öðlist fyr- irheitið. (Hebr. 10, 36.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.