Morgunblaðið - 10.01.2005, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 10.01.2005, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2005 7 FRÉTTIR ATVINNULÍFIÐ á Þórshöfn er komið á fljúgandi ferð eftir jólafríið og í Hraðfrystistöðinni hófst loðnufrysting aðfaranótt laugardags þegar fjölveiðiskipið Þorsteinn kom að landi með um 500 tonn af loðnu. Loðnan var öll flokkuð og fryst en hún var að sögn verkstjóra mjög falleg og fersk. Hún veidd- ist á Rifsbanka en þaðan er um sex tíma stím á Þórshöfn. Unnið var á tólf tíma vöktum í HÞ við frystinguna en um tuttugu manns eru jafnan á vakt og einnig var fryst um borð í Þorsteini. Í gær, sunnudag, var frystu afurðunum svo skipað í flutningaskip. Þorsteinn hélt aftur á veiðar í gærkveldi og von er á Júpíter af miðunum innan tíðar svo vænt- anlega eru uppgrip framundan hjá starfsfólki HÞ og engin ástæða til annars en að bera sig vel eins og konan á myndinni til hægri. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Atvinnulífið á fljúgandi ferð Þórshöfn. Morgunblaðið. ÓSKAÐ er eftir sjálfboðaliðum til að safna í bauka vegna landssöfn- unar til styrktar þeim sem þjást vegna hamfaraflóðanna í Asíu. Söfnunin hefst á morgun, þriðju- dag. Samstarfshópur ein- staklinga, fyrirtækja og fjölmiðla stendur að söfnuninni ásamt fimm mannúðarsamtökum á Ís- landi. Söfnuninni lýkur laug- ardaginn 15. janúar með sameig- inlegri útsendingu allra sjónvarpsstöðvanna. Safnað verður föstudaginn 14. janúar frá kl. 14–18 og laug- ardaginn 15. janúar frá kl. 12–18. Til að safna í Kringlunni geta sjálfboðaliðar skráð sig í síma 545 0408 eða 545 0400, í Smára- lind er skráning í síma 554 6626 og á Glerártorgi á Akureyri er skráning í síma 461 2374. Í fréttatilkynningu frá SOS- barnaþorpum, sem eru meðal þeirra samtaka sem standa að söfnuninni, eru sjálfboðaliðar beðnir að hafa með skilríki þegar þeir fara að safna. Óskað eftir sjálfboðaliðum ÞORSTEINN Ásmundsson, fram- kvæmdastjóri Leikfélags Reykja- víkur, segir að samstarfssamningur Borgarleikhússins og KB banka, sem undirritaður var sl. föstudag, feli m.a. í sér að viðskiptavinir bankans fái afslátt á sýningar á Hí- býlum vindanna í febrúar og á áskriftarkortum í leikhúsið. Þá verður sérstök sýning fyrir starfs- fólk bankans. Hann segir samninginn marka tímamót og að framlag KB banka til leikhússins sé myndarlegt. Myndarlegt framlag til leikhússins MIKIÐ tjón varð í tveimur íbúð- um í fjölbýlishúsi í Grundarfirði í fyrrinótt, en talið er að frost hafi sprengt vatnskrana á annarri hæð með þeim afleiðingum að vatn flæddi um allt. Lekinn uppgötvaðist þegar íbúi á neðri hæð kom heim, og var þá 5–10 sm djúpt vatn á öllum gólf- um, en íbúar á efri hæð hafa ver- ið erlendis síðustu vikur, að sögn Lögreglunnar í Ólafsvík. Slökkvilið skrúfaði fyrir vatnið og þurrkaði upp. Að sögn lög- reglu eru öll gólfefni ónýt, og þurfti að rífa parket af efri hæð- inni til að stöðva leka niður á fyrstu hæðina. Einnig varð veru- legt tjón á innanstokksmunum og innréttingum. Mikið tjón vegna vatnsleka Flex-T vinnustöðvar 30% TTT auglýsingastofa/Ljósm .S S J Skrifstofuhúsgögn á frábæruverði! Flex-T vinnustöðvar (180x180cm) frá Kr.46.270 Bæjarlind 8-10 • Sími 510 7300 • www.ag.isHeildarlausnir í skrifstofuhúsgögnum Mark30 skrifstofustólar Kr.40.900 kynningarafsláttur Flex-T er ný lína vinnustöðva sem Guðrún Margrét Ólafsdóttir og Oddgeir Þórðarson hafa hannað. Vinnustöðvarnar eru með þægilegri handvirkri hæðarstillingu, 0-20 cm en fást einnig með rafknúinni, stig- lausri hæðarstillingu þannig að ýmist er hægt að sitja eða standa við vinnu. Nú býðst Flex-T á sérstöku kynning- artilboði. Hæðarstilling á baki Pumpa til að stilla stuðning við mjóhrygg Hæðarstillanlegir armar Hallastilling á baki Sleði til að færa setu fram og aftur Mjúk hjól Hæðarstilling á setu og baki Hægt er að stilla stífleika setu og baks eftir þyngd notanda Veltustilling á setu og baki Mark er glæsileg lína skrifstofustóla fyrir vinnustaði og heimili. Hönnuður stólanna er Pétur B. Lúthersson. Hægt er að velja um fjölda lita á áklæði. Nú bjóðum við þessa stóla á frábæru verði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.