Morgunblaðið - 10.01.2005, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 10.01.2005, Blaðsíða 23
ar þér, elsku amma mín. Þegar ég var veik og mamma þurfti að fara í vinn- una var voða gott að fá að vera hjá þér og njóta umhyggju þinnar. Af henni áttir þú nóg og það var allt látið eftir mér. Það varst þú sem kenndir mér að fara með bænirnar og gerðir það alltaf með mér þegar ég gisti hjá ykkur afa. Og áður en við fórum að sofa fengum við okkur alltaf kvöld- kaffi með mikilli mjólk og sykri og dýfðum kringlu ofan í. Svo var það alltaf hafragrautur með súru slátri í morgunmat. Það voru ófáar sögurnar sem þú sagðir mér og margar um lífið á Ströndum þegar þú varst ung. Það fannst mér alltaf mjög spennandi því það var svo ólíkt því lífi sem ég þekkti og einhver rómantík yfir því. Hjá þér hitti ég reglulega frændfólkið mitt því hjá þér var eins konar samastað- ur okkar allra. Öllum þótti svo gott að koma til þín. Þú varst alltaf eitthvað að gera í höndunum, prjóna, búa til sokka- blóm, mála á tau, mála á kort, sauma grímubúninga svo ekki sé minnst á myndirnar sem þú málaðir. Og ég naut góðs af því oft fékk ég líka að spreyta mig. Takk fyrir allar þessar yndislegu minningar, amma mín. Ég veit að þú ert þarna einhvers staðar og gætir mín og minna. Mig langar að lokum að fara með bænina sem þú kenndir mér Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (S.J.) Guð gefi að þér líði vel, amma mín. Þín Guðrún Einarsdóttir (Rúna.) Góður maður líkti lífinu eitt sinn við golfleik. Maður spilar sínar holur, skráir frammistöðuna, gengur upp tröppur klúbbhússins að leik loknum og skilar inn skorkortinu. Elsku amma, nú hefur þú klárað þinn hring og það með miklum sóma. Ef ég næ að skora, þó ekki verði nema til hálfs á við þig, þá mun ég glaður kvitta undir mitt kort þegar þar að kemur. Á langri ævi hefur þú upplifað tím- ana tvenna, gleði og sorg. Þú varst ætíð lítillát og miklaðir ekki allt það góða sem þú komst í verk, dróst frek- ar úr ef eitthvað var. Þú barst höfuðið hátt, hikaðir ekki við að takast á við ný verkefni og allt fram til síðasta dags fórst þú þínar leiðir á eigin for- sendum. Þú varst okkur, fjölskyldu þinni, glæsilegur leiðtogi og fyrir- mynd. Það er alltaf erfitt að kveðja ástvin og einkennilegt til þess að hugsa að maður eigi þess ekki lengur kost að koma við hjá þér, amma, spjalla og sötra kaffi umvafinn kærleika og létt- leika. Nærvera þín var afskaplega þægileg og ég veit að það fundu allir sem til þín þekktu, jafnt ættingjar sem vinir og kunningjar. Það fann ég ekki hvað síst sjálfur þegar erfiðleik- ar steðjuðu að og manni leið illa, þá fann ég, amma, að þú skildir okkur svo vel og studdir eins og þér einni var lagið. Þó svo það sé erfitt að kveðja, þá kveð ég ekki með sorg í huga heldur með gleði og þakklæti. Ég er glaður yfir því að þú hefur nú fengið hvíld eftir frábæra frammi- stöðu og ég er þakklátur fyrir að hafa átt þig sem ömmu og vin. Guðmundur Jón. Fráfall vinkonu minnar og mág- konu vekur í senn söknuð og minn- ingar, um kærleiksríka vináttu. Sá sem lifað hefur lífi sínu í vináttu og kærleika skilur eftir sig minnisvarða sem mölur og ryð fá ekki grandað, það stendur eftir ljósið, sem lýsir upp myrkur sorgarinnar. Ég hugsa til baka með gleði í hjarta og þakka fyrir að hafa kynnst þér strax á unga aldri. Ef allir væru eins og þú væri heimurinn betri. Kveðjustundir við góða vini hafa djúp áhrif, þau örlög verða ekki flúin. Í kærri þökk kveð ég þig, yndislega vinkona, sem ávallt varst veitandi með allt sem var gott. Ég þakka einn- ig fyrir að þú hefir losnað úr fjötrum sjúkleika og bið Guð að blessa þig á braut eilífðarinnar. Þín vinkona Ólöf Guðjónsdóttir (Lalla). MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2005 23 MINNINGAR ✝ Drífa Gunnars-dóttir fæddist á Akureyri 25. febrúar 1942. Hún ólst upp á Tjörnum í Eyjafirði. Hún lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 30. desem- ber síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Gunnar Valgeir Jónsson, bóndi á Tjörnum í Eyjafirði, f. á Gili í Eyjafirði 8. júlí 1905, d. 26. des- ember 1972, og Rósa Halldórsdóttir, hús- freyja á Tjörnum, f. á Vöglum í Skagafirði 18. ágúst 1905, d. 4. desember 1990. Systkini Drífu eru: Jón Lúðvík, f. 12. maí 1927, Erna, f. 6. mars 1930, Hreinn, f. 28. febrúar 1932, d. 1994, Bryndís, f. 28. október 1934, Halldóra, f. 8. desember 1938, Hrafnkell, f. 5. desember 1943, d. 1950, Hörður, f. 15. september 1945, Ármann, f. 3. janúar 1949 og Skúli, f. 17. febrúar 1952, d. 1977. Drífa giftist á að- fangadag jóla 1962 Skildi Tómassyni, f. 19. október 1938. Þau eignuðust tvær dætur, þær eru: Hulda Tómasína, f. 19. janúar 1964, og Harpa, f. 19. septem- ber 1967. Drífa og Skjöldur bjuggu á Akureyri til 1979 en slitu þá samvistum. Drífa fluttist sama ár til Reykjavíkur og vann lengst af í Útvegsbankanum og síðar í Ís- landsbanka. Árið 1998 fluttist hún aftur til Akureyrar til að búa nærri dætrum sínum og hugsa um barnabarnið Drífu Sól, f. 16. mars 1994. Drífa verður jarðsungin frá Ak- ureyrarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Drífa sagði mér oft frá því hve fast ég hélt í fingurinn hennar þegar hún heilsaði mér í fyrsta skipti nokkurra daga gamalli. Það var mjög sérstakt þegar hún rifjaði upp ýmis lítil atvik sem þessi. Stundum var eins og sög- urnar sem hún sagði hefðu gerst í gær. Lýsingar hennar á ýmsum at- burðum, hvort sem um var að ræða gleði eða sorg, gerðu frásögnina lif- andi og minnisstæða. Strax sem lítið barn skynjaði ég sterkt trú Drífu á Guð. Þótt hún hafi ekki haft svo mörg orð um trúna við mig á þeim tíma fann ég fyrir þessari sterku trú í notalegri nærveru hennar. Einnig kom hún fram í ótal mörgum falleg- um munum sem hún gaf sínum nán- ustu, má þar nefna krossa og engla sem oft birtust í gjöfum frá henni. Þegar ég varð eldri var ég svo heppin að eiga margar og skemmtilegar samræður við Drífu sem staðfestu þessa tilfinningu mína sem barn. Það voru margar góðar stundir við eld- húsborðið hjá henni. Ósjaldan náði umræðuefnið út fyrir jarðlífið, vanga- veltur um lífið, tilveruna og ljósið. Bænin var henni einnig kær. Fjöl- margar bæði fallegar og spaugilegar hugmyndir kviknuðu varðandi hvað við tækjum okkur fyrir hendur hinum megin. Það var nefnilega stutt í húm- orinn hjá Drífu. Mig langar að láta fylgja eitt af uppáhaldsljóðum Drífu með þökk fyrir allar góðu stundirnar. Ljúfasta gleði allrar gleði er gleði yfir því sem er alls ekki neitt, engu sem er þér í valdi eða í vil, gleði yfir öllu, gleði yfir engu, gleðin; að vera til. Þyngsta sorg allrar sorgar er sorg yfir því, sem er alls ekki neitt hvorki yfir vitneskju, gruni eða gerð, sorg af því einu: að þú ert og hrærist á einhverri torskildri ferð. Sælan er dís þinna drauma dýpsta allrar sælu þér gaf, býr ekki í faðmlagsins flöktandi yl, nei, það er sælan með sjálfum þér einum, sælan: að hún er til. (Axel Juel.) Kæru frænkur, Hulda, Harpa og Drífa Sól, innilegar samúðarkveðjur, Guð veri með ykkur. Vala Björt Harðardóttir. Við fráfall elskulegrar móðursyst- ur minnar streyma fram margar fal- legar og góðar minningar. Fallega, brosandi Drífa teinrétt og ber höfuðið hátt. Þín fallega rithönd og hlýja faðmlag koma upp í hugann. Við átt- um sama afmælisdag og oftast hringdir þú 25. febrúar með afmæl- isóskir. Þín er sárt saknað af ástvin- um, frænka mín elskuleg. Ég bið algóðan Guð að umvefja þig í nýjum heimkynnum. Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum, hugsið ekki um dauðann með harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvelur, þótt látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Kahlil Gibran.) Minning þín lifir. Guðbjörg Haraldsdóttir. „Að kunna að gefa er náðargjöf.“ Hér sit ég með bók í hendi sem fjallar um ástina. Þessa bók fékk ég að gjöf frá Drífu frænku minni í októ- ber 2003. Mér finnst það einhvern veginn ekki passa að ég sé að skrifa minningargrein um frænku mína sem ég hélt að myndi verða svo miklu lengur með okkur. Drífa átti við mikil veikindi að stríða í nokkur ár. Hún lést úr krabbameini hinn 30. desem- ber síðastliðinn eftir erfiða sjúkdóms- legu. Ég á margar yndislegar minn- ingar frá því ég var ung og var að fara til Akureyrar í heimsókn til frænku. Faðmur hennar var ætið opinn og hlýju og ástúð sýndi hún svo sann- arlega í verki. Heimili Drífu, Skjaldar og dætranna í Hamragerði stóð ávallt opið okkur sem að sunnan komum. Enda ákvað ég að flytja til Akureyrar þegar ég yrði stór bara vegna þess að Drífa frænka bjó þar. Ég er reyndar ekki flutt enn … Drífa og Skjöldur slitu samvistum og flutti Drífa suður með Huldu og Hörpu og bjó þeim heimili í Reykja- vík. Drífa festi kaup á íbúðum í Barmahlíð, Hvassaleiti og Laufás- vegi. Drífa starfaði lengstan sinn starfsaldur hjá Íslandsbanka í Lækj- argötu. Lífsganga Drífu var oft þyrn- um stráð og fór hún ekki varhluta af erfiðleikum í lífinu. Tvisvar varð hún fyrir því að heim- ili hennar brann til kaldra kola, í fyrra skiptið var hún þriggja ára en í það seinna átta ára. Markaði það djúp spor í sálarlíf hennar. Árið 1998 urðu aftur tímamót í sögu Drífu því þá flutti hún aftur til Akureyrar ásamt Huldu dóttur sinni sem þá hafði fest kaup á húsi í Þingvallastræti. Drífa undi hag sínum vel og átti barnabarn- ið Drífa Sól ekki síst stóran þátt í því. Drífa elskaði börn, dýr, blóm og ljóð. Það fannst henni það fegursta í lífinu. Englar og fílar voru í miklu uppáhaldi hjá henni sem sýndi sig á heimilinu og margar gjafir báru vitni um. Ég sé hana í anda þegar hún hefur bankað upp á hjá Lykla-Pétri. Amma, afi, bræðurnir og pabbi minn hafa tekið vel á móti henni en jafnframt ávítað hana fyrir að koma svona fljótt. Hafðu þökk fyrir allt. Sofðu rótt. Þín frænka Rósa Rútsdóttir. Loka augunum. Leita að orðum sem lýsa bernskuminn- ingum er svo lifandi birtast í huga mér, man brosið svo einlægt og hlýtt. Finn hönd strjúka vanga létt og blítt, líkt og er fannhvít drífan frá himnum svífur til jarðar, man faðmlagið svo kærleiksríkt. Heyri sögurnar þínar, ljúfan hláturinn. Á köldum vetrardegi minningin ylur er. Ásta Hrönn Harðardóttir. Nokkur minningabrot um föður- systur mína Drífu. Drífu minnist ég hvað mest fyrir góðvild og hlýhug í garð manna og ekki síst dýra. Hún kom oft og dvaldi hjá okkur í sveitinni á Halldórsstöð- um. Eitt sumarið áttum við tvær hænur og einn hana mér sjálfri til lít- illar ánægju. Drífa var hins vegar mjög hrifin af þeim og gaf þeim óspart að éta, meira að segja kenndi hananum að éta uppi á tröppum þannig að ég varð að finna aðra út- gönguleið. Eitt vorið var ær úti við sem hafði lamast að aftan við burð. Drífa sá alveg um að gefa henni, fann fóðurblöndupoka og fór að lauma til hennar mat. Stundum oft á dag, en eitt veit ég að það gekk hratt á fóð- urblöndupokann. Ærin stóð fljótt upp og Drífa þakkaði sér og fóðurblönd- unni. Oftar en ekki laumaðist hún eft- ir matartíma og gaf hundunum af- gangana. Þegar Drífa kom í sveitina kom hún aldrei tómhent heldur var búin að safna matarafgöngum handa hundunum. Ófáa kaffibollana var ég búin að drekka hjá henni í Þingvall- astrætinu, hún var alltaf til staðar og gott að koma til hennar. Ósjaldan var Bjarney dóttir mín búin að stoppa hjá henni og spillti nú ekki fyrir ef Drífa Sól var hjá ömmu sinni. Drífa Sól var augasteinn ömmu sinnar og bar hún hag hennar ávallt fyrir brjósti. Á liðnu hausti fóru þær nöfnurnar og Hulda út til Mallorca. Var sú ferð Drífu afskaplega ánægjuleg en svolít- ið erfið því veikindi hennar voru orðin meiri en hún og aðrir gerðu sér grein fyrir. Nú hefur þú kvatt þennan heim og leitað á vit óþekktra ævintýra laus undan öllum þjáningum. Inn í heim sem er okkur framandi en sveipaður birtu og hlýju. Ég sé þig fyrir mér baðaða skæru ljósi þar sem foreldrar þínir og bræð- ur taka á móti þér af hlýju og um- hyggju. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð hjartans þakkir fyrir liðna tíð lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiðir sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Innilegar samúðarkveðjur til Huldu, Hörpu, Drífu Sólar og annarra ást- vina. Blessuð sé minning þín. Rósa S. Hreinsdóttir og fjölskylda. Drífa, vinkona mín, lést 30. desem- ber sl. Hún varð oft fyrir þungum áföllum um ævina. Trú hennar á Guð og hið góða fleytti henni í gegnum andstreymi tilverunnar. Hún var einnig sannfærð um líf eftir dauðann og endurfundi við látna ástvini. Fyrir u.þ.b. fimm árum greindist hún með illvígan sjúkdóm, sem að lokum hafði betur. Þótt hún gengi ekki heil til skógar átti hún góðan tíma með Huldu dóttur sinni og Drífu dótturdóttur. Á liðnu sumri dvöldu þær þrjár í vikutíma í sumarhúsi á Suðurlandi og aðra viku á Spáni nú á haustdögum. Þessar samvistir voru þeim öllum dýrmætur tími. Nú að leiðarlokum höfum við þrjár æskuvinkonur Drífu rifjað upp löngu liðna atburði og minnumst gömlu góðu daganna með gleði og jafnframt söknuði. Drífa var hugguleg, skemmtilegur og góður félagi, sem ætíð hafði svar á reiðum höndum. Hún var elst af okk- ur og við hinar yngri litum upp til hennar. Okkur fannst gott og gaman að vera í návist hennar. Á barnaskólaárum okkar áttum við góða daga á Möðruvöllum hjá Diddu vinkonu okkar og hennar fólki. Stundum læddumst við þrjár niður í búr á kvöldin og kræktum okkur í mjólkurkex, stungum því í vasann og mauluðum það undir sænginni. Þetta ágæta kex kallaði Drífa „vasakex“. Eitt sinn ákváðu nokkrir krakkar að fara í reiðtúr fram á Eyjafjarð- ardal og skyldi hópurinn hittast á Tjörnum. Drífa og Höddi bróðir hennar ætluðu með. Drífa fékk gráa meri til reiðar, sem hún treysti mjög takmarkað. Hópurinn var naumast lagður af stað þegar Grána um- hverfðist og rauk. Mjög fljótlega sneri hún við og hljóp upp bæjarhól- inn í átt til bæjar. Þegar upp kom beygði hún til norðurs og stefndi fram af honum, þar sem hann var brattastur. Þá var Drífu nóg boðið og henti sér af baki á réttu augnabliki. Svo mikil var ferðin á þeim að Drífa rann á fleygiferð niður hólinn, en Grána hvarf á bak við hann með flaksandi hnakklöfin. Drífa stóð snar- lega á fætur og kom til okkar, þar sem við biðum með öndina í hálsinum. „Þessu átti ég von á,“ sagði hún. Nú varð Brúnka frá Kálfagerði reiðskjóti þeirra systkina og skilaði hún knöp- um sínum farsællega á leiðarenda. Á Tjörnum voru mörg börn sem þurfti að fæða og klæða. Því þurfti að fara vel með svo endar næðu saman, en þannig var það hjá þorra fólks á þessum árum. Enda var þá öldin önn- ur en nú er. Innflutningshöft og vöru- skömmtun var bæði á erlendum og innlendum vörum. Rósa móðir Drífu var mikil hann- yrða- og saumakona sem nýtti vel hvern efnisbút og gamla flík. Fyrir bragðið var klæðnaður Tjarnasystk- ina litríkari og nútímalegri en við átt- um að venjast og allar flíkur fóru vel. Ung að árum fór Drífa að sauma og prjóna föt á sig og jafnvel gefa öðrum. Fyrir hálfri öld voru margir bæir án vegasambands og þar á meðal Tjarnir, sem eru fremsti bær í Eyja- fjarðarsveit austan Eyjafjarðarár. Á þessum árum voru mjólkurbílarnir helstu samgöngutæki í mörgum sveitum, fluttu mjólk, vörur og fólk. Endastöð mjólkurbílsins var í Torfu- felli. Ef Tjarnafólk ætlaði að notfæra sér mjólkurbílinn til ferðalaga þurfti það að fara yfir Eyjafjarðará sem rennur við túnfótinn á Tjörnum og var oft á tíðum erfiður farartálmi. Síðan þurfti að ganga á fjórða kíló- metra. Í náttmyrkri, frosti og ófærð var það erfið för. Mjólkurbíllinn lagði af stað frá Torfufelli kl. sjö að morgni. Þegar þannig stóð á hefur Tjarnafólk orðið að taka daginn snemma. Drífa var góður teiknari og enn geyma sveitungar hennar myndir, jóla- og afmæliskort sem hún teiknaði á unga aldri og sendi vinum sínum. Hún var náttúruunnandi og mikill dýravinur. Þá hafði hún mikið yndi af ræktun blóma og jurta. Að leiðarlokum þakka ég vináttuna og samfylgdina fyrr og síðar. Huldu, Hörpu og Drífu sendi ég innilegar samúðarkveðjur og bið Guð að varð- veita þær. Inga. DRÍFA GUNNARSDÓTTIR Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartasjúklinga Sími 552 5744 Gíró- og kreditkortaþjónusta LANDSSAMTÖK HJARTASJÚKLINGA A u g l. Þ ó rh . 1 2 7 0 .9 7 Erfidrykkjur Salur og veitingar Félagsheimili KFUM & KFUK Holtavegi 28, 104 Reykjavík. Upplýsingar í síma 588 8899. www.kfum.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.