Morgunblaðið - 10.01.2005, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 10.01.2005, Blaðsíða 34
34 MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ Miðasala opnar kl. 15.30 Sýnd kl. 10.15. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 3.30 og 5.45. PoppTíví  Sýnd kl. 8. B.i. 14 ára. Jólaklúður Kranks Jólamynd fjölskyldunnarl fj ls l Jólaklúður Kranks Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára Sýnd kl. 6 og 8. Sýnd kl. 6. ÍSLENSKT TAL SMÁAR HETJUR STÓRT ÆVINTÝRI SMÁAR HETJUR STÓRT ÆVINTÝRI BLÓÐBAÐIÐ ER HAFIÐ VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ 20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI I I I I Í I I ÍSLANDSBANKI ... „séríslenskt Fönn, fönn, fönn!“  SV MBL ... í l , , !   "...bráðvel heppnuð skemmtun, grín og fjör..."  ÓHT rás 2 .. l t , rí fj r... r VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ 20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI ... „séríslenskt Fönn, fönn, fönn!“  SV MBL ... í l , , ! "...bráðvel heppnuð skemmtun, grín og fjör..."  ÓHT rás 2 ... l t , rí fj r... r   Sýnd kl. 4, 6, 8, 9 og 10. Sýnd kl. 4 og 6. ÍSLENSKT TAL kl. 4, 6, 8 og 10. Yfir 21.000 gestir Yfir 21.000 gestir WWW.BORGARBIO.IS Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15. B.i. 10 áraSýnd kl. 8 og 10. B.i. 10 ára QUEEN LATIFAH JIMMY FALLON GISELE BÜNDCHEN I QUEEN LATIFAH JIMMY FALLON GISELE BÜNDCHEN I Á FULLRI FERÐ MEÐ GRÍNIÐ Í BOTNI Í FRÁBÆRRI GAMANSPENNUMYND Á FULLRI FERÐ MEÐ GRÍNIÐ Í BOTNI Í FRÁBÆRRI GAMANSPENNUMYND EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS MIKIÐ var um að vera í listalífi landans um helgina en á laugardag voru margar myndlistarsýningar opnaðar. Ein þeirra var sýning hins mikilsvirta grallara Eg- ils Sæbjörnssonar og munu fádæma margir hafa lagt leið sína á sýninguna. Einhverjir gætu kannast við kauða sem höfund hljómdisksins Tonk of the Lawn sem naut mikilla vinsælda en samnefnt lag sló einmitt í gegn í bílaauglýsingu. Á nýliðnu ári tók Egill þátt í al- þjóðlegu vinnustofuprógrammi Kuenst- lerhaus Bethanien og sýndi þar verkið Herra Píanó og Frú Haugur sem nú er hægt að berja augum og eyrum í Gallerí 101 Reykjavík frá og með laugardeg- inum var. Í verkinu Herra Píanó og Frú Haugur vinnur Egill að eigin sögn í fyrsta skipti mikið með texta þar sem tvær sögupersónur, þau Herra Píanó og frú Haugur, ræða sín á milli um lífið og tilveruna og taka lagið þess á milli. Í verkinu er tekist á um bæði fé- lagsfræðileg, heimspekileg, fag- urfræðileg, tilvistarleg og pólitísk við- fangsefni. Egill leikur sjálfur hlutverkin en Helgi Svavar Helgason leikur á trommur og Frank Frede leikur á bassa. Húsfyllir á Herra Píanó og frú Haug  Tómas Lemarquis, Egill Sæ- björnsson og Ragnar Kjartansson. Morgunblaðið/Eggert Hallgrímur  Helgason, Oddný Sturludóttir og Egill Sæ- björnsson. Listalíf | Egill Sæbjörnsson opnar nýja sýningu Gríðarleg aðsókn var að sýningu Egils við opnunina, bókstaflega troðið út úr dyrum. MINNINGARTÓNLEIKAR um Pétur heitinn Kristjánsson á Broad- way síðastliðið fimmtudagskvöld staðfestu það sem raunar var vitað, að hann var vinmargur og dáður og hans er nú sárt saknað. Húsið var troðfullt út úr dyrum og allir gang- ar og stigar hússins nýttir til að koma öllum þeim tónleikagestum fyrir, sem komu til að votta minn- ingu hins látna rokkara virðingu sína. Á tónleikunum komu fram fjölmargir vinir og samstarfsmenn Péturs í gegnum tíðina og var mikið rokkað og „dúndrað“ eins og við hæfi var af þessu tilefni. Gamla kempan Ragnar Bjarna- son reið á vaðið, en tenging hans við Pétur heitinn er sú að Raggi var söngvari í hljómsveit föður Péturs, Kristjáns Kristjánssonar, KK- sextettinum, á sínum tíma, sem og Guðmundur „papa jazz“ Stein- grímsson sem lék á trommur í þessu atriði. Pétur var ekki hár í loftinu þegar hann fór að mæta á æfingar hjá KK-sextettinum með pabba sínum og sjálfsagt hefur þar verið sáð fræinu, sem seinna óx upp í þá gróskumiklu tónlistarflóru sem Pétur skildi eftir sig í íslensku dæg- urtónlistarlífi. Síðan stigu þeir á svið hver af öðrum, gamlir félagar og samstarfs- menn Péturs í gegnum tíðina, fyrsta útgáfan af Pops frá árinu 1966 og svo var ferillinn rakinn áfram, í gegnum hljómsveitirnar Náttúru, Svanfríði, Pelican, Para- dís, Póker, Start, Dúndrið, Gargið og hvað þær hétu nú allar sveitirnar sem Pétur heitinn stofnaði og stjórnaði á löngum og farsælum tónlistarferli. Smiðshöggið ráku svo félagar Péturs í nýjustu útgáfunni af Pops, sem hefur komið saman um hver áramót síðasta áratuginn eða svo. Hér verður ekki rakin frammi- staða einstakra hljóðfæraleikara á þessum tónleikum, en þeir stóðu all- ir fyrir sínu og sönnuðu að þeir hafa engu gleymt. Það var til dæmis sér- lega ánægjulegt fyrir gamla aðdá- endur Náttúru að sjá og heyra þá Björgvin Gíslason og Sigurð Rúnar Jónsson, Didda fiðlu, dusta rykið af gömlu Grieg-stemmunni, sem naut gríðarlegra vinsælda og virðingar á sínum tíma, á hippaárunum sællar minningar. Þeir Bjöggi og Diddi „brilleruðu“ reyndar í fleiri núm- erum þetta kvöld, sem og fjölmarg- ir fleiri tónlistarmenn á þessum tónleikum, og má þar nefna að skemmtilegt var að heyra aftur í trommaranum Sigurði Karlssyni eftir öll þessi ár og skynja svona sterkt að hann hefur engu gleymt. Þá kom Eiríkur Hauksson afar sterkur út, bæði sem söngvari og „performer“, en í sviðsframkomu er maðurinn hreinlega í sérflokki. Með því að tilgreina þessa menn er ekki verið að kasta rýrð á aðra sem lögðu fram krafta sína þetta kvöld, síður en svo. Þeir stóðu allir fyrir sínu og rúmlega það. Hápunktur kvöldsins var svo þegar allir tónlistarmennirnir stigu á svið og sungu og spiluðu saman einkennislag Péturs heitins, „Wild Thing“, eða „Vældarann“, eins og Pétur kallaði lagið. Risu þá tón- leikagestir úr sætum og sungu sam- an og var það afar áhrifamikið og tilfinningaþrungið augnablik, og vel við hæfi til að minnast hins ástsæla söngvara Péturs Kristjánssonar. Blessuð sé minning hans. Salurinn söng saman „Vældarann“ TÓNLIST Broadway Minningartónleikar um Pétur W. Krist- jánsson haldnir á Broadway fimmtudag- inn 6. janúar. Fram kom fjöldi söngvara og hljómlistarmanna sem voru vinir Pét- urs og unnu með honum að tónlist. Minningartónleikar um Pétur Kristjánsson Morgunblaðið/Jón Svavarsson Björgvin Gíslason lék listavel og sýndi að hann hefur engu gleymt. Sveinn Guðjónsson Morgunblaðið/Þorkell Jón Ólafsson, vinur og félagi Péturs heitins í mörgum sveitum, lék að sjálfsögðu á bassann á minning- artónleikunum og þandi radd- böndin þar sem við átti. Minningartónleikar um Pétur W. Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.