Morgunblaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 1
2005  FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR BLAÐ D B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A CHELSEA FAGNAÐI SIGRI Á MANCHESTER UNITED / D6 HEIÐAR Helguson og Brynjar Björn Gunn- arsson halda utan til Portúgals í dag ásamt leik- mannahópi Watford. Þar munu leikmenn Wat- ford, tuttugu að tölu, æfa í fjóra daga við góðar aðstæður og á milli æfinga grípa í golfkylfur, eins og Heiðar orðaði það við Morgunblaðið í gær. Bikarhelgi er á Englandi um helgina og þar sem Watford er úr leik var ákveðið að fara til Portúgals enda hefur verið mikið álag á leik- mönnum liðsins að undanförnu. Draumur Wat- ford um að komast í úrslitaleik deildabikar- keppninnar á Þúsaldarvellinum í Cardiff varð að engu í fyrrakvöld þegar liðið tapaði fyrir Liverpool, 1:0. ,,Við vorum bara ekki nógu góð- ir. Okkur tókst ekki að skapa nein færi enda spilaði Liverpool-liðið vel og gaf engin færi á sér. Nú getum við einbeitt okkur að deildinni og þar höfum við verk að vinna,“ sagði Heiðar. Heiðar og Brynjar til Portúgals Ég á bara eftir að fara í lækn-isskoðun og að henni lokinni skrifa ég undir hjá Stoke. Hlut- irnir hafa gerst hratt. Stoke setti sig í samband við mig um síðustu helgi og þegar ég fékk grænt ljós hjá Bochum var gengið frá þessu,“ sagði Þórður við Morgunblaðið í gær. Enginn íslenskur leikmaður hef- ur verið á mála hjá Stoke, sem er í meirihlutaeigu Íslendinga, frá því Brynjar Björn Gunnarsson lék með því stuttan tíma síðastliðið vor en auk Þórðar er vel mögulegt að Tryggvi Guðmundsson leiki með liðinu til vors sem lánsmaður frá FH. Þórður hefur verið afar óánægð- ur með stöðu sína í Bochum-liðinu á þessu tímabili en hann hefur að- eins fengið að spreyta sig í tveimur leikjum í tímabilinu, samtals í 52 mínútur. „Ég er mjög ánægður með þessi málalok og nú fæ ég heiðarlegt tækifæri til að komast í lið. Ég er búinn að vera í algjöru frosti hjá Bochum síðan í mars í fyrra og ég varð hreinlega að komast í burtu. Það verður gaman að spila á Eng- landi á nýjan leik. Ég hef séð marga leiki með Stoke í gegnum árin og menn sem þar eru til stað- ar þekkja nokkuð vel til mín,“ sagði Þórður. Guðjón Þórðarson, faðir Þórðar, var sem kunnugt er knattspyrnu- stjóri Stoke á árunum 1999–2002 og Bjarni bróðir hans lék í fjögur ár með liðinu frá 2000–2003. Þórður, sem verður 32 ára á árinu, hefur leikið með tveimur enskum liðum. Hann lék 10 leiki með Derby í úrvalsdeildinni árið 2001 og 7 leiki með Preston í 1. deildinni ári síðar. Þá hefur hann spilað með Bochum, Genk í Belgíu og Las Palmas á Spáni og á að baki 58 landsleiki. Þórður Guðjónsson til liðs við Stoke ÞÓRÐUR Guðjónsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, skrifar í dag undir eins og hálfs árs samning við enska 1. deildarliðið Stoke City. Þórður komst að samkomulagi við forráðamenn þýska 1. deildar- liðsins Bochum um að fá riftun á samningi sínum og fer hann því til Stoke án greiðslu en Þórður átti rúm tvö ár eftir af samningi sínum við Bochum. HJÁLMAR Þórarinsson, knatt- spyrnumaður úr Þrótti í Reykja- vík, lék sinn fyrsta leik með að- alliði Hearts í fyrrakvöld þegar liðið vann 2:1 útisigur á Liv- ingston í skosku úrvalsdeildinni. Hjálmar kom inná sem varamað- ur á 67. mínútu þegar staðan var markalaus og þótti hann sýna lipra takta og hleypa lífi í sókn- arleik liðsins. Livingston komst yfir þegar stundarfjórðungur var til leiksloka en Hearts skoraði tvö mörk á lokamínútunum og tryggði sér þar með sigurinn. Hjálmar, sem er 18 ára gamall, hefur verið í láni hjá Edinborg- arliðinu síðan í haust og hefur leikið með vara- og unglingaliði. Hann hefur staðið sig mjög vel með varaliðinu í undanförnum leikjum og ákvað John Robertson, knattspyrnustjóri Hearts, að verðlauna Hjálmar með því að velja hann í leikmannahópinn. „Hinn ungi Hjálmar og Saulios komu frískir inn,“ sagði Robert- son en Saulios Mikoluns, litháskur landsliðsmaður, kom inná á sama tíma og Hjálmar í sínum fyrsta leik. Hjálmar lék með Hearts „MAÐUR er kappklæddur á varamannabekknum og er að drepast úr kulda og er ég þó aldrei kyrr. Vegna þessa þá slepptum við æfingu í íþrótta- húsi hér í nágrenninu því hitinn þar inni var ekki nema fjórar gráður. Þetta er í raun alveg fá- ránlegt ástand hér enda skilst mér að það sé óvenju kalt hér í landi og auk þess ekki nokkur kostur á að hita húsin meira en gert er,“ sagði Viggó Sigurðs- son, en mikill kuldi er í keppn- ishöllinni í El Menzah í Tún- isborg þar sem íslenska landsliðið og fleiri leika sína leiki. Margir hafa brugðið á það ráð klæða sig í þykkar úlpur og m.a. hafa þjálfarar og liðsstjórar ver- ið klæddir líkt og þeir væru að stjórna knattspyrnuliði utandyra á íslensku haustkvöldi og sárafá- ir áhorfendur leikjanna verða að berja sér til hita. „Án þess að ég ætli að skella skuldinni á slakan leik okkar gegn Kúveitum þá verður að segja það eins og er að þessi kuldi er vart boðlegur til handknattleiks.“ „Kuldinn vart boð- legur“ Morgunblaðið/RAX Leikmenn íslenska landsliðsins fóru í gönguferð um Túnisborg í gær fyrir leikinn gegn Kúveit. Logi Geirsson, Róbert Gunnarsson, Markús Máni Michaelsson, Vilhjálmur Halldórsson og Hreiðar Guðmundsson. Sjá fréttir og úrslit frá HM á B2, B3, B4, B5, B6.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.