Morgunblaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 7
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2005 D 7
JÓN Arnór Stefánsson skoraði 5
stig fyrir lið sitt, Dynamo St. Pet-
ersburg, þegar liðið hélt sigurgöngu
sinni áfram í bikarkeppni Evrópu í
körfuknattleik í fyrrakvöld. Jón Arn-
ór og félagar hans lögðu Lamesos
frá Kýpur, 83:72, og hafa þar með
unnið alla tólf leiki sína í keppninni.
GYLFI Einarsson var meðal vara-
manna Leeds en kom ekki við sögu
þegar lið hans tapaði fyrir Derby
County, 2:0, í ensku 1. deildinni í
knattspyrnu í gærkvöld. Derby
komst í fimmta sæti deildarinnar
með sigrinum.
SCOTT Cassie, skoski knatt-
spyrnumaðurinn, kom ekki til
Skagamanna í gær eins og til stóð. Á
heimasíðu þeirra segir að komu hans
hafi verið frestað í 10–14 daga vegna
meiðsla sem hann hafi orðið fyrir á
æfingu í síðustu viku. Í Morgun-
blaðinu í gær kom hinsvegar fram að
Cassie hefði ekkert getað spilað und-
anfarna tvo mánuði vegna meiðsla í
baki en um það mátti lesa á nýsjá-
lenskum netmiðlum. Hann gekk til
liðs við Waikato á Nýja-Sjálandi í
nóvember en gat ekkert spilað með
liðinu.
STEFÁN Gíslason, knattspyrnu-
maður úr Keflavík, fer ekki til Häck-
en í Svíþjóð en hann var þar til
reynslu fyrr í mánuðinum. Á heima-
síðu Keflavíkur segir að Stefán hafi
gefið Häcken afsvar, og hugmyndir
sænska liðsins um greiðslu fyrir
hann hafi auk þess ekki verið merki-
legar. Þá verður ekkert af því að Sví-
inn Kenneth Gustavsson frá Trelle-
borg komi til Keflavíkur.
EGGERT Gunnþór Jónsson,
knattspyrnumaður frá Neskaup-
stað, er til reynslu hjá skoska úrvals-
deildarliðinu Hearts þessa dagana.
Eggert er 16 ára og er nýgenginn til
liðs við Þór á Akureyri eftir að hafa
leikið með Fjarðabyggð í 3. deild í
fyrra, og hann er í úrtakshópi fyrir
U19 ára landslið Íslands.
FLORENT Sinama-Pongolle,
sóknarmaður Liverpool, leikur ekki
meira með liðinu á þessu tímabili.
Pongolle meiddist illa á hné í deilda-
bikarleiknum gegn Watford í fyrra-
kvöld, aðeins þremur mínútum eftir
að hann kom inn á sem varamaður.
JÓHANNES B. Jóhannesson,
Brynjar Valdimarsson og Gunnar
Hreiðarsson skipa landslið Íslands í
snóker sem tekur þátt í Evrópu-
meistaramótinu á Möltu í mars. Lið-
ið var valið samkvæmt núgildandi
styrkleikalista meistaraflokks.
ENSKA úrvalsdeildarliðið Totten-
ham hefur komist að samkomulagi
við framherjann Mido sem er frá
Egyptalandi en hann er samnings-
bundinn ítalska liðinu Róma. Mido
verður hjá enska liðinu í 18 mánuði
sem lánsmaður. Að auki hefur félag-
ið samið við Mounir El Hamdaoui en
hann er 21 árs og er frá Hollandi.
FÓLK
ÁSTRALINN Lleyton Hewitt og
Andy Roddick frá Bandaríkjunum
tryggðu sér í gær sæti í undan-
úrslitum á opna ástralska meist-
aramótinu í tennis. Hewitt hafði
betur gegn Argentínumanninum
David Nalbandinan í maraþonvið-
ureign sem stóð yfir í á fimmtu
klukkstund. Hewitt vann tvö fyrstu
settin, 6:2 og 6:3, en Argentínumað-
urinn svaraði með því að vinna tvö
næstu, 6:1 og 6:3, en í oddasettinu
hafði Hewitt betur og sigraði í æsi-
spennandi leik, 10:8, og er þar með
kominn í undanúrslit á þessu móti í
fyrsta sinn í níu tilraunum.
Roddick gerði út um slaginn
gegn Rússanum Nikolkay Davy-
denko á einni og hálfri klukkstund,
6:3, 7:5 og 4:1, en Rússinn ákvað að
hætta keppni vegna öndunarerf-
iðleika.
Roddick og Hewitt mætast í und-
anúrslitum á morgun en í hinni
undanúrslitaviðureigninni leika
Svisslendingurinn Roger Federer,
sem er efstur á styrkleikalistanum
og hefur unnið 26 leiki í röð, og
Rússinn Martat Safin.
Í kvennaflokki bar Lindsay Dav-
enport sigurorð af heimakonunni
Alaiciu Molik en úrslitin urðu: 6:4,
4:6 og 9:7. Í undanúrslitum mætast
þær Davenport og Dechy annars
vegar og Maria Sharapova og Ser-
ena Willimas annars vegar.
Lleyton Hewitt marði
sigur í maraþonleik
Það hefur mikið verið rætt íNjarðvík hvort einhverjar
breytingar yrðu gerðar á leik-
mannahóp liðsins á
næstu dögum þar
sem bandarísku leik-
mennirnir Anthony
Lackey og Matt
Sayman höfðu ekki leikið vel að und-
anförnu. Einar, þjálfari liðsins, lét
þá félaga byrja á varamannabekkn-
um en Lackey skildi sneiðina sem
hann fékk frá þjálfaranum og skor-
aði grimmt utan af velli.
Grindavík hafði yfirhöndina til að
byrja með þar sem Páll Axel Vil-
bergsson fór á kostum og skoraði
með langskotum. Pressuvörn Njarð-
víkinga í 2. leikhluta setti gestina að-
eins út af sporinu en Darel Lewis
dró vagninn ásamt Páli.
Matt Sayman og Lackey komu
inn á og breyttu miklu þar sem
heimamenn skoruðu 9 stig í röð.
Staðan í hálfleik var 56:47 heima-
mönnum í vil, en Grindavík skoraði
fyrstu 6 stig síðari hálfleiks. Inn-
koma Halldórs Karlssonar í liði
Njarðvíkur breytti miklu á lokakafla
leiksins en hann einbeitti sér að því
að stöðva Pál Axel og tókst Halldóri
svo vel upp að landsliðsmaðurinn
skoraði ekki stig í 12 mínútur.
Heimamenn sýndu styrk sinn á
lokamínútunum og lönduðu sann-
gjörnum sigri.
Anthony Lackey var ánægður í
leikslok.
„Ég vildi sýna stuðningsmönnum
liðsins, stjórninni, þjálfaranum og
samherjum mínum að ég vil leggja
mig fram fyrir liðið. Og ég vil vinna
titla með þessu liði. Ég vissi að það
var ákveðin pressa á okkur en strák-
arnir hjálpuðu mér að fá þessi skot
sem fóru ofan í í þessum leik,“ sagði
Lackey.
„Það eru þrjár vikur í bikarúr-
slitaleik hjá okkur og þessi leikur
var eitt skref í átt að honum. Ég
vildi fá meiri baráttu og liðsanda í
liðið. Það tókst og ég er gríðarlega
ánægður með alla 10 leikmenn liðs-
ins sem komu við sögu. Við vorum
samstilltir í okkar aðgerðum og er-
um á réttri leið að mínum mati. Það
kemur ekkert annað til greina en að
vinna titla í vetur og við erum með í
baráttunni í deild og bikar,“ sagði
Einar.
„Leikurinn var góð skemmtun,
jafn og mikil barátta. En við klikk-
uðum á smáatriðum á lokakaflanum
þegar við áttum góða möguleika á að
vinna. En ég er ánægður með margt
í okkar leik en við töpuðum fyrir
Njarðvík á heimavelli og þeir eru
ekki þekktir fyrir að tapa mörgum
leikjum á þessum velli,“ sagði Einar
Einarsson, þjálfari Grindvíkinga.
Keflavík, Njarðvík og Snæfell eru
öll með 20 stig – Keflavík hefur leik-
ið 13 leiki en Njarðvík 15. Snæfell
hefur leikið 14 leiki.
Grindavík er í 8. sæti deildarinnar
með 14 stig að loknum 15 umferðum.
Lackey svar-
aði kallinu
NJARÐVÍKINGAR réttu úr kútnum eftir slælegt gengi í úrvalsdeild-
inni með því að leggja Grindavík að velli í gærkvöld í „Ljónagryfj-
unni“, 91:81, en Einar Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, brá á það
ráð að setja bandaríska leikmenn liðsins á varamannabekkinn í
upphafi leiks og svaraði Anthony Lackey kallinu með því að skora
sjö þriggja stiga körfur úr aðeins tólf tilraunum.
Davíð Páll
Viðarsson
skrifar
ÍVAR Ingimarsson hef-
ur átt góðu gengi að
fagna með enska 1.
deildarliðinu Reading
á leiktíðinni en læri-
sveinar Steve Coppells
eru sem stendur í
fjórða sæti deild-
arinnar og eru í harðri
baráttu um sæti í úr-
valsdeildinni. Ívar hef-
ur verið í byrjunarlið-
inu í öllum 34 leikjum
Reading á tímabilinu.
Hann hefur leikið stórt
hlutverk í varnarleik
liðsins og upp á síð-
kastið hefur Stöðfirð-
ingurinn verið að-
gangsharður upp við
mark andstæðinganna
en mark hans gegn
toppliði Ipswich á loka-
sekúndunum var hans
fjórða á leiktíðinni.
Ívar var valinn í úr-
valslið 16 leikmanna úr
fyrri hluta 1. deildar af enska
blaðinu The Observer á dög-
unum og nær undantekn-
ingalaust hefur hann fengið góða
dóma fyrir leik sinn. Menn hljóta
því að spyrja sjálfa sig. Hefur ís-
lenska landsliðið í knattspyrnu
efni á að njóta ekki krafta Ívars í
ljósi þess hve vel hann hefur
spjarað sig í ensku 1. deildinni í
vetur og eins hver staða lands-
liðsins er um þessar mundir?
Varnarleikur liðsins beið hálf-
gert skipbrot í leikjum þess í
undankeppni HM í haust og það
er alveg ljóst að landsliðsþjálf-
ararnir Ásgeir Sigurvinsson og
Logi Ólafsson hljóta að velta því
alvarlega fyrir sér að breyta um
varnaraðferð þegar flautað verð-
ur til leiks í undankeppni HM í
marsmánuði. Þriggja manna
varnarlínan sem lagt var upp
með í haust hefur virkað illa og
landsliðsþjálfararnir geta vart
annað en breytt um varnaraf-
brigði og stillt upp fjögurra
manna vörn. Í þeirri vörn á Ívar
heima, að mínu mati.
En málið er ekki alveg svona
einfalt. Hinn 20. ágúst síðastlið-
inn sendi Ívar Morgunblaðinu yf-
irlýsingu sem í stóð meðal annars
að hann gæfi ekki kost á sér í
landsliðið, a.m.k. meðan það væri
undir stjórn Ásgeirs og Loga. Ív-
ar var ósáttur við stöðu sína í lið-
inu og þegar hann fékk ekki
tækifæri í leiknum gegn Ítölum í
frægum leik á Laugardalsvelli
ákvað hann að gefa ekki kost á
sér í liðið. Frá því þessi yfirlýsing
var gefin út hefur Ívar ekki leik-
ið með landsliðinu.
Ívar: ,,Staðan óbreytt“
Ívar sagði við Morgunblaðið að
staðan væri óbreytt hjá sér hvað
landsliðið varðar. ,,Staðan er sú
sama og ég einbeiti mér bara al-
farið að Reading. Málið var að
mér fannst að þeir Ásgeir og
Logi væru búnir að mynda sér
ákveðna skoðun á mér og ég var
ósáttur að þeir skyldu ekki koma
út og kíkja á mig í leik með Read-
ing. Það hefur ekkert gerst og ég
hef ekki heyrt neitt í landsliðs-
þjálfurunum,“ sagði Ívar.
Logi: ,,Viljum höggva
á hnútinn“
Logi sagði við Morgunblaðið
að hann og Ásgeir færu út til
Englands í næsta mánuði þar
sem þeir myndu skoða leiki og
æfingar hjá Íslendingaliðunum,
ræða við þá íslensku leikmenn
sem þar eru að spila og spjalla
við þjálfara leikmannanna.
„Það er ætlun okkar að ræða
við Ívar. Það er okkar skylda að
heyra í honum hljóðið og vita
hvort afstaða hans hafi breyst og
hvort hægt sé að ræða málin við
hann. Við Ásgeir ætlum að hafa
öflugra eftirlitskerfi með at-
vinnumönnum okkar, bæði með
því að fara út og skoða þá og eins
erum við að koma okkur upp
gagnagrunni sem við ætlum að
fylla inn í eftir hvern leik þannig
að við höfum það fyrir framan
okkur hvað þessir strákar okkar
eru að gera. Þá munum við leita
eftir því við félögin og þjálfara
þeirra að þau sendi okkur allar
upplýsingar sem við getum feng-
ið. Við getum samt aldrei komist
yfir það sem mundum vilja gera
og Ívar hefur nokkuð til síns
máls, því miður fórum við ekkert
að horfa á hann. Við viljum
höggva á þennan hnút hvað varð-
ar Ívar. Þetta var aldrei djúp-
stæður ágreiningur á milli okkar
þjálfaranna og Ívars. Hann fékk
aldrei nema lof frá okkur þrátt
fyrir allt, en það er ætlun okkar
að ræða við hann og gefa honum
kost á að segja sína sögu. Þar
með er ekki sagt að við segjum
að hann spili en vissulega er Ívar
kostur í stöðunni ef við förum út í
að spila fjögurra manna vörn,“
sagði Logi.
Það er von undirritaðs að
landsliðsþjálfurunum verði
ágengt í að leysa þennan leið-
inlega hnút og að Ívar sjái að sér
og gefi kost á sér í íslenska lands-
liðið á nýjan leik. Ívar er afar
metnaðarfullur og samvisku-
samur leikmaður sem borið hef-
ur verið mikið lof á af kollegum
mínum á Englandi og íslenska
landsliðið þarf svo sannarlega á
slíkum leikmanni að halda í þeim
verkefnum sem fram undan eru á
árinu.
Gríðarlega erfiður leikur bíður
landsliðsins þegar undankeppni
HM hefst á nýjan leik eftir hlé og
þrátt fyrir tilraunir KSÍ um að
útvega liðinu verkefni fyrir þann
slag er fyrirséð að það tekst ekki.
Ísland sækir Króatíu heim 26.
mars og fyrir þann erfiða slag og
leikina sem eftir eru í keppninni
verða leikmenn, þjálfarar og
stuðningsmenn landsliðsins að
snúa saman bökum og stefna í þá
átt að rétta gengi landsliðsins við
og rífa það upp úr þeirri lægð
sem það hefur verið í.
Guðmundur Hilmarsson
Ívar á heima
í vörn
landsliðsins
Morgunblaðið/Kristinn
Ívar Ingimarsson
gummih@mbl.is
Á VELLINUM
ÞÓREY Edda Elísdóttir, stangarstökkvari úr FH,
mun ekki taka þátt í neinum mótum innanhúss í vet-
ur. Hún hefur ekki náð sér af meiðslum aftan í læri
sem hún hlaut undir lok síðasta tímabils og vill því
ekki taka neinu áhættu hvað innanhússtímabilið
verðar.
Þórey segir á heimasíðu sinni að hún sé nú fyrst
að byrja að hlaupa og lyfta eftir að hafa verið að
styrkja bak og fætur vegna meiðslanna í lærinu.
Þórey, sem átti frábæru gengi að fagna á síðasta
ári þar sem hún setti Norðurlandamet og hafnaði í
fimmta sæti á Ólympíuleikunum í Aþenu,
segist ekki vera í neinu keppnisformi enda ekki
snert stöngina frá því hún keppti á síðasta móti sínu
síðastliðið haust.
Þórey Edda
keppir ekkert
í vetur