Morgunblaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 5
HM Í HANDKNATTLEIK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2005 D 5 Vonandi var þessi leikur ekki sýn-ishorn af því sem koma skal í næstu tveimur leikjum í riðlinum því þá er næsta víst að íslenska liðið lýkur keppni hér í Túnis á laugardaginn, kemst ekki upp úr riðlin- um. Sannast sagna átti ég alls ekki von á góðum leik enda getumunurinn slíkur að það var aðeins skylduverk að sigra. Það gerðu strákarnir, þó svo að enginn glæsibragur væri á leik þeirra. Annað sem rétt er að hafa í huga er að þegar lið þarf að standa í vörn langtímum saman þá flýta menn sér gjarnan í sókninni. Þetta er alþekkt þó svo að æðibunugangurinn á ís- lensku leikmönnunum hafi verið óþarflega mikill. Hins vegar gaf Viggó Sigurðsson þeim sem lítið hafa fengið að spreyta sig til þessa færi á að gera það í gærkvöldi og all- ir vildu strákarnir sanna sig og gerðu því ef til heldur meira en þeir réðu við. Það var leikið meir af kappi en forsjá. Byrjunarliðið í gær var samt ekki langt frá því sem verið hefur. Hreið- ar Guðmundsson, sem lék sinn fyrsta leik, byrjaði í markinu og úti- leikmenn voru Dagur Sigurðsson, Einar Hólmgeirsson, Róbert Gunn- arsson, Alexander Petersson, Mark- ús Máni Michaelsson og Guðjón Val- ur Sigurðsson, en Ólafur Stefánsson lék í vörninni. Bæði lið hófu leikinn með flatri vörn, en áður en lauk höfðu ýmis tilbrigði verið reynd báð- um megin. Byrjunin var í lagi, Hreiðar varði nokkur skot á upphafsmínútunum og eftir sex mínútur var staðan orð- in 4:1 og 4:9 eftir stundarfjórðung. Viggó skipti oft um leikmenn og Ólafur kom snemma inn sem leik- stjórnandi, Arnór Atlason tók síðan þá stöðu en varð að fara af velli meiddur í upphafi síðari hálfleiks. Einar Hólmgeirsson ætlaði að nýta tækifærið vel og eftir sjö mínútur hafði hann gert tvö mörk í fjórum skotum. Undir lok fyrri hálfleiks voru að- eins „óreyndir“ leikmenn inn á í ís- lenska liðinu og þá náðu Kúveitar að minnka muninn lítillega, staðan 17:12 í hálfleik. Þeir hófu síðari hálf- leikinn á 4:1 og allt í einu var komin nokkur spenna í leikinn, altént var blaðamaður frá Kúveit, sem sat við hlið mér, orðinn nokkuð æstur og órólegur enda léku hans menn ljóm- andi vel. Það sem eftir var leiks var mun- urinn 3–4 mörk þar til síðari helm- ingur síðari hálfleiks hófst. Þá var staðan 23:20 en þær fimmtán mín- útur sem eftir voru tók íslenska liðið sig saman í andlitinu og gerði átta mörk gegn tveimur. Íslenska liðið verður ekki dæmt af frammistöð- unni í gær. Þetta var leikur sem allt- af var vitað að ynnist og það sat greinilega í undirmeðvitund manna. Verkefnið var leyst án nokkurs glæsibrags. Sigur án glæsileika ÍSLENSKA landsliðið vann sinn fyrsta sigur á heimsmeistaramótinu í handknattleik í gær þegar það lagði Kúveit með níu marka mun, 31:22. Það var lítill glæsibragur yfir leik liðsins og alveg ljóst að það þarf að gera mun betur á föstudaginn ætli það sér að leggja Rússa. Kúveitar léku reyndar sinn langbesta leik í mótinu, en engu að síður lenti íslenska liði í óþarflega miklum vandræðum þó svo að lokatöl- urnar séu ef til vill ekkert langt frá því að vera viðunandi. 012334%536  (  9 (   ::4:   / 6/(   ;         ; 01 20 01 2  848 $848 < 33 23 0 13  "* '%) = ( ::./>% )*  4%! &35 3662 4  .?  (  1  1 5 5 1   3  5 5 6   %   7  8 9 $ ( ) A  8B 5 5 372 557 1 5 5 1 5 $ (/ (? 0  48 5 5 5 5 6?  )  ( 5 5 5 5 $( 1 *1  5 5 5 0  5   )/( ?( 5 7 ( (: ( *(8 5  1  5 5 7 (   *(8 5 1 5  #  %(         073829#:5%;** >%9   8%  7  ")  *      *      & C 3,  + * + *   5 $   < , <(  . %..D4   ,6 $   -0 $(0  & ,    #,9 (   6 $))   <E* 2(       0 u kki el ð- að ur - om- g- na d- rar m t af n í rg AX ARNÓR Atlason sneri sig á vinstri ökkla á fimmtu mínútu síðari hálfleiks gegn Kúveitum á HM í gær og kom ekkert meira við sögu í leiknum. Elís Þór Rafnsson, sjúkraþjálfari landsliðsins, setti strax kælipoka um ökklann og batt um. Hann reiknaði ekki með að um alvarlega tognun væri að ræða. „Eins og þetta lítur út við fyrstu skoðun þá virðist ekki vera um alvarlega tognun að ræða og Arnór ætti að ná sér fljótlega,“ sagði Elís eftir leikinn. Gangi þetta eftir ætti Arn- ór að vera klár í slaginn gegn Rússum annað kvöld, en það skýrist betur í dag. Ekki alvarlegt hjá Arnóri „ÞETTA var eiginlega mjög erfitt og alveg fast á tímum. En svona vill þetta oft verða þegar leikið er við mun slakara lið. Við náðum ekki að vera 100% á tánum og gerðum okkur þetta óþarflega erfitt,“ sagði Einar Örn Jónsson eftir sigurinn á Kúveit. „Við vorum ansans klaufar í sókn- inni og flýttum okkur allt of mikið, en það gerist stundum þegar liðið stendur í vörn tvo þriðju hluta leiks- ins eins og við gerðum núna, þá verður of mikið óðagot í sókninni. Þá virðast menn ætla að flýta sér að skora og helst fjögur mörk í einu. Við náðum aðeins að hægja á okkur í lokin og ná sómasamlegum úrslit- um,“ sagði Einar Örn. „Óþarflega erfitt“ „VIÐ byrjuðum vel en gáfum síðan eftir. Það er erfitt að leika við Kúveitana, það er stemmning í þeim, þeir fagna hverju marki líkt og þeir séu að vinna heimsmeistara- keppnina jafnvel þótt þeir séu langt undir,“ sagði Markús Máni Michaelsson eftir sigurinn á Kúveitum. „Það má samt ekki gerast að við förum ekki í leiki af full- um krafti og lítum á leiki sem einhver skylduverkefni. Ég vona bara að Viggó [Sigurðsson] og Bergsveinn [Berg- sveinsson] taki ekki af okkur frídaginn á morgun þótt við höfum ekki staðið okkur betur en raun ber vitni um. Ég vona að þeir fyrirgefi okkur lélegan leik og við fáum nokk- urra klukkustunda tækifæri til að skoða okkur aðeins um í borginni, við höfum eiginlega verið í stofufangelsi síðan við komum til Túnis á föstudag. Níu marka sigur er vissulega þokkalega sannfærandi en um tíma var kominn smáskjálfti þegar munurinn var kom- inn niður í þrjú mörk. En svona fór þetta, því verður ekki breytt úr þessu,“ sagði Markús Máni. „Höfum verið í stofufangelsi“ g- að ð eik m pti n. NIKOLA Markovic, landsliðsþjálfari Kúveita, var í sjöunda himni með frammistöðu sinna manna gegn Íslendingum. „Þeir léku samt aðeins á 80% getu, þeir eiga að geta leikið enn betur. Menn tóku sig hins vegar heldur betur saman í andlit- inu eftir hroðalegan leik gegn Rússum í annarri umferð, enda voru menn staðráðnir í því. Ég býst við að liðið eigi eftir að leika enn betur í næstu leikjum en það gerði gegn Íslendingum þótt ég sé ánægður með þann leik,“ sagði Markovic. Fjölmiðlamenn frá Kúveit sem eru á heims- meistaramótinu skildu ekkert í þeim stakka- skiptum sem urðu á landsliði þeirra á milli daga og spurðu þjálfara sinn ítrekað hvað hefði gerst. Markovic gaf engar skýringar á því en ýmsum rann í grun að hann hefði háttað menn niður í rúm strax eftir kvöldmat á þriðjudaginn. Ánægður þjálfari Kúveita Skúli Unnar Sveinsson skrifar frá Túnis  DÓMARAPARIÐ pólska, sem dæmdi leik Íslands og Kúveit í gær, var afskaplega slakt, en þetta er sama parið og fékk einstaklega góða dóma fyrir að dæma úrslitaleikinn á Ólympíuleikunum í fyrrasumar. Greinilegt að dómarar geta átt jafn- misjafna daga og leikmenn.  HEIMAMENN í Túnis eiga ekki orð yfir veðurfarið þessa dagana. Hitastigið í íþróttahöllinni í Menzha á meðan síðasti leikur kvöldsins í gær fór fram, Ísland á móti Kúveit, var 3,8 gráður.  VARAMENN og aðrir sem sátu á varamannabekkjum liðanna voru líka kappkæddir, þjálfari Kúveita meðal annars í úlpu. Viggó var ekki í úlpu, sat rólegur á bekknum fram í miðjan fyrri hálfleikinn en stóð þá upp, trúlega til að halda á sér hita.  ÞJÁLFARI Tékka rauk á dyr um leið og flautað var til loka leiks liðs- ins við Rússa. Leikmenn sátu hins vegar niðurlútir á bekknum og gólf- inu á meðan þjálfarinn rauk fram hjá þeim án þess að yrða á þá og á dyr.  ROLAND Eradze og Vilhjálmur Halldórsson hvíldu í leiknum í gær. Roland átti að spila en hætt var við það þar sem hann kennir aðeins til í hægri öxlinni. „Þetta er ekkert al- varlegt. Ég verð tilbúinn í Rússana,“ sagði Roland.  ÍSLENSKA liðið skorar alltaf færri og færri mörk í leikjunum á HM. Í fyrsta leiknum, við Tékka, gerðu leikmenn 34 mörk, 33 í öðrum leiknum, sem var við Slóvena, og í gær 31 gegn Kúveit.  ALLIR leikmenn liðsins skoruðu mark í gær, nema markverðirnir Birkir Ívar og Hreiðar.  ÍSLENSKA liðið mun fá bæjar- leyfi í dag og er þetta í raun fyrsti frídagur þess. Það hefur verið lokað inni á hóteli síðan það kom, en í dag verður haldið í gamla bæinn í Túnis eftir árdegisæfingu og strákunum gefið færi á að skoða mannlífið. „ÉG vil ekki mála frammistöðu okkar í of dökkum litum, þetta eru oft erfiðustu leikirnir að spila,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson hornamaður eftir sigur á Kúveit í íþróttahöllinni í El Menzah í gær- kvöldi, 31:22. „Auðvitað áttum við og gátum unnið þetta lið með 20 til 25 mörkum en þessi níu marka munur dugði til sigurs, var akk- úrat það sem við þurftum til þess að vinna. Það var ef til vill aðeins svekkelsi í mannskapnum eftir tapið fyrir Slóvenum, þá töpuðum við mjög klaufalega. Við töluðum um að vera búnir að rífa okkur upp úr þeim leik þegar kom að þessum við Kúveita, en það er staðreynd að það er alltaf erfitt að gíra sig inn í annan leik eftir að hafa orðið fyrir sárum von- brigðum eins og við urðum fyrir með leikinn gegn Slóvenum. Síðan er einnig alltaf erfitt að stilla sig inn á þessa leiki við þær þjóðir þar sem við erum fyrir fram taldir miklu betri. En við náðum í tvö stig og það skiptir mestu máli þeg- ar upp er staðið,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson. „Sigur skipti mestu máli“ ÞANNIG vörðu íslensku mark- verðirnir í leiknum gegn Kúv- eit.  Hreiðar Guðmundsson 11 (þar af 2 til mótherja) 5 lang- skot, 3 (2) eftir gegnumbrot, 2 af línu, eitt úr horni.  Birkir Ívar Guðmundsson 8 (þar af 5 til mótherja) 5 (4) langskot, 1 gegnumbrot, 1 úr horni, 1/1 af línu. Þannig vörðu þeir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.