Morgunblaðið - 27.01.2005, Qupperneq 3
HM Í HANDKNATTLEIK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2005 D 3
0(.1
*
0
2(
3,4
-0
$(0
$)
5
$
3%/3,
6*
/
7
$
7
)7
)
$
68$)
$%
&
%
'
(
(
)
!
*+
$
,-.
$
'
/-. (&
+,-,
.
//
*
0 8
$)
2(
3,4
-0
$(0
5
$
3%/3,
7
$
6*
/
%(07
Það er hægt að segja sem svo aðstrákarnir hafi unnið skyldu-
sigur en ekki tommu meira en það.
Mér fannst skína út
úr mönnum hálfgert
áhugaleysi og það
var eins og enginn
leikmaður nennti að leggja á sig eitt-
hvað meira en þurfti. Samt unnum
við níu marka sigur. Auðvitað getur
maður verið ánægður með það og
vonandi dugar þetta til að koma lið-
inu upp úr þeirri holu sem það var
búið að grafa sig í.“
Guðjóni fannst Kúveitar fá að
hanga ansi lengi á boltanum og fyrir
vikið gerðust íslensku varnarmenn-
irnir allt of oft óþolinmóðir og við það
opnaðist vörnin.
„Það getur verið ergilegt að spila
gegn svona liði en menn eiga þó alla
vega að geta haft gaman af því sem
þeir eru að gera. Það vantaði hins
vegar algjörlega gleði í leik íslenska
liðsins og neistinn var ekki til staðar
hjá leikmönnum. Það spiluðu fáir vel
hjá Íslendingum. Einar Hólmgeirs-
son komst best frá leiknum. Hann
var sprækur þó svo hann hafi tekið
þátt í vitleysunni á köflum. Aðrir
leikmenn voru daufir og mistækir og
það var hálfgerð flatneskja yfir
þessu öllu hjá íslenska liðinu.“
Agaleysi í sókninni
„Sóknarleikurinn var í heildina
séð agalaus og það sama má kannski
segja um varnarleikinn. Menn voru
að rjúka of mikið út úr sínum stöðum
og það skein einhvern veginn í gegn
að leikmenn voru ekki með einbeit-
inguna í lagi. Menn voru meðvitaðir
fyrir leikinn um styrk andstæðings-
ins og strákarnir vissu alveg að þeir
færu með sigur af hólmi. Þegar
þannig háttar til getur oft verið stutt
í kæruleysið og að menn séu ekki
nógu einbeittir í því sem þeir gera.
Kannski hafa menn ekki náð sér upp
eftir svekkelsið á móti Slóvenunum
en ég bjóst samt við að menn kæmu
miklu grimmari til leiks, þó það hefði
ekki verið nema til að sýna fólkinu
hér heima og sjálfum sér hvað er
spunnið í þá.“
„Menn geta haft ýmsar skoðanir á
hvernig Viggó stillti upp liðinu en ég
held að hann hafi gert alveg rétt.
Mér fannst ekkert óeðlilegt við
skiptingarnar og liðsvalið og Viggó
gaf flestum tækifæri á spila.“
Guðjón segir hugsanlegt að menn
hafi verið að spara sig fyrir leikinn
gegn Rússunum sem fram fer á
morgun.
Hef ekki trú á að Viggó
lesi mönnum pistilinn
,,Það má vera að menn hafi verið
byrjaðir að hugsa um þann leik enda
sá leikur algjör úrslitaleikur fyrir ís-
lenska liðið. Ég er sannfærður um að
Viggó sé ekkert að lesa mönnum
pistilinn þó að þeir hafi ekki leikið vel
en strákarnir vitað það eflaust
manna best að þeir verða að skila al-
gjörum toppleik á móti Rússunum til
að leggja þá að velli. Í þeim leik dug-
ar ekkert að spila vel hluta af leikn-
um heldur verður liðið að skila heil-
steyptum leik í 60 mínútur.
Við eigum enn góða möguleika á
að fara áfram í milliriðilinn og ef öll
úrslit verða okkur í vil þá getur ís-
lenska liðið farið með þrjú stig með
sér og verið í góðum málum í milli-
riðlinum.“
Riðillinn galopinn
Riðillinn okkar er enn galopinn og
þetta er allt í okkar höndum. Það er
mikið eftir af innbyrðis leikjum en til
þess að draumurinn verði að veru-
leika verðum við að taka rússneska
björninn og með góðum leik er það
vel mögulegt. Mér finnst strákarnir
eiga enn töluvert inni og vonandi
springa þeir út á réttum tíma,“ sagði
Guðjón Árnason.
Skyldusigur en
ekki tommu
meira en það
LEIKUR íslenska liðsins var ekkert til að hrópa húrra fyrir og síður
en svo. Ég átti ekki von á neinum glansleik en að liðið myndi spila
miklu betur en það gerði,“ sagði Guðjón Árnason, HM-spekingur
Morgunblaðsins, eftir níu marka sigur Íslendinga á Kúveitum á
heimsmeistaramótinu í handknattleik.
Guðjón Árnason segir vanta meiri neista og leikgleði
■ Staðan/B6
Eftir Guðmund
Hilmarsson
DANIR rótburstuðu Kanada-
menn, 52:18, í A-riðli heimsmeist-
aramótsins í handknattleik í Tún-
is í gær en staðan í hálfleik var
27:11 í hálfleik. Lars Christiansen
skoraði 14 mörk fyrir Dani sem
eru efstir í riðlinum og Christian
Hjermind skoraði 11 mörk fyrir
Dani.
Torben Winther þjálfari Dana
sagði eftir leikinn að slíkir leikir
væru tímasóun á heimsmeist-
aramóti – en hann var á sömu
skoðun eftir stórsigur Dana gegn
Angólum. En Danir hafa sigrað í
fyrstu þremur leikjum liðsins en á
föstudag mætir liðið heimamönn-
um í Túnis og Frökkum á laug-
ardag.
Danir léku sér
að Kanada
KULDAR í sunnanverðri Evrópu
hafa ekki farið framhjá fólki í
Túnis undanfarna tvo daga og
kaldir vindar hafa leitað suður
fyrir Miðjarðarhafið á norður-
strönd Afríku. Hiti í Túnisborg
hefur fallið niður undir frostmark
sem er harla óvenjulegt en síð-
ustu helgi þegar heimsmeist-
aramótið hófst var hitinn í kring-
um 15 stig og þótti heimamönnum
svo kalt að þeir klæddust þykkum
úlpum sem eingöngu eru notaðar
af Íslendingum í vetrarkuldum. Í
gær tók síðan steininn úr að mati
Túnisbúa þegar það fór að snjóa.
Að vísu náði ekki að festa eða
gera grátt í rót en slydduhragl-
andinn var nægur til þess að uppi
varð fótur og fit hjá mörgum
enda um afar sjaldgæfan viðburð
að ræða. Mun þetta hafa verið í
fyrsta sinn í að minnsta kosti
fimm ár sem snjór sést falla af
himni ofan í Túnis, að sögn veð-
urglöggra manna.
Fyrsti
snjórinn í
fimm ár
SLÓVENAR rúlluðu yfir Alsírbúa
þegar liðin mættust í fyrsta leik
B-riðils HM í handknattleik í gær.
Lokatölur 33:28 eftir að Slóvenar
höfðu mest náð ellefu marka for-
ystu snemma í síðari hálfleik.
Staðan í leikhléi var 19:14 en Als-
írbúar höfðu betur framan af
leiknum og voru meðal annars 9:6
yfir um miðjan fyrri hálfleikinn.
Siarhei Rutenka, hinn magnaði
leikmaður Slóvena, sýndi í leikn-
um hvers vegna hann er talinn
einn besti leikmaður heims í stöðu
skyttu vinstra megin. Hann skor-
aði 13 mörk í gær í öllum regn-
bogans litum, af línu, en þangað
skellti hann sér þegar Slóvenar
voru einum færri, úr horni, með
gegnumbrotum og auðvitað með
sínum glæstu langskotum.
Eftir fína byrjun virtist allur
vindur úr Alsírbúum, þeir gerðu
aragrúa mistaka í sókninni og
vörnin hjá þeim var ekki upp á
marga fiska. Þeir léku 5-1 vörn
og stundum 3-2-1 og skelltu sér
síðan í furðulega vörn þegar þeir
voru einum fleiri. Þá léku þeir 1-5
vörn með fimm leikmenn fram
undir miðju og síðan eina vara-
skeifu á vítateignum. Í sókninni
eru þeir mjög hreyfanlegir og
boltinn gengur hratt manna á
milli þannig að vörn mótherjanna
verður að vera vel á verði. Alsír
er sýnd veiði en ekki gefin eins og
úrslitin í leik þeirra og Tékka
sanna.
Auk Rutenka í liði Slóvena átti
markvörðurinn Bend Lapajne
stórleik eftir að hann kom inn á
um miðjan fyrri hálfleikinn, varði
eins og berserkur einn á móti
sóknarmönnum Alsíringa. Hann
lék ekki á móti Íslendingum.
Alsírbúar
sprungnir?
RÚSSAR sýndu Tékkum enga mis-
kunn og tryggðu sér sæti í milliriðli
HM með öruggum og verðskuld-
uðum sigri í gær, 25:21, eftir að
jafnt var í hálfleik, 12:12. Í leik sem
var frábærlega vel spilaður átti
Alexei Kostigov, markvörður
Rússa, sannkallaðan stórleik, varði
um 20 skot og var tvímælalaust
besti leikmaður liðsins, en annars
er rússneska liðið geysisterkt og
ljóst að miðað við frammistöðuna
gegn Tékkum verður allt að ganga
upp hjá því íslenska ætli að það að
gera Rússunum skráveifu.
Leikurinn var nokkuð í járnum í
fyrri hálfleik og það var ekki fyrr
en í byrjun þess síðari sem Rússar
náðu aðeins að komast fram úr, en
þó ekki meira en tvö mörk fyrr en
átta mínútur voru eftir, þá tókst
þeim að ná þriggja marka forskoti.
Þá létu þeir kné fylgja kviði og
bættu við forystuna. Var það ekki
síst vegna stórleiks Kostigovs sem
varði margoft í opnum færum.
Rússneska liðið er geysierfitt við-
ureignar jafnt í vörn og sókn. Það
leikur 6/0 vörn að vanda en getur
einnig leikið 5/1 með sóma eins og
sjá mátti gegn Tékkum. Hornamað-
urinn Eduard Kokcharov er afar
góður og einnig línumaðurinn
Mikhail Tchipourine sem vinnur af-
ar vel fyrir liðið og er sterkur sem
naut. Skytturnar Júri Egorov og
Alexei Rastvorsev eru stórir og
sterkir en kvikir á fótum og Daniel
Chernov er einnig góður skotmað-
ur auk þess að stjórna leik liðsins af
mikill röggsemi. Pavel Baskhin
leikur í hægra horninu og þarf ekki
mikið pláss til að athafna sig og
nýtir færi sín vel. Þá er hin unga
örvhenta skytta Alexei Peskov svo
sannarlega maður framtíðarinnar
þótt hann leiki ekki stórt hlutverk
hjá Rússum í þessu móti.
Rússneski björninn
sýndi enga miskunn
SPÁNVERJAR léku Svía grátt í
ótrúlegum sveifluleik í C-riðlinum á
HM í Túnis í gærkvöld. Svíar kom-
ust átta mörkum yfir í fyrri hálf-
leik, 14:6, og voru yfir í hléi, 17:14. Í
seinni hálfleik voru það hinsvegar
Spánverjar sem tóku öll völd á vell-
inum og unnu sannfærandi sigur,
33:26. Það liggur nánast ljóst fyrir
að þessi lið halda bæði áfram
keppni, ásamt Króötum, en þessi
úrslit geta ráðið miklu um niður-
stöðu í milliriðlinum þar sem barist
er um að komast í undanúrslit
mótsins. Leikurinn var í járnum
lengi vel í seinni hálfleik, staðan
var 27:26, Spánverjum í hag, þegar
sjö mínútur voru eftir, en eftir það
hrundi leikur Svía og þeir skoruðu
ekki fleiri mörk.
Mariano Ortega skoraði 7 mörk
fyrir Spánverja í leiknum og Johan
Pettersson gerði 7 mörk fyrir Svía.
Svíar voru
leiknir grátt