Morgunblaðið - 27.01.2005, Qupperneq 8
GUÐMUNDUR E. Stephensen og
félagar hans í sænska borðtennis-
liðinu Malmö FF unnu öruggan sigur
á Lectus Köping. 6:0, í 13. umferð
sænsku úrvalsdeildarinnar í fyrra-
kvöld. Guðmundur lagði andstæðing
sinn, Matts Quiling, 3:0 (11:8, 11:9 og
14:12). Malmö, sem á titil að verja, er
í þriðja sæti deildarinnar með 20
stig, Eslöv er efst með 22 og Falken-
berg hefur 21.
NIGEL Martyn markvörður Ever-
ton, hefur framlengt samning sinn
við liðið um eitt ár og gildir samning-
urinn til vors 2006. Þessi 38 ára
gamli fyrrverandi markvörður
Leeds og enska landsliðsins hefur
staðið sig feikilega vel á milli stang-
anna í vetur og góð frammistaða
Everton er ekki síst honum að
þakka.
OLYMPIC Fribourg sem sló
Keflavík út úr bikarkeppni Evrópu í
körfuknattleik í síðustu viku mætir
öðru svissnesku félagi, BC Bon-
court, í undanúrslitum mið- og vest-
urdeildar keppninnar, en leikurinn
verður leikinn 16. febrúar nk.
BC Boncourt varð svissneskur
meistari sl. vor, eftir sigur á Fri-
bourg í úrslitum. Liðið er sem stend-
ur efst í svissnesku deildinni, en
Fribourg er í því sjötta. Liðin hafa
mæst einu sinni í deildinni í vetur og
þá sigraði Boncourt 110:92.
Í norðurdeildinni eru þrjú rúss-
nesk félög í undanúrslitum. Dynamo
Moskva mætir EURAS Ekaterin-
burg og Lokomotiv Rostov mætir
BC Siauliai frá Litháen. Í undanúr-
slitum suðurdeildarinnar eru tvö fé-
lög frá Kýpur. Keravnos Keo mætir
Banvit frá Tyrklandi og Apollon
Limassol mætir CSU Asesoft
Ploieisti frá Rúmeníu.
HERNAN Crespo, framherji AC
Milan, hefur verið valinn í argent-
ínska landsliðshópinn í knattspyrnu
á nýjan leik fyrir vináttuleik Argent-
ínumanna gegn Þjóðverjum sem
fram fer í Düsseldorf í næsta mán-
uði. Crespo hefur ekki leikið með
Argentínumönnum síðan í júní á síð-
asta ári en hann hefur staðið sig vel
með AC Milan á leiktíðinni og fannst
Jose Pekerman, landsliðsþjálfara
Argentínumanna, ekki stætt á öðru
en að velja Crespo í hópinn.
LIVERPOOL hefur í hyggju að
reyna að fá vandræðagemlinginn
Craig Bellamy frá Newcastle til liðs
við sig. Bellamy vill yfirgefa New-
castle enda hefur hvað eftir annað
kastast í kekki milli hans og Graeme
Souness, knattspyrnustjóra, síðast í
vikunni en þá kallaði Bellamy
Souness lygara og fékk að gjalda
fyrir það með 80.000 punda sekt.
FORRÁÐAMENN ítalska knatt-
spyrnuliðsins Inter hafa gefið það út
að brasilíski framherjinn Adriano sé
ekki falur. Vitað er af áhuga Real
Madrid á leikmanninum og sjálfur
sagði hann í viðtali við spænska sjón-
varpsstöð að hann vildi spila fyrir
Real Madrid einn daginn. Götublað á
Bretlandi greindi frá því í gær að
Jose Mourinho væri sömuleiðis mjög
spenntur fyrir Adriano og væri
reiðbúinn að bjóða Inter 50 milljónir
punda í leikmanninn í sumar.
MANCHESTER City hefur fengið
hollenska leikmanninn Kiki Mus-
ampa að láni frá spænska liðinu
Atletico Madrid en hann er 27 ára
gamall vængmaður. Musampa hefur
lítið leikið í vetur með Atletico
Madrid en hann verður líklega með
City gegn Newcastle 2. febrúar.
RADEK Cerny markvörður tékk-
neska liðsins Slavia frá Prag verður
í herbúðum enska úrvalsdeildarliðs-
ins Tottenham næstu 18 mánuðina
sem lánsmaður. Hann er þrítugur og
fór í læknisskoðun í London í gær en
eigendur Tottenham, ENIC, eiga
einnig hlut í tékkneska liðinu.
FÓLK
Tilboðið, sem Charlton er sagtvera að undirbúa í Heiðar,
hljóðar upp á 1,2 milljónir punda
eða sem svarar um 142 milljónum
íslenskra króna.
Heiðar sagði við Morgunblaðið í
gær að hann hefði ekki heyrt neitt
frá Charlton enn sem komið væri
að minnsta kosti. ,,Þetta verður
bara að koma í ljós en það eru
ekki margir dagar til stefnu þar
sem leikmannamarkaðurinn lokast
um mánaðamótin. Ég veit um einn
leik sem menn frá Charlton voru
mættir til að fylgjast með mér en
þeir hafa ekkert sett sig í samband
við mig,“ sagði Heiðar við Morg-
unblaðið í gær.
Hermann: „Veit að þeir hafa
sýnt Heiðari áhuga“
Hermann Hreiðarsson, sem er á
mála hjá Charlton, sagði við Morg-
unblaðið í gær að það eina sem
hann vissi væri að Charlton hefði
sýnt Heiðari áhuga. ,,Ég veit að
menn frá okkur hafa verið að
skoða Heiðar en hvort tilboð er
komið eða er á leiðinni veit ég ekki
um. Charlton ætlar að fá nýjan
framherja og þjálfararnir hjá okk-
ur hafa leitað álits hjá mér á
Heiðari og ég hef auðvitað lagt inn
gott orð fyrir hann. Heiðar er bú-
inn að standa sig rosalega vel í
vetur og hann getur vel spjarað
sig í úrvalsdeildinni,“ sagði Her-
mann.
Heiðar Helguson enn
orðaður við Charlton
HEIÐAR Helguson, framherji enska 1. deildarliðsins Watford, er
enn og aftur orðaður við úrvalsdeildarlið Charlton í enskum fjöl-
miðlum. Í Evening Standard er sagt að Alan Curbishley, knatt-
spyrnustjóri Charlton, hafi gefist upp á að reyna að fá Darren Bent,
framherja Ipswich, í sínar raðir. Hann sé of dýr þar sem Ipswich hafi
sett 5 milljón punda verðmiða á leikmanninn og þess í stað ætli
Curbishley að gera tilboð í Heiðar, sem hann hefur fylgst grannt
með á undanförnum vikum.
Á Ólympíuleikunum í Sydney ár-ið 2000 hlaut Alshammar
tvenn silfurverðlaun í 50 og 100
metra skriðsundi og á leikunum í
Aþenu síðastliðið sumar hafnaði
hún í fjórða sæti í 50 metra skrið-
sundi. Hún varð Evrópumeistari í
sömu grein á EM í Madríd í fyrra
og lenti í þriðja sæti á HM í 25
metra laug í Bandaríkjunum í októ-
ber síðastliðinn.
Fjöldi erlendra sundmanna tekur
þátt í mótinu ásamt öllum fremstu
sundmönnum Íslands. 27 lið taka
þátt í mótinu og þar af tíu erlend fé-
lög sem koma frá Svíþjóð, Molda-
vík, Danmörku, Færeyjum og Lúx-
emborg.
Auk Alshammers mæta til leiks
þrír aðrir afrekssundmenn. Jo-
hanna Sjöberg frá Svíþjóð sem á
Norðurlandamet í 100 metra flug-
sundi, sem er hennar aðalgrein
ásamt 100 metra skriðsundi. Sjö-
berg hefur átt fast sæti í landsliði
Svía og hefur unnið til margra verð-
launa á alþjóðlegum mótum. Emilie
Kirkegård kemur einnig frá Svíþjóð
en hún hefur keppt á mörgum mót-
um og keppti til að mynda á EM í
Vín í fyrra.
Einn besti bringusundsmaður
Norðmanna, Lars Erik Dæhlie, tek-
ur þátt í mótinu og verður gaman
að sjá hann kljást við besta Jakob
Jóhann Sveinsson, fremsta bringu-
sundsmann landsins, en þeir eiga
svipaða tíma.
Reuters
Sænski heimsmethafinn Therese Alshammar er hér í keppni í 100 m skriðsundi á heims-
meistaramótinu í Berlín á dögunum. Alshammar verður á meðal keppenda á sundmóti Ægis.
Heimsmethafi
í Laugardal
TERESA Alshammar frá Svíþjóð, ein besta sprettsundkona í heimi,
verður á meðal keppenda á alþjóðlegu sundmóti sem Sundfélagið
Ægir stendur fyrir í hinni nýju 50 metra innilaug í Laugardal um
helgina, en það hefst á morgun. Alshammer á heimsmetin í 50 og
100 metra skriðsundi í 25 metra laug sem hún setti á heimsmeist-
aramótinu fyrir fimm árum.