Morgunblaðið - 01.02.2005, Page 1
STOFNAÐ 1913 30. TBL. 93. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Afburðafær
listamaður
Ríkharður Örn Pálsson hrifinn
af Alina Dubik | Menning 36
Hláturkæti-
klúbburinn
Hefur það markmið að lengja
lífið með hlátri | Daglegt líf 21
Íþróttir í dag
Norðmenn lögðu heimsmeistarana
Stoke vildi fá Jóhannes Karl
Hugrún slær í gegn í sparkboxi
IYAD Allawi, forsætisráðherra
bráðabirgðastjórnarinnar í Írak,
hvatti í gær alla trúar- og þjóð-
ernishópa landsins til að taka
höndum saman eftir kosningarn-
ar á sunnudag. Allawi og þjóð-
arleiðtogar víða um heim fögnuðu
kosningunum sem sigri lýðræð-
isins á hryðjuverkamönnum.
Yfirkjörstjórnin í Írak sagði að
kjörsóknin hefði verið á bilinu 60–
75%, mest á svæðum Kúrda og
sjíta. Helsti kosningafulltrúi
Sameinuðu þjóðanna í Írak, Carl-
os Valenzuela, sagði að kjörsókn-
in hefði verið meiri á meðal súnní-
araba en búist var við. Hann lagði
þó áherslu á að hún hefði samt
verið lítil vegna árása og hótana
uppreisnarmanna sem reyndu að
spilla fyrir kosningunum.
„Allir Írakar ættu að taka
höndum saman til að byggja upp
Írak framtíðarinnar – hvort sem
þeir kusu eða ekki,“ sagði Allawi
og gaf til kynna að súnní-arabar
yrðu hafðir með í ráðum þegar
nýja þingið semdi stjórnarskrá.
„Það er undir okkur öllum komið
hvort hægt verður að byggja upp
land hagsældar og stöðugleika.
Ég ætla að hefja viðræður, sem
eiga að standa þar til ný stjórn
verður mynduð, til að tryggja að
rödd allra Íraka heyrist.“
„Geta ekki sigrað“
„Hryðjuverkamennirnir vita
núna að þeir geta ekki sigrað,“
sagði Allawi. Þjóðarleiðtogar víða
um heim tóku í sama streng og
hrósuðu írösku þjóðinni fyrir
hugrekki. Jacques Chirac Frakk-
landsforseti, sem var andvígur
innrásinni í Írak, hringdi í
George W. Bush Bandaríkjafor-
seta til að óska honum til ham-
ingju með kosningarnar. Kvaðst
Chirac vera ánægður með fram-
kvæmd þeirra. „Þessar kosningar
eru mikilvægt skref í átt að póli-
tískri endurreisn Íraks. Fyrirætl-
anir hryðjuverkahópanna hafa
brugðist.“
Reuters
Óttast að sjítar einoki völdin í Írak
PALESTÍNUMENN í Hebron á Vesturbakkanum lesa fréttir blaða um kosningarnar í Írak. Þær voru aðalefni allra
fjölmiðla í Mið-Austurlöndum í gær og margir þeirra létu í ljósi áhyggjur af því að sjítar einokuðu völdin í Írak og
mynduðu stjórn sem yrði fjandsamleg í garð ríkja súnní-araba. Í forystugreinum nokkurra blaða var því spáð að
kosningarnar yrðu til þess að Bandaríkjastjórn legði harðar að arabaríkjum að koma á pólitískum umbótum.
Hvatt til þjóðareiningar
Allawi lýsir kosningunum sem sigri lýðræðis á hryðjuverkamönnum
Bagdad. AFP, AP.
Straumhvörf í Írak?/14
Vændi eða
skertar bætur?
25 ÁRA þýsk kona, sem er atvinnu-
laus og hafnaði tilboði um að veita
„kynlífsþjónustu“ í vændishúsi, á nú á
hættu að atvinnuleysisbætur hennar
verði skertar vegna nýrra laga.
Vændi var heimilað í Þýskalandi
fyrir tveimur árum og eigendur
vændishúsa hafa fengið aðgang að op-
inberum gögnum um fólk á atvinnu-
leysisskrám.
Konan er menntuð í upplýs-
ingatækni en starfaði síðast sem
gengilbeina á kaffihúsi. Hún fékk bréf
frá vinnumiðlun sem sagði henni að
hringja í atvinnurekanda sem hefði
hug á að ráða hana. Hann reyndist
vera eigandi vændishúss.
Samkvæmt breytingum á lögum
um þýska velferðarkerfið er hægt að
neyða konur undir 55 ára aldri til að
taka atvinnutilboðum, eða skerða
bætur þeirra, hafi þær verið á at-
vinnuleysisskrá lengur en í eitt ár.
Stjórnin íhugaði að bæta við ákvæði
um að þetta ætti af siðferðislegum
ástæðum ekki við um tilboð frá vænd-
ishúsum en komst að þeirri niður-
stöðu að of erfitt væri að gera grein-
armun á þeim og vínveitingahúsum.
Vinnumiðlanirnar þurfa því að af-
greiða atvinnutilboð vændishúsa með
sama hætti og annarra.
Vændishúsið getur höfðað mál
gegn vinnumiðluninni neiti hún að
refsa konunni fyrir að hafna tilboðinu
með því að lækka bæturnar.
„Það er ekkert í lögunum sem kem-
ur í veg fyrir að konur séu neyddar í
kynlífsþjónustu,“ sagði Merchthild
Garweg, lögfræðingur í Hamborg.
ÁFRÝJUNARNEFND sam-
keppnismála úrskurðaði í gær að ol-
íufélögin þrjú, Olís, Skeljungur og
Olíufélagið, ættu að greiða samtals
1.505 milljónir króna í sekt fyrir
ólöglegt samráð. Nefndin taldi að
samráð félaganna hefði staðið yfir í
mörg ár. „Sameiginlegt markmið
þeirra hefur verið að raska kerfis-
bundið samkeppni með ýmsum
samráðsaðgerðum sem voru eink-
um í því fólgin að eyða samkeppni
og hækka vöruverð.“
Samkeppnisráð gerði í október
olíufélögunum að greiða samtals
2.625 milljónir í stjórnvaldssektir.
Upphæð sekta ræðst af ávinningi ol-
íufélaganna af samráðinu og af-
slætti sem Olíufélagið og Olís fengu
vegna samstarfs við Samkeppnis-
stofnun við að upplýsa málið.
Áfrýjunarnefndin telur að félögin
hafi haft með sér samráð um verð-
breytingar á eldsneyti. Samskiptin
hafi stundum verið „umfangsmikil
og tíð“. Nefndin tekur fram að
„gögn málsins bendi ekki til að þar
hafi verið um einstök afmörkuð til-
vik að ræða eða að eitt olíufélag beri
þar mun minni ábyrgð en annað.“
Ekki alvarlegir annmarkar
á rannsókninni
Áfrýjunarnefndin hafnaði í öllum
meginatriðum gagnrýni olíufélag-
anna á rannsókn samkeppnisráðs.
„Það er niðurstaða hennar [nefnd-
arinnar] að rannsókn málsins hefur
verið óvenjulega yfirgripsmikil og
ljóst er að ýmis atriði hafa ekki verið
skýrð með fullnægjandi hætti. Þó
þykir fjarri lagi að þeir annmarkar
sem bent hefur verið á eða fundist
hafa séu þess eðlis að þeir eigi að
valda ógildingu hinnar kærðu
ákvörðunar.“
Nefndin tók ekki heldur undir
sjónarmið olíufélaganna varðandi
fyrningu. Hún taldi að miða ætti við
fimm ára fyrningartíma og að fyrn-
ing hefði verið rofin þegar húsleit
Samkeppnisstofnunar hófst 18. des-
ember 2001.
Þá tók áfrýjunarnefndin ekki
undir afstöðu Olíufélagsins og Olís
varðandi fundi sem félögin áttu með
Samkeppnisstofnun þar sem rætt
var um samstarf um að upplýsa
málið. Taldi nefndin gögn málsins
ekki styðja ályktanir félaganna.
Sektir lækka um milljarð
Olíufélögunum gert að greiða 1.505 milljónir í sekt Sektarfjárhæð
Skeljungs nú lægst og lækkaði mest í úrskurði áfrýjunarnefndar
Sektir/Miðopna
VAL á kviðdómurum hófst í gær í máli
bandarísku poppstjörnunnar Michaels
Jacksons sem hefur verið ákærður fyrir
að beita ungan pilt kynferðislegu ofbeldi.
Hundruð aðdáenda Jacksons fögnuðu
honum ákaft þegar hann mætti í dómhús í
smábænum Santa Maria í Kaliforníu. Bú-
ist er við að réttarhöldin standi í hálft ár
og verði Jackson dæmdur sekur á hann
yfir höfði sér allt að 21 árs fangelsisdóm.
Um þúsund blaðamenn víðs vegar að úr
heiminum hafa sótt um leyfi til að fylgjast
með réttarhöldunum. Stuðningsmenn
Jacksons sungu og dönsuðu, gagnrýndu
saksóknara og gerðu hróp að konu er hélt
á mótmælaskilti til stuðnings piltinum.
Jackson veifaði til viðstaddra og mynd-
aði sigurmerki með fingrunum þegar
hann gekk inn í dómhúsið.
AP
Réttur settur í
máli Jacksons
OLÍS hefur ákveðið að höfða mál
til ógildingar á úrskurði áfrýj-
unarnefndar samkeppnismála.
„Það er mat Olíuverzlunar Ís-
lands, að þrátt fyrir verulega
lækkun sekta sé niðurstaðan engu
að síður óásættanleg og í engu
samræmi við réttarframkvæmd
hér á landi,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá lögmanni OLÍS. Ákvörð-
un hefur ekki verið tekin um
framhald málsins hjá Keri hf., áð-
ur Olíufélaginu hf., og Skeljungi
hf.
Talsmönnum Kers hf. þykir það
einkennilegt að sektarfjárhæðir
séu miðaðar við veltu félagsins ár-
ið 2003, enda voru þá liðin tvö ár
frá því að samráði lauk örugg-
lega, samkvæmt fréttatilkynn-
ingu frá lögmanni félagsins.
„Okkur þykja þessar sektir
gríðarlega háar,“ segir lögmaður
Skeljungs sem telur þó að með úr-
skurði sínum sé áfrýjunarnefnd
samkeppnismála að staðfesta að
félagið hafi ekki verið aðalger-
andi í málinu.
OLÍS fer
dómstóla-
leiðina