Morgunblaðið - 01.02.2005, Side 16
DEILDARÁS - EINB. - REYKJAVÍK
Nýkomin í einkasölu áhugaverð
húseign, einbýli á tveimur hæð-
um með innbyggðum bílskúr.
Heildarstærð ca 300 fm. 5-6
svefnherbergi o.fl. Aukaíbúð ef
vill. Arinn í stofu. Róleg og góð
staðsetning. Útsýni.
Verð 43,8 millj. 108806
HRÍSMÓAR - 2JA HERB. - GARÐABÆ
Nýkomin í einkasölu sérlega falleg 50 fm íbúð á annarri hæð í
góðu fjölbýli miðsvæðis í Garðabæ. Fallegar innréttingar og gólf-
efni. Mjög góð staðsetning. Verð 10,7 millj. 108665
HRÍSMÓAR - 3JA - GARÐABÆ - FRÁBÆRT ÚTSÝNI
Nýkomin í einkasölu stórglæsi-
leg ca 85 fm íbúð á 9. hæð í
lyftuhúsi. Tvennar svalir, parket,
vandaðar nýlegar innréttingar
og tæki. Öll íbúðin var endur-
hönnuð og endurnýjuð fyrir
nokkrum árum og innréttuð á
glæsilegan hátt, sérsmíðaðar innréttingar, eign í algerum sér-
flokki, stórkostlegt útsýni út á sjóinn og borgina, Esjuna o.fl.
Stutt í alla þjónustu. Myndir á netinu. Verð 19 millj.
Höfuðborgin | Akureyri | Landið | Austurland
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Selfossbúar fjölmenntu á þorrablótið í
íþróttahúsinu sem Kjartan Björnsson Sel-
fossrakari á heiðurinn af að koma á lagg-
irnar og gera að föstum viðburði í bæj-
arlífinu. Ríflega 600 manns sóttu blótið
sem tókst með ágætum. Það er einkenn-
andi fyrir samkomuna hversu vel bæjar-
búar taka þessum viðburði og hafa gert
hann að sínum. Fyrirtæki nota tækifærið
og slá blótinu upp í að vera einn af föstu
þáttunum í félagslífi fyrirtækjanna. Kjart-
an er sennilega frumkvöðull janúar-
mánaðar á Selfossi.
Enn helst þrýstingurinn í bygging-
ariðnaðinum á Selfossi og svo virðist sem
ekkert lát sé á aðflutn-
ingi fólks. Það seljast
allar húseignir sem
koma á sölu og einn
fasteignasalinn sagði
við mig fyrir skömmu:
„Veistu, það er bara
eitt hús eftir hjá mér á
skránni og í dag skráðu
sig sex til að skoða
þetta eina hús.“ Þessi
staða má segja að sé dæmigerð fyrir
ástandið enda eru alls staðar vélskóflu-
kjaftar að grafa eða byggingakranar sem
sveiflast fram og aftur. Eftirspurn eftir
lóðum er mikil og í mörgu að snúast.
Nýtt aðalskipulag fyrir Árborg fram til
ársins 2025 er í undirbúningi og kallar
bæjarstjórnin eftir athugasemdum við
drög sem unnin hafa verið eftir for-
sendum sem starfshópur hefur sett fram.
Fyrstu drögin gera ráð fyrir að Selfoss-
flugvöllur verði festur inni á skipulaginu
með heldur styttri flugbrautum en eru nú.
Íbúar í Fosslandi, næsta nágrenni við
völlinn, gefa honum hornauga og mót-
mæla enda fer hávaði frá flugvélum yfir
hávaðamörk í hverfinu. Bændur í Sand-
víkurhreppi hinum forna sem eiga land að
vellinum eru líka óhressir því með stað-
setningu flugvallar í landinu verður eign-
arland í næsta nágrenni verðlaust. Það er
því búist við líflegum umræðum um flug-
vallarmálið á næstu vikum, hvort ekki sé
betra að flytja hann annað og nýta landið
undir verðmæta íbúðabyggð sem gefur
sveitarfélaginu meiri tekjur.
Úr
bæjarlífinu
SELFOSS
FRÁ SIGURÐI JÓNSSYNI FRÉTTARITARA
Fyrstu þrjá fimmtu-dagana í febrúar,3. 10. og 17.,
verða flutt erindi um
Hallgrím Pétursson og
passíusálmana að Rimum,
félagsheimilinu við Húsa-
bakkaskóla í Svarf-
aðardal. Þar munu Stein-
unn Jóhannesdóttir
rithöfundur fjalla um
skáldið, sr. Guðmundur
Guðmundsson héraðs-
prestur um píslarsöguna
og passíusálmana, og sr.
Sigríður Munda Jóns-
dóttir, nýskipuð sókn-
arprestur í Ólafsfirði, um
líf og starf sr. Hallgríms,
en hún ólst upp á Saurbæ
á Hvalfjarðarströnd.
Þetta er hluti af fullorð-
insfræðslu Húsabakka-
skóla en opið öllum sem
áhuga hafa, unnið í sam-
starfi við Eyjafjarðar-
prófastsdæmi. Aðgangur
er ókeypis en óskað er
eftir skráningu á netfang-
inu husabakki@dalvik.is
eða í Húsabakkaskóla.
Passíusálmar
Þessi myndarlegi grá-hegri kom við hjáFagradalsbleikju í
Vík í Mýrdal á dögunum.
Stendur þarna vígalegur á
einu af kerum fyrirtæk-
isins og virðir fyrir sér ið-
andi lífið í kerinu. Engum
sögum fór af því hvort
hann áræddi að gæða sér á
því sem fyrir augu bar.
Ævar Petersen hjá
Náttúrufræðistofnun sagði
gráhegra reglulega vetrar-
gesti hér á landi, einkum
þá sunnanlands. Þetta er
fullorðinn fugl, þ.e. eldri en
frá síðasta sumri, sem sést
á litasamsetningu á haus
og löngum toppi.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Gráhegri í hádegismat
ÍMorgunblaðinu álaugardag var sagtfrá sérstökum „ris-
tíðnibónus“ sem um
samdist milli stéttar-
félaga og Alcan. Sól-
skríkjan syngur:
Eflaust gefur góða raun
og gerast margir sælir
er Rannveig fer að reikna
laun og „ristíðnina“ mælir.
Friðrik Steingrímsson í
Mývatnssveit yrkir…
Kjarabót allskonar
karlarnir ná
kvennanna mikil er raunin
því rekkarnir allir nú reyna
að fá
ristíðnibónus á launin.
Friðrik Steingrímsson í
Mývatnssveit heyrði af
fundi kvenfélags fram-
sóknarmanna í Kópavogi,
þar sem nýskráðar konur
hefðu fjölmennt og yfir-
tekið félagið. Hann orti:
Framsóknar sprunginn er
flokksbotnlanginn
freyjurnar blaðra og þvaðra
valkyrjur þrömmuðu
valdsjúkar inn
og völtuðu hver yfir aðra.
Af ristíðnibónus
pebl@mbl.is
Vík| Það var sérkennileg sjón
sem blasti við þeim sem voru á
ferðinni í Víkurfjöru á sunnu-
dag, en þá höfðu hrúgast upp af-
ar skemmtilegir skýjabakkar yf-
ir Hrafnatindum í Vík í Mýrdal.
Á vef veðurstofunnar er
greint frá því hvernig skýin
verða til og nefnt að vatn er alls
staðar í andrúmsloftinu í kring-
um okkur en í mismiklu magni.
Oftast er það í formi ósýnilegrar
gufu, en stundum sem ský. Ský-
in myndast þegar loft kólnar, en
það gerist oft þegar loftið þrýst-
ist upp. Þau geta einnig mynd-
ast þegar raki eykst í loftinu,
t.d. þegar loftið ferðast yfir
vatn.
Skýin gefa upplýsingar um
hvernig veðrið muni þróast.
Þegar ný ský byrja að myndast
er eðlilegt að álykta að breyting
á veðrinu sé í nánd.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Sérkennileg skýjamyndun
Skýjabakkar
Strandir| Umferð hefur aukist jafnt og þétt
við Ögur í Ísafjarðardjúpi og yfir Gilsfjörð,
en minnkað á veginum yfir Ennisháls á
Ströndum síðustu tvö ár, að því er fram
kemur á vef Leiðar ehf.
Leið ehf. telur að aukningu umferðar um
Gilsfjörð og Djúp megi vafalaust þakka
betri vegum, bættu tíðarfari, aukinni bíla-
eign og tíðari ferðalögum fólks, jafnt Vest-
firðinga sem annarra á öllum árstímum. Lít-
illega hefur dregið úr umferð um Ennisháls
á Ströndum tvö síðustu ár miðað við þessar
tölur, eftir samfelldan vöxt til ársins 2003.
Leið ehf. telur sennilegt að ástæða síauk-
innar umferðar um Gilsfjarðarbrú ár frá ári
sé ekki síst vegna stóraukinnar umferðar
um Þorskafjarðarheiði yfir sumartímann,
en þar hefur verið unnið að talsverðum lag-
færingum vegarins síðustu tvö sumur.
Ferðaþjónustuaðilar á Ströndum, sem
vefurinn strandir.is hafði samband við, segj-
ast ekki hafa greint að minni umferð fari um
Strandir norðan við Ennisháls undanfarin
sumur, heldur þvert á móti að umferð ferða-
fólks hafi aukist mjög verulega.
„Því má líklegt vera að sú aukning um-
ferðar sem á sér stað yfir Gilsfjörðinn eigi
sér einnig skýringu í aukinni umferð yfir
Tröllatunguheiði. Fjölmargir íbúar á
Ströndum og ferðamenn kjósa þá leið frekar
yfir sumartímann og stytta þannig vega-
lengdina milli Steingrímsfjarðar og suðvest-
urhorns landsins um 40 km, þó um tiltölu-
lega ógreiðfæran veg sé að ræða. Rétt eins
og margir íbúar við Ísafjarðardjúp kjósa að
nýta veginn um Þorskafjarðarheiði þrátt
fyrir ástand hans,“ segir á vef Stranda.
Umferð um Ennisháls minnkaði um 2.555
bíla milli áranna 2003 og 2004, en á sama
tímabili jókst umferð um Gilsfjarðarbrú um
5.475 ökutæki og um 1.825 við Ögur í Ísa-
fjarðardjúpi.
Umferð
minnkar um
Ennisháls
Kópasker | Flensan hefur skotið sér niður
á Norðausturlandi og hefur sínar afleið-
ingar. Á mánudagsmorgun var hvorki
hægt að opna leikskólann né barnaskólann
á Kópaskeri vegna veikinda starfsfólks.
Vonast er til að einhverjir verði orðnir
nógu hressir til að hægt verði að taka á
móti börnunum í dag, þriðjudag, segir á
vefnum dettifoss.is.
Flensan
herjar
♦♦♦