Morgunblaðið - 07.03.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.03.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 64. TBL. 93. ÁRG. MÁNUDAGUR 7. MARS 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Uppákomur Tilraunanna Músíktilraunir hefjast í kvöld. Arnar Eggert rifjar upp atvik | Tónlist 32 Músíktilraunir | Árni Matthíasson kynnir í sérblaði hljómsveitirnar 50 Fasteignir | Markaður  Húseignir á Spáni  Arkitektúr  Drekavellir Sport | Guðmundur óstöðvandi  Sagði ekki frá jafnteflinu  Úrslit Músíktilraunir, Fasteignir og Íþróttir GERT er ráð fyrir því að sýrlenska herliðið í Líbanon byrji brottflutning sinn frá land- inu í dag en varnarmálaráðherra Líbanons sagði að liðsflutningarnir kynnu að taka tvo til þrjá daga. Ráðherrann, Abdul-Rahim Murad, sagði að brottflutningurinn hæfist þegar eftir fund þeirra Bashar al-Assads Sýrlandsforseta og Emile Lahouds, forseta Líbanons, sem fram fer í Damaskus. Mikill þrýstingur hefur verið á sýrlensk stjórnvöld að kalla fjórtán þúsund manna herlið sitt frá Líbanon og tilkynnti Assad liðsflutningana í ræðu sem hann flutti á laugardag. Ekki er þó enn ljóst hvort herlið- ið færir sig aðeins til Bekaa-dals í austur- hluta Líbanons, nálægt landamærunum að Sýrlandi, eða hvort það verður kallað heim. „Ég er ekki Saddam Hussein“ Sýrlenskum stjórnvöldum og banda- mönnum þeirra í Líbanon hefur verið kennt um morðið á Rafik Hariri, fyrrverandi for- sætisráðherra Líbanons, í síðasta mánuði en Assad segir í viðtali við vikuritið Time að stjórn sín hafi hvergi komið nærri morðinu. Sagði hann alrangt að líkja sér við Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks. „Vin- samlegast komið þessum skilaboðum á framfæri: ég er ekki Saddam Hussein. Ég vil samstarf [við alþjóðasamfélagið],“ sagði Assad í viðtalinu. Assad Sýrlandsforseti fundar með forseta Líbanons Byrja að flytja her sinn frá Líbanon Damaskus, Beirút. AFP, AP. AP Andstæðingar Sýrlendinga mótmæltu á Píslarvottatorginu í Beirút í gær. Hezbollah-samtökin, sem eru hliðholl Sýrlendingum, hafa hins vegar boðað „mikinn mótmælafund“ á morgun, þriðjudag, gegn því sem þau kalla „erlenda íhlutun“ í málefni Líbanons. Mótmæli í Beirút STJÓRNIR Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna (SH) og Sjóvíkur ehf. undirrituðu síðdegis í gær samning um sameiningu félaganna undir nafni SH. Tilgangur samrunans er að sam- eina krafta þessara sjávarafurðafyrir- tækja á mörkuðum í Asíu og Banda- ríkjunum. Greitt er fyrir hlutafé í Sjóvík með hlutafé í SH og munu hlut- hafar í Sjóvík eiga 33% hlut í SH eftir sameininguna. Í tilkynningu frá félögunum kemur fram að hluthafar í Sjóvík fá sam- kvæmt samningnum ríflega 715 millj- ónir hluta á nafnvirði í SH sem endur- gjald fyrir Sjóvík. Síðasta kaupgengi á hlutum í SH var 9,25 og því er núver- andi verðmæti hlutafjárins rúmlega 6,6 milljarðar króna. Gefið verður út nýtt hlutafé í SH að nafnvirði um 616 svipuðum toga. Með sameiningu fé- laganna væri því hægt að hagræða verulega í rekstri þeirra þó að enn væri ekki að fullu ljóst hversu mikil samlegðaráhrifin yrðu. Ellert Vigfússon, framkvæmda- stjóri Sjóvíkur, tók í svipaðan streng. „Við erum með mjög öfluga starfsemi í Asíu sem fellur vel að SH-samstæð- unni og síðan vitum við vel af samlegð- aráhrifunum í Bandaríkjunum, það er búið að fjalla um þau töluvert á síðustu árum,“ sagði hann. Ellert vísaði með þessu til þess að fyrri hluta árs 2003 slitnaði upp úr sameiningarviðræðum SH og SÍF hf. Í október 2004 var síð- an tilkynnt um kaup Sjóvíkur á Ice- land Seafood Corporation, dóttur- félagi SÍF í Bandaríkjunum og þar með á nýrri og fullkominni verksmiðju þess í Virginíuríki. Fyrir sameiningu var gert ráð fyrir að velta SH á þessu ári yrði 75–80 milljarðar og Sjóvíkur um 18–19 millj- arðar. Passa vel saman Í samtali við Morgunblaðið sagði Gunnar Svavarsson, forstjóri SH, að fyrirtækin pössuðu að mörgu leyti vel saman. SH hefði verið að byggja upp starfsemi með aðföng og vinnslu í Asíu en Sjóvík væri komin enn lengra á þeim mörkuðum. Þá væri starfsemi fyrirtækjanna í Bandaríkjunum af milljónir hluta og er verðmæti þess hlutar nú um 5,7 milljarðar króna. Samningurinn er gerður með fyr- irvara um niðurstöðu í skýrslu sér- fróðra manna um samrunann og er gert ráð fyrir að hann verði formlega staðfestur um miðjan maí. SH er skráð í Kauphöll Íslands og því verður að tilkynna sameininguna fyrir opnun hennar í dag. SH og Sjóvík saman undir merkjum SH Hluthafar í Sjóvík eignast 33% í SH  Markmiði/6 Sjóvík keypti í fyrra nýja og fullkomna verksmiðju SÍF í Virginíu. FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ Grettir keypti í gær 34,02% í Keri hf., móðurfyrirtæki Olíufélagsins, og 4,03% í Eglu sem er að lang- stærstum hluta í eigu Kers. Selj- endur eru Sund ehf. og Nordica Partners. Hluti söluverðsins er greiddur með nýju hlutafé í Gretti. Grettir var að mestu leyti í eigu Landsbankans og Tryggingamið- stöðvarinnar hf. og átti hvort félag um sig 49,75% hlut en Stefán I. Bjarnason, framkvæmdastjóri fjár- festingarfélagsins, átti 0,5%. Með samningi sem gerður var í gær hef- ur Landsbankinn nú selt Sundi verulegan hlut í Gretti og á Sund nú alls 37,39% í fjárfestingarfélaginu. Kristján Loftsson, stjórnarfor- maður Kers hf., sagðist ekki sjá að meirihlutinn í Keri riðlaðist vegna þessara viðskipta. Núverandi meiri- hluti héldist. Hann tekur fram að stjórnin hafi fram til þessa staðið saman að stjórn félagsins og hann býst ekki við að það breytist. Krist- ján er verulega ósáttur við vinnu- brögð eigenda Sunds og Nordica Partners, einkum Jóns Kristjáns- sonar sem kenndur er við Sund. Hann telur að forkaupsréttar- ákvæði hafi verið á bréfum í Keri en það hafi tekið langan tíma að ákveða nákvæmlega hvaða skilyrðum hann væri háður. Eigendur Sunds og Nordica Partners hafi tekið þátt í þeim viðræðum en hafi greinilega ákveðið að virða forkaupsréttinn og viðræðurnar sem farið hafi fram um hann að vettugi. Þeir hafi hvorki til- kynnt öðrum hluthöfum Kers um samningaviðræðurnar né boðið þeim hlutina til kaups. „Engir sið- aðir menn í viðskiptum haga sér svona, það eru alveg hreinar línur.“ Ker á hluti í ýmsum félögum, m.a. 100% hlut í Olíufélaginu ehf., 67% hlut í Samskipum hf. og stærstan hlut í Eglu sem á um 9% í KB banka. Verðið trúnaðarmál Sigurður G. Guðjónsson lögmað- ur, talsmaður Jóns Kristjánssonar, sagði að kaupverðið væri trúnaðar- mál, sem og hversu hátt hlutfall Sund fengi greitt með bréfum í Gretti. Sigurður sagði að með þess- um viðskiptum væri Jón bæði að fjárfesta í Gretti, sem væri áhuga- vert félag, og losa um fé. Sund er aðaleigandi sjávaraf- urðafyrirtækisins Sjóvíkur en í gær náðist jafnframt samkomulag um sameiningu Sjóvíkur og Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna. Grettir á 5,9% hlut í SH. Gunnlaugur Sæv- ar Gunnlaugsson er bæði stjórnar- formaður í Gretti og í SH. Hann sagði að þetta væru aðskilin mál. Nýir eigendur að 34% í Keri Stjórnarformaðurinn: Vinnubrögðin ekki siðleg en meirihlutinn heldur MEIRIHLUTINN í stjórn Kers helst óbreyttur, að sögn stjórnarfor- manns félagsins, þrátt fyrir við- skiptin með rúmlega þriðjungshlut. Fyrir utan hlut Grettis er 41% hlutafjár í eigu Kjalars sem er í eigu Ólafs Ólafssonar stjórnarfor- manns Samskipa. Vogun, í eigu Hvals hf., á um 17% í Keri og um 2% eru í eigu Venusar sem er félag í eigu Kristjáns Loftssonar og Árna Vilhjálmssonar og systkina. Venus er síðan stærsti hluthafinn í Hval hf. Um 5% eru í eigu stjórnenda.                      ! "  #$ % &  ' ( ) $       +  $  ,   -$     - .     /" Breytingar á eignarhaldi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.