Morgunblaðið - 07.03.2005, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 07.03.2005, Blaðsíða 7
Morgunblaðið/Þorkell Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, sagði að gengið yrði hratt til verks við fyrsta áfanga Hellisheiðarvirkjunar. borgarstjóri, og Þorkell Helgason orkumálastjóri, ásamt fjölda sveitar- stjórnarmanna og starfsmanna OR. Búið er að fá Þ.G. verktaka til þess að taka verkið að sér, en þeir voru einnig verktakar að Nesjavallavirkj- un, og góð reynsla af störfum þeirra þar, að því er fram kom í máli Alfreðs við athöfnina. Í fyrstu var gert ráð fyrir að virkj- unin skilaði 120 megavöttum af raf- magni, en nú hefur 25 megavöttum verið bætt við, og því gert ráð fyrir 145 megavöttum í heildina, auk 400 megavatta í heitavatnsframleiðslu. Í fyrsta áfanga verksins er reiknað með 80 megavatta rafmagnsframleiðslu. Samið hefur verið við Norðurál um kaup á mestum hluta raforkunnar frá Hellisheiðarvirkjun, en þau 25 mega- vött sem bætt var við fara á almennan markað á höfuðborgarsvæðinu. ALFREÐ Þorsteinsson, stjórnarfor- maður Orkuveitu Reykjavíkur tók fyrstu skóflustunguna að stöðvarhúsi Hellisheiðarvirkjunar við Kolviðarhól á laugardag að viðstöddu fjölmenni. Stefnt er að því að fyrsti áfangi virkj- unarinnar, 80 megavött, verði tilbú- inn og tekinn í notkun á næsta ári. Meðal gesta við athöfnina voru Val- gerður Sverrisdóttir iðnaðarráð- herra, Steinunn Valdís Óskarsdóttir Alfreð Þorsteinsson tók fyrstu skóflustunguna að stöðvarhúsi Hellisheiðarvirkjunar Fyrsti áfangi tekinn í notkun á næsta ári MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MARS 2005 7 FRÉTTIR                            !    "  # $ " % && ' " ((() ) ' *+     ,   , -   -     )      .    -          /         0     !   /                 /  -   0'      ! 123 456 ) -78   % 0   ) 19:37;4*3 0 ')  -1<35 =>??87: 0 99@ABBC>7 D52EC93+1    '  '  % FG G G G F G HG  -) H0-   0   #    / 0    -(-  I          / 0 '  --  ,          KLJ      .     .   /   . - ,  , ,  ,   ))))     %   %   %  (F   , K     %      Tímabært að Laugavegurinn fái að þróast STJÓRN Laugavegssamtakanna telur að það sé löngu tímabært að Laugavegurinn fái að þróast áfram sem verslunargata og til þess að það sé mögulegt þurfi eðlileg end- urnýjun að geta átt sér stað. Laugavegurinn sé og hafi verið að- alverslunargata Reykjavíkur. „Um árabil hefur verið tilfinn- anlegur skortur á hentugu húsnæði til verslunarreksturs í miðborginni og vilja rekstraraðilar í miðborg- inni leggja áherslu á nauðsyn þess að gera miðborgina að áhugaverð- um fjárfestingarkosti. Í þeim anda er nauðsynlegt að eyða óvissu og skapa svigrúm til þróunar og upp- byggingar. Til að eðlileg framþró- un eigi sér stað þurfa niðurníddar eignir á illa nýttum reitum að víkja og ljóst er að í mörgum þeirra húsa sem mega víkja samkvæmt skipu- lagi er ýmsu ábótavant hvað varð- ar vinnuaðstöðu og brunavarnir. Rekstraraðilar í miðborginni harma að umræðan um uppbygg- ingu Laugavegarins hafi verið nær eingöngu á neikvæðum nótum og vilja benda á að sérstaða Lauga- vegarins er fyrst og fremst fólgin í sögu hans sem verslunargötu og að aðrar götur, þar sem götumynd er heilsteyptari, væru hentugri til varðveislu.“ Bauð 53 milljónir í Víðidalsá FJÓRTÁN tilboð bárust í veiði- svæði Víðidalsár og Fitjár í Húna- þingi. Hæsta tilboð, 53,5 milljónir, kom frá Einari Sigfússyni. Það boð er í lax- og silungssvæðið, án Hóps. Núgildandi samningur er um 31 milljón fyrir laxasvæðið. Veiðisvæðinu má skipta í þrjá hluta, laxveiðisvæði sem er mest allt ársvæði Víðidalsár og Fitjá, silungssvæði, sem er neðst í Víði- dalsá og loks Hópið, sem er mikið vatn og hefur ós til sjávar. Sérstaklega er nú selt í silungs- svæðið og í Hópið, sem gefa alls um 2,5 milljónir. Má því segja að hæsta tilboðið sé um 20 milljónum hærra en núgildandi samningur eða um 60% hækkun. Ragnar Gunnlaugsson formaður stjórnar, segir tilboðin miðast við leigu frá og með árinu 2006 og eru boðin miðuð við leigutíma í 3-5 ár. Forstjóri Eim- skips tjáir sig ekki BALDUR Guðnason, forstjóri Eim- skips, vill ekkert láta hafa eftir sér um yfirlýsingu stjórnarformanns Geest um að Baldur hafi brotið trúnað með því að greina frá því að í viðræðum milli Eimskips og Geest hafi verið rætt um að selja Geest á 3,5 milljarða króna. Í tilkynningu frá Geest sagðist Jacob van Geest, stjórnarformaður félagsins, harma að Eimskip hefði virt að vettugi trúnaðarsamkomu- lag sem undirritað var áður en til viðræðna kom á milli félaganna fyrir nokkrum mánuðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.