Morgunblaðið - 07.03.2005, Blaðsíða 28
28 MÁNUDAGUR 7. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Forðastu rifrildi eða ágreining við
þá sem hafa eitthvað yfir þér að
segja, svo sem kennara, foreldra eða
aðra máttarstólpa. Láttu lítið á þér
bera, ef hægt er.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Aðstæður eru óhagstæðar fyrir
ferðalög og útgáfu ef slíkt er á döf-
inni hjá nautinu í dag. Ekki reyna
að streitast gegn náttúrulögmálum.
Bíddu í fáeina daga.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Rifrildi vegna fjármála eða deilur
um sameiginlegar eigur, einkum
erfðafé eru líklegri en ella í dag.
Reyndu að halda aftur af þér.
Ósættið verður magnað.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Dagurinn í dag er einstaklega óhag-
stæður hvað náin sambönd varðar.
Samræður við maka og nána vini
reyna á þolrifin. Vertu þolinmóður,
það er eina leiðin.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ekki fella hleypidóma um sam-
starfsfólk í dag. Að sama skapi
skaltu ekki kippa þér upp við gagn-
rýni frá vinnufélögum. Forðastu
ágreining.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Sýndu börnum þolinmæði í dag og
hugaðu vandlega að öryggi þeirra.
Gerðu sérstakar varúðarráðstafanir
ef þú stundar keppnisíþróttir. Ekki
reyna að ná þínu fram með offorsi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Rifrildi eru einstaklega líkleg á
heimilinu. En mundu að reiði er
ekki til neins annars fallin en að
auka á vanlíðan þína og annarra.
Hafðu hægt um þig.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Svo virðist sem fólk reyni vísvitandi
að reita þig til reiði í dag. En það er
alls ekki þannig. Reiðin virðist
blossa upp ósjálfrátt núna, ekki síst
í garð systkina. Ekki ganga í vatnið.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Reyndu að vera rólegur og sýna þol-
inmæði í málum er varða peninga í
dag. Þú finnur til hvatvísi og árás-
argirni og lætur allt sem viðkemur
eigum þínum slá þig auðveldlega út
af laginu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ekki vera of árásargjörn í sam-
skiptum í dag, steingeit. Þú ert allt
of yfirþyrmandi núna. Kannski er
það vegna þess að eitthvað er að
angra þig. Vertu róleg.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Hugsast getur að einhver láti um-
mæli falla sem ná alla leið inn í
kviku á þér, vatnsberi. Ekki svara í
sömu mynt, þessi áhrif líða senn hjá.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Forðastu rifrildi við vini og félaga í
dag. Þér verður svarað fullum hálsi.
Það er engu líkara en að fólk reyni
að efna til ágreinings um þessar
mundir.
Stjörnuspá
Frances Drake
Fiskar
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert viðkvæm, umhyggjusöm og
gefandi persóna í samskiptum sem
vill fá hefðbundna útrás fyrir tilfinningar
sínar. Þú færð mikið út úr því að koma
öðrum til hjálpar. Jafnframt ertu
fljót að læra. Þú ert einstaklega dul
og sjálfstæð manneskja.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 stríðsfánar, 8
þreyttir, 9 lýkur, 10 nytja-
land, 11 kaka, 13 stig, 15
foraðs, 18 þor, 21 velur, 22
tappi, 23 þreytuna, 24
högna.
Lóðrétt | 2 alda, 3 kroppa,
4 frek, 5 örskotsstund, 6
ríf, 7 vaxa, 12 veðurfar, 14
visinn, 15 bráðum, 16 rag-
ur, 17 kvenvargur, 18
mannsnafn, 19 espast,
20 sívinnandi.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 grund, 4 bulls, 7 lúgur, 8 rykmý, 9 tám, 11 ilma,
13 árna, 14 krass, 15 þota, 17 skot, 20 hak, 22 forði, 23 öfl-
ug, 24 rúmið, 25 dýrin.
Lóðrétt | 1 galli, 2 ungum, 3 durt, 4 barm, 5 líkur, 6 skýla,
10 ásaka, 12 aka, 13 áss, 15 þófar, 16 tærum, 18 kælir, 19
tágin, 20 hirð, 21 köld.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Myndlist
FUGL, Félag um gagnrýna myndlist |
Eygló Harðardóttir – Innlit – Útlit.
Gallerí List | Daði Guðbjörnsson kynnir ný
olíumálverk í Hvíta sal Gallerís Listar.
Hafnarborg | Jónína Guðnadóttir – lág-
myndir og innsetningar í aðalsal. Barbara
Westmann – Adam og Eva og Minnismyndir
frá Vestmannaeyjum.
Hrafnista Hafnarfirði | Steinlaug Sig-
urjónsdóttir sýnir olíu- og vatnslitamyndir í
Menningarsalnum á fyrstu hæð.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Hörður Ágústsson – Yfirlitssýning í vest-
ursal. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur
Örn Friðriksson – Markmið XI Samvinnu-
verkefni í miðrými. Yfirlitssýning á verkum
Kjarvals í austursal.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós-
myndari – Heitir reitir.
Thorvaldsen Bar | Ásta Ólafsdóttir – Hug-
arheimur Ástu.
Handverkssýningar
Studio os | Kertasýning í Studio os, Rang-
árseli 8. Handunnin kerti fyrir öll tækifæri.
Sýningin er opin frá 6. – 18. mars alla daga
kl. 14 – 17.
Handverk og hönnun | Pétur B. Lúth-
ersson húsgagnaarkitekt og Geir Odd-
geirsson húsgagnasmiður – Listasmíði og
leir.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Sýningarnar Hand-
ritin, Þjóðminjasafnið – Svona var það,
Heimastjórnin 1904. Davíð Stefánsson frá
Fagraskógi (1895–1964) er skáld mánaðar-
ins en í ár eru 110 ár liðin frá fæðingu hans.
Á sýningunni eru ljóð Davíðs, skáldverk og
leikrit. Einnig handrit að verkum og munir
úr hans eigu. Blaðaumfjöllun um Davíð og
ljósmyndir frá ævi hans prýða sýninguna.
Fréttir
Tungumálamiðstöð HÍ | Alþjóðlega þýsku-
prófið TestDaF verður haldið í Tungumála-
miðstöð Háskóla Íslands 12. apríl. Próf-
gjaldið er 10.000 kr. og skráning fer fram í
Tungumálamiðstöðinni til 10. mars. Nánari
upplýsingar: Tungumálamiðstöð H.Í. Nýja
Garði: 525 4593, ems@hi.is og www.test-
daf.de.
Fundir
Árbæjarkirkja | Kvenfélag Árbæjarkirkju
heldur fund í safnaðarheimili Árbæjarkirkju
mánudaginn 7. mars kl. 20. Allir velkomnir,
kaffiveitingar.
Krabbameinsfélagið | Aðalfundur Krabba-
meinsfélags Rangárvallasýslu verður 10.
mars kl. 20 í Café Árhusum, Hellu. Jónas
G. Ragnarsson segir frá reynslu sinni af
krabbameini og Eva Yngvadóttir segir frá
reynslu sinni sem maki krabbameinssjúkl-
ings. Gunnjóna Una ræðir um stuðning við
krabbameinssjúka. Allir velkomnir.
Styrkur | Styrkur, samtök krabbameins-
sjúklinga og aðstandenda þeirra er með
opið hús að Skógarhlíð 8, þriðjud. 8. mars
kl. 20. Gunnjóna Una félagsráðgjafi segir
frá rannsóknum á áhrifamætti bænarinnar.
Dóra Halldórsdóttir hjúkrunarfræðingur
segir frá starfsemi Krabbameinsráðgjaf-
arinnar. Allir velkomnir.
UBAA | Uppkomin börn og aðstandendur
alkóhólista eru með 12-sporafundi öll
mánudagskvöld kl 20.30 að Tjarnargötu
20. Verið velkomin.
Kvennahreyfing Öryrkjabandalags Ís-
lands | Stofnfundur Kvennahreyfingar Ör-
yrkjabandalags Íslands verður haldinn
þriðjudaginn 8. mars kl. 20 í Hátúni 10, 9.
hæð.
Fyrirlestrar
Karuna Búddamiðstöð | Námskeið bæði
fyrir byrjendur og þá sem hafa reynslu af
hugleiðslu. Ani-la Nyingpo mun leiða hug-
leiðslurnar og gefa hagnýt ráð um hvernig
nýta má hugleiðslu í dagsins önn. Nám-
skeiðið er 7., 14. og 21. mars kl. 20–21.15, í
Háskóla Íslands, Lögbergi, stofa 204. Nán-
ari upplýsingar á www.karuna.is.
Kynning
Café Kulture | Kúbanskir dagar standa yfir
næstu vikuna á Café Cultura. Hátíðin hefst
með opnun á myndlistarsýningu Mila Pel-
aez, en alla vikuna verður boðið upp á kúb-
anska rétti, fluttir fyrirlestrar um mannlíf á
Kúbu, flutt ljóð og sögur, kúbönsk tónlist og
dans og margt margt fleira.
Námskeið
Maður lifandi | Námskeið sem fjallar um
aðdraganda þess að stofna eigið fyrirtæki
verður haldið 14. mars kl. 17–21. Leiðbein-
andi er Martha Árnadóttir BA í stjórn-
málafræði og MA nemi í mannauðs-
stjórnun.
Norræna félagið | Nordklúbburinn, Ung-
mennadeild Norræna félagsins, stendur að
byrjendanámskeiði í eistnesku, lettnesku,
litháísku og rússnesku. Hvert námskeið
stendur þrjú kvöld. Námskeiðin hefjast 7.
mars að Óðinsgötu 7 með lettnesku. Upp-
lýsingar og skráning fyrir 7. mars á nor-
dklubb@norden.is eða í síma 5510165.
Staðlaráð Íslands | Námskeið um örugga
meðferð upplýsinga Stjórnun upplýsinga-
öryggis samkvæmt ISO 17799. Markmið
námskeiðsins er að þátttakendur geti gert
grein fyrir áherslum og uppbyggingu staðl-
anna ÍST ISO/IEC 17799 og ÍST BS 7799–2
og þekki hvernig þeim er beitt við stjórnun
upplýsingaöryggis og mótun örygg-
isstefnu.
Ráðstefnur
ITC samtökin á Íslandi | Ráðsfundur ITC
verður 12. mars á Kaffi Reykjavík og hefst
kl. 13 með úrslitakeppni í mælsku– og rök-
ræðukeppni ITC Melkorku Reykjavík og
ITCS tjörnu Rangárþingi. Venjuleg fund-
arstörf, óvissuferð og hátíðarkvöldverður.
Fundurinn öllum opinn. Skráning á itc-
@simnet /s. 848–8718.
NÁMSKEIÐ um nýtt leikrit Birgis Sigurðssonar, Dínamít, sem frumsýnt verður á
Stóra sviði Þjóðleikhússins 20. apríl nk., hefst á morgun hjá Endurmennt-
unarstofnun Háskóla Íslands (EHÍ). Það eru Þjóðleikhúsið og EHÍ sem standa sam-
eiginlega að námskeiðinu.
Fyrirlesarar á námskeiðinu verða Hlín Agnarsdóttir, leiklistarráðunautur Þjóðleik-
hússins og umsjónarmaður námskeiðns, Birgir Sigurðsson, höfundur verksins, Stef-
án Baldursson, sem leikstýrir verkinu og dr. Sigríður Þorgeirsdóttir heimspekingur.
Námskeiðsdagar eru þriðjudagarnir 8., 15. og 22. mars, en auk fyrirlestra verður
litið inn á æfingu á verkinu og boðið upp á umræðufund í tengslum við námskeiðið
og sýninguna, auk þess sem þátttakendur fá miða á sýningu á Dínamíti í Þjóðleik-
húsinu.
Dínamít fjallar um Friedrich Nietzsche, um manninn á bak við hugmyndirnar, ólg-
andi lífsást hans, sársauka og snilld. „Ég er ekki maður. Ég er dínamít,“ sagði
Nietzsche, sem er af mörgum talinn einn frumlegasti hugsuður 19. aldar. Bylting-
arkenndar hugmyndir hans um trúarbrögð, siðferði og heimspeki höfðu gífurleg
áhrif á komandi kynslóðir. Í lífi hans voru sterkar konur, eins og hin stórgáfaða og
fagra Lou Salomé og hin afbrýðisama systir hans Elísabet, sem átti stóran þátt í
að afbaka hugmyndir hans svo þær féllu betur að þjóðernishyggju og boðskap fas-
ista á borð við Hitler og Mussolini.
Námskeið um Nietzsche
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir
Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
1. d4 g6 2. c4 Bg7 3. e4 d6 4. Rc3 Rc6 5.
Be3 e5 6. Rge2 exd4 7. Rxd4 Rf6 8. Be2
0–0 9. 0–0 He8 10. f3 Rh5 11. Rxc6 bxc6
12. g4 Rf6 13. Bg5 Be6 14. f4 Db8 15. f5
gxf5 16. gxf5 Bd7 17. Dd2 Kh8 18. Kh1
He5 19. Hg1 Df8 20. Bf3 c5 21. Bf4 Rg8
22. Hxg7 Dxg7 23. Hg1 Df6 24. Bg5 Dg7
25. Bf4 Df6 26. Rd5 Hxd5 27. Dxd5 He8
28. Bg5 Dg7 29. Bd2 Df8 30. Bc3+ f6
Staðan kom upp á alþjóðlegu skákmóti
sem lauk fyrir nokkru í Montecatini
Terme. Alessio De Santis (2.293) hafði
hvítt gegn Milan Mrdja (2.395). 31.
Hxg8+! og svartur gafst upp enda verður
hann drottningu undir eftir 31. … Dxg8
42. Bxf6+. Lokastaða mótsins varð þessi:
1. Igor Miladinovic (2.611) 9 vinninga af
11 mögulegum. 2. Stefan Djuric (2.470)
8½ v. 3. Luca Shytaj (2.341) 6½ v. 4.–5.
Petar Velikov (2.430) og Vangjel Buli 5½
v. 6.–8. Massimo Sciortino (2.228), Aless-
io De Santis (2.293) og Sergio Mariotti
(2.350) 5 v. 9. Mila Mrdja (2.395) 4½ v.
10.–11. Darja Kaps (2.287) og Doriano
Tocchioni (2.283) 4 v. 12. Margarita
Voiska (2.361) 3½ v.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Góður aðbúnaður á Felli
ÉG vil mótmæla skrifum DV um
Dvalarheimilið Fell og Kumbaravog.
Ég þekki reyndar ekkert til á Kumb-
aravogi en hef unnið á Felli frá upp-
hafi en er nú hætt þar störfum. Öll
þau ár sem ég vann á Felli var aldrei
skortur á mat og fólk gat fengið mat
eða aukabita ef það bað um, alltaf
nægur matur á boðstólum. Í DV var
tekið fram að einungis ein heit máltíð
væri í boði á dag – en ég veit ekki bet-
ur en það sé orðið svoleiðis hjá mörg-
um, t.d. á spítölum og á heimilum al-
mennt. Eins var það nefnt að gestum
vistmanna væri ekki boðið kaffi en
það er heldur ekki rétt. Ég vil því
mótmæla þessum skrifum DV.
Guðbjörg Bárðardóttir.
Dagskrá DV gerir óskunda
ÉG bara get ekki orða bundist yfir
sjónvarpsdagskránni í Helgarblaði
DV um síðustu helgi.
Ég hef nú fylgst með sýningum á
þeim stórgóðu myndum er kenndar
eru við Rocky Balboa, ítalska folann.
Gerðar voru fimm myndir á sínum
tíma og hafa þær verið sýndar hvern
sunnudag við mikinn fögnuð allra á
mínu heimili. Sunnudagurinn er tek-
inn í undirbúning fyrir Rocky og hafa
þetta verið hátíðir miklar enda merk-
isverk hér á ferð.
Nema hvað að í dagskránni í DV
stendur skýrum stöfum að Apollo
Creed muni deyja í hringnum í mynd
númer fjögur, sem var einmitt síð-
asta sunnudag. Þetta er hápunktur
fyrri hluta myndarinnar og stýrir
framvindu mála. Hvernig dettur
þeim í hug að gefa upp plottið á svona
óforskammaðan máta? Ég er
hneyksluð og sár yfir að mannlegum
mistökum sé stráð yfir tæra gleðina
sem hefði annars bylgjast um hjarta
okkar aðdáendanna í magnþrunginni
spennu sögunnar.
Mæli ég á móti því að fólk lesi litlu
klausurnar um dagskrárliði dagsins í
DV því þær eru hreint og beint
mannskemmandi.
Elísabet Ólafsdóttir, rithöfundur.
Kettlingar fást gefins
ÞRJÁ litla 4ra mánaða kettlinga
vantar gott heimili sem allra fyrst.
Kassavanir. Upplýsingar í síma
438 1420, 431 1461 og 868 0125.