Morgunblaðið - 07.03.2005, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 7. MARS 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
GERT er ráð fyrir nefskatti í stað afnota-
gjalda og nokkurs konar rekstrarstjórn í stað
útvarpsráðs í væntanlegu frumvarpi
menntamálaráðherra um Ríkisútvarpið. Þá
verður framlögum til Sinfóníuhljómsveitar
Íslands létt af stofnuninni. Í ár nema þau
tæplega 120 milljónum króna. Hugmyndir
hafa verið uppi um að létta ennfremur lífeyr-
isskuldbindingum af Ríkisútvarpinu en sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er
óljóst hvort af því verður nú.
Frumvarpið er á lokastigi en hefur ekki
verið kynnt í ríkisstjórn eða þingflokkum
stjórnarflokkanna. Markmið þess er að rétta
bágan fjárhag RÚV við, skilgreina betur
hlutverk þess og bæta rekstrarumhverfið, en
frá árinu 1997 hefur samanlagður rekstr-
arhalli stofnunarinnar numið rúmum 1.400
milljónum króna.
Í síðari hluta fréttaskýringar um málefni
Ríkisútvarpsins, sem birt er í blaðinu í dag,
kemur m.a. fram að frumvarpið er lending
sem bæði sjálfstæðismenn og framsóknar-
menn eru sagðir geta sætt sig við. Hluta-
félagavæðing Ríkisútvarpsins hlaut ekki náð
fyrir augum Framsóknarflokksins en sam-
staða náðist um að gera stofnunina að sam-
eignarfélagi, eða sf.
Um 10.000 krónur á ári
Afnema á afnotagjöldin og unnið hefur ver-
ið að útfærslu á nefskatti, sem reiknað er
með að gefi RÚV meiri tekjumöguleika. Af-
notagjald yfir árið er nú rúmlega 32 þúsund
krónur á hvert heimili en með nefskatti á ein-
staklinga á aldrinum 18-70 ára og öll fyr-
irtæki er reiknað með að hver muni greiða
um 10 þúsund krónur á ári, ef skatturinn á að
gefa Ríkisútvarpinu svipaðar tekjur og af-
notagjaldið gefur í dag, eða um 2,4 milljarða
króna. Áfram er gert ráð fyrir tekjum af aug-
lýsingum og kostun en heildartekjur RÚV
nema nú um 3,4 milljörðum króna á ári.
Útvarpsráð verður lagt niður í núverandi
mynd og ráðherra ætlað að skipa rekstr-
arstjórn, eins og er í fyrirtækjum og mörgum
ríkisstofnunum. Verður framkvæmdastjóri
eða útvarpsstjóri einnig skipaður af ráðherra.
Stjórninni er ætlað að móta heildarstefnu
Ríkisútvarpsins og hafa eftirlit með fjárreið-
um, með skýrt skilgreint hlutverk samkvæmt
lögum. Með þessu er ætlunin að gefa stjórn-
endum Ríkisútvarpsins á hverjum tíma meira
svigrúm og frelsi til ákvarðana og að þeir
beri þá um leið ábyrgð á þeim, m.a. á ráðn-
ingum starfsmanna. Á stjórn RÚV ekki að
hafa afskipti af mannaráðningum eða ein-
stökum dagskrárliðum. Til þessa hefur út-
varpsráð ekkert haft með fjármál og rekstur
RÚV að gera. Hefur það ekki þótt koma heim
og saman við nýskipan í ríkisrekstri.
Vinna við frumvarp menntamálaráðherra um RÚV er á lokastigi
Tillaga um nefskatt
Áform um/12–13
MAÐURINN
sem lést í bíl-
slysinu á
Suðurlands-
vegi í gær-
morgun hét
Helgi Fann-
ar Helgason.
Hann var
átján ára að
aldri, fædd-
ur 4. júlí
1986. Helgi var nemandi í Fjöl-
brautaskóla Suðurlands á Selfossi
og var til heimilis að Heiðarbrún
2 á Stokkseyri.
„SÖNGURINN var aldrei eins; þvert á
móti var hvert lagt einstakt, heill heimur
af tilfinningum og minningum, kryddað
allskonar blæbrigðum sem lyftu tónlist-
inni í hæstu hæðir. Aðeins örfáir lista-
menn eru færir um að skapa slík áhrif,“
segir Jónas Sen, tónlistargagnrýnandi
Morgunblaðsins, m.a. um söngtónleika
Jose Carreras sem fram fóru um helgina.
„Carreras söng af djúpri innlifun, túlk-
un hans einkenndist af næmri tilfinningu
fyrir því sem hvert lag fjallaði um, auk
þess sem allt hið ósagða í skáldskapnum
fékk að njóta sín á einhvern óútskýr-
anlegan hátt.“/17
Morgunblaðið/Árni Torfason
Kryddað
allskonar
blæbrigðum
TÆPLEGA tvítugur piltur lést
samstundis, að því er talið er, og
þrír slösuðust alvarlega í hörðum
árekstri jeppa og fólksbíls á Suður-
landsvegi við Þrengslavegamót
skömmu fyrir klukkan sjö í gær-
morgun, að sögn lögreglunnar á
Selfossi. Mikil hálka var á veginum.
Fimm manns voru í hvorum bíl,
allir í bílbeltum, að sögn lögreglu. Í
fólksbílnum voru fimm ungmenni
en hjón með þrjú börn í jeppanum. Í
gærkvöldi voru þrjú ungmennanna
á gjörgæsludeild, einu var haldið
sofandi í öndunarvél en hin voru við
betri líðan, að sögn vakthafandi
læknis. Að sögn lögreglu var fólks-
bíllinn á leið í austur en jeppanum
var ekið í átt til Reykjavíkur þegar
bílarnir skullu nánast hvor beint
framan á öðrum í beygju sem er
austan megin við gatnamótin. Ljóst
er að áreksturinn var geysiharður
enda eru bílarnir gjörónýtir. Við
áreksturinn rifnaði undirvagninn
undan jeppanum sem hafnaði á
hvolfi utan vegar og beita varð
klippum til að komast að farþegum í
aftursæti fólksbílsins.
Tilkynning um slysið barst rétt
fyrir klukkan sjö um morguninn.
Lögreglumaður sem var á leið á
vakt á Selfossi var meðal fyrstu
manna á vettvang og gat hann gefið
greinargóðar upplýsingar um að-
stæður á vettvangi ásamt því að
hlúa að hinum slösuðu. Þyrla Land-
helgisgæslunnar var þegar kölluð út
og sjúkra- og björgunarlið sent á
vettvang frá Hveragerði, Reykjavík
og Selfossi, að sögn lögreglu. Fjórir
voru fluttir með þyrlu á slysadeild
en fimm með sjúkrabílum. Tildrög
slyssins eru í rannsókn.
Fjórða banaslysið
Þetta var fjórða banaslysið í um-
ferðinni hér á landi á þessu ári.
Þann 17. febrúar lést maður þegar
hann ók vélsleða fram af hengju á
Landmannaleið. Þar sem slysið
varð við veginn er það skráð sem
umferðarslys en hefði það orðið ut-
an vega hefði það verið skráð sem
frístundaslys, skv. upplýsingum frá
Umferðarstofu. 2. mars lést öldruð
kona eftir að ekið var á hana á
Snorrabraut í Reykjavík og daginn
eftir beið tvítugur maður bana í
hörðum árekstri tveggja fólksbíla á
blindhæð skammt norður af Kópa-
skeri. Þá lést kona í umferðarslysi á
Kanaríeyjum 10. febrúar.
Einn lést og annar er í
öndunarvél eftir árekstur
Mjög harður árekstur jeppa og fólksbíls á Suðurlandsvegi
við Þrengsli Þriðja banaslysið á fimm dögum í umferðinni
Morgunblaðið/Jón H. Sigmundsson
Tíu voru í bílunum og var aðkoma að slysinu mjög slæm. Þetta var fjórða banaslysið í umferðinni hér á landi á þessu ári.
VERÐI tillaga um varasjóð Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur (VR) samþykkt
geta félagsmenn m.a. ráðstafað fé, sem
áður fór í niðurgreiðslu á orlofshúsum fé-
lagsins, til hvers kyns annarra orlofs-
mála. Þar sem stór hluti varasjóðsins
mun skv. tillögunni byggjast á gjöldum
sem áður runnu í orlofssjóð mun þetta
væntanlega hafa í för með sér um 20 þús-
und króna verðhækkun á vikudvöl í or-
lofshúsum VR um hásumarið. Kjósi fé-
lagsmenn að nýta varasjóðinn til að
greiða dvölina niður, geta þeir auðvitað
gert það. En þeir geta líka notað féð til
Spánarferðar sýnist þeim svo.
Tillaga stjórnar VR um stofnun vara-
sjóðs fyrir félagsmenn verður lögð fyrir
aðalfund 14. mars nk.
Gunnar Páll Pálsson, formaður VR,
segir að ekki sé verið að taka aukna fjár-
muni af félagsmönnum og atvinnurekend-
um heldur taka þá sem fyrir séu og beina
þeim í aðra átt en áður. „Segja má að við
hættum styrkjum til líkamsræktar og
gleraugnakaupa og að við hækkum veru-
lega dvöl í orlofshúsi.“
Vikudvöl
hækkar um
20 þúsund
Efling/8
♦♦♦
STJÓRN Handknattleikssambands Ís-
lands leggur fram tillögu á ársþingi sam-
bandsins um næstu helgi, þess efnis að úr-
slitakeppni verði lögð niður á
Íslandsmótinu frá og með næsta tímabili.
Þess í stað verði það lið sem efst verður í
deildakeppninni krýnt Íslandsmeistari.
Þetta á við bæði í meistaraflokki karla og
kvenna. Jafnframt verði frá og með haust-
inu 2006 leikið í 8 liða úrvalsdeildum hjá
báðum kynjum.
Ef tillagan nær fram að ganga, verður
leikið í einni deild næsta vetur, bæði hjá
körlum og konum, og átta efstu liðin vinna
sér sæti í úrvalsdeildinni./Íþróttir
Átta liða úrvals-
deild í handbolta?
♦♦♦
Lést í bílslysi á
Suðurlandsvegi