Morgunblaðið - 07.03.2005, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MARS 2005 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Hörjakkar og buxur
Borgartúni 28, símar 520 7901/520 7900
www.ef.is
• Hagstætt verð
Atvinnuhúsnæði - óskast
Fyrir trausta aðila erum við nú að leita eftir :
1.200-400 fm góðu verslunarhúsnæðitil kaups eða leigu
miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Bílastæði og góð aðkoma er skilyrði.
2.100-200 fm skrifstofuhúsnæði miðsvæðis á höfuðburg-
arsvæðinu til kaups eða leigu fyrir lögmenn og þjónustu-
starfsemi tengdri lögmennsku.
Allar nánari upplýsingar gefgur Brynjólfur Jónsson
Fasteignasala Brynjólfs Jónssonar, sími 511 1555.
ÓLAFUR F. Magnússon borgar-
fulltrúi F-listans, vill taka eftirfar-
andi fram vegna fréttar í gær af
landsfundi Frjálslynda flokksins.
„Af frétt á bls. 2 í Morgunblaðinu,
sunnudaginn 6. mars sl., mátti skilja
að Frjálslyndir í borgarstjórn væru
alfarið á móti flutningi Reykjavíkur-
flugvallar í framtíðinni. Afstaða borg-
arstjórnarflokksins er hins vegar sú
að hann er á móti flutningi á starf-
semi Reykjavíkurflugvallar til Kefla-
víkur og telur að innanlandsflug þurfi
að vera áfram staðsett á höfuðborg-
arsvæðinu. Það útiloki þó ekki mögu-
leika á flutningi vallarins úr Vatns-
mýrinni á annan stað á
höfuðborgarsvæðinu eftir árið 2024,
en R-listinn hefur nú fest flugvöllinn í
sessi fram að þeim tíma með sam-
komulagi borgarstjóra og samgöngu-
ráðherra um samgöngumiðstöð við
Reykjavíkurflugvöll.
Í ræðu minni á landsfundi Frjáls-
lynda flokksins sagði ég m.a.:
„Flugvallarmálið er nú komið aftur
á byrjunarreit eins og þið vitið, með
tillögu um samgöngumiðstöð, þar
sem greinilega er gert ráð fyrir því að
flug sé ekkert á förum frá borginni
fyrir árið 2024. Þannig að það er al-
veg ljóst að R-listinn hefur kúvent í
þessu máli.
Mín afstaða í þessu máli og borg-
arstjórnarflokks F-listans hefur verið
sú að vissulega er mikilvægt að vinna
aukið landrými undir byggð í Vatns-
mýri, en það að ætla sér að flytja flug
frá Reykjavík til Keflavíkur, hér og
nú, það er hrein fásinna að mínu mati.
Innanlandsflug myndi leggjast niður.
Það er verið að vinna af dálítið meiri
skynsemi í þessum málum. Það er
verið að flytja burt æfingaflug, einka-
flug og ýmislegt, sem ekki á heima
nálægt borginni. Það er verið að
vinna land við flugvöllinn. Það er ljóst
að innanlandsflug þarf ásamt sjúkra-
og öryggisflugi að vera áfram til stað-
ar á næstu árum þarna. Enda verður
flugvöllurinn eins og ég sagði áðan
rekinn áfram að verulegu leyti í
óbreyttri mynd til ársins 2016 og
a.m.k. austur/vestur brautin til 2024.
Ég vona að menn beri gæfu til að
ná að sameina þessi atriði, að vinna
aukið land undir byggð miðsvæðis í
borginni, en halda þannig á málum,
að samgöngumál við Reykjavík og
innanlandsflug fari ekki forgörðum.“
Á móti flutningi
flugs til KeflavíkurFRAMKVÆMDIR eru að hefjastvið endurbætur á Austurstræti 17,
þar sem verslunin 10-11 er m.a. til
húsa. Suðurhlið hússins verður al-
gjörlega endurnýjuð. Skipt verður
um gler og glugga. Þá verður gert
við steypuskemmdir og steyptir
fletir hússins málaðir. Loks verður
hluti hússins álklæddur. Eik fast-
eignarfélag hf. á húsið og stendur
fyrir breytingunum.
Garðar Hannes Friðjónsson,
framkvæmdastjóri Eikar, segir
það sannarlega ánægjuefni að taka
þátt í því að snúa við þeirri þróun
sem átt hafi sér stað á und-
anförnum árum, þar sem sífellt
fleiri fyrirtæki færa sig frá mið-
bænum. „Til þess að lífga mið-
borgina við þurfum við ekki hvað
síst að fleiri fyrirtæki færi sig á
þessar slóðir,“ segir Garðar Hann-
es Friðjónsson, framkvæmdastjóri
Eikar, en félagið á nú húsnæði
sem þekur yfir 22 þúsund fer-
metra í póstnúmerinu 101 Reykja-
vík.
Samhliða andlitslyftingunni
verða gerðar ýmsar breytingar á
verslun 10-11 á fyrstu hæð húss-
ins. Þeim breytingum er ætlað að
koma til móts við kröfur við-
skiptavina og auka úrval tilbúinna
rétta, bjóða upp á nokkurs konar
miðbæjarbístró þar sem við-
skiptavinir geta setið inni í versl-
uninni og notið veitinga.
Framkvæmdirnar hefjast í dag.
Teiknistofa Halldórs Guðmunds-
sonar hannaði nýtt útlit húsnæð-
isins og er verkefnisstjórnin í
þeirra höndum. Mworldwide og
Arkís sjá um hönnun nýs húsnæðis
fyrir 10-11.
Austurstræti 17 breytist í útliti
Ásýnd götunnar verður önnur þegar búið verður að breyta húsinu.
TAFLFÉLAGIÐ Hellir vann
öruggan sigur á Íslandsmóti skák-
félaga um helgina. Taflfélag Reykja-
víkur var með forystu framan af
mótinu en missti dampinn þegar leið
á mótið og varð í öðru sæti. Hellir
fékk 43 vinninga en TR 37 vinninga.
Taflfélag Vestmanneyja varð í því
þriðja með 36,5 vinninga. A-sveit
Skákdeildar Hauka í Hafnarfirði
sigraði mjög örugglega í 2. deild og
fylgja Selfyssingar þeim í efstu deild
að ári. C-sveit Hellis sigraði í 3. deild
og b-sveit Hauka í 4. deild.
Hellir og Haukar voru því ótvírætt
sigurvegarar keppninnar, en félögin
sigruðu í tveimur deildum hvort fé-
lag.
Á mótinu kepptu bæði börn og
fullorðnir af báðum kynjum. Þótti
mótið takast einstaklega vel.
Hrókurinn keppti ekki á mótinu
að þessu sinni en félagið sigraði í
fyrra.
Morgunblaðið/Ómar
Á myndinni eiga Hellismenn við skákmenn frá Taflfélagi Reykjavíkur.
L.t.h. er Helgi Áss Grétarson stórmeistari sem tefldi fyrir hönd Hellis.
Hellir vann Íslands-
mótið með yfirburðum
MIÐSTJÓRN Rafiðnaðarsam-
bands Íslands segist telja að
tímabært sé fyrir verkalýðs-
hreyfinguna að endurskoða
hvernig staðið sé að hátíðarhöld-
um 1 maí. Kröfugangan sé barn
síns tíma og fari því fjarri að
hún standi undir þeim vænting-
um sem hinn almenni félagsmað-
ur geri í dag. Lítil þátttaka
ásamt athöfnum margskonar
öfgahópa hafi eyðilagt þá áferð
sem verið hafi á þessum degi.
Miðstjórn RSÍ segist telja, að
núverandi fyrirkomulag sé
verkalýðshreyfingunni ekki til
framdráttar og fyllilega tíma-
bært að nálgast viðhorf nú-
tímans og ná jákvæðri athygli.
Leggur miðstjórnin til að stétt-
arfélögin í Reykjavík sameinist
um að halda víðtæka fjöl-
skylduhátíð í Laugardalnum. Þá
leggur miðstjórn Rafiðnaðar-
sambandsins til að verkalýðs-
hreyfingin sameinist ásamt
Samtökum atvinnulífsins sam-
einust um að tekið verði upp það
fyrirkomulag að ætíð verði frí
fyrsta föstudag í maí í stað hins
hefðbundna frídags 1. maí og
hátíðarhöld flytjist yfir á þennan
föstudag.
1. maí verði fjölskylduhátíð