Morgunblaðið - 07.03.2005, Qupperneq 16
16 MÁNUDAGUR 7. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Áhrif áfengis á kynin eruekki eins og þá skiptirstærð viðkomandi einnigmáli hvað þetta varðar.
Áfengi hefur í áraraðir verið notað
eða misnotað í ýmsum tilgangi m.a.
til lækninga en þó mest til að komast
í vímukennt ástand. Ýmsar auka-
verkanir fylgja neyslu áfengis bæði
líkamlegar og andlegar og þá eru
ótaldir þeir alvarlegu sjúkdómar
sem rekja má til langvarandi áfeng-
isneyslu, þ.á m. alvarlegar og jafnvel
banvænar skemmdir á lifrinni, melt-
ingartruflanir, ýmsir geðrænir kvill-
ar og aukin hætta á krabbameini og
sérstaklega á brjóstakrabbameini
hjá konum sem drekka óhóflega.
Lifrin ræður við einn
sjúss á klukkustund
Áfengi leysist upp í meltingarveg-
inum og um það bil 10–20% strax í
maganum. Matur hefur því áhrif á
hversu auðveldlega áfengi kemst í
æðakerfið og út til líffæranna. Í
meltingarveginum eru nokkrir efna-
hvatar sem brjóta niður áfengi áður
en það kemst út í blóðið. Lifrin
gegnir svo því hlutverki að losa lík-
amann við áfengi með því að um-
breyta því í önnur efni. Starfsemi
lifrarinnar er stöðug og sami hraði
helst á efnaskiptunum, jafnvel þótt
áfengi í blóðinu aukist. Lifrin brýtur
því alltaf niður sama magn af áfengi
– sem er um það bil einn áfeng-
issjúss á klukkustund – og engin ut-
anaðkomandi áhrif, s.s. göngur,
kaffidrykkja eða sturta, hraða starf-
semi lifrarinnar. Lifrin losar líkam-
ann við um 90% af áfenginu á þenn-
an hátt og einungis 5–10% af
áfenginu er skilað óbreyttu úr lík-
amanum gegnum öndun, þvaglát og
svita.
Konur þola minna af áfengi
Í ljósi skaðsemi áfengis er vert að
leiða hugann að mismunandi áhrif-
um þess á kynin og benda á ýmsa
þætti sem skipta máli þegar verið er
að meta áhrif þess. Hæð, þyngd og
kyn skipta þarna töluverðu máli.
Það þykir nægilega sannað að áfengi
hefur meiri áhrif á konur en karla.
Þær þola u.þ.b. 30% minna af áfengi
en karlar, þ.e.a.s. þurfa minna magn
en karlar til að verða drukknar.
Ástæðurnar eru nokkrar – og stund-
um persónulegar eða félagslegar –
en mestu skiptir þó að konur eru yf-
irleitt minni og léttari en karlar og
efnaskiptin eru ekki eins og hjá körl-
unum. Þá hafa konur minna vatn í
líkamanum en karlar en vatnið í lík-
amanum þynnir út áfengið. Hjá körl-
um er um það bil 60% af líkams-
þyngdinni vatn en heldur minna hjá
konum. Konur hafa einnig minna af
þeim efnahvötum sem brjóta niður
áfengi. Þetta skýrir að einhverju
leyti af hverju konur eru með meira
magn áfengis í blóði en karlar eftir
að hafa drukkið sama magn af
áfengi. Sem dæmi má nefna að ef
karl sem vegur 90 kg og kona sem
vegur 70 kg drekka sama magn
áfengis verður konan fyrir mun
meiri áhrifum en karlinn. Af þessum
ástæðum eru konur viðkvæmari fyr-
ir líffæraskemmdum og þá einkum
lifrarskemmdum. Þá er konum sem
drekka reglulega áfengi og gætu tal-
ist til áfengissjúklinga hættara við
að hafa óreglulegar blæðingar, oft
með miklum verkjum, og missa jafn-
vel úr tíðahringnum. Þetta getur
haft áhrif á frjósemi kvenna og jafn-
vel flýtt fyrir breytingaskeiðinu.
Ungar stúlkur og áfengi
Ungar stúlkur eru sérlega við-
kvæmar fyrir áhrifum áfengis vegna
ofangreindra líkamlegra atriða. Þær
geta því auðveldlega misst stjórn á
aðstæðum og umhverfi. Alvarlegar
afleiðingar áfengisneyslu ungra
stúlkna eru margar og alvarlegastar
eru: nauðganir, ótímabær þungun,
kynsjúkdómar, brottfall úr skóla
vegna þungunar og barnsburðar,
andleg vanlíðan og jafnvel þung-
lyndi.
Meðganga og brjóstagjöf
Á meðgöngu og meðan á brjóstagjöf
stendur ættu konur alls ekki að
neyta áfengis. Blóðkerfi barns og
móður er samtengt og áfengi á því
auðvelda leið í gegnum fylgju og
naflastreng. Líffæri barnsins eru
ekki nægilega þroskuð til að brjóta
áfengið niður og barnið verður þar
af leiðandi fyrir meiri áhrifum en
móðirin. Það þykir allvel sannað að
áfengisneysla á meðgöngu getur
haft alverleg skaðleg áhrif á fóstrið
og leitt til fæðingargalla. Ef móðir
neytir áfengis með barn á brjósti
fær barnið hluta af áfenginu með
brjóstamjólkinni og verður þar af
leiðandi fyrir áfengisáhrifum. Þau
tengsl sem myndast milli móður og
barns geta einnig brenglast þar sem
áfengisdrykkja getur dregið úr
mjólkurframleiðslu, mjólkin breytir
um lykt og bragð og getur því orðið
ógeðfelld fyrir barnið.
HOLLRÁÐ UM HEILSUNA | Lýðheilsustöð
Áfengi skað-
legra konum
en körlum?
Ýmsar aukaverkanir fylgja neyslu áfengis, líkamlegar og andlegar, og þá
eru ótaldir þeir sjúkdómar sem rekja má til langvarandi áfengisneyslu.
Rafn M. Jónsson, verkefnisstjóri
áfengis- og vímuvarna, Lýð-
heilsustöð.
Ínýlegu húsnæði að Litlabæ á Vatnsleysu-strönd, steinsnar frá Kálfatjarnarkirkju,hefur listasmiðurinn Geir Oddgeirsson kom-ið sér fyrir í fallegu umhverfi. Hann hefur nú
nýlokið við að smíða á verkstæðinu sínu sérhannað
borð og tíu stóla úr sérvalinni eik eftir hönnuðinn
Pétur B. Lúthersson og er formleg sýning á herleg-
heitunum í húsnæði Handverks og hönnunar við
Aðalstræti.
Að sögn þeirra Péturs og Geirs má nota borðið
ýmist sem fundarborð eða sem borðstofuborð. Hús-
gögnin eru til sölu og ef þau falla í frjóan jarðveg og
markaður reynist hér vera fyrir vandaða sérsmíði,
má gera ráð fyrir að brugðist verði við því á ein-
hvern hátt, en sú smíði, sem nú er nýafstaðin og
birtist á sýningunni, hefur svo sannarlega kallað á
fagkunnáttu handverksmannsins.
„Iðnaður á Íslandi hefur undanfarin ár átt nokk-
uð undir högg að sækja vegna aukins innflutnings
húsgagna frá láglaunasvæðum í Austur-Evrópu og
Asíulöndum sem örðugt hefur reynst að keppa við.
Gæði og vandaður frágangur eru ekki lengur sett í
forgang heldur hefur harðnandi samkeppni sett
mark sitt á framleiðsluna þrátt fyrir að hér sé til
staðar fjöldi frábærra iðnaðarmanna á þessu sviði.
Í sumum tilfellum er afar erfitt að greina hvar skil-
in eru milli handverks og iðnaðarframleiðslu. Ná-
grannaþjóðum okkar, svo sem Dönum og Þjóð-
verjum, hefur með kunnáttu og færni tekist að
framleiða „handverk“ sem að sumu leyti er fjölfald-
að með vélum. Til þessa þarf kunnáttu handverks-
mannsins og samtímis tækni og hugvit. Oft hefur
mér fundist að hæfileikaríkir fagmenn hafi verið að
sinna framleiðslustörfum, sem ekki eru samboðin
kunnáttu þeirra og hæfileikum, svo sem ódýrum
iðnaðarinnréttingum auk þess sem þeir hafa oft og
tíðum þurft að selja vinnu sína ódýrt til að standast
samkeppnina. Þegar svo er háttað gefur auga leið
að endurnýjun er ekki mikil í þessum iðngreinum.
Kunnáttan gengur ekki í arf og virðing fyrir faginu
er langt frá því sem vert væri,“ segir Pétur.
Kunnátta og hæfni
Geir lauk sveinsprófi í húsgagnasmíði árið 1963 og
stofnaði ásamt félaga sínum, Birni R. Lárussyni,
Trésmiðjuna Grein í Kópavogi árið 1967, en Björn
lést fyrir fimm árum. Þeir félagar hafa unnið að
fjölmörgum verkefnum við þekktar byggingar á
höfuðborgarsvæðinu, sem krafist hafa kunnáttu og
hæfni. Nefna má sérstaklega endurbyggingu Bað-
stofu iðnaðarmanna eftir bruna í Iðnaðarmanna-
húsinu við Tjörnina, en þær innréttingar kröfðust
mikillar nákvæmni til að standast samanburð við
frumgerðina. Hann hefur einnig smíðað innrétt-
ingar í Ráðhús Reykjavíkur, Þjóðarbókhlöðuna og
nýbyggingu Hæstaréttar svo og bekki í Fríkirkj-
una við Tjörnina eftir teikningum Péturs B. Lúth-
erssonar.
„Mér finnst mun skemmtilegra að smíða hús-
gögn en innréttingar, en við húsgagnasmiðirnir,
sem eftir erum í faginu, erum að verða hálfgerðir
forngripir. Lítið er um að ungt fólk stoppi við í fag-
inu enda er samkeppnin við innflutninginn geysi-
hörð. Við störfum nú orðið bara tveir í fyrirtækinu,
en vorum sjö þegar mest lét. Ég er þó á þeirri skoð-
un að fólk vilji hafa húsgagnaflóruna sem breiðasta
því sumir vilja kaupa dýrar og vandaðar mublur á
meðan aðrir kjósa að versla ódýrar. Ég sé það því
fyrir mér að innlend vönduð húsgagnasmíði ætti að
geta lifað með ódýrum innflutningi, líkt og gerst
hefur hjá Dönum,“ segir Geir.
Pétur lærði húsgagnasmíði og hefur meist-
araréttindi í þeirri grein. Hann nam hönnun hús-
gagna og innréttinga í Kaupmannahöfn og starfaði
þar við hönnun í nokkur ár. Pétur hefur starfað
með flestum þekktari framleiðendum húsgagna á
Íslandi og hannað fjölda húsgagna og húsmuna sem
þekkt eru um allt land svo sem STACCO-stólinn,
sem framleiddur hefur verið allt frá árinu 1981.
Ennfremur hefur hann hannað og þróað húsgögn í
samstarfi við mörg erlend fyrirtæki, svo sem Ros-
enthal og Heinrich Brune í Þýskalandi, Tonon á
Ítalíu, Labofa í Danmörku svo nokkur séu nefnd.
HÖNNUN | Kunnátta handverksmannsins nýttist í listasmíði eftir íslenskan hönnuð
Húsgagnasmiðir að verða
hálfgerðir forngripir
Morgnunblaðið/RAX
Geir Oddgeirsson hefur nýlokið við að smíða á verkstæðinu sínu sérhannað borð og tíu stóla úr sér-
valinni eik eftir hönnuðinn Pétur B. Lúthersson.
Sýningin stendur til 20. mars og er opin alla daga
frá kl. 13.00–17.00, en auk nýju hönnunarinnar
sýnir leirlistakonan Kristín Sigfríð Garðarsdóttir
borðbúnað, sem hún hannar og framleiðir.
FRÁ OG með 1. maí nk. gefur
Tryggingastofnun út evrópskt
sjúkratryggingakort sem
kemur m.a. í stað vottorðanna
E-111 og E-128. Mælt er með
því að ferðafólk á leið til Evr-
ópulanda sæki um evrópska
sjúkratryggingakortið hjá
Tryggingastofnun, að því er
Samtök ferðaþjónustunnar
(SAF) benda m.a. á. Hand-
hafar kortsins eiga rétt á að fá
heilbrigðisþjónustu innan
EES-ríkjanna gegn sama
gjaldi og þeir sem tryggðir
eru í hverju EES-ríki fyrir sig,
að því er fram kemur í frétta-
bréfi SAF.
Eftirtalin EES-lönd gefa
þegar út evrópskt sjúkra-
tryggingakort: Belgía, Dan-
mörk, Eistland, Finnland,
Frakkland, Grikkland, Írland,
Ítalía, Lúxemborg, Noregur,
Spánn, Slóvenía, Svíþjóð,
Tékkland og Þýskaland.
Tímabundinn aðlög-
unarfrest hafa auk Íslands
m.a. Austurríki, Holland,
Portúgal, Bretland, Lettland,
Sviss, Pólland og Ungverja-
land. Ríkisborgarar EES
þurfa að framvísa evrópsku
sjúkratryggingaskírteini
ásamt vegabréfi þegar þeir
þurfa á heilbrigðisþjónustu að
halda. Þeir sem eru búsettir
og tryggðir á Norðurlöndum
þurfa þó eingöngu að framvísa
skilríkjum sem staðfesta bú-
setu á Norðurlöndum.
FERÐALÖG |
Evrópskt sjúkra-
tryggingakort
Kortið er
nauðsyn-
legt fyrir
ferðafólk
Hægt verður að sækja um
kortið á heimasíðu TR,
http://www.tr.is/ frá og með
1. maí nk.
Hjá konum sem drekka
áfengi óhóflega er aukin
hætta á brjóstakrabba-
meini.
Kona sem drekkur sama
magn af áfengi og karl
verður drukknari en hann.
Mikil áfengisneysla getur
flýtt fyrir breytingaskeið-
inu.
Barnsins vegna á engin
áfengisneysla að vera á
meðgöngu og meðan á
brjóstagjöf stendur.